Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
35
Guðmundur Ingi-
marsson - Minning
Fæddur 17. september 1900
Dáinn 20. september 1990
Nú fer að fækka þeim sem fædd-
ir eru fyrir og um aldamótin. Einn
þeirra, Guðmundur Ingimarsson,
oftast kallaður frá Efri-Reykjum í
Biskupstungum, kvaddi þennan
heim eftir níutíu ár og þrem dögum
betur. Ég hygg að hann hafi verið
orðinn hvíldinni feginn, enda þrekið
búið.
Leiðir okkar Guðmundar, eða
Munda eins og hann var oftast
kallaður, lágu fyrst saman 1955 er
hann flyst að Torfastöðum til Ket-
ils Kristjánssonar og Ingibjargar
Einarsdóttur systurdóttur sinnar.
Hann fékk að hafa kindur hjá mér
og þar með hófust okkar kynni.
Mundi vargóður ijármaður og hafði
yndi af kindum. Mundi bjó víða en
stutt á hverjum stað. Hann bjó í
Hólum, erfiðri jörð, einnig í Mjóa-
dal fyrir norðan. Einnig bjó hann á
Efri-Reykjum og ráðsmaður var
hann á lrjárbúi Sauðs sf. á Þórodds-
stöðum í Grímsnesi. Áður hafði
Mundi verið ijármaður á ijárrækt-
arbúinu að Hesti í Borgarfirði.
Hann starfaði einnig að garðyrkju
á Syðri-Reykjum og á Espiflöt. Hin
síðari ár vann hann byggingavinnu
á Laugarvatni, meðan þrek leyfði.
Síðan átti Mundi heimili hér all-
mörg ár og átti jafnan kindur.
Mundi var vel greindur og hafði
fengið menntun í Flensborgarskóla,
sem þótti góð skólaganga á hans
uppvaxtarárum. Hann var vel rit-
fær og hafði góða rithönd. Hann
vann að byggðalýsingu Suðurlands
ásamt fleirum. Hann átti margt
góðra bóka og las jafnan mikið.
Mundi var eins og einn af heimil-
isfólki hér á bæ í mörg ár. Ég held
að þar hafi ekki borið skugga á.
Ég á Munda margt að þakka, því
hann var góður á heimili, snyrti-
menni og skemmtilegur. Þá hygg
ég að börnum mínum hafi þótt
vænt um hann og hafi það verið
gagnkvæmt. Ég votta aðstandend-
um hans samúð. Þökk fyrir sam-
fylgdina.
Sigurjón Kristinsson,
Vegaiungu, Biskupstungum
Mig langar að minnast vinar
míns Guðmundar Ingimarssonar nú
þegar hann er allur. Hann fæddist
á Efri-Reykjum í Biskupstungum
17. september 1900 og var því 90
ára þegar hann lést. A Efri-Reykj-
um sleit hann barnsskónum og alla
tíð var hann tengdur fæðingarsveit
sinni sterkum böndum. Þar dvaldi
hann líka langdvölum sín mann-
dómsár.
Nú þegar kveðja skal Munda,
eins og hann var alltaf kallaður,
þá leita margar bjartar minningar
á huga minn því mér finnst þegar
ég lít til baka að honum hafi alltaf
fylgt birta og ylur. Ég man hann
fyrst stuttu eftir að ég flutti í Tung-
urnar. Þá kom hann í heimsókn.
Þá, eins og alltaf síðar, var gaman
að ræða öll möguleg málefni við
Munda. Hann var greindur maður
og kátur og léttur í samræðum og
hafði sínar skoðanir á mönnum og
málefnum. Þeim skoðunum hélt
hann ákveðinn fram og hafði gaman
af að rökræða þær og annað það
sem sem bar á góma. Mér fannst
oft með ólíkindum hvað hann var
víðlesinn og vel heima í ólíkustu
málefnum og hvað gaman var að
ræða við hann um allt milli himins
og jarðar.
í fyrstu var Mundi næsti ná-
granninn og sá sem oftast átti leið
um hlaðið hjá okkur og seinna fór
svo að hann flutti til okkar og bjó
hjá okkur í húsinu að staðaldri um
langan tíma. Margs og góðs er að
minnast frá þeim tíma. Alltaf var
hann boðinn og búinn til hjálpar
við öll verk og allrar þeirra sam-
vinnu sem heimilislíf þurfti með.
