Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 25
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
Ritsljórar
fréttablaða
Tvö fréttablöð auglýsa í blaðinu í dag eftir ritstjórum.
Annarsvegar er um að ræða fréttablað úti á landi sem
er að hefja göngu sína. Þar er óskað eftir ritstjóra til
framtíðarstarfa en einnig kemur til greina að ráða tíma-
bundið í starfið t.d. í eitt ár. Hins vegar er óskað eftir
ritstjóra hverfisblaðsins Grafai-vogs í hálft starf.
Aðalbókari hjá
Alafoss
Álafoss leitar að aðalbókara til starfa hjá fyrirtækinu á
Akureyri. Leitað er að viðskiptafræðingi sem hefur yfir-
gripsmikia reynslu og þekkingu á flóknu og margþættu
bókhaldi. Viðkomandi þarf einnig að vera nákvæmur og
leggja metnað sinn í að bókhaldið sé vel uppfært á hveij-
um tíma. Aðalbókari er ábyrgur gagnvart fjármálastjóra
fyrirtækisins.
Símsraiðir óskast
Póst- og símamálastofnunin auglýsir í blaðinu í dag eftir
símsmiðum og símsmiðanemum. Stór hópur símsmiða
sagði sem kunnugt er upp störfum hjá Pósti og síma
fýrir skömmu þar sem ríkið neitaði að viðurkenna Rafiðn-
aðarsambandið sem samningsaðila fyrir hönd þeirra.
Póstur og sími tekur fram að laun séu greidd á samn-
ingstímanum og að þessi störf henti jafnt körlum sem
konum.
Framkvæmdastj óri
KSÍ
Knattspyrnusamband íslands leitar að drífandi og kröft-
ugum aðila með þekkingu á rekstri og fjármálum til að
gegna starfi framkvæmdastjóra sambandsins. Viðkom-
andi er ábyrgur fýrir öllum dagtegum rekstri þ.á.m. er-
lendum samskiptum, fjármálastjórnun, samskiptum við
aðildarfélög og markaðsöflun.
Störf hjá Sam-
einuðu þjóðunum
Hæfnispróf fyrir umsækjendur um störf hjá Sameinuðu
þjóðunum hefjast í byijun maí. Um er að ræða störf við
stjórnun, hagfræði, tölvufræði og fjölmiðlun eða útgáfu-
starfsemi. í auglýsingu frá utanríkisráðuneytinu er þess
jafnframt getið að umsækjendur þurfi að vera íslenskir
ríkisborgarar, hafa lokið háskólaprófi og hafi tveggja
ára starfsreynslu eða hafa lokið framhaldsnámi á háskóla-
stigi. Deildarstjóri prófadeildar heldur fyrirlestur um
hæfnisprófið 20. janúar í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla
íslands kl. 14.00.
SMÁAUGLÝSINGAR
Sunnudagsferðir
Raðganga Útivistar hefst í dag. Gengið verður í 17. dags-
ferðum frá Reykjavík í Þórsmörk en síðasta gangan 22.
september endar með grillveislu í Básum. Lagt verður
af stað kl. 13.00 úr Grófinni. Ferðafélagið efnir einnig
til ferðar á Þingvelli þar sem fyrst verður létt ganga frá
Vatnsvík um Konungsveg að Hrafnagjá en síðan mun
séra Heimir Steinsson, þjóðgarðsvörður, taka á móti hópn-
um á Skáldareit og segja frá sögu staðarins. Að því loknu
verður stutt helgistund í Þingvallakirkju. Lagt verður af
stað kl. 11.00 frá Umferðarmiðstöðinni.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Herdís, situr með Fanneyju, Kolbrún, Eydís Ósk og Indriði.
Vestur-Húnavatnssýsla:
Seyðisfjörður:
110 manns
á atvinnu-
leysisskrá
Seyðisflrði.
TÖLUVERÐ óvissa ríkir í at-
vinnumálum á Seyðisfirði nú eftir
áramótin. 110 manns eru á at-
vinnuleysisskrá, aðallega konur
sem unnu við fiskverkun. Fisk- ' '
vinnsla í landi ér engin sem
stendur og sigla báðir togararnir
með afiann. Frá því í haust eftir
að Fiskvinnslan hf. var lýst gjald-
þrota var Gullberg hf. með eign-
ir þrotabúsins á leigu til ára-
móta. Flest þetta fólk hafði vinnu
þar við síldarvinnslu.
Loðdýrabúskapur-
inn var dýrt ævintýri
— segir Indriði Karlsson loðdýrabóndi
Hvammstanga.
AFKOMA loðdýrabænda hefúr verið mjög
til umræðu á liðnum mánuðum. I Vestur-
Húnavatnssýslu voru tíu bændur með sam-
tals um 2.500 loðdýr, en þeir eru nú aðeins
fjórir eftir og hafa fækkað mjög dýrum á
sinum búum, þannig að nú eru aðeins um
400 dýr í sýslunni. Fréttaritari fékk innsýn
í vandann hjá hjónum, sem ákváðu niður-
skurð nú í haust.
AGrafarkoti í Kirkjuhvamms-
hreppi búa hjónin Indriði
Karlsson og Herdís Einarsdóttir,
ásamt þremur börnum sínum. Þau
keyptu jörðina árið 1981 og fylgdi
henni lítill framleiðsluréttur í sauð-
fé. Árið 1987 réðust þau í byggingu
loðdýrahúss og fengu í það 300
minkalæður um áramótin 1987-
1988. Unnu þau sjálf, með aðstoð
vina, að byggingunni frá sumri
1987 og til sumars 1988, en þá var
lokið uppsetningu á aðstöðu fyrir
hvolpana. „Þetta var gífurleg vinna,
ég hef aldrei unnið annað eins,“
sagði Herdís. Indriði er smiður og
vann mikið utan búsins við smíðar,
en frá því hann hóf búskap hefur
hann ekki haft tíma til slíkrar vinnu.
