Morgunblaðið - 14.01.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
27
ATVIN NUAíiGí YSINGA R
LANDSPÍTALINN
Sérfræðingur
Staða sérfræðings (75%) í hjartasjúkdómum
við lyflækningadeild Landspítalans er laus
til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa sér-
fræðileyfi í hjartalækningum. Staðan veitist
frá 1. september 1990.
Upplýsingar um stöðuna veitir Þórður Harð-
arson, forstöðulæknir lyflækningadeildar,
sími 601266.
Umsóknir sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, Reykjavík, fyrir 1. mars nk.
Reykjavík, 14. janúar 1990.
Leikskólar/
skóladagheimili
Kópavogsbæjar
Leikskólinn Furugrund
Þroskaþjálfi eða fóstra óskast til að sjá um
þjálfun fatlaðs barns.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 41124.
Skóladagheimilið Dalbrekku
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast til starfa.
Um er að ræða hlutastarf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
41750.
Auk þess veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar
um störfin í síma 45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Laus störf
Afgreiðslumaður (442) til starfa á vélalager
hjá stóru deildaskiptu innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík.
Starfssvið: Móttaka og afgreiðsla pantana.
Afgreiðsla viðskiptavina. Pökkun og frágang-
ur vörusendinga.
Við leitum að vélvirkja, vélstjóra eða manni
með þekkingu á stærri vélum, s.s. skipavél-
um og vinnuvélum. Laust strax.
Járniðnaðarmaður (360) til starfa hjá stóru
iðnfyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Viðgerða- og viðhaldsstörf á
vélaverkstæði.
Við leitum að vélvirkja, vélstjóra, járnsmið
eða manni með sambærilega menntun.
Laust strax.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar númeri viðkomandi starfs, fyrir
17. janúar nk.
Hagva ngurhf
Grensósvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
ÖRVI
Starfs|>jálfunarsta<Sur
Kársnushraut 110, 200 Kópavogi,
Iðjuþjálfi
Vinnustaðurinn Örvi, sem er vinnustaður fyr-
ir fatlaða á Kársnesbraut 110 í Kópavogi,
óskar að ráða iðjuþjálfa til starfa í afleysing-
ar nú þegar.
Meginmarkmið staðarins er að þjálfa fatlaða
til starfa á almennum vinnumarkaði. Áhersla
er lögð á stuðning við þá, sem fara í almenn
störf í samstarfi við atvinnuleit fatlaðra í við-
komandi sveitarfélagi og við verkstjórn fatl-
aðra. Iðjuþjálfi hefur umsjón með gerð og
framkvæmd starfsþjálfunarinnar. Hann ann-
ast undirbúning og eftirfylgd starfsmanns í
almennu starfi. Iðjuþjálfi annast einnig
fræðslu og faglega ráðgjöf verkstjóra og
starfsfólks í Orva.
Umsóknum skal skila til forstöðumanns,
Kársnesbraut 110, Kópavogi, sími 43277,
sem einnig gefur allar nánari upplýsingar.
BORGARSPÍTALINN
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á Grensás, sem
er endurhæfinga- og taugadeild. Verið vel-
komin til starfa með áhugasömu fólki.
Nánari upplýsingar veita Erna Einarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmanna-
þjónustu, í si'ma 696350 og Herdís Herberts-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696361.
Uppeldisfulltrúi
Merferðarheimilið v/Kleifarveg óskar eftir
uppeldisfulltrúa til starfa. Æskilegt er að
umsækjandi hafi menntun eða starfsreynslu
á uppeldissviði (t.d. þroskaþjálfar, fóstrur
eða kennarar).
Upplýsingar í síma 82615.
Sjúkrahúsprestur
Borgarspítalinn óskar eftir að ráða prest til
starfa. Umsækjandi skal hafa lokið sérnámi
í sálgæslu (CPE).
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Borgarspítalans og skal umsóknum skilað til
hans fyrir 24. janúar nk.
Sérhæfðir sölumenn
- hljómtæki - tölvur
Óskum að ráða sölumann í verslun okkar.
Starfið krefst áhuga á hljómtækjum, sjón-
vörpum og öðrum þeim vörum, sem við sér-
hæfum okkur í.
Einnig óskum við að ráða sölumann í tölvu-
deild. Reynsla af Macintosh-tölvum og áhugi
á tölvum æskilegur.
Við væntum stundvísi, góðrar framkomu og
reglusemi. Góð laun í boði fyrir rétta aðila
og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband við Grím
Laxdal í Radíóbúðinni hf.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Heilbrigðiseftirlit
Vestfjarða
Svæðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða
auglýsir eftir framkvæmdastjóra með aðsetri
á ísafirði.
Umsóknir berist fyrir 1. febrúar 1990, til
héraðslæknis Vestfjarða, Heilsugæslustöð-
inni á ísafirði. Upplýsingar veitir héraðslækn-
ir í síma 94-4500 svo og heilbrigðisfulltrúinn
á ísafirði í síma 94-3722.
Héraðslæknir.
Lager- og
afgreiðslustarf
Innflutningsfyrirtæki á sviði veiðarfæra óskar
eftir starfsmanni með meiraprófsréttindi til
fjölbreyttra lager- og afgreiðslustarfa strax.
Skriflegar eiginhandarumsóknir með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir nk. mið-
vikudagskvöld merktar: „Lager - 999“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Ríkistollstjóri
Hjá ríkistollstjóra og tollstjóranum í Reykjavík
eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar.
Hjá ríkistollstjora:
1. Staða deildarstjóra við endurskoðun toll-
skjala. Endurskoðunar- og bókhaldskunn-
átta áskilin.
2. Tvær stöður við endurskoðun tollskjala.
3. Staða gagnasafnsvarðar.
Hjá tollstjóranum í Reykjavík:
1. Staða deildarstjóra við tollendurskoðunar-
deild.
2. Nokkrar stöður tollendurskoðenda við
tollendurskoðunardeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Umsóknarfrestur er til 9. febrúar 1990.
F.h. ríkistollstjóra
og tollstjórans íReykjavík,
14.janúar1990.
Starfsmannastjóri.
JlfRÍKISSPÍTALAR
Meinatæknir
- líffræðingur
Meinatæknir/líffræðingur óskast til starfa við
Blóðónæmisfræðideild Blóðbankans. Um
er að ræða fullt starf frá kl. 9.00-17.00. í
starfinu felst vinna við blóðflokkun, samræm-
ispróf, blóðhlutavinnslu, afgreiðslu blóðs,
smitvarnarpróf og vaktastörf. Reynsla við
rannsóknastörf æskileg.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk. Nánari
upplýsingar veitir Ólafur Jensson, yfirlæknir,
eða Björn Harðarsson, deildarstjóri.
Umsóknir sendist til yfirlæknis.
Aðstoðarmaður
Aðstoðarmaður óskast til starfa við Rann-
sóknastofu Háskólans í meinafræði, litn-
ingarannsóknadeild. Um er að ræða fullt
starf í dagvinnu, við aðstoð í litningarann-
sóknum. Ráðningartími er frá febrúar til sept-
emberloka. Umsækjendur skulu hafa stúd-
entspróf úr raungreinadeild.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Steinars-
dóttir, deildarstjóri, í síma 601900.
Reykjavík 14.janúar 1990.