Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
9
Reilutilboð
100 kr. leikurinn mánudaga til
föstudaga kl. 12.00-17.00.
Keilusalurinn Öskjuhlíð,
sími 621599.
Tvöfaldi sólinn í öryggisskónum frá
JALLATTE gerir skóna mjúka, létta og
gripgóða, auk þess þolir hann vel olíur og
sýrur. Stálþynna í sólanum er naglheld og
þolir högg.
Stálhetta hlífir tánum fyrir höggum og
hnjaski og hefur nægilegt rými fyrir
tærnar.
i hælbótinni er hlíf til varnar hásin og
öklabeini.
JALLATTE öryggisskórnir —
öruggtval.
>X< JaHai
ORYGGI FYRIR OLLU
TOYOTA
NOTAÐIR BÍLAR
Athugasemd!
Bílar með staðgreiðsluverði
eru einnig fáanlegir með lánakjörum skv. lónatöflu Toyota bílasölunnar.
SUBARU STW ’87
Ljósblár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 53
þús/km. Verð 770 þús. stgr.
TOYOTA 4-RUNNER '90
Vínrauður. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 13
þús/km. Verð 2.180 þús. stgr.
TOYOTA COROLLA ’86
Blár. Sjálfsk.í dyra. Ekinn 47 þús/km.
Verð420 þús. stgr.
FORD ESCORT '85
Blár. 4 gíra. 3 dyra. Ekinn 91 þús/km.
Verð 360 þús.
WILLIS WRANGLER '87
Svartur. 5 gíra. 2 dyra. Ekinn 47
þús/km. Verð 1.370 þús. stgr.
TOYOTA COROLLA LB ’88
Rauður. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 24 þús/km.
Verð 820 þús.
TOYOTA
Álviðræður viö sjálfstæöismenn valda óróa í stjómarsamstarfinu:
Leynif undur sem sýnir
ótrúlegan kjánaskap
- segir Ólafur Ragnar Grimsson Fjármálaráðherra__^
Deilt um fundi
Um þær mundir sem spennan var sem mest innan ríkisstjómar-
innar vegna álmálsins í síðustu viku skýrði Jón Baldvin Hannib-
alsson, formaður Alþýðuflokksins, frá því í útvarpsviðtali, að
hann hefði með Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra rætt við þá
Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Davíð Odds-
son, varaformann flokksins, um álmálið. Sagði Jón Baldvin að
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefði vitað um
þessa fundi og væri ekki andvígur þeim. Hið sama verður ekki
sagt um Alþýðubandalagið og Ólaf Ragnar Grímsson eins og
vikið er að í Staksteinum í dag.
„Kjána-
skapur“
Ólafur Ragnar
Grímsson, formadur Al-
þýðubandalagsins og
fjármálaráðherra, virðist
hafa fengið pólitískt af-
brýðissemikast, þegar
haim frétti af fundum
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar og Jóns Sigurðs-
sonar með þeim Þorsteini
Pálssyni og Davíð Odds-
syni. í samtali við Dag-
blaðið-Vísi (DV) komst
Ólafur Ragnar þamiig að
orði: „Jón Baldvin hefur
ekki sagt mér fráþessum
fmidi og ég hefði ekki
trúað þvi að forsætisráð-
herra væri að samþykkja
það að eirni ríkissljórnar-
flokkurinn væri að eiga
leynifundi með stjórnar-
andstöðuflokki án þess
að aðrir rikisstjórnar-
flokkar vissu það.“
Þegar Ólafur Ragnar
er spurður, hvort þetta
sé viðkvæmt mál fyrir
stjórnarsamstarfið, svar-
ar hann: „Það er alltaf
viðkvæmt þegar ráðherr-
ar eins flokks fara að
ræða stórmál við stjórn-
arandstöðuna á trírnað-
ar- og leynifundum án
þess að láta aðra stjóm-
arflokka vita. Við í Al-
þýðubandalaginu höfum
aldrei vanið okkur á slik
vinnubrögð. Þetta var
auðvitað fyrst og fremst
ótrúlegur kjánaskapm-
og ég ætla að vona að
svona leynifundum ljúki.
Mér finnst Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa sýnt
ákveðinn manndóm að
hafa ekki tekið þátt í
svona leynimakki."
Lokaorð Ólafs Ragn-
ars verða ekki skilin á
annan veg en þann, að
hami telji að ráðherrar
Alþýðuflokksins hafi ver-
ið að leita samnhiga við
sjálfstæðismenn um
leynilegt samkomulag
um fraingang álmálsins,
hvað sem liði afstöðu ein-
stakra sfjóniarflokka og
þetta hafi verið gert með
vitund og vilja forsætis-
ráðherra.
