Morgunblaðið - 26.04.1990, Page 30

Morgunblaðið - 26.04.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990 Sundlaugarbygging við Glerárskóla: Gerð hurða, efiii og írágangur ekki í sam- ræmi við verklýsingu Heildarkostnaður varð 75,8 milljónir, en tilboð í bygginguna hljóðaði upp á 35,6 millj. HEILDARKOSTNAÐUR við byggingu sundlaugar við Glerárskóla var rúmar 75,8 milljónir króna, þar af er byggingarkostnaður 62,8 milijónir, hönnun, eftirlit og fúndarsetur nema 11,5 milljónum, stofii- búnaður nemur 1,3 milljónum og kostnaður vegna Ióðar nemur rúmum 118 þúsundum. Þetta kom fram í svari Sigfúsar Jónssonar bæjarstjóra við fyrirspurn Ulfhildar Rögnvaldsdóttur bæjarfúlltrúa vegna byggingar sundlaugarinnar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýni gleðileikinn Draum á Jónsmessunótt í kvöld og á mánu- dagskvöld og taka um 40 manns þátt í sýningunni sem er afar litskrúðug. Leikfélag MA: Sýnir Draum á Jónsmessunótt LEIKFÉLAG Menntaskólans á Akureyri frumsýndi í Samkomu- húsinu í gærkvöld gleðileikinn Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í leiksljórn Jóns St. Kristjánssonar. Um 40 manns taka þátt í sýn- ingunni, sem er mjög viðamikil og litskrúðug. í leiknum er lýst samspili raunveruleika og óraun- veruleika, ástar og haturs. Misklíð í áflheimum veldur gey- simikilli ringulreið um miðbik verksins sem skekur alla tilveru manna og álfa. Fjölmörgum ólík- um persónum bregður fyrir, álf- um, listaglöðum handverksmönn- um og ástföngnum elskendum, hertoganum í Aþenu og unnustu hans. Önnur sýning á verkinu verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 26. apríl, og þriðja sýning á mánu- dagskvöld, 30 apríl. Báðar sýning- amar hefjast kl. 20.30, en LMA mun aðeins sýna verkið á þessum þremur sýningum. Miða er hægt að panta í Samkomuhúsinu á milli kl. 17-19. Fréttatilkynning Þar af eru 129 þúsund vegna lag- færinga á skemmdum sturtum, 148 þúsund vegna viðgerða á úret- an kvartsi á gólfi og 50 þúsund vegna viðgerða á hurðum. Fyrir- spum um það hvort í útboðsgögn- um hafi verið gert ráð fyrir þeirri tegund hurða og röra sem gáfu sig fljótt eftir opnun laugarinnar, eða hvort eftirliti með framkvæmd- unum hafi verið ábótavant, svaraði bæjarstjóri að gerð hurða, efni og frágangur hafí ekki verið í sam- ræmi við verklýsingu. Lagnir og blöndunartæki áttu að vera inn- múruð í vegg samkvæmt upphaf- legri verklýsingu, en samkvæmt ósk íþróttaráðs og beiðni bæjar- verkfræðings var ákveðið að hafa lagnir og tæki utanáliggjandi og hafí arkitektar þvertekið fyrir að hafa venjuleg galvanísemð rör frá blöndunartækjum að sturtuhaus, þrátt fyrir aðvaranir bygginga- deildar. Vonskuveður í Eyjafírði: Björgnnarsveitarmenn o g lögregla óku skólabörnum heim í blindbyl Ökumaður fastur I Ólafsflarðarmúla VONSKUVEÐUR gekk yfir Norðurland í gær og höfðu lögreglu- menn og björgunarsveitarmenn á Dalvík og Ólafsfírði í nógu að snúast því bjarga þurfti skólabörnum og öðrum til síns heima vegna veðurofsans. Nokkur umferðaróhöpp urðu á Akureyri í blindbyl sem gekk yfír eftir hádegi, en meiðsl urðu ekki á fólki. í Ólafsfjarðarm- úla sat ökumaður fastur í bíl sínum ogRomst hvergi, né heldur björg- unarsveitarmenn til að aðstoða hann. Guðni Aðalsteinsson lögreglu- þjónn í Ólafsfírði sagði að veðrið í gær hefði verið eitt það versta sem komið hefði i vetur, þó að oft hefði það verið slæmt. „Það fór að hríða hér upp úr hádeginu og úr varð glórulaus bylur, þannig að vart sá út úr augum," sagði Guðni. Lög- reglumenn og félagar úr björgunar- sveitinni Tindi fluttu skólaböm úr skóla og heim'og gekk það áfalla- laust. Þá var fólk einnig flutt heim úr vinnu og á milli húsa. Götur voru stöðugt mokaðar svo fært væri um bæinn og voru þijú mokst- urstæki stöðugt að í allan gærdag. í Ólafsfjarðarmúla sat ökumaður fastur í bíl sínum í sunnanverðu Ófærugili og komst hann hvergi vegna veðurs. Ekki hafði heldur verið hægt að fara