Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANUAR 1990
JONI
í DRAUMAVERKSMIÐJUNNI
Höfuðpaurar Propaganda Films, — Steve og Jonni.
vert mikils virði þótt það fari nú
ekki allt í vasann. A íslenskan
mælikvarða hef ég vissulega mjög
há laun. Á bandarískan mælikvarða
hef ég þokkaleg laun, með hliðsjón
af þeim bransa sem ég starfa í. I
auglýsinga- og myndabandavið-
skiptunum fáum við ákveðnar pró-
sentur, um 15%, af heildarupphæð-
inni sem verkefnið kostar. Við höf-
um gert myndbönd sem kosta allt
upp í 60 milljónir króna en meðal-
myndband hjá okkur kostar svona
um 6 milljónir króna íslenskar. Í
öllum deildum veltum við um 60
milljónum dollara eða um 3,6 millj-
örðum íslenskum á síðasta ári. Við
gerðum 120 myndbönd, um 30 sjón-
varpsauglýsingar, 10 til 15 lengri
tónleikamyndir, 3 bíómyndir, eina
átta þátta sjónvarpsþáttaröð og
ýmis önnur smáverkefni. Vinnudag-
urinn er líka frá átta á morgnana
til miðnættis. En ég tel það ekki
eftir því mér finnst gaman í vinn-
unni þótt maður sé nú alltaf að lofa
sjálfum sér og fjölskyldunni því að
fara nú að slaka á. En ég er ekki
orðinn það ríkur að ég geti sest í
helgan stein.
Það hefur verið töluvert mikill
hagnaður- af fyrirtækinu, en við
höfum sett hann að mestu aftur í
reksturinn, í kvikmyndirnar sem við
höfum verið að gera. Það er því
kannski ekki beint hægt að segja
að ég sé moidríkur, en ég kvarta
ekki. Annars vil ég að það komi
fram að ég er ekki í þessu vegna
peninganna, þótt vissulega auðveldi
þeir manni að láta ákveðna drauma
rætast. En markmiðið var ekki að
verða ríkur. Ég hef hins vegar allt-
af lagt metnað minn í að gera allt
eins vel og ég hef getað, hversu
lítilfjörlegt _sem verkefnið hefur
virst vera. í því sambandi hef ég
haft að leiðarljósi mottóið: „Lærðu
að gera hlutina vel, þá fylgir annað
á eftir“, og það hefur gengið eftir,
þar á meðal fjárhagslegur ávinning-
ur.“
— Hvað um samkvæmislífið í
Hollywood. Stundarðu það mikið?
„Ég er nú tiltölulega rólegur
hvað það varðar., Auðvitað er ég í
aðstöðu til að hitta frægt fólk, nán-
ast hvenær sem er, en eins og ég
sagði er frægt fólk ekkert merki-
legra en annað fólk þótt eitthvað
við persónu þess hafi orðið fjöl-
miðlamatur. Én hjá mér er nú ekki
mikill tími eftir til að stunda sam-
kvæmislíf þótt mér f innist stundum
að ég ætti að vera á staðnum,
kannski af skyldurækni við ein-
hvern sem maður hefur verið að
vinna með, eða þá einfaldlega í
þágu fyrirtækisins, að afla sam-
banda sem er mjög mikilvægt í
þessum bransa. En þegar á heildina
er litið höfðar sú hlið lífsins hér í
Hollywood ekkert sérstaklega til
rhín og ég reyni að sleppa henni
ef ég mögulega get.“
„FORSJÓNIN HEFUR verið
okkur hliðholl allt frá upphafi.
Við stofnuðum Propaganda
Films fyrir þremur og hálfu
ári, en þá var ekkert skipulag
á tónlistarmyndarmarkaðnum.
Tímasetningin hefur ekki hvað
síst haft mikið að segja fyrir
utan alla þá vinnu, sem lögð
hefur verið í fyrirtækið. Sam-
starfið gengur prýðilega. Báðir
erum við þrjóskir og því hjálpar
það verulega til að skoðanir
okkar liggja á svipuðum nót-
um,“ segir Steve Golin, félagi
Siguijóns í Propaganda Films.
