Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 36
36
MÓRtíÚNTÍ5lítt)fe MIIMNINGAR
Í4.'JáMÚAR Í99D
Stefanía Guðjóns-
dóttir — Minning
Laugardaginn 6. janúar 1990
andaðist merkiskonan frú Stefanía
Guðjónsdóttir, Suðurgötu 4,
Reykjavík, tæplega 88 ára. Undir-
ritaður átti því láni að fagna að
hafa kynni af henni sl. 40 ár eða
frá 25. nóvember 1949, þegar ég
gerðist fulltrúi hjá eiginmanni
hennar, Lárusi Jóhannessyni, hrl.,
síðar hæstaréttardómara. Frá 40
árum er að sjálfsögðu margs að
minnast, og verður fátt eitt af því
talið upp hér.
Af mörgum góðum eiginleikum
frú Stefaníu fundust mér þó tveir
standa upp úr, en þeir voru dugnað-
urinn og trygglyndið. Um hið fyrra
skal nefnt sem dæmi: Foreldrar
Stefaníu voru fátækir, eins og títt
var á þeirri tíð. Þrátt fyrir það
braust Stefanía til mennta og lauk
stúdentsprófi 1922, sem var mjög
fátítt meðal stúlkna á þeim tíma
og tæplega í takt við tíðarandann.
(Stúlkurnar voru 2 í bekknum, sem
luku prófi.) Þá þurfti líka að taka
allt stúdentsprófið í einum áfanga.
Þá var ekki hægt að hluta það nið-
ur í marga áfanga, og ljúka þeim
jafnvel á nokkrum árum, eins og
nú er talsvert tíðkað. Þá reyndi
stúdentsprófið bæði á gáfur og
dugnað. Prófinu lauk Stefanía með
fyrstu einkunn. Eftir að Stefanía
giftist, 22ja ára gömul, helgaði hún
heimili sínu að mestu starfskrafta
sína, og gerði það af þeim dugnaði
og myndarskap, að þar varð ekkert
lengra komist. Um trygglyndið: Þar
er af mörgu að taka. Um stúdents-
árganginn sinn talaði hún af mik-
illi virðingu, enda var þar margt
mætra manna. Eiginkonur sumra
bekkjarbræðra hennar urðu vinkon-
ur hennar. Þessi virðing var gagn-
kvæm. Það kom oft fyrir síðari ár-
in, að gengið væri í veg fyrir mig
á götu til að spyrja mig um líðan
Stefaníu, og þurfti ekki til, að hún
hefði verið veik. Meðal kunningja
hennar var þekktur rithöfundur
(kona), sem stundum kom í heim-
sókn. Umhyggjan fyrir afkomend-
unum var alveg takmarkalaus. Um
það þarf ekki að ræða. Tvö systur-
börn hennar voru henni mjög kær.
Þau heimsóttu hana mjög oft síðari
árin, eins og um börn hennar væri
að ræða. Var skemmtilegt að fylgj-
ast með þeim kærleika, sem þar
var í milii. Hér verður látið staðar
numið í þessari upptalningu. Þótt
Stefanía hafi átt marga góða kunn-
ingja og vini, þá held ég, að hún
hafí verið nokkuð vinavönd. Menn
urðu ekki vinir hennar strax. Hún
vildi ganga úr skugga um, að vin-
áttan væri til staðar hinum megin
líka. Engin stéttaskipting var í vin-
áttu hennar. Dramb eða hroka átti
hún ekki til. Vinir hennar áttu ör-
uggan talsmann, þar sem hún var,
ef henni fannst eitthvað á þá hallað
í orði. Þá vil ég geta þess, að mað-
ur hennar, Lárus Jóhannesson, var
einhver sá umtalsbesti maður, sem
ég hef kynnst um ævina. Mátti
segja, að þetta gilti um alla, þar á
meðal um pólitíska andstæðinga
hans, enda voru margir kunningjar
á öndverum meiði við hann í stjórn-
málum.