„Stórmál“
Þrátt fyrir andmæli
Ólafs Ragnars Grímsson-
ar mæltust þeir Jón Bald-
vin og Jón Sigurðsson til
þess við Þorstein og
Davíð, að þeir hittu sig á
fundi sl. föstudag. Um
þami fund sagði Svavar
Gestsson í DV: „Þetta er
stórmál og algerlega
óvenjulegt." Sagðist
menntamálaráðherra
ætla að ræða málið „þeg-
ar forsætisráðherra er
kominn“ eins og það er
orðað. Taldi meimta-
málaráðherra að þátt-
taka Jóns Baldvins, for-
manns Alþýðuflokksins, í
þessum fundum gerði þá
tortryggilega og Svavar
bætti við: „Þarna hlýtur
því að vera rætt um fleiri
mál en ál enda sagði Jón
Baldvin í gær að verið
væri að ræða um skipan
þmgmeirihluta."
Ólafur Ragnar sagði,
þegar hann var spurður
um föstudagsfundinn,
áður en hann var hald-
hm: „Þetta er pólitískt
einkaframtak Jónanna
en ég vona að þeir fari
að tilmælum flokkssystur
sinnar, Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, og haldi svona
fundi með Kvennalistan-
um og saimi þannig að
þetta séu bara upplýs-
ingafundir." Að sögn DV
sagðist hann ekkert geta
sagt til um það hvort
þessi fundarhöld stefndu
stjórnarsamstarfinu í
hættu.
Þeir sem eru vanir að
lesa í orð forystumanna
Alþýðubandalagsins sjá
strax, að ráðherrar
flokksins eru alls ekki á
því að Icynimakk með
stjórnarandstöðunni
breyti nokkru um fram-
kvæmd „ráðherrasósíal-
ismans" en sú stjórn-
málastefna hefur það
sem höfuðtnarkmið að
ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins sitji sem lengst í
ráðherrastólum, hvað
sem störfum eða stefnu
rikisstjómarinnar líður.
Jón Baldvin
hopar
Svavar Gestsson las
það út úr þátttöku Jóns
Baldvins í fundunum með
Þorsteini og Davíð, að
þar væri ekki einvörð-
ungu verið að ræða um
útfærslu á álsamningum
hcldur stjórnmál á víðara
gruimi. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa. Jón
Baldvin hætti við þátt-
töku í fundinum um há-
degisbilið síðastliðinn
föstudag sem Davíð
Oddsson segir að hafi
verið boðaður á þann
hátt, að þeir Þorsteinn
liefðu verið beðnir að
halda fund með formanni
Alþýðuflokksins og iðn-
aðarráðherra. Sagði
Davíð í DV, að tilkyimt
hefði verið að morgiú
föstudagsins að Jón Bald-
vin myndi ekki sækja
fundinn.
Um þennan síðasta
fund segir Jón Baldvin í
DV sl. laugardag: „Eftir
atburði gærdagsins [þ.e.
sl. fimmtudag] og yfirlýs-
mgar ýmissa stjórnar-
manna Landsvirkjunar
hefm- iðnaðarráðlieixa
óskað eftir því að fá að
fiuida með Davíð Odds-
syni og hugsanlega fleiri
sjálfstæðismöimum í
meirihluta stjórnar
Landsvirkjunar til þess
að freista þess að skýra
svolítið afstöðu þessa
stjómarmeirihluta til
málsins og til umboðs
Landsvirkjunarstjórnar í
samningunum. Það er því
ekki rétt að ég hafi leitað
eftir þessum fundi á veg-
um formaims Alþýðu-
flokksins.11
Þarna standa orð
Davíðs Oddssonar gegn
orðum Jóns Baldvins og
er sérkennilegt að beðist
sé afsökunar á óvæntri
fjarveru Jóns Baldvins á
fundi sem hann ætlaði
aldrei að sitja að eigin
sögn. Hvers vegna var
Þorsteinn Pálsson boðað-
ur til þessa fundar? Ekki
á haim sæti í stjóm
Landsvirkjunar. ' Ami
Grétar Finnsson, sem er
eiim fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í stjórn Lands-
virkjunar, sagði við DV,
að þessi föstudagsfmidur
hefði ömgglega ekki ver-
ið tengdur stjóm Lands-
virkjmiar; iðnaðarráð-
heira hefði aldrei boðað
stjómarmenn Lands-
virkjunar til fundar
vegna álmálsins.
Af öllu þessu má helst
ráða, að forystumeim
Alþýðuflokksins geti
- hreinlega ekki glímt við
mál af þessari stærðar-
gráðu, án þess að þau
fari úr böndunum.
VERÐBREF I ASKRIFT
Við sem
lottóinu ;
piotiáKl nLLar
• •
uraium ekki
getum líka
P« / # / x •
Það tekur að vísu dálítið lengri tíma, en með
reglulegum sparnaði má líka safna digrum íjársjóði.
Verðbréf í áskrift hjá VIB er þjónusta fyrir þá sem vilja
leggja fyrir reglulega á þægilegan hátt og fá góða
ávöxtun á sparifé sitt. Til dæmis verða 10.000 kr. á
mánuði í 20 ár að 5 milljónum ef vextir haldast 7%.
Verið velkomin í VÍB.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
NÝBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI