Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 44
FORGANGSPÓSTUR
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, ~
REYKJAVÍK
)LF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Morgunblaðið/RAX
BRUNAÐIBREKKU
Þúsund tonn af eldislaxi voru
seld til útlanda á síðasta ári
Hægt að selja 2-3.000 tonn út á ári, segir Hannes Hafsteinsson hjá SH
ÞÚSUND tonn af eldislaxi voru seld til útlanda á síðasta ári. Framboð
var ekki jafti mikið og eldismenn gerðu ráð fyrir, en þeir höfðu reikn-
að með fjögur þúsund tonna framleiðslu á árinu. Astæða þessa mismun-
ar er sú, að sögn Hannesar Hafsteinssonar hjá markaðsdeild Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, að atvinnugreinin er ung og menn voru
of bjartsýnir. Hann segir að Islendingar geti auðveldlega selt tvö til
þrjú þúsund tonn af eldislaxi til útlanda á ári.
Tvö þúsund
tonnum af olíu
hellt í sjóinn
. SÍÐUSTU fjögur ár hafa rúmlega
800.000 lítrar af olíu runnið út í
umhverfið hérlendis í mengunar-
slysum. Á hverju ári er tæplega
2.000 tonnum af úrgangsolíu hellt
í sjó úr fiskiskipum hér við land
í trássi við lög.
Einhver alvarlegustu mengunar-
spjöll sem geta orðið hérlendis
eru olíulekar. Nýjasta dæmið um
slíkt er lekinn frá geymi ratsjár-
stöðvar Atlantshafsbandalagsins á
Bolafjalli við Bolungarvík í nóvem-
ber. Úr geyminum runnu 25.500
lítrar af olíu. Olíugeymar, eða
birgðastöðvar, eru við nær hverja
höfn. Hinsvegar er ekki að finna
_ nauðsynlegar varnir gegn leka úr
*'j)eim nema geymarnir hafi verið
byggðir eftir að lög voru sett um
slíkt. 72 af 98 birgðastöðvum voru
byggðar fyrir þann tíma.
Sjá greinina „Land í hættu?“ á
bls. 10.
Kvikmynd
Sigurjóns
wí aðalkeppn-
ina í Cannes?
KVIKMYNDIN „Wild at Heart“,
sem framleidd er af Propaganda
Films, íyrirtæki Sigurjóns Sig-
hvatssonar og Steve Golins í
Hollywood, hefúr verið tilnefnd í
flokk þeirra kvikmynda sem til
greina koma í aðalkeppnina á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í
Frakklandi í maí næstkomandi.
Leikstjóri myndarinnar er David
Lynch, sem m.a. leikstýrði kvik-
myndunum „Fílamaðurinn" og
„Blue Velvet" og meðal leikara
•>—-eru Isabella Rossellini, Laura
Dern, Nicolas Cage, Willem Dafoe
og Harry Dean Stanton.
Siguijón sagði í sam-
tali við Morgunblaðið
að þessi tilnefning
væri mikil meðmæli
með myndinni, hvort
sem hún yrði endan-
lega valin til sýninga eða ekki. Hann
sagði að kostnaður við gerð myndar-
innar næmi um 720 milljónum
íslenskra króna. Önnur mynd
Propaganda Films, „Daddy is dying
— Who‘s got the will“, hefur verið
tilnefnd í eina af hliðarkeppnum
Cannes-hátíðarinnar.
Sjá greinina „Joni í drauma-
verksmiðjunni" á bls. 14 og 15.
Af þeim þúsund tonn-
um, sem f lutt voru út,
sá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna um sölu
á fjórðungi, eða 224
tonnum. Þetta er nýr
þáttur í starfsemi SH og salan fór
aðallega fram á síðari hluta ársins.
Fyrir þessi 224 tonn fengust nærri
79 milljónir króna. Mest var selt í
Frakklandi, eða 100 tonn fyrir rúm-
ar 28 milljónir, 70 tonn fóru til
Bandaríkjanna og fengust rúmar
25 milljónir fyrir þau, 47 tonn til
Japans, sem seldust fyrir rúmar 22
milljónir og rúm 6 tonn til Spánar.