Margir eru þeirrar skoðunar, að
ekki sé hægt að að dæma um það,
hvort maður hafi verið hamingju-
samur fyrr en hann sé látinn: Það
sé m.a. svo þýðingarmikið, hvernig
hann kemst frá því að deyja. Ég
get vel tekið undir þessa skoðun.
Mjög fáir eru svo heppnir, að ekki
gefí einhvern tíma á bátinn í lífsins
óigu sjó á langri ævi. Stefanía
komst ekki hjá því að fá ágjafir,
en þrátt fyrir það, tel ég, að hún
hafi verið að mörgu leyti hamingju-
söm manneskja, sjá hér á eftir álit
hennar sjálfrar. Það varð þeim hjón-
um mikið áfall, þegar þau misstu
son sinn, Jóhannes, hrl, aðeins 45
ára gamlan. Það var líka þungur
harmur kveðinn að Stefaníu, þegar
eiginmaður hennar, Lárus Johann-
esson, andaðist tæplega áttræður,
árið 1977, en hann hafði verið við
ágæta heilsu. Hann fékk skyndilega
hjartaáfall. Lárus sagði oft við mig,
að hann vildi fá að deyja á undan
Stefaníu, því að hann væri miklu
háðari henni, en hún honum. Mér
er kunnugt, að Stefanía bar lengi
þungan harm í bijósti eftir ándlát
Lárusar. Síðustu árin voru ýmsir
vinir þeirra hjóna að safnast til
feðra sinna, og varð það Stefaníu
umhugsunarefni. Hún gat þess
vegna tekið undir með Bólu-Hjálm-
ari, þegar hann kvað á gamals-
aldri: „Mínir vinir fara fjöld . . .“
o.s.frv. En þrátt fyrir þetta tel ég,
að hún hafí lifað hamingjusömu lífi,
þegar á heildina er litið. Hún átti
góða foreldra. Hún fékk fullnægt
menntunarþrá sinni. Hún eignaðist
góðan og fjölhæfan eiginmann. Hún
eignaðist góð og dugleg börn. Hún
bjó við góðan efnahag, og gat veitt
sér ýmislegt, sem allt var þó innan
hóflegra marka. Hún var við ágæta
heilsu megin hluta langrar ævi. Þó-
má segja, að ellin hafi sótt all-fast
að henni síðasta árið, sem hún lifði.
Hinn 21. júní 1924 gengu þau í
hjónaband Stefanía Guðjónsdóttir
og Lárus Jóhannesson. Sr. Bjarni
Jónsson, síðar vígslubiskup, annað-
ist hjónavígsluna. Sr. Bjarni og frú
voru meðal vina Stefaníu og Lárus-
ar til æviloka. Árið 1920 hafði Lár-
us lokið lögfræðiprófi með hæstu
einkunn í þeirri grein við Háskóla
íslands fram til þess tíma, eftir
aðeins 3 ára nám. Eftir það hafði
Lárus stundað framhaldsnám í
Danmörku um skeið og síðan unnið
á bæjarfógetaskrifstofunni í
Reykjavík hjá föður sínum fram til
1.10 1924. Hann opnaði lögmanns-
stofu í Reykjavík hinn 19.12. 1924
og rak hana til 1.5. 1960, þegar
hann varð hæstaréttardómari.
Þann 4. febrúar 1989 birtist í
Lesbók Morgunblaðsins hógvært og
skemmtilegt viðtal við Stefaníu
Guðjónsdóttur, ásamt nokkrum fjöl-
skyldumyndum. Viðtalið við Stef-
aníu tók Guðrún Guðlaugsdóttir
blaðamaður. Ég vil þakka blaða-
manninum fyrir skrásetningu þessa
viðtals og vingjarnleg ummæli.
Þarna kemur fram hinn hógværi
og ljúfi andi, sem ríkti á heimilinu
í tíð þeirra Stefaníu og Lárusar.
Þarna rekur Stefanía æviferil sinn
í stuttu máli. Ég ætla að taka
nokkrar glefsur úr þessu viðtali um
sambúð þeirra hjóna o.fl. Þarna er
rétt skýrt frá. Þar segir Stefanía:
„Ég get ekki annað sagt en ég sé
ánægð með það hiutskipti sem mér
hlotnaðist í lífinu. Lárus var, má
segja, mín fyrsta og einasta ást.
