Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANUAR 199tt
17
Lárus Ýmir Óskarsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Bílaverkstæði
Badda, á tali við framleiðanda myndarinnar, Sigurjón Sighvatsson.
„ÉG HEF mjög jákvæða reynslu
afþvi að vinna með Sigurjóni,"
segir Lárus Ýmir Óskarsson, en
sameiginlega unnu þeir að kvik-
myndinni „Bílaverkstæði Badda“
sem kvikmynduð var sl. sumar.
Lárus Ýmir leikstýrði verkinu
og fékk Sigurjón til að vera fram-
leiðanda myndarinnar.
Eg vissi að enginn kæmist
með tærnar þar sem Jonni
hefur hælana á þessu sviði.
Jonni flaug til landsins og kom
verkinu á koppinn, ef svo má að
orði komast. Verkaskiptingin okkar
á milli var 100% á hreinu, en sjálf-
ur hefur hann sagt að eitt það mikil-
vægasta, sem hann lærði í kvik-
myndaskóla, væri skilningur á því
hvað væri hvers manns vinna. Ef
við blönduðum okkur í mál hvors
annars var það bara þeim, sem í
hlut átti, til ánægju því það var
hvorki gert með offorsi eða frekju.
A döfinni er önnur kvikmynd, sem
ótímabært er að segja frá að svo
stöddu. Framkvæmdir hennar
vegna hefjast ekki fyrr en á næsta
ári að einhveiju ráði. Þó honum
gangi vel þ hinni stóru Ameríku,
þá er hann ísiendingur í sér og vill
ekki gefa klakann alveg upp á bát-
inn. Hann er fyrst og fremst að
gera það gott úti og er með gríðar-
lega spennandi áætlanir í skúff-
unni,“ segir Lárus Ýmir.
Siguijón býr í gömlu húsi, sem
hann keypti og gerði upp fyrir
tveimur árum, en húsið byggði hinn
frægi Roý Rogers og notaði sem
sumarbústað á sínum tíma. Húsið
stendur við ströndina Pacific Palis-
ades. Vinnustaðurinn minnir á stóra
vöruskemmu, sem innréttuð hefur
verið mjög frumlega, að sögn Lár-
usar Ýmis, og eru skrifstofur for-
stjóranna tveggja á pöllum í miðri
skemmunni. Myndir úr fyrirtækinu
hafa meðal annars birst í vönduðum
arkitektatímaritum.
„Jonni er skapandi og fijór á
viðskiptasviðinu auk þess sem hann
er mjög fær á listræna sviðinu.
Hann er einn af þessum mönnum,
sem getur gert fjóra hluti í einu.
Segja má að fyrirtæki hans og
Golins, Propaganda Films, sé „Rolls
Royceinn" í framleiðslu tónlistar-
myndbanda. Flest það sem þeir fé-
lagar gera verður þeim bæði til fjár
óg frama. Þegar ég kom í fyrirtæk-
ið var Madonna að horfa þar á
nýtt myndband og Diane Keaton
beið eftir viðtali fyrir framan skrif-
stofu Siguijóns. Eins og gengur lita
einstaka menn hér heima í faginu
öfundaraugum til hans. Eins og
alltaf er reynt að gera lítið úr þeim,
sem gengur vel. Sjálfur er hann
friðarins maður og á örugglega eft-
ir að láta mikið til sín taka hér á
landi þó hann sé ekki á leiðinn'i
heim.“
HRAÐUESTRARNAMSKEIÐ
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn og auka einbeitingu við lestur?
Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og bættri
námstækni?
Svarir þú játandi, skaltu láta skrá þig á næsta hraðlestrarnámskeið
sem hefst fimmtudaginn 25. janúar nk.
Skráning öll kvöld frá kl. 20.00-22.00 í síma 641091.
HRADLESTRARSKÓUNN
a mmmm
Bærinn Höfðabrekka er í Ferðaþjónustu
bænda og er 5 km fyrir austan^
Vík í Mýrdal.
Hjá okkur er gistiaðstaða fyrir allt að 10 í 2ja manna herbergjum m/að-
gangi að sturtu. í Höfðabrekku-ferðapakkanum er gert ráð fyrir gönguferð-
um, akstri um skemmtilega staði í nágrenninu, s.s. syðsta odda Islands,
Dyrhólaey, Hjörleifshöfða o.fl. undir leiðsögn bóndans, sé þess óskað.
Föstudagur: Tekið á móti gestum með kvöldkaffi og helgin skipulögð
í samráði við heimamenn ef óskað er.
Laugardagur: Morgunverður af hlaðborði. Kvöldveróur: Ljúffengt •
Mýrdalslambakjöt og eftirréttur að hætti húsmóðurinn-
ar.
Sunnudagur: Morgunverður, hádegisverður m.a. blóðmör og lifrar-
pylsa ásamt ýmsum öðrum kjarngóðum íslenskum mat.
Allt þetta kostar aðeins kr. 5.000,-
á mann í 2ja manna herbergi.
Einnig er opið í miðri viku. Rútuferðir frá Reykjavík kl. 17 á föstudögum
og til Reykjavíkur kl. 15 á sunnudögum.
Hvers vegna ekki að bregða sér í sveitina í vetur í góðra vina hópi og
slappa verulega vel af í sveitinni. Kjörið fyrir saumaklúbba og aðra smærri
hópa. Ýmislegt verður boðið upp á í vetur, s.s. hestaferðir, bátsferðir,
sund o.fl. allt eftir veðri.
Leitið nánari upplýsinga hjá okkur í síma 98-71208.
****$&*»
Nýtt
vörusýningafargjald
Veraklar opnar þér
nýjar leiðir
á lægra verði
Yörusýningabæklingur Yeraldar er kominn út.
Og á sama tíma kynnum við nýtt vörusýningafargjald
í tengslum við umboð okkar fyrir vörusýningar í Þýska-
landi, sem sparar þér peninga, tíma og fyrirhöfn.
Nú getur þú flogið alla leið til áfangastað-
ar í Þýskalandi hvort sem er Dusseldorf,
Frankfurt, Hannover, Stuttgart eða Munchen
á einum degi með frábærum tengifargjöldum
KLM í gegnum Amsterdam og verðið er að-
eins frá 29.800,- kr. Með þessu sparar þú þér
bæði tíma og fyrirhöfn, losnar við tímafreka
rútu- eða lestarferð og kemst á áfangastað
eftir stutt og þægilegt flug.
iiHflAMIflSTÖDIN
Austurstræti 17, sími 622200 og Kirkjutorgi 4, Sími 622011