Fundum þeirra bar fyrst
saman í The American
Film Institute árið 1981 og
allt frá skólaárunum hafa þeir
unnið saman. Þá má þess geta
að Steve er kvæntur íslenskri
konu, Vilborgu Aradóttur. „Við
erum báðir inni í rekstri fyrirtæk-
isins, en í sumu er Jonni betri en
ég og í öðru er ég betri en hann.
Segja má að Jonni reki fyrirtækið
dag frá degi og ég sjái aftur á
móti um samningagerðir og þann-
ig viljum við hafa það. Jonna
hundleiðast samningar og mér er
ekkert gefið um daglegan rekst-
ur.“
Steve segir að því miður séu
frístundir þeirra félaga af skorn-
um skammti, en báðir hafi þeir
gaman af tennis og geri töluvert
að því að leika listir sínar á tenn-
isvellinum. „Jonni er góður vinur
og honum er treystandi fyrir öllu.
Okkar samskipti eru auðvitað
mjög margbrotin. Það er varla
hægt að skilja atvinnuna frá vin-
áttunni lengur, en mér er alltaf
óhætt að leita til hans komi upp
vandamál.
— Hvernig passar Siguijón inn
í ímynd Hollywood-lífsins?
„Núorðið er hann fær í flestan
sjó í Hollywood. Hann þekkir orð-
ið rétta fólkið og réttu veitinga-
staðina. Með tímanum verður
maður hluti af Hollywood."
„Þ AÐ ER mjög gaman að vinna
að hugmyndum með Jonna. Hann
er frjór og flinkur við að sjá út
leiðir til að breyta og bæta sögur
og handrit. Dugnaður og hæfi-
leikar hafa fyrst og fremst drifið
fyrirtækið áfram. Ætli þeir Jonni
og Steve hafi ekki unnið fram
yfir miðnætti í mörg undanfarin
ár,“ segir Sveinbjörn I. Baldvins-
son rithöfundur sem búsettur hef-
ur verið í Los Angeles síðustu
þijú árin við nám í kvikmynda-
handritagerð, en hann er góður
kunningi Siguijóns.
Jonni gerir miklar kröfur til
sjálfs síns og ég held að hann
geri svipaðar kröfur til starfs-
manna sinna. Fyrirtækið er að ná
þeirri stærð að það er nánast óraun-
hæft að ætlast til þess að tveir menn
geti haft yfirsýn yfir alla þætti
rekstursins. Siguijón vill ekki láta
búa til goðsagnir um sig og hefur
ekki verið að koma sér á framfæri
í fjölmiðlum. Hann er mjög áreiðan-
legur og góður vinur vina sinna og
Sveinbjörn I. Baldvinsson og Sig-
uijón Sighvatsson á tali á töku-
stað.
vinskapurinn hefur ekkert breyst
þótt hans áðstæður hafi breyst all-
verulega á liðnum árum. Velgengnin
kann að vera sveipuð ævintýraljóma
fyrir suma. Fyrir mér er þessi vel-
gengni ekki ævintýri. Hún er aðeins
afrakstur mikillar vinnu. Þótt þeir
Jonni og Steve vinni með stórstirnum
að milljóna verkefnum, er það auð-
vitað fyrst og fremst vinna en ekki
einhver stjörnuleikur. Því er síður
en svo farið. Þetta eru tveir snjallir
einstaklingar, sem vinna vel saman
og gripu tækifærið þegar það gafst,“
segir Sveinbjörn.
í Hæðahverfi og Bæjargili.
Um er að ræða lóðir fyrir um 50 einbýlishús, 3 raðhús og 5
fjölbýlishús - 6 íbúðir í húsi. Skyggð svæði í lóðareitum sýna
þær lóðir sem nú eru til úthlutunar.
Allar upplýsingar um byggingar- og skipulagsskilmála ásamt
umsóknareyöublöðum liggja frammi á bæjarskrifstofum
Garðabæjar, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg.
Umsóknarfrestur er til 2. mars 1990.
Garðabær