Mér finnst núna að milli okkar hafí
ekki verið nein brennandi ást í upp-
hafi. Kannski fínnst mér það vegna
þess að ást okkar óx irieð árunum
jafnt og þétt. Okkur kom jafnan
vel saman og það varð okkur ekki
neitt misklíðarefni þó Lárusi þætti
gott í staupinu. Lárus minn var
gleðimaður og söngmaður mikill og
það gat ég vel skilið þó ég tæki
lítinn þátt í slíku sjálf. Hvað snert-
ir mitt hlutverk sem húsmóðir þá
gekk mér vel að sinna því.“ Á öðr-
um stað segir: „Ég fór fyrst með
Lárusi til útlanda þegar ég var 26
ára gömul og eftir það fórum við
oft út. Við vorum stundum einn til
tvo mánuði í sh'kum ferðum, en
mamma gætti jafnan barnanna.“ Á
þriðja staðnum segir: „Lárus dó
árið 1977, það voru erfið umskipti."
Siðustu ár sín stundaði hann mál-
flutningsstörf, sáttur við guð og
menn og í hlýju sambandi við sína
fjölskyldu." Þessu vil ég.bæta hér
við: „Það er ekki rétt, að Lárus
hafí stundað málflutningsstörf
síðustu árin. Þá sneri hann sér að
ættfræðinni af fullum krafti, og
vann aldrei meira en þá. Hitt er
rétt, „að hann var sáttur við guð
og menn og í hlýju sambandi við
fjölskyldu sína“.
Mikil fjölbreytni var í gáfum og
áhugamálum Lárusar. Hann var
góður lögfræðingur, ekki aðeins af
því að hann var vel lesinn, heldur
ekki síður af því, að hann hafði
mikla lífsreynslu og svo var dóm-
greindin svo örugg. Lárus tók þátt
í útvarpsrekstri fyrir 1930. Hann
rak prentsmiðju og bókaútgáfu í
all-mörg ár. Hann las mikið um hin
ólíkustu efni, þar á meðal um ind-
verska heimspeki og trúmál. Hann
var hagyrðingur. Hann hafði mikla
ánægju af söng, hljómlist og mynd-
list. Hann sagði vel og skemmtilega
frá. Er þá aðeins sumt upp talið.
Það var miklu meira virði að vera
samvistum við hann, heldur en
megin þorra annarra manna.
Börn þeirra Lárusar og Stefaníu
eru: Jóhannes, hrl. Hann andaðist
1970 aðeins 45 ára. Á lífi eru:
Guðjón læknir (sérfræðingur) í
Reykjavík, Jósefína Lára, kaupkona
og jiúsfrú.
Ég fer ekkert dult með það, að
það sé von mín ogtrú, og jafnframt
besta ósk mín til handa þeim Stef-
aníu og Lárusi, að þau hafi nú
mæst á ný, ásamt fyrrförnum
frændum og vinum.
Að lokum þakka ég þeim Stef-
aníu og Lárusi áratugalöng áfalla-
laus og góð kynni, og bið þeim
Guðs blessunar á vegi framtíðarinn-
ar. Aðstandendum öllum votta ég
samúð mína.
Árni Stefánsson
Elskuleg ömmusystir mín, Stef-
anía Guðjónsdóttir, lést 6. þ.m. og
verður til moldar borin á morgun á
áttugasta og áttunda afmælisdegi
sínum.
Tanta, eins og ég kallaði hana,
fæddist á Lindargötu hér í
Reykjavík og var yngst fjögurra
barna Guðnýjar Einarsdóttur og
Guðjóns Sigurðssonar verkamanns
þar. Elstur systkinanna var Guðni
málarameistari, síðan Sigurður
kennari, þriðja amma mín, Guðný,
og þá Stefanía. Öll voru þau sett
til mennta af ótrúlegum dugnaði
fátækra foreldra. Tanta útskrifaðist
úr Menntaskólanum í Reykjavík
sumarið 1922, önnur tveggja kven-
stúdenta. Á menntaskólaárum
sínum kynntist hún sínum tilvon-
andi lífsförunauti, Lárusi Jóhannes-
syni hæstaréttardómara, og gengu
þau í hjónaband 21. janúar 1924.
Mig langar til að hlaupa 40 ár
aftur í tímann, eða til þess tíma er
ég fyrst man eftir mér í Suðurgötu
4 á heimili töntu og Lárusar. Þar
var oft mikið um að vera og litríkur
hópur sem sat þar saman kominn
um kaffileytið, enda alltaf glað-
værðin í hávegum höfð og þá var
tanta hrókur alls fagnaðar. Svo var
það tónlistin, hún hljómaði annað
hvort frá píanói, trompeti eða ein-
hveiju öðru hljóðfæri þegar synirn-
ir og dóttirin voru að æfa sig. Þeg-
ar allt kemur til alls er elsku tanta
og heimili þeirra Lárusar í Suður-
götu 4 með helstu bernskuminning-
um mínum og er ég þakklát fyrir
þær.
Ég er viss um að hvíldin var
kærkomin, en mikil eftirsjá er að
töntu.
Elsku Lalla og og Guðjón, við
Sverrir Haukur sendum ykkur sam-
úðarkveðjur.
Guðný Aðalsteinsdóttir
Þegar mæla skal kveðjuorð í
minningu góðs vinar verður flestum
tregt tungu að hræra. Þannig er
mér einnig farið er mig langar til
að minnast Stefaníu Guðjónsdóttur.
Fyrstu kynni mín af Stefaníu
voru haustið 1988 þegar ég réði
mig í húshjálp hjá henni á fallega
heimilinu hennar á Suðurgötu 4,
heimilinu sem henni var svo kært.
Við áttum góðar og skemmtileg-
ar stundir saman þar sem hún miðl-
aði mér af þekkingu sinni og
reynslu sem hún hafði aflað sér um
ævina. Einnig var unun að hlusta
á hana segja sögur af sér og sínum
frá gömlum tímum sem sakir æsku
minnar voru mér ókunnugir. Ég
gleymi seint hve nærgætin og góð
hún var við litla drenginn minn sem
svo oft fylgdi mér í vistina eins og
Stefanía sjálf vildi kalla veru mína
hjáhenni.
Ég gleymi seint gömlu konunni
í Suðurgötu 4 sem bjó heimili sitt
af reisn og virðingu. Ég er þakklát
fyrir ánægjuna að hafa kynnst þess-
ari einstöku konu.
Dóttur, syni og öðrum vanda-
Minning:
Guðjón Jósefsson
frá Árbjamarstöðum
Elsku Rúna mín, ég ætlaði ávallt
að .skrifa til ykkar Guðjóns strax
eftir íslandsförina en það varð aldr-
ei úr því. Og nú er Guðjón ekki
lengur á meðal okkar. Þessi aðskiln-
aður er erfiður fyrir þig Rúna mín,
og megi Guð styrkja þig.
Þegar ég hugsa heim í dalinn,
þá streyma til mín Ijúfar minning-
ar, um ljöllin, hveija þúfu og hvern
hól, allt prýtt með skartgripum
náttúrunnar. Hver árstími fyllti
dalinn af draumum og leyndardóm-
um, ekki síst þegar „dalalæðan"
læddist um og gerði mér kleift að
þroska með mér ímyndunaraflið og
goðsagnirnar, en þá trúði maður
því að til væru álfar og tröll. Þegar
blessuð lóan kom og bjó til sumar-
ið, þá voru litir vorsins rétt sjáanleg-
ir með græna bletti hér og þar, en
vonin í okkur sem á horfðum var
sú að sumarið yrði gott í ár — og
hvert ár. Síðan kom haustið eftir
slíka birtu og grænt gras — skamm-
degið sem opinberaði innri manninn
og orku hans til að aðlagast og
takast á við enn nýjar hliðar í lífínú.
En það fegursta í dalnum var fólk-
ið sem í honum bjó. Þið hjónin
Rúna mtn og Guðjón, prýðið dalinn
eins og skýrar perlur. Hjónaband
ykkar var það besta, tryggasta og
elskulegasta — „það var Guðs gjöf“.
Heimilið sem þið bjugguð ykkur og
lifðuð fyrir með slíkri umhyggju,
var eins og þegar sólin vermir og
vakir yfír velferð lífsins. Hjarta
ykkar var ávallt vakandi yfir vel-
ferð bamanna, búskaparins og sam-
ferðamannanna. Ég hef aldrei fund-
ið neitt sem kemst í samjöfnuð við
búskap ykkar Guðjóns. Þið voruð
mér góð, en það sem hefur haft
varanleg áhrif á mig var umhyggja
ykkar fyrir ömmu og Jóni — já,
fyrir hinu mannlega.
Fyrir mig að skrifa um Guðjón
sem þú þekktir betur en nokkur
annar er augljós vandi. Guðjón hafði
kosti sem ekki eru auðfundnir; hann
var göfugmenni, traustvekjandi,
hógvær og vitur maður og óvenju
„glöggur“ og skilningsríkur á
mannlífið. Hann var einn af þeim
mönnum sem með nærveru sinni
krafðist sjálfsvirðingar og háttvísi
og naut hann sín best í félagsskap
vel greindra manna. Hann var
gæddur góðri kímnigáfu, hafði
gaman af vísum og stökum og er
hann var í réttum félagsskap var
hann sérlega líflegur í samræðum.
Dags daglega var hann fámæltur,
þegar hann var ekki við útistörf
eyddi hann tíma sínum venjulega
við lestur og skriftir. Hann var
bókmenntamaður mikill og víðlesin,
framkoma hans og viðmót fáguð.
Mér fannst gaman að færa honum
koníak, hann mat það svo mikils.
í jólakortinu sem Guðjón sepdi
mér (1988) segir: „Árin færastyfir
okkur eins og aðra, þeim fylgir
nokkur afturför . . . Dalurinn fríði
er nú gráleitur og gugginn en send-
ir þér samt föðurlegar ástarkveðj-
ur.“
Það hefur verið erfitt fyrir mig
að sætta rhig við fjarlægðina á
milli okkar. Kveðjur ykkar, elsku
Rúna mín, geymi ég í hjarta mínu
og munu þær ávallt styrkja mig.
En það er náð að fá að lifa sína
daga og.gera þá bærilega með þeim
gáfum einum sem Guð gefur manni.
Hvað er virðingarverðara en að
gefa sitt besta með hreinu hjarta —
slíkt gerði Guðjón. Hann bar af
hvar sem hann fór.
Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst,
viska, makt, speki, og lofgjörð stærst,
sé þér, ó Jesú, herra hár,
og heiður klár.
Amen, amen, um eilíf ár.
(H.f. 50. psálm., 18.)
Dalurinn minn og fólkið sem ég
þekkti svo vel er mér mikils virði.
Þið voruð vorið og ég var litla blóm-
ið sem þið hlynntuð að, þannig leið
mér ávallt þegar ég kom heim í
dalinn. Þið Guðjón eruð mér svo
ljóslifandi þar sem þið stóðuð fyrir
utan Ásbjarnarstaðabæinn að
kveðja okkur Jogesh fyrir tveimur
árum. Okkur var ekki ætlað að hitta
Guðjón aftur — svo litlu ræður
maður. Ég kveð þig að sinni elsku
Rúna mín og bið Guð að styrkja
þig, Dísu, Siggu, Steinu, Stínu,
Guðrúnu, Lolla og þeirra fjölskyldu.
Megi minningin um Guðjón verma
hjarta ykkar. Guð blessi ykkur öll.
Ástarkveðja.
S. ída
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_________um gerð og val legsteina._
(| S.HELGAS0N HF
I STEHNSMIfBJA
■ SKEMMUVEGI 48-SlMl 76677