Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANUAR 1990
(f|f) Fimleikar — Fimleikar
Piltar! Getum tekið við byrjendum á aldrinum
5-8 ára, einnig eldri pilta.
Innritun og upplýsingar í síma 74925 milli kl. 12
og 16daglega.
íþróttafélagið Gerpla,
Skemmuvegi 6.
Glugginn nuglýsir
Útsalan erhafin
Stórkostleg verðlækkun
Glugginn,
Kúnsthúsinu, Laugavegi40.
Suðurnesjamenn
UPPLÝSINGAFUNDUR
UM
EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐIÐ, EES,
verður haldinn á vegum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTISINS
þann 15. janúar kl. 21.00 í
GLAUMBERGI, KEFLAVÍK
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
hefur framsögu og mun ásamt embættismönnum
utanríkisráðuneytisins svara fyrirspurnum um við-
ræður Fríverzlunarsamtaka Evrópu, EFTA, og
Evrópubandalagsins, EB, um myndun sameiginlegs
markaðar í Evrópu.
Aðalfundur
Félags íslenskra
stórkaupmanna
Aðalfundur Félags ísl. stórkaupmanna verður haldinn
mánudaginn 29. janúar 1990 á Hótel Holiday Inn og
hefst kl. 14.00.
Dagskrá skv. félagslögum:
1. Fundarsetning.
2. Kjör fundarstjóra og úrskurður
um lögmæti fundar.
3. Ræða formanns,
Haraldar Haraldssonar.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Lagðir fram endurskoðaðir
reikningar félagsins.
6. Yfirlit um starfsemi sjóða.
7. Kjör formanns.
8. Kjör þriggja stjórnarmanna.
9. Kjör tveggja endurskoðenda
og tveggja til vara.
10. Kosið í fastanefndir.
11. Lagabreytingar.
12. Önnur mál.
13. Fundarslit.
Gestur fundarins verður Valur Valsson bankastjóri
íslandsbanka og ræðir hann um breytingar í bankamálum.
Haraldur Haraldsson
Valur Valsson
Utanríkisráðuneytið.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
STIMPLAR
Eigendur fyrirtækja athugiö.
Nú er VSK tekinn við
af söluskatti!
Þá vantar þig stimpil
með VSK.-númerinu.
Búum til stimpla meö hraöi.
STIMPLAGERÐ FÉLAGSPRENTSMIÐJUNIMAR HF.
Spítalastíg 10 - Sími 91-11640 - Fax 91-29520
Aimæliskveðja:
Þórhall-
ur Þor-
láksson
En hvað tíminn líður. Það er eins
og það gæti hafa verið í fyrra, að
leiðir okkar lágu fyrst saman, og
svo eru þetta yfir'fimmtíu ár.
Sjötugur og síungur, þannig ertu,
gamli skólabróðir minn, vinur og
skákfélagi, Þórhallur Þorláksson.
í tilefni afmælisins sendum við
Helga þér okkar innilegustu árn-
aðaróskir og vonum að enn megi
allt ganga þér í haginn.
Víst væri nú gaman að vera kom-
inn „heim“ og geta sett upp í eina
„létta“ yfir glasi af góðu víni, eða
bara kaffisopa frammi í eldhúsi.
Það var alltaf jafn ánægjulegt að
heimsækja ykkur Guðríði. Léttur í
lund, lifandi og skemmtilegur og
orðheppinn varstu, jafnvel þegar ég
mátaði þig. Það var aldrei nein
lognmolla á Laugarásveginum. Og
svo listfengur. Það voru víst furðu
fá þau hljóðfæri, sem þú ekki lékst
á, enda þótt fiðlan væri alltaf og
sé raunar enn þitt uppáhald.
Eða hvað allt lék í höndunum á
þér, maður. Manstu þegar þú gerð-
ir við saumavélina á Háaleitisbraut-
inni eða ryksuguna? Ég held að það
hafí vart fundist það heimilistæki,
sem þú með þinni einstöku fingra-
fimi ekki gast gert við. Heimili þitt
í Laugarásnum og sumarbústaður-
inn við Þingvallavatn báru einnig
vitni um einstaka smekkvísi ykkar
hjóna. Já, þú ert höfðingi í Ijuga
og hjarta, kæri vinur.
Ég man að einnig, hvað hana-
stélsboðin fóru þér vel úr hendi forð-
um. Þú hafðir stefnt til þín höfðingj-
um úr öllum stéttum og áttum,
„aðal“ Reykjavíkur, en einnig al-
múgafólki. Þar rakst ég oft á gamla
Verzlunarskólabræður, enda ertu
trygglyndur og trúr vinur vina
þinna.
Það var engin skömm að vera
„loðinn um lófana" í gamla daga.
Þegar þú sagðir upp starfi þínu hjá
Landssímanum og fórst að flytja inn
veiðarfæri, einkum frá Japan, og
raunar sá fyrsti, hlaut fyrirtæki
þitt, Marco, að biómstra og dafna,
og það svo að það varð brátt hið
umfangsmesta sinnar tegundar á
Islandi.
Jú, þú hefur alltaf haft hraðan á
í gegnum lífið, „Molto presto, per
favore“. Italía, Portúgal, Taiwan,
Japan, Bandaríkin, Karíbahafið og
þrisvar kringum hnöttinn, svo eitt-
hvað sé nefnt. Nú hefi ég svo „sann-
frétt“ að þú sért ofarlega á blaði
yfir þá sem. pantað hafa ferð með
almennings-tunglfeijunni. Það var
þér líkt, góða ferð.
Þórhallur, þú ert galdramaður,
átt glæsilega konu þér við hlið, fjög-
ur töfrandi börn og nokkur barna-
börn. Hvers geta menn óskað sér
frekar, þegar þeir lita um öxl sjö-
tugir að aldri?
Richardt Ryel