Morgunblaðið - 06.10.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTOBER 1990
25
Færeyjar:
Kosið ta Lög-
þingsins 17.
nóvember
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen
^ Bruun fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
efna til þingkosninga í Fær-
eyjum 17. nóvember en sam-
þykkt var í fyrra dag að leysa
upp lögþingið vegna stjórnar-
kreppu.
Það hefur aðeins einu sinni
áður átt sér stað í 40 ára sögu
heimastjórnar í Færeyjum að
þing hafi verið leyst upp. Jogvan
Sundstein lögmaður, leiðtogi
Þjóðveldisflokksins, reyndi til
hins ítrasta að fínna aðrar leiðir
út úr stjórnarkreppunni en að
efna til kosninga.
Sundstein reyndi árangurs-
laust að mynda nýja stjórn með
ýmsum formerkjum og biðlaði á
síðustu stundu í fyrradag til
Jafnaðarmannaflokksins, sem
synjaði málaleitan hans. Flokk-
urinn hefur verið í stjórnarand-
stöðu frá því í kosningunum
1988 og nýtur nú mests fylgis
færeysku flokkanna, samkvæmt
nýjum könnunum á fylgi þeirra.
Antwerpen:
Alexander Noble ofursti, leiðtogi uppreisnarmanna á Filippseyjum,
ræðir við blaðamenn í gær.
Filippseyjar:
Uppreisnarmönn-
um stökkt á flótta
Cagayan De Oro, Filippseyjum. Reuter.
HUNDRUÐ uppreisnarmanna í stjórnarher Filippseyja flýðu
borgina Butuan á eynni Mindanao í gær er loftárás var gerð
á Bancasi-herstöðina sem þeir höfðu haft á valdi sínu í sólar-
hring.
Loftárásin á herstöðina var gerð
á tveimur T-28 flugvélum úr
seinna stríðinu. Flugu þær 11 ferð-
ir með sprengjur og eyðilögðu
aðalbyggingu herstöðvarinnar og
rafveitu með þeim afleiðingum að
hún varð sambandslaus við um-
heiminn. Nokkrum klukkustund-
um eftir að þeir höfðu flúið her-
stöðina voru uppreisnarmennirnir
sagðir á bak og burt úr hinni
157.000 manna borg, sem þeir
höfðu haft á valdi sínu.
Talsmenn stjórnarhersins sögð-
ust reiðubúnir að láta einnig til
skarar skríða gegn uppreisnar-
mönnum sem hafast við í herstöð
í borginni Cagayan De Oro, sem
er 800 km suðaustur af höfuðborg-
inni, Manillu. Þar er bækistöð upp-
reisnarforingjans, Alexanders
Noble ofursta.
Noble ræddi við blaðamenn í
gær og sagðist reiðubúinn að láta
lífið fyrir málstað sinn. Hann vill
stofna sjálfstætt lýðveldi á eynni
Mindanao, næst stærstu eynni í
Filippseyjaklasanum, og hefur
sent sendiráðum erlendra ríkja í
Manilla bréf þar sem hann fer
fram á að það hljóti alþjóðlega
viðurkenningu. Sagðist Noble vilja
fá Corazon Aquino forseta til fund-
ar við sig og semja við hana um
stofnun ríkis á Mindanao.
Yfirmenn hersins segja upp-
reisn Nobles lið í áframhaldandi
tilraunum til þess að steypa Aqu-
ino en hún hefur staðið sex bylt-
ingartilraunir af sér frá því hún
komst til valda árið 1986.
Hætta af strandi amm-
oníaksskips afstaðin
Brussel. Reuter.
ÞÝSKT tankskip með ammoníaksfarih var dregið af strandstað í
ánni Scheldt 10 km utan við borgina Antwerpen í Belgíu. Fyrstu
fregnir hermdu að skipið hefði sokkið og brotnað og væri mikil
hætta á að eiturský myndaðist og legðist yfir borgina en þær
reyndust rangar.
Libby>
Stórgóða tómatsósan
Tankskipið var með 10.700
tonna ammoníaksfarm innanborðs
og voru átta dráttarbátar notaðir
til þess að draga það á flot. Meðan
á því stóð varð að loka allri skip-
aumferð um ána. Engar skemmdir
sáust á skipinu og engin hætta
talin lengur á mengunarslysi vegna
strandsins.
Hætta var talin á ferðum ef of
mikil slagsíða kæmi á skipið á út-
flæðinu. A strandstað hallaðist þða
10-15 gráður en er þannig úr garði
gert að það á að geta staðið af sér
allt að 25 gráðu slagsíðu án þess
að kælibúnaði, sem heldur ammon-
íakinu -33 gráðu köldu, sé nokkur
hætta búin. Tankskipið heitir
Bussewitz og er frá austurhluta
hins sameinaða Þýskalands.
Á VÖNDUÐUM TEPPUM
FYRIR STIGAHÚS OG
SKRIFSTOFUR
TEFLON
Gram
Teppi
HEPPAVERSUIN
FRHHHKS BERTELSEN
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266
ELSTA TEPPAVERSLUN LANDSINS
AUK hf. 103.2/SfA