Sjálfur hélt hann sitt heimili og
gerði það afar vel. Allt var snyrti-
legt og hreinlegt hjá honum og allt-
af var hann snyrtilega og myndar-
lega klæddur svo að eftir var tekið.
Hann var mér alla tíð afskaplega
góður og milli okkar tókst smám
saman vinátta sem aldrei bar nokk-
urn skugga á og sem ég fæ aldrei
fullþakkað. Hann var alltaf tiibúinn
að gera mér allt það gott sem hann
mátti. Sama var að segja um börn-
in mín. Þeim þótti afskaplega vænt
um Munda og hann var þeim góð-
ur. Þau áttu hauk í horni þar sem
Mundi var og ég veit að þau hugsa
til hans með innilegu þakklæti eins
og ástkærs afa. Það gera barna-
börnin líka og meðan þau voru lítil
kölluðu þau hann alltaf Munda afa.
Við þökkum Munda öll fyrir sam-
veruna og allt gott sem hann lét
okkur í té.
Síðustu árin var Mundi slitinn
og heilsuveil og d'valdi á Kumbara-
vogi nokkur ár. Þar lést hann. Ég
votta börnum hans ættingjum og
vinum innilegar samúðarkveðjur og
bið öllu og öllum sem Munda var
annt um guðs blessunar.
Þuríður Sigurðardóttir
UnPPHPKfcn
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS
10 GOÐ ROK FYRIR ÞVI
AÐ FÁ SÉR HTH
ELDHÚSINNRÉTTINGU
1 DRAUMAELDHÚSIÐ WTT
Draumaeldhúsið þitt á auðvitað að vera
fallegt, aðgengilegt og hannað á réttan
hátt. Starfsmenn Innréttingahússins vita
hvað þarf til þess að draumurinn rœtist.
2 FYRIRTAKS ÞJÓNUSTA
Við leggjum okkur fram um að veita
bestu þjónustu, sem völ er á, frá þeirri
stundu að eldhúsið þitt kemst á teikni-
borðið hjá okkur, til þess dags að upp-
setningu er lokið.
GÓÐ OG ÖRUGG AFGREIÐSLA
Við afhendum þér nýja eldhúsið 6-8
vikum eftir að pöntun er gerð og afhend-
um við húsdyrnar þínar ef þú býrð á
Stór-Reykjavíkursvœðinu.
4 Á RÉTTU VERÐI
Á hverju ári eru framleiddar fleiri en
milljón HTH-skápaeiningar og með
hagkvœmri fjöldaframleiðslu er verðinu
haldið niðri. Þessum sparnaði er komið til
viðskiptavina til að tryggja að þeir fái
góða vöru á réttu verði.
5 SKYNSAMLEG FJÁRFESTING
HTH-innrétting eykur verðgildi fbúðarinnar
og er því kjörin fjárfesting fyrir framtíðina.
6 GÆÐASTIMPILL
Allar HTH-eldhúsinnréttingar hafa hlotið
hinn þekkta gœðastimpil „Dansk Vare-
fakta". Það þýðir að þaer hafa staðist
prófanir til að ganga úr skugga um
gœði, endingu og handþragð. Prófanirn-
ar framkvœmir sjálfstœð dönsk rann-
sóknastofnun.
7 ÓKEYPIS RÁÐGJÖF
Við mœlum fyrir og aðstoðum við val á
HTH-innréttingum þér að kostnaðarlausu
og án skuldbindinga.
8 FAGMANNLEG UPPSETNING
Aðeins sérþjálfaðir fagmenn annast
uppsetningu HTH-innréttinga.
9 FUÓTLEGT OG
FYRIRHAFNARLAUST
HTH-einingarnar eru afhentar sérpakkað-
ar með hurðum, ásamt teikningum til að
tryggja fljótlega og fyrirhafnarlausa
uppsetningu.
1C HEILDARLAUSN
Innréttingahúsið hefur ávallt kappkostað
að finna bestu heildarlausnina fyrir
viðskiptavini sfna. Þannig má fá Blomberg
heimilistœki og vaska með eldhúsinnrétt-
ingunum, einnig fataskápa og baðinn-
réttingar. Allt þetta tryggir þér sem bestan
heildarsvip.
irmréttingahúsíð
Háteigsvegi 3, Reykjavík. Sfmi 91-627474. Fax 91-627737.
Opið laugardaga kl. 10-18.