Þessar tölur segja þó ekki allt því
innflutnings- og pökkunarkostnað-
ur er misjafn eftir mörkuðum. Sölu-
miðstöðin seldi lax frá 19 fyrirtækj-
um á síðasta ári. Ferskur laxinn
er ýmist seldur slægður eða óslægð-
ur og fluttur með innlendum eða
erlendum flugfélögum á markað.
Flutt eru nokkur tonn í ferð, en
stærsta sending á síðasta ári var
milli 15 og 16 tönn til Frakklands
skömmu fyrir jól.
í gær boðaði Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna til fundar með full-
trúum þeirra laxeldisfyrirtækja,
sem unnið hafa að þessum málum
með SH. Þar var samstarfið rætt
og söluhorfur á þessu ári. Hannes
Hafsteinsson sagði, að íslendingar
gætu auðveldlega selt 2-3.000 tonn
af laxi til útlanda á ári. „Á fundin-
um í gær ræddum við vítt og breitt
við fulltrúa laxeldisfyrirtækjanna
um sölumálin," sagði Hannes.
„Þessi fyrirtæki eru ekki aðilar að
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna eins
og frystihúsin, en við munum áfram
bjóða þeim þessa þjónustu okkar.“
2775 opinber
mál afgreidd
2775 opinber mál hlutu af-
greiðslu við sakadóm
Reykjavíkur árið 1989. Þar af
gekk dómur í 658 málum en
2117 var lokið með dómssátt.
Loðnan skiptir sköpum í bænum
- segir forseti bæjarstjórnar Seyðisfjarðar
„LOÐNAN skiptir algerum sköpum í bænum, yfirbragðið ger-
breytist. I siðustu viku var landað á annan tug þúsunda tonna
og hér voru 45 skip í höfii þegar mest var. Þetta hefúr dágóð áhrif
á alla þjónustu, það þarf kost í skipin, olíu og vatn,“ segir Jónas
Hallgrímsson, forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði. Undirtónninn
þjá honum og Bjarna Stefánssyni bæjarstjóra á Eskifirði er þó
þungur, á hvorum stað eru um 120 manns á atvinnuleysisskrá.
að er auðvitað afleitt að nú
þegar loðnan er loksins farin
að veiðast sé ekkert unnið í hrað-
frystihúsinu og togaranum vegna
vinnudeilna," segir Bjami Stef-
ánsson. „Við værum illa sett hér
ef loðnan kæmi ekki inn núna,
þótt hún megni ekki að bjarga
fjárhagsútkomu síðasta árs og
breyti því ekki að hér er fjöldi
fólks á atvinnuleysisskrá. Það létti
mikið yfir fólki þegar loðnan kom,
Loðnulöndun á Eskifirði.
ætli það séu ekki nærri 90 manns
í skipshöfnum, verksmiðju og
vinnu við löndun loðnunnar,“ seg-
ir Bjarni.
Jónas Hallgrímss.on segir að
vitaskuld hjálpi mikið upp á
ástandið á Seyðisfirði að fá loðn-
una, þó ekki nóg. Yfir 100 manns
séu án vinnu vegna gjaldþrots og
lokunar hraðfrystihússins. Hins
vegar vinni nálægt 40 við loðnu-
bræðsluna, seinna bætist fryst-
ingin væntanlega við. „Loðnan er
þannig mikil björg hér á staðnum.
Þegar ekki verður á allt kosið
verður að þakka það sem gefst."
*
Imálum þeim sem dómur gekk
í voru 436 höfðuð vegna brota
á almennum hegningarlögum en
222 vegna brota á sérrefsilöggjöf,
aðallega umferðarlögum. Þremur
þessara mála var vísað frá dómi,
í 31 var sýknað en sakfellt í 624.
Sakadómur fer einnig með
bamsfaðernismál. Staðfestar voru
200 faðernisviðurkenningar og í
framhaldi af því kveðnir upp 189
meðlagsúrskurðir. 70 úrskurðir
voru kveðnir upp um ýmislegt sem
lýtur að .framfærsluskyldu barna
og 15 aðrir úrskurðir í sifjamálum.
Enginn dómur gekk í barns-
faðernismálum á árinu þar sem
unnt var að ljúka þeim málum sem
unnið var að að aflokinni blóð-
rannsókn. Hins vegar gengu fimm
dómar til ógildingar á faðerni.