Morgunblaðið - 14.01.1990, Qupperneq 38
I
FLUGUKOST
„ÞURFUM BRATT AÐ VISA
HUNDRUÐUM FRÁ“
„Veistu, að nú er að koma sá tími þegar við þurfúm á hverjum vetri
að vísa hundruðum manna firá vegna pláss- og aðstöðuleysis. Slíkur
er áhuginn," sagði Stefán Hjaltested kokkur í samtali við Morgun-
blaðið. Stefán er virkur Armaður, en svo lieitir stangaveiðifélag sem
einsetur sér að veitt sé einungis með flugu og hugað sé sérstaklega
að umhverfisvernd. Armenn, eins og Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
heíúr árum saman staðið fyrir flugukastkennslu á sunnudagsmorgn-
um í íþróttahúsi Kennaraháskólans, SVFR er aftur á móti í Laugar-
dalshöll.
Það er svo undarlegt, að fyrir
áramót er eins og stangaveiði-
menn liggi allir í dvala eftir vertí-
ðina. Strax og nýtt ár er gengið í
garð þá er eins og þeir rísi á fætur
í öllum skúmaskotum og taki til við
að liðka liðamót og athuga tæki
sín. Kastkennslan er baggi á félag-
inu fyrri hluta vetrar, en síðari hlu-
tann er aftur þvílík örtröð að með
ólíkindum má heita þrátt fyrir að
tíminn sé ekki fýsilegur fýrir
marga, sunnudagsmorgnar klukk-
an 9.00,“ sagði Stefán enn fremur.
Þorsteinn Gunnarsson, einn af
stjórnarmönnum Ármanna sagði að
námskeiðin væru fjórir sunnudagar
og væru tvö 18 manna holl á hveij-
um morgni. „Kennslan er mjög per-
sónuleg, aðeins tveir nemendur fyr-
ir hvern kennara. Við erum ekki
að þessu til að græða og sjálf-
boðavinnan sem ýmsir hafa lagt í
þetta er aðdáunarverð. Tökum sem
dæmi menn eins og Kolbein
Grímsson og Þorstein Þorsteinsson,
sem hafa mætt á hveijum sunnu-
dagsmorgni til að miðla öðrum í
áratugi að heita má. Svo fara öll
þeirra páskafrí í að fara um landið
og kenna köst og hnýtingar. Ef það
ætti að heiðra einhverja með orðum
þá eru þarna verðugir kandídatar,"
sagði Þorsteinn.
STRÍÐSVÉLAR
Minnisvarði um nútima ragna-
rök heimsóttur
Á árinu sem nýiiðið er, var hálf öld liðin frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar og var þess minnst með ýmsum hætti í þeim
löndum sem hildarleikurinn náði til. Sannarlega var ísland
eitt þeirra landa og þeir feðgar Þorsteinn Bjarnason og Örn
Þorsteinsson 6 ára kynntu sér hversu nærri stríðið er enn
með því að vilja flaks af þýskri sprengjuflugvél sem ryðg-
ar hægt og bítandi í Valahjalla undir fjailinu Snæfúgli
utarlega við Reyðarfjörð. Með í for var Albert Kemp
sem tók myiulina sem með þessum orðum birtist.
Þetta var þó nokk uð þrekvirki hjá Erni litla
enda upp 200 metra snarbratta skriðu að
klöngr ast, en þar liggur flakið í kvos. Stélið
er einna heillegast, en þarna er brak af ýmsu
tagi. Það er til dæmis ekki langt síðan að land-
helgis gæslumenn gerrðu
sprengju óvirka,"
sagði Albert Kemp
í samtaii við Morgunbiaðið
Morgunblaðið/Albert Kemp. $
MORGUNBLAÐIÐ
folk hFmrntonjuÍNmm
14.(ÍANUARil<99i0
þýsk sprengjuflugvél
Þeit' feðgar Örn og Þor
steinn sitja á hinum þögla
minnisvarða um nútíma
ragnarök sem voru fyrir
aðeins hálfri öld.
ÚTSALA
ÚTSflLA
ÞAÐ ER HITI í ÚTSÖLUNNI
HJÁ OKKUR.
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN
Á ÚLPUM 0G PEYSUM FYRIR
KONUR 0G KARLA.
LÁTTU ÞÉR EKKI VERÐA KALT.
SPENNANDI TILBOÐ
Á NÝJUM GJAFAVÖRUM.
AÐEINS ÞESSA EINU VIKU!
ÁLAFOSSBÚÐIINI
VESTURGÖTU 2.