Morgunblaðið - 14.01.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
15
■Propaganda Films, fyrirtæki Sigur-
jóns Sighvatssonar i Kalif orniu, veltí
um 3,6 milliöróum islenskra króna á
sióasta óri. Hótt i 200 manns eru ó
launaskró og fyrirtækió er meó á
milli 30% og 40% af tónlistarmynd-
bandamarkaóinum i Bandarikjunum
— og umsvif in aukast stöóugt.
■Meóal vióskiptavina eru stór-
stjörnur á boró vió Madonnu, Prince,
Sting og nýjasta söngst jarna Banda-
rikjamanna, Paula Abdul.
■Kvikmyndin „Wild at Heart" kost-
aói um 12 milljónir dollara i ffram-
leióslu og veróur f rumsýnd á kvik-
myndahótióinni i Cannes.
Inýjasta hefti tímaritsins Int-
erview eru tvær greinar sem
tengjast Propaganda Films
og segir þáð ef til vill sitt
um umsvifin. Annars vegar
er grein um hlutdeild fyrirtækisins
á myndbandamarkaðinum og viðtal
við þá félaga Siguijón og Steve
Golin. Hins vegar er umfjöllun um
kvikmyndina „Wild at Heart“ sem
framleidd er af Propaganda Films
undir leikstjórn David Lynch, eins
af fremstu leikstjórum Banda-
ríkjanna (fyrri myndir hans eru
m.a. Fílamaðurinn og Blue Velvet).
í fyrrnefndu greininni segir meðal
annars að Propaganda Films, ásamt
hliðstæðum fyrirtækjum, Limeiight
og 0. Pictures, hafi breytt fremur
frumstæðum tónlistarmyndbanda-
markaði í þróaðan iðnað. Um þá
Steve Golin og Joni Sighvatsson,
eins og Sigutjón er nefndur vestra,
segir að þeim harðsnúnu vinnu-
brögðum, sem þeir hafi byggt vel-
gengni sína á, sé best lýst með
þeirri iðjusemi sem þeir sýndu sem
nemendur í The American Film
Institute á lokaári, þegar þeir réðu
sér starfsfólk og bjuggu til auglýs-
ingar fyrir Coca-Cola á meðan sam-
stúdentar þeirra gerðu hina hefð-
bundnu tuttugu mínútna lokakvik-
mynd.
Hugmyndafræðin gekk upp
„Hlutirnir hafa vissulega gengið
hraðar fyrir sig en við áttum von
á þótt segja megi að ég hafi verið
að leggja grunninn að þessu starfi
síðastliðin fimmtán ár,“ sagði Sig-
urjón er við náðum símasambandi
við hann á skrifstofu Propaganda
Films í Los Angeles. „Það eru
margir samverkandi þættir sem
hafa skapað þessa velgengni, til
dæmis það að við komum inn á
þennan markað á réttum tíma með
ákveðna hugmyndafræði sem hefur
gengið upp. Þegar við Steve fórum
af stað með fyrirtækið var fyrsta
myndbandaaldan að ganga yfir og
talsverður losarabragur á öllum
vinnubrögðum. Menn voru með
bókhaldið í rassvasanum og list-
rænn og faglegur metnaður var
ekki mikill. Menn voru jafnvel að
þessu inni í bílskúr heima hjá sér.
Við ákváðum að taka þetta föstum
tökum og á faglegum grundvelli
sem líktist meira þeim vinnubrögð-
um sem viðgangast hjá kvikmynda-
verum. Við byggðum því upp dálí-
tið flókið deildakerfi með mun
sterkari framleiðslugrundvelli en
tíðkast hafði í þessum bransa, sem
meðal annars felst í því að við get-
um boðið upp á fleiri valkosti, til
dæmis varðandi leikstjóra, en önnur
fyrirtæki á markaðnum. Ennfremur
leggjum við áherslu á að hafa um-
sjón með og heildarsýn yfir hvert
verkefni frá upphafi til enda, en á
því vildi verða misbrestur hjá mörg-
um.
Yfirstjórn fyrirtækisins er í hönd-
um okkar Steve. Síðan erum við
með sérstakt fólk sem sér um sölu-
mál, annað fólk sem annast mark-
aðsmál, einn aðila sem sér um fram-
leiðsluna á vissu stigi og annan sem
sér um eftirvinnsluna svo dæmi séu
tekin um deildaskiptinguna. Fastir
starfsmenn eru um 60 talsins en
að meðaltali eru um 150 til 200
manns á launaskrá. Og þessi hug-
myndafræði sem við byggðum á
virðist ætla að ganga upp því við
gerum nú flest dýrustu tónlistar-
myndböndin og erum með um 30%
til 40% af markaðnum," sagði Sig-
utjón.
