Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
29
JLTWI4MU A/ /Cö/ Y^UKItPiAP
JMk I Vr \L/vJ7L / O// N/vJ7/ \/\
Bifvélavirkjar
Miklar tekjur
- sölustörf símleiðis
Fyrirtæki, sem býður landsþekktar og viður-
kenndar vörur, óskar að ráða nokkra sölu-
menn til starfa. Starfið er fólgið í kynningu
og sölu símleiðis. Tekjur af starfinu geta
auðveldlega verið umtalsverðar. Reynsla af
sölustörfum er ekki nauðsynleg þar eð starfs-
menn hljóta sérstaka þjálfun á vegum fyrir-
tækisins. Lágmarksaldur er 18 ár.
Allar umsóknir verður farið með sem trúnað-
armál.
Upplýsingar í dag á milli kl. 14.00 og 18.00
í símum 626315 og 626318.
Barnagæsla
Óskum eftir að ráða barngóðar manneskjur
á heimili f- Reykjavík, Kópavogi og nágrenni.
Um er að ræða hlutastörf. Viðkomandi þurfa
að geta byrjað sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9 -
15 í síma 623088.
BTVETTVANGUR
STA R F S M I D I U N
Skólavörðustig 1a, sími 623088.
Ritstjóri
Fréttablað á landsbyggðinni, sem er að hefja
göngu sína, vill ráða ritstjóra til framtíðar-
starfa. Til greina kemur að ráða tímabundið
í starfið, t.d. eitt ár. Laun samningsatriði.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
okkar. Umsóknir er tilgreini nauðsynlegar
upplýsingar sendist skrifstofu okkar fyrir
20. janúar nk.
fxIJÐNT ÍÓNSSON
RAÐCJOF &RAÐNINCARNONUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
1 BARÓNSSTlG 47
Heilbrigðisráð Reykjavíkur
óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk á
heilsugæslustöðvar í Reykjavík, sem hér
segir:
Við Heilsugæslustöðina í Árbæ
meinatækni í 50% starf, v/afleysinga, tíma-
bilið 1. febrúar til 30. apríl 1990. Upplýsingar
gefur hjúkrunarforsjóri í síma 671500.
Við Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis
Meinatækni í 50% starf. Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 622320.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur, Barónstíg 47,
fyrir kl. 16.00, mánudaginn 22. janúar 1990.
Sölustarf -
vinnuvélar - búvélar
Fyrirtæki sem selur vinnuvélar til iðnaðar og
landbúnaðar óskar eftir að ráða duglegan
sölumann til starfa sem fyrst.
Um er að ræða fjölbreytt en krefjandi sölu-
starf. Þær kröfur eru gerðar til umsækjanda
að þeir hafi haldgóða reynslu og þekkingu á
sölustörfum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „D - 117“
Vaxandi fyrirtæki óskar eftir bifvélavirkjum
til fólksbifreiða- og vörubifreiðaviðgerða.
Aðeins vanir menn koma til greina.
V.Æ.S. hf., vélaverkstæði,
sími 674767.
Auglýsingastjóri
Samútgáfan. hf., sem gefur út tímaritin Hús
og híbýli, Vikuna og Samúel óskar að ráða
auglýsingastjóra.
Lysthafendur skili umsóknum á skrifstofu
okkar á Háaleitisbraut 1, fyrir 20. janúar
næstkomandi. Öllum umsóknum verður
svarað. Fullum trúnaði heitið.
QAM ÚTGÁFAW hf
Háaleitisbraut 1,105 Reykjavík ™
Sími 83122-Fax 680102
Framtíðarstarf
Laghentur maður óskast til starfa við slökkvi-
tækjaþjónustu. Æskilegur aldur 23-30 ára.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
^CJÖF OG FADNINCAR
Sölumenn
Við leitum nú að fólki í eftirtalin störf:
1. Sölumaður í hljómtækja- og raftækja-
verslun. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi
áhuga á verslunarstörfum og hljómtækjum.
2. Sölumaður hjá innflutningsfyrirtæki í
Hafnarfirði. Æsklilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu á sölu- og markaðsstörfum, góða
enskukunnáttu og hæfni til að vinna sjálf-
stætt og skipulega.
Upplýsingar veitir Einar Páll Svavarsson
hjá ráðningarþjónustu Ábendis.
Ábendi, Engjateigi 9,
sími 689099.
Opið frá kl. 9-16.
Þroskaþjálfar
- meðferðarfulltrúar
Deildarþroskaþjálfa eða fólk með aðra upp-
eldismenntun vantar nú þegar að
skammtímavistinni, Blesugróf 31.
Þá vantar þroskaþjálfa eða meðferðarfulltrúa
í hálft starf nú þegar við Lyngásheimilið,
Safamýri 5.
Upplýsingar gefur Hrefna Haraldsdóttir, for-
stöðumaður í síma 38228, heimasími 31818.
Styrktarfélag vangefinna.
Hárgreiðslusveinar
eða meistarar
Á fallegri hárgreiðslustofu í hjarta borgárinn-
ar er til leigu stóll fyrir hárgreiðslusvein eða
meistara. Farið verður með allar fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Lysthafendur sendi nafn og síma á auglýs-
ingadeild Mbl. merkt: „H - 703“ fyrir 21.01.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Fóstra/starfsmaður
Dagheimilið Litlakot við Landakot óskar eftir
fóstru eða starfsmanni.
Vinnutími getur orðið eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
604364.
Fjölbreyttog
skemmtilegt
skrifstofustarf
Fyrirtæki í stöðugri sókn vantar traustan
starfskraft á skrifstofu við bókhald, tölvu-
vinnslu, bréfaskriftir (ísl.) o.fl.
Góð framkoma og reglusemi skilyrði. Um er
að ræða skemmtilegt starf fyrir aðila með
hæfileika og metnað.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
með upplýsingum um viðkomandi ásamt
nafni, kennitölu og símanúmeri, fyrir 17. jan.,
merktar: „Fjölbr^ytt og skemmtilegt starf -
7610". Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Ráðskona
Okkur vantar ráðskonu frá kl. 12 til 18.30
virka daga. í heimili eru hjón, bæði útivinn-
andi, heilbrigð og kraftmikil 6 ára skólastúlka
og kettlingur.
Starfið er að sækja stúlkuna í skólann kl. 12,
sjá um hádegismat fyrir hana og vera henni
stoð og stytta í leik og starfi. Einnig ræst-
ing, þvottar og þess háttar.
Við leitum að stúlku 20-25 ára, sem er ógift
og barnlaus, en barngóð, hress og jákvæð.
Þyrfti helst að hafa bíl. Þarf að byrja sem
fyrst. Ráðningartími minnst eitt ár.
Vinsamlegast sendið greinargóðar upplýs-
ingar til auglýsingadeildar Mbl. fyrir miðviku-
dagskvöld merktar: „Ráðskona - 6250“.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
lausar stöður
Staða hjúkrunarfræðings á heilsugæslu
Hrafnistu er laus til umsóknar 1. febrúar nk.
Starfið er 40% kvöldvaktir aðra hvora helgi.
Hjúkrunarfræðinga vantar á kvöld- og helg-
arvaktir nú þegar á hjúkrunardeildir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri ída Atla-
dóttir, sími 35262 eða hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri Jónína Níelsen, sími 689500.