Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 14
í DRAUMAVERKSMIÐJUNNI
eftir Svein Guðjónsson og Jóhönnu Ingvarsdóttur
„ÞEIR ERU rjóminn í þessum bransa og ég vinn varla með öðrum,“ segir Jeflfrey Ayeroff,
forseti Virgin Records hljómplötufyrirtækisins.
„Propaganda er eins og Þriðja ríkið og við hinir eins og Pólland,“ segir einn af
samkeppnisaðilunum.
Draumurinn um frægð og frama blundar með okkur flestum en oftast verða menn að láta
sér bara nægja að dreyma. Stundum rætast slíkir draumar og þótt hér skuli engum getum
að því leitt hvort Sigurjón Sighvatsson dreymdi stóra drauma um frægð í Hollywood er
hitt staðreynd, að hana hefur hann öðlast, eins og framangreindar tilvitnanir bera vitni.
Fyrirtækið Propaganda Films, sem hann rekur ásamt Bandaríkjamanninum Steve Golin,
er nú orðið stærsta fyrirtækið í framleiðslu tónlistarmyndbanda vestan hafs og meðal
viðskiptavina þess eru stórstjörnur á borð við Madonnu, Prince, Sting, Jody Watley, Paula
Abdul og hljómsveitirnar Fleetwood Mac og U2. Auk þess hefur fyrirtækið haslað sér völl
á sviði kvikmyndagerðar og þáttaraðir fyrir sjónvarp eru í farvatninu. Heildarveltan á
síðasta ári vaf um 3,6 milljarðar íslenskra króna og umsvifin aukast stöðugt.
Meðal viðskiptavina
og samstarfsfólks
Sigurjóns eru stór-
stjörnur á borð við
Madonnu, Prince,
Lauru Dern, Nicolas
Cage og leikstjó-
rann David Lynch,
en meðfylgjandi
myndir eru allar úr
myndböndum og
kvikmyndum sem
viðkomandi lista-
menn hafa unnið á
vegum Propaganda
Films.