Að vinna með stórstjörnum
Sigutjón kvaðst lítið finna til
þess að umgangast og vinna með
stórstjörnum í bandarískum rokk-
og kvikmyndaheimi. „Þetta er ekk-
ert merkilegra fólk en við,“ segir
hann. „En til marks um mismun-
andi vinnubrögð þessa fólks má
taka Madonnu og Sting sem dæmi.
Hún kemur gagngert til að vinna
með ákveðnum leikstjóra og þau
vinna mjög náið saman. Madonna
hefur mjög ákveðna hugmynd um
sína eigin ímynd og það er hennar
sniild í rauninni, fremur en að hún
sé einhver yfirburða songkona. Á
þann hátt gerir hún miklar kröfur
og fylgist sjálf náið með öllu fram-
leiðsluferlinu. Sting er hins vegar
ailt önnur manngerð. Við höfum
unnið með honum lengi og hann
treystir okkur fullkomlega. Þegar
eitthvað stendur til hjá honum hef-
ur hann samband og leggur málið
í okkar hendur. Við veljum jafnvel
fyrir hann leikstjóra.
Einn hluti af starfi okkar er að
búa til myndrænar ímyndir fyrir
listamenn sem eru að bytja í brans-
anum. I því sambandi má nefna
Paulu Abdul. Við höfum algerlega
skapað hennar ímynd og hún er nú
búin að selja yfir 5 milljónir platna
og er orðin mun „heitari“ en Mad-
onna hér í Bandaríkjunum í dag.
En við erum með fjölmargt ann-
að í farvatninu en þessi tónmynd-
bönd. Við erum nú að gera kvik-
myndir sem við teljum í háum
gæðaflokki eins og til dæmis „Wild
at Heart“, í leikstjórn David Lynch
og með stórstjörnum á borð við Isa-
bellu Rosselini, Laura Dern, Nicolas
Cage og Harry Dean Stanton. Hún
kostaði 12 milljónir dollara og 'verð-
ur væntanlega frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes næsta
sumar. Einnig höfum við hafið
framleiðslu á sjónvarpsþáttaröðum
sem við bindum miklar vonir við.
Hvað sjálfan mig varðar hef ég
ennfremur gert mína fyrstu
íslensku_ kvikmynd í samvinnu við
Lárus Ými Óskarsson, Bílaverk-
stæði Badda, sem byggð er á sam-
nefndu leikriti Ólafs Hauks Símon-
arsonar.
Segja má, að við höfum upphaf-
lega farið út í myndbandábransann
til að leggja fjárhagslegan grund-
völl að stærri verkefnum, svo sem
kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröð-
um. í upphafi fengum við ekki að
gera neinar bíómyndir en forsjónin
hagaði því svo til að myndböndin
leiddu okkur svo aftur inn í kvik-
myndirnar þegar við mynduðum
tengsl við Polygram-kvikmyndafyr-
irtækið. Þeir réðu okkur til að gera
okkar fyrstu mynd, sem Nigel Dick
leikstýrði og hét „Private Investi-
gations", sem ef til vill var vendi-
punkturinn í uppgangi fyrirtækis-
ins. Síðan hefur þessi starfsemi
undið upp á sig og til dæmis gerðum
við þtjár bíómyndir á síðasta ári.
Einnig erum við komnir út í sjón-
varpsframleiðslu, eins og ég sagði
áðan, og erum nú að gera þáttaröð
fyrir ABC, sem ber heitið „Twin
Peaks“ og verður væntanlega sýnd
á Stöð 2 í vor.“
Skaginn - Hollywood
Það er ef til vill ekki svo löng
leið frá Akranesi, þar sem Siguijón
ólst upp, til Hollywood eins og
mörgum kann að virðast í fljótu
bragði. Sem unglingur varð Sigur-
jón landskunnur rokktónlistarmað-
ur og lék á bassa með hljómsveitun-
um Flowers, Ævintýri og Brimkló.
Þar kynntist hann af eigin raun
starfi rokkarans, sem eflaust hefur
reynst honum vel í samstarfinu við
slíka menn vestra. Hann þótti
snemma sýna framtakssemi og við-
skiptavit og settist í Verslunarskóla
íslands.