Árið 1988 var 1.230 dýrum slátr-
að á búinu og fengust greiddar upp
í söluverð 500 kr. á skinn, upphæð
sem var þó reiknuð sem lán með
vöxtum og gengistryggingu. í des-
ember 1989 eru óseld um eitt
hundrað skinn af framleiðslu ái-sins
1988 og eftir að gi-eiða um 42 þús-
und krónur af „láninu“.
Þau lijón tóku ákvörðun um að
skera stofninn niður í vetur og var
1.530 dýrum slátrað. Ekkert er far-
ið að greiða út á þessi skinn og
óvíst hvað fæst fyrir þau.
Að sögn Indriða voru áætlanir
um arðsemi í loðdýrabúskap mjög
glæsilegar og bændur óspart hvatt-
ir til að fara í þessa búgrein. Á
árinu 1987 var reiknað með
14-15.000 kr. fyrir skinnið og fóð-
urverð reiknað 500 kr. á skinn.
Árið 1988 var fóðurverð og verk-
unarkostnaður skinns orðinn
800-900 krónur þrátt fyrir niður-
greiðslur á fóðri, og skinnaverðið
ekki yfir 500 kr. Mikil óvissa er svo
með skinnaverð af framleiðslu
líðandi árs.
Skuldir við Stofnlánadeild eru
rúmar fjórar milljónir króna, auk
óuppgerðra afurðalána. Reikna má
með að heildarskuldir vegna loð-
dýrabúsins séu um fimm milljónir.
„Sem betur fer nánast allt veðskuld-
ir,“ sagði Indriði, „því ömurlegt
hefði verið að draga aðra inn í þetta
mál.“
Aðalástæður fyrir hrakfö'rum
búgreinarinnar telur Indriði vera
verðfall á mörkuðum, hátt fóður-
verð og lélegan stofn lífdýra. Slík
var ásókn í lífdýr á árinu 1987, að
allt of mikið var sett á af lélegum
dýrum og slakað á áður settum
kröfum. Síðan átti að framleiða
fyrsta flokks skinn af þessum
stofni.
Þau hjón eru nú með 320 ærgilda
fullvirðisrétt og góðan arð af sínu
sauðfé. Þá eru þau með hrossarækt
sem gefur ágætlega af sér. Herdís
vel þekktur tamningamaður og auk
þess að temja sin hross annar hún
ekki beiðnum um tamningar frá
öðrum.
Indriði segir loðdýrabúskapinn
hafa verið dýrt ævintýri. I ljós hafi
komið að sauðfjárbúið og tamning-
in, með nokkurri vinnu utan búsins,
hefði aflað þeim nægra tekna til
heimilisins. Nú sitja þau hins vegar
uppi með loðdýraskuldir upp á um
5 milljónir og 800 fm minkahús,
sem varla nýtist til nokkurs, nema
með stórbreytingum. Á því sé líka
sú kvöð, að verði það tekið til ann-
arra nota, skuli greiða áður niður-
felld gjöld, upp á hundruð þúsunda
króna. Ríkissjóður verði að aflétta
þessari kvöð og best væri að Stofn-
lánadeild tæki húsið með innrétt-
ingum að sér og lækkaði þannig
skuldir.
- Karl
Eftir áramótin hefur verið land-
að talsvert miklu af loðnu og
eru báðar loðnubræðslurnar famar
að bræða á fullum kraftr. Við þær
starfa um 50 manns meðan bræðsla
er. Hjá vélsmiðjunum var einnig
óvissa um verkefni nú eftir áramót-
in en þar hefur og er að rætast úr.
Vélsmiðja Seyðisfjarðar fékk verk-
efni eftir útboð hjá Landhelgis-
gæslunni að smíða nýjan mælinga-
bát. Stefán Jóhannsson forstjóri
vélsmiðjunnar sagði að þetta væri
álbátur, 20 metra langur og 50
rúmlestir. Og að þetta væri átta
mánaða verkefni og yrðu milli
25-30 manns í vinnu hjá fyrirtæk-
inu meðan á þessari smíði stæði.
Pétur Blöndal forstjóri Vélsmiðj-
unnar Stál hf. sagði að þeir væru
nú að leita sér að verkefnum og
að horfur væru mjög góðar. „Á
þessari stundu er ég bara mjög
bjartsýnn," sagði Pétur.
Garðar Rúnar
ísfirðingar
tekjuháir
ísafirði.
MJÖG gott atvinnuástand er hér
í bænum og einungis eru skráðir
6 atvinnulausir af ýmsum ástæð-
um.
Næg vinna virðist vera í frysti-
húsunum og rækjuverksmiðju.
Meðan rækjuveiði hefur legið niðri
hefur verksmiðjan keypt frosna
rækju til að vinna úr, en rækjuveiði
í Isafjarðardjúpi hófst aftur sl.
föstudag og eru viðskiptasambönd
í Evrópu aftur komin í gott lag.
Mjög vel fiskast hjá línubátum og
togurum.
Þær uppýsingar fengust hjá
Bjarna Sólbergssyni fjármálastjófa
ísafjarkaupstaðar að innhéimtur á
gjöldum, sem bæjarsjóður sér um
eru síst verri en í fyrra, enda hefur
komið í ljós, að ísfirðingar eru með
tekjuhæstu stöðum landsins. Og þó
að verulega hafið fækkað á Vest-
fjörðum á síðustu árum hefur held-
ur fjölgað á ísafirði á síðasta árj.
- Úlfar