Morgunblaðið - 09.10.1990, Síða 35
M0RGUN6LAÐIÍ) VPSMPn/flnnNNUy&^^ OKTÓUKK 1990
35o
Bretland
Laugavegi 59
Kjörgarði
Sími 15250
K á p u r
J a k k a r
D r a g t i r
F r a k k a r
Buxur
Blússur
P i l s . . .
Búist við frekari vaxta-
lækkunum fyrirjól
St. Andrews, frá Guömundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BÚIST er við frekari lækkunum
á grunnvöxtum í kjölfar ákvörð-
unarinnar um þátttöku í evr-
ópsku gengissamvinnunni og 1%
lækkun grunnvaxta sl. föstudag.
Andstæðingar íhaldsmanna hafa
sakað stjórnina um að hafa látið
stjórnmálaástæður ráða ákvörð-
uninni en ekki efnahagslegar.
John Major, breski fjármálaráð-
herrann, tilkynnti þá ákvörðun
stjórnar sinnar sl. föstudag kl. 4
síðdegis, að sterlingspundið yrði
þátttakandi í evrópsku gengissam-
vinnunni frá mánudegi og jafnframt
lækkaði Englandsbanki grunnvexti
um_ 1% í 14%.
Á laugardag samþykkti nefnd
Evrópubandalagsins, að gengi
pundsins yrði 2,95 þýsk mörk og
það hefði 6% svigrúm til hækkunar
eða lækkunar.
Gengi hlutabréfa hækkaði þegar
í stað mjög mikið á föstudag. Fyrstu
klukkustundina eftir að hlutabréfa-
markaðurinn hóf viðskipti á mánu-
dagsmorgun hækkuðu hlutabréