Morgunblaðið - 14.01.1990, Blaðsíða 10
íó............-............. 14. JANÚAR 1990-
4
eftir Friðrik Indriðason
HREINT LAND - fagnrt land?
Á síðustu fjórum árum hafa
rúmlega 800.000 lítrar af olíu
runnið út í umhverfíð hér á
landi í mengunarslysum.
Talið er að búnaður sem inni-
haldi eiturefiiið PCB sé um
1.000 tonn hérlendis en aðeins
hafa verið fluttir utan til eyð-
ingar nokkrir tugir tonna af
þeim búnaði.
Mengun frá útblæstri bifreiða
er sú sama, eða meiri, í
Reykjavík og erlendum borgum
með svipaðan umferðarþunga.
Á hverju ári er hellt tæplega
2.000 tonnum af úrgangsolíu
úr fiskiskipum í sjó hér við land.
Mengunar-, eða umhverfísmál,
heyra nú undir nánast öll ráðu-
rieytin. Skortur á samræmdri
yfirstjórn þeirra hérlendis háir
Islendingum mjög í alþjóðlegu
samstarfi um umhverfismál.
íslendingar hafa löngum státað
sig af því að vera með hrein-
asta loft og vatn sem fínnst á
byggðu bóli í heiminum. En
þeir hafa fúrðulega lítið gert
til að vernda þessi lífsgæði á
undanförnum áratugum eða
unnið að forvarnarstarfi til að
viðhalda þessum gæðum í
framtíðinni. Raunar má segja
að mengunarvarnir hérlendis
séu um tíu árum á eftir því sem
gengúr og gerist í nágranna-
löndum okkar. Heilsteypt
mengunarvarnareglugerð varð
ekki að veruleika fyrr en um
síðustu áramót en mörg ákvæði
hennar eru þverbrotin víða um
land.
er lekinn frá geymi ratsjárstöðvar
Atlantshafsbandalagsins á Bola-
fjalli við Bolungarvík í nóvember.
Ur geyminum runnu 25.500 lítrar
af olíu en hún hafði verið flutt ólög-
lega í geyminn þar sem ekki hafði
enn verið komið upp nauðsynlegum
vörnum gegn leka við hann. Ríkis-
saksóknari hefur nú þetta mál til
rannsóknar og er niðurstöðu að
vænta bráðlega.
Olíugeymar eru til staðar við
næstum hverja einustu höfn á
landinu. Hinsvegar er ekki að finna
nauðsynlegar varnir gegn Iekum
úr þeim, svipuðum og lekanum á
Bolafjalli, nema geymarnir hafi
verið byggðir eftir árið 1982 er lög
voru sett um slíkt. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Eyjólfi Magnússyni
hjá Siglingamálstofnun eru 98 olíu-
birgðastöðvar nú í rekstri hérlendis.
Af þeim eru 72 byggðar fyrir 1982
og 26 eftir þann tíma. Er því megn-
ið af olíugeymum við íslenskar
hafnir ekki með þessar varnir. Þar
að auki er ómögulegt í fjölda til-
fella að koma slíkum vömum við
nema færa geyminn úr stað.
Olíumengunarmál heyra undir
Siglingamálastofnun. Magnús Jó-
hannesson siglingamálastjóri segir
að varnir íslendinga gegn olíum-
engun séu í lamasessi. Ekki er að-
eins um að ræða að varnir séu ekki
til staðar við megnið af olíugeymum
hérlendis heldur er búnaður til að
hreinsa upp olíuna, fari hún út í
umhverfið, af mjög skornum
skammti. Búnað til að bregðast við
olíuleka með skjótum hætti er að-
eins að finna í þremur höfnum á
landinu, Reykjavík, Isafirði og
Akranesi. Til skamms tíma var
slíkur búnaður einnig til staðar á
Akureyri en Magnús segir að hann
sé ekki lengur í nothæfu ástandi.
„Við höfum reynt á undanförnum
árum að byggja upp búnað til meng-
unarvarna í höfnum landsins en
gengið illa. Okkur finnst vera tak-
markaður skilningur á þessum mál-
um hjá syeitarstj órnum, “ segir
Magnús. „Meðal annars höfum við
lagt fyrir sveitarstjórnir tillögur um
að þjálfa upp fyrir þær mannskap
til að bregðast við hugsanlegum
vanda á þessu sviði en fengið dræm-
ar undirtektir. Það er yfirleitt borið
við fjárskorti."
Aðeins helmingur
úrgangsolíu skipa skilar sér
Samkvæmt lögum ber öllum
Nýtt íslenskt umhverfis-
málaráðuneyti á að líta
dagsins ljós í upphafi
næsta mánaðar sam-
kvæmt samkomulagi því
sem gert var þar um í
ríki^stjórninni seint á
síðásta ári. Þessa ráðu-
neytis bíða gríðarleg verkefni á
vettvangi mengunarmála því eins
og væntanlegur umhverfismálaráð-
herra, Júlíus Sólnes, bendir á er
ísland matvælaframleiðsluland og
því brýntað vei sé haldið á spöðun-
um hvað mengunarvamir varðar.
Varnir gegn olíumengun
í lamasessi
Einhver alvarlegustu mengunar-
spjöli sem geta orðið hérlendis eru
olíulekar. Nýjasta dæmið um slíkt