Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 12
12
MOHGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
'
! m wm m.« »s
m s
í ss
VERKST JÓRN - grunnnámskeið
Námskeiö ætlaö nýjum stjórnendum og þeim
sem haffa áhuga á aö bæta námi viö reynslu.
Verkstjórnarfræöslan býöur nú nýtt námskeiö um grundvallar-
atriði stjórnunar. Markmiö námskeiösins er aö þátttakendur
kynnist og læri aö beita grundvallarþáttum stjórnunar, þáttum
sem eru sameiginlegir öllum stjórnendum, óháö starfsgreinum.
Námskeiöinu er skipt í fimm meginþætti:
- Samvinna og samskipti, þ.e. mannleg samskipti frá sjónarhóli stjórnandans
- Verkstjórn og vinnutækni
- Verkskipulagning og tímastjómun
- Vinnuhagræöing
- Öryggismál og vinnuvernd
Kennt er á Iðntæknistofnun íslands,
dagana 30. jan. - 3. feb. 45 kennslustundir.
Upplýsingar og skráning í síma 91-687000
og 91-687440.
ntæknisitof nun 11
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSUNDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Simi (91) 68 7000
inniiffiHBiaiiiHiiiiiMi
m m m. m m i
TILBOÐ OSKAST
i Ford Bronco II, Eddie Bauer, 4x4 árgerð '86 (ekinn 41 þús. mílur), ásamt
öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 16. janúar
kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
Sala varnarliðseigna.
Sinfóníuhlj ómsveitin:
Brahmstónleik-
ar í Háskólabíói
Tónlist
Ragnar Bjömsson
Hið rómantíska yfirbragð
Brahms leysir flytjandann ekki
undan þeirri skyldu að spila
nákvæman ritma. Brahms-
línuna þurfa hljóðfærin að
syngja og ef skáldlegt innsæi
vantar í flutninginn er betur
heima setið. Þetta er jú einfald-
ur sannleikur sem allir vita. En
hér er auðveldara um að ræða
en í að komast og öllum er ekki
gefið að laða fram ljóðrænu,
þunglyndi og glettni Brahms,
eða að þroskinn til þess er ekki
kominn. Strax í upphafi Ti-ag-
iska forleiksins var hraðavalið
óskýrt, ritminn ónákvæmur, for-
teið aðeins forte án tilgangs og
söngur allur víðs fjarri. Hér skal
tekið fram að ekkert af þessum
vanköntum er hljómsveitarmeð-
limunum að kenna, þeir hafa oft
skilað Brahms eins og til er
ætlast. Vöntunin að þessu sinni
bjó í stjórnandanum. Þessi ágall-
ar héldu áfram í D-dúr sinfóní-
unni (,,Sveitasinfóníunni“).
Hraðavalið í byijun of hratt,
mótífin fengu ekki tíma til þess
að breiða úr sér, sönginn vant-
aði og forteið því gróft. Tempóið
í þriðja þættinum er mjög við-
kvæmt, má hvorki vera of hægt
né of hratt vegna presto-hlut-
ans. Því miður hitti stjórnandinn
ekki á réttan hraða og hlustaði
maður því sem á nálum á prestó-
ið, en þar stendur „non assai“.
Síðasta þættinum verður að
stjórna á rólegum tveim ef
hljómsveit á að ráða við að „in-
tónera“ og fá tíma til að músis-
era,en þátturinn var yfirkeyrður
og í þessum flutningi ekki sá
Brahms sem við höfum oft heyrt
í meðferð hljómsveitarinnar.
Best skiluðu sér staðir í öðrum
þættinum þar sem hljómsveitin
fékk tíma til að tjá sig. Upp úr
stóð samleikur þeirra 'Guðnýjar
Guðmundsdóttur og Gunnars
Kvaran í Konsertinum fyrir fiðlu
og selló. Þennan mjög svo erfiða
konsert fluttu þau af öryggi,
yfii-vegun og skilningi. Þar í
salnum sem undirritaður sat
hljómaði fiðlan of veikt á móti
sellóinu, en þeim sem aftar sátu
í salnum fannst það gagnstæða.
Þetta er aðeins eitt dæmið um
það hvað aðkallandi er að tón-
listarhúsið verði sem fyrst annað
og meira en draumur sem ræt-
ast mætti áður en handboltahöll
ópus ? rís. Kannske ætti ég að
læsa þennan ritdóm niður í
skúffu, því Sakari hefur vissu-
lega gert góða hluti og á von-
andi eftir að gera, en tími hans
sem Brahms-stjórnandi er enn
ekki kominn. En mætti maður
um leið spyrja, hefur íslenskum
hljómsveitarráðunautum _ aldrei
dottið í hug að til væru íslend-
ingar sem lært hafa hljómsveit-
arstjórn og gætu stjórnað
Brahms og kannske einhverju
fleiru?
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur
námskeió í skyndihjálp
sem hefst þriðjudaginn 16. janúar kl. 20 á Öldu-
götu 4 og stendur yfir í 4 kvöld.
Kennt verður 16., 18., 22. og 24. janúar.
Skráning í síma 28222.
Leiðbeinandi: Guðlaugur Leósson.
Öllum heimil þátttaka, 15 ára og eldri.
Skráió ykkur strax
Rauði Krosslsiands
Um áramótin lækkaði allt lambakjöt um 8,8%.
I Sparaðu og kauptu lambakjöt.
SAMSTARFSHOPUR
U M SÖLU LAMBAKJÖTS
J______