„Velgengni hans í Ameríku kem-
ur mér ekkert á óvart,“ segir Karl
bróðir hans, kirkjuorganisti í
Hveragerði, en þeir bræður léku
saman í hljómsveitinni Flowers á
sínum tíma. „Hann hefur í sér þessa
staðfestu sem þarf til að ná settu
marki. Hann var kannski enginn
toppmaður í skóla en þó alltaf á
mjög ákveðinni siglingu og var með
alla hluti á hreinu. Hann hætti í
Versló um tíma þegar mest gekk á
hjá okkur í Flowers, en hætti svo
aftur í hljómsveitinni þegar leikur-
inn stóð sem hæst, til að klára
skólann. Það voru talsvert miklir
peningar í þessu hjá okkur og
spennandi líf, en hann lét það ekki
síá sig út af laginu. Hann vissi al-
veg á hvaða leið hann var tiltölu-
lega ungur. Ég held þó ekki að
hann hafi verið búinn að setja stefn-
una á kvikmyndagerð á þessum
árum en það kom strax í ljós, þeg-
ar hann fór að hljóðrita, að honum
hentaði vel að starfa með tónlistar-
mönnum og það ’getur maður ekki
nema að hafa sjálfur í sér listræna
eiginleika. Mér fannst líka próf-
myndin hans, „The Story of L.
Sharky“, bera vott um að hann
hefði listræna yfirsýn, ekki bara
með hliðsjón af kvikmyndatökunni
heldur var ég einnig mjög hrifinn
af músíkinni í myndinni, sem hann
mótaði í samráði við Áma Egils.
Hann hefur reyndar alltaf verið
dulur um áform sín, en það kemur
mér ekki á óvart að hann skuli
hafa náð tökum á þessum málum,
þótt ég hafi aldrei heyrt hann hafa
sérstaklega orð á því. Hann hefur
fjármálavit og er einn af þeim
mönnum sem á auðvelt með að taka
ákvarðanir um slíkt. Þegar það fer
svo saman við þessa listrænu til-
finningu þurfa menn ekkert að vera
hissa á því að þetta skuli hafa geng-
ið upp hjá honum. Að mínum dómi
er þetta bara dæmi um að ætli
menn sér eitthvað þá komast þeir
það, ef nægur vilji er fyrir hendi.
Það virðist eins og hann hafi farið
út með það í pokahorninu að gera
þetta og vissulega hafa aðstæður
hjálpað honum svolítið og sjálfsagt
margt sem spilar þar saman. í
fyrsta lagi virðist honum líða vel í
Ámeríku. Síðan hittir hann mann
sem virðist smella saman við hug-
myndir hans um leiðir að settu
marki, og það hefur eflaust haft
mikið að segja,“ segir Karl Sig-
hvatsson.
Ekki í þessu vegna
peninganna
„Það má kannski segja að tíma-
setningin á stofnun fyrirtækisins
hafi skipt sköpum fyrir okkur,“
segir Siguijón. „Það var rúm fyrir
svona fyrirtæki á myndbandamark-
aðinum. Hann var tilbúinn til að
skipuleggja sjálfan sig sem alvar-
lega iðngrein. En það voru tiltölu-
lega fáir í sjálfum bransanum sem
gátu gert þetta því þeir höfðu litla
reynslu og þekkingu, bæði í kvik-
myndagerð og viðskiptum. Þessa
reynslu höfðum við Steve. Við Steve
bætum hvor annan upp, ég hef
reynslu í viðskiptum og hann mjög
yfirgripsmikla þekkingu á banda-
rísku þjóðfélagi og báðir erum við
lærðir kvikmyndagerðarmenn. Allt
þetta hjálpar mikið til.“
Siguijón neitar því að hann. sé
orðinn mikill Bandaríkjamaður í
sér. „Ég er mikill'tslendingur í mér
og verð alitaf. Hins vegar kann ég
vel við mig hér og hér er mitt starf.
Fjölskyldutengslin liggja hins vegar
heima á íslandi og þau bönd verður
aldrei hægt að tjúfa. Sonur minn
er í skóla heima en eiginkonan er
hér úti að vinna kennsluefni fyrir
Námsgagnastofnun. Við erum ný-
komin út aftur eftir tveggja vikna
frí heima og þannig erum við eigin-
lega alltaf á ferðinni á milli tveggja
heimsálfa."
— Ein spurning sem brennur
mjög á landanum: Ertu ekki orðinn
alveg moldríkur á þessu?
„Ríkidæmi er mjög afstætt hug-
tak. Fyrirtæki mitt er sjálfsagt tals-
SKYNDISALA
20% AFSLÁTTUR
af öllum vörum í 3 daga
M.a: frakkar ir jakkar ir buxur ir úlpur^
ir peysur * skyrtur i sloppar
teppi ir mottur ir töskur ir
+ O.fl. i O.fl. ir O.fl.
Notid tœkifœrib
Abeins 3 dagar
Aðalstræti 2, sími 11350.