til móts við hann þegar Morgunblaðið hafði samband við lögreglu í gærkvöldi, en reyna átti að fara út í Múlann þegar veður gengi niður. A Dalvík óku lögreglumenn og félagar í björgunarsveit og hjálpar- sveit skáta bömum heim úr skóla og af barnaheimili. Bjöm Víkings- son varðstjóri lögreglunnar sagði að vitað væri um bíla sem sætu fastir á leiðinni milli Akureyrar og Dalvíkur og björgunarsveitarmenn hugðust fara til móts við undir kvöldið. Á Siglufírði kyngdi niður miklum snjó í óveðrinu. Illfært varð um bæinn af þeim sökum, og beindi lögreglan þeim tilmælum til fólks að vera ekki á ferð um bæinn. Rúta sem sótti farþega til flugvall- arins á Sauðárkróki stöðvaði við Ketilás í Fljótum um kl. 15, en þar átti hún að halda kyrru fyrir þar til óveðrinu slotaði. Á Akureyri urðu nokkur óhöpp í umferðinni sem rekja mátti til blindbyls, en skyggni var afar slæmt á tímabili. Áð sögn Gunnars Randverssonar varðstjóra fór vind- hraðinn upp í 68 hnúta þegar mest var, en það er yfir 12 vindstig. Margir ökumenn lentu í vandræðum í Kræklingahlíð og á Moldhaugna- hálsi og fóru lögreglumenn og hjálparsveitarmenn þeim til aðstoð- ar. Þá fékk lögreglan beiðni um að aðstoða ökumenn á Öxnadalsheiði, sem þar voru á ferði í fólksbílum, en að sögn Gunnar komst fólkið í jeppa og fór lögregla því ekki á staðinn. Annað ráð ITC-fundar á Akureyri ANNAÐ ráð ITC á íslandi heldur ráðsfund á Akureyri, laugardag- inn 28. apríl. Fundurinn hefst kl. 11. Á eftir félagsmálahluta fundarins verður Bókmenntakynning og verður skáldkonan Jakobína Sigurðardóttir og verk hennar kynnt. Kappræður verða milli deilda en innan ráðsins eru átta deildir, ITC Dögun Vopna- fírði, ITC Fluga Mývatni, ITC Gerð- ur Garðabæ, ITC Gná Bolungarvík, ITC Irpa Reykjavík, ITC íris Hafn- arfirði, ITC Kvistur Reykjavík og ITC Mjöll Akureyri. Um kvöldið verður efnt til há- tíðar sem hefst með borðhaldi í Laxdalshúsi. Verða þar ýmis skemmtiatriði á dagskrá og einnig mun stjórn næsta kjörtímabils verða sett í embætti. Fyrirspum Úlfhildar var í fímm liðum, sú fyrsta um hver hafí ver- ið upphæð tilboðs Híbýlis hf. á byggingu laugarinnar framreikn- uð. I svari bæjarstjóra kom fram að tilboð Híbýlis frá 25. ágúst '1987 hljóðaði upp á rúmar 35,6 milljónir króna, framreiknað til þess tíma er laugin var tekin í notkun i janúar á þessu ári er til- boðið upp á rúmar 57,7 milljónir króna. Þegar allar greiðslur vegna samningsins eru framreiknaðar fyrir hvem mánuð fyrir sig fram til þess tíma er laugin var tekin í notkun ásamt reiknuðum verðbót- um upplýsti bæjarstjóri að á tíma- bilinu frá september 1987 til sama mánaðar 1989 hafí Híbýlí verið 'greiddar rúmar 55,4 milljónir króna, undirverktökum vom greiddar fyrir efni á tímabilinu október á síðasta ári til mars á þessu ári tæplega 7,4 milljónir króna. Heildarkostnaður við byggingu laugarinnar framreiknaður til þess tíma er hún var tekin í notkun nemur 75.825.289 krónum. Sigfús sagði rétt að hafa í huga að Akur- eyrarbær hafí ekki staðið við skuldbindingar sínar hvað varðar eldri verksamning við fyrirtækið heldur hafi verið dregið úr fram- kvæmdahraða og verkið jafnvel stöðvað alveg vegna íjárskorts. ^Forráðamenn Híbýlis hafí af þeim sökum krafíst þess að gerður yrði annar verksamningur við bæjar- sjóð, þar sem m.a. var breytt regl- um um útreikning verðbóta, en reikna skyldi hvem verkþátt fyrir sig, en ekki samkvæmt heildarvísi- tölu. í svari bæjarstjóra kom einnig fram að kostnaður vegna viðgerða og endurbóta eftir að laugin var tekin í notkun er 327.517 krónur. Athugasemd „ ir við aðal- skipulag Frestur til að skila inn at- hugasemdum við tillögu að aðal- skipulagi Akureyrar 1987-2007 rennur út 11. maí næstkom- andi. Tillagan liggur frammi hjá skipulagsdeild og á bæjarskrif- stofunni og hyggist menn gera athugasemdir við tillöguna geta þeir skilað þeim inn á fyrr- greinda staði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.