Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14- JANÚAR 1990
AtVINNUAUGI YSINGAR
Tækniteiknari
Laus staða
Laus staða
Óskum að ráða tækniteiknara til starfa á
verkfræðistofunni í Reykjavík. Æskilegt er
að viðkomandi hafi reynslu í teiknun með
tölvu (AUTO-CAD) og einnig í ritvinnslu.
Umsóknir skulu sendar til VST hf., Ármúla
4, Reykjavík, fyrir 17. janúar.
VERKFRÆOISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ÁRMÚLI 4 REYKJAVÍK SlMI B4499
Laus er til umsóknar staða aðalbókara við
embættið. Laun samkvæmt launakjörum
starfsmanna ríkisins.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. febrú-
ar 1990.
Bæjarfógetinn á Eskifirði,
sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu,
Sigurður Eiríksson.
Laus er til umsóknar staða dómarafulltrúa
við embættið. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins, BHM.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. febrú-
ar 1990.
Bæjarfógetinn á Eskifirði,
sýslumaðurinn íSuður-Múlasýslu,
Sigurður Eiríksson.
||| ÐAGVI8T BARIMA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
VOGAR
Brákarborg, Brákasundi, s. 34748.
Sunnuborg, HEIMAR Sólheimum 19, s. 36385.
Hálsaborg, BREIÐHOLT Hálsaseli 27, s. 78360.
Valhöll, MIÐBÆR Suðurgötu 39, s. 19619.
G/obusi
Forstöðumaður
Óskum að ráða forstöðumann bifreiðadeild-
ar hjá Glóbus hf.
Starfssvið forstöðumanns: Dagleg stjórnun
deildarinnar. Áætlanagerð. Pantanir og in'n-
kaup bifreiða. Markaðssetning og sala. Aug-
lýsingastjórn. Samningagerð.
Við leitum að manni, sem hefur áhuga á
markaðssetningu og sölu bifreiða. Reynsla
af sölu bifreiða æskileg. Viðkomandi þarf að
geta starfað mjög sjálfstætt og skipulagt
störf annarra. Samskiptahæfni og ensku-
kunnátta nauðsynleg. Laust strax eða eftir
nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarð-
arson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar: „Forstöðumaður Glóbus", fyrir
20. janúar nk.
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður
Eftirtaldar hlutastöður (37%) í læknadeild
Háskóla íslands eru lausar til umsóknar:
Dósentsstaða í geislalæknisfræði.
Dósentsstaða f handlæknisfræði. Staðan
er bundin við Borgarspítalann.
Dósentsstaða í meinefnafræði.
Dósentsstaða i líffærameinafræði.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði, sérgrein
innkirtlasjúkdómar.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði, sérgrein
gigtsjúkdómar.
Tvær lektorsstöður í slysalækningum.
Ennfremur er laus til umsóknar 50% staða
dósents í lífeðlisfræði við læknadeild Há-
skóla íslands.
Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar
frá 1. júlí 1990.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir svo og námsferil og störf skulu,
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6,150 Reykjavík, fyrir 12. febrúar 1990.
Menntamálaráðuneytið,
14.janúar 1990.
|IÉf RÍ KISSPÍTALAR
Geðdeild Landspítala
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þeg-
ar við unglingadeild Barna- og unglingageð-
deildar.
Um er að ræða afleysingastöðu vegna næt-
urvakta og fastar stöður. Starfstími og starfs-
hlutfall samkomulagsatriði.
Fóstra
óskast til starfa frá 1. febrúar nk. á dagdeild
Barna- og unglingageðdeildar. Um er að
ræða fullt starf í dagvinnu.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir
Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 602550.
Félagsráðgjafar
Lausar eru stöður félagsráðgjafa á vímu-
efnaskor. Um er að ræða fullt starf frá 1.
febrúar nk. eða nú þegar á móttökudeild
33-A og deild 16 á Vífilsstöðum sem er
meðferðardeild. Starfið á 33-A felst einkum
í mati og greiningu á félagslegum aðstæðum
sjúklinga og lausn bráðra félagslegra vanda-
mála. A deild 16 er tekið þátt í einstaklings-
og hópmeðferð og auk þess sinnt ráðgjöf
við aðstandendur. Starfsreynsla er æskileg.
Boðið er upp á skipulagða handleiðslu og
fræðslustarf.
Nánari upplýsingar veitir Bjarney Kristjáns-
dóttir, yfirfélagsráðgjafi, í síma 601680 og
601714.
Reykjavík, 14.janúar.
Iðntceknistofmin vinnurað tœkniþróun og aukinni fratn-
leiðni í íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, rúðgjöf gceðaeftirlit, þjón-
usta, frœðsla og stöðlun. Áhersla er lögð ú hœft starfsfólk
til að tryggja geeði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Efnaverkfræðingur
Efnatæknideild Iðntæknistofnunar íslands
óskar að ráða efnaverkfræðing yneð þekk-
ingu á ferilsfræði (process teknik).
Starfsmanninum er ætlað að aðstoða iðnfyr-
irtæki við greiningu á framleiðsluferli þeirra.
Hann mun einnig taka þátt í gerð tillagna
um úrbætur og fyrirbyggjandi aðgerðir, þar
sem um mengun er að ræða. Um er að
ræða nýtt starf sem krefst frumkvæðis, sjálf-
stæðra vinnubragða og ábyrgðar. Boðið
verður upp á starfsþjálfun eftir þörfum.
Óskað er eftir starfsmanni með þekkingu og
reynslu í störfum sem tengjast ferilsfræði.
Umsækjandi þarf að vera vel að sér í ensku
og einu Norðurlandamáli. Æskilegt er að
starfsmaðurinn geti hafið störf hið fyrsta.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Jónsson,
deildarstjóri efnatæknideildar.
Skriflegar umsóknir berist fyrir 16. janúar
1990.
Iðntæknistof nun II
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholl, 112 Reykjavík
Simi (91) 68 7000
LANDSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Gjörgæsludeild
Vegna sívaxandi starfsemi á gjörgæsludeild
viljum við ráða fleiri áhugasama hjúkrunar-
fræðinga til starfa. Átta vikna aðlögunartími
er boðinn ásamt skipulögðum fyrirlestrum.
vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur Lovísa Baldursdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 601300.
Handlækningadeild
Nú eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á
tveimur handlækningadeildum.
Á handlækningadeild 1, 12-A æðaskurð-
deild, er laus ein staða vegna afleysinga og
ein staða til frambúðar.
Á handlækningadeild 3, 11-G brjósthols-
skurðdeild, eru lausar 2 stöður.
Á báðum þessum deildum er nauðsyn á
vandasamri hjúkrunarmeðferð. Því eru
möguleikar á að auka við þekkingu sína og
taka þátt í framförum í hjúkrun. Skipulögð
aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Upplýsingar gefur Anna Stefánsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 601300 eða
601366.
Reykjavík, 14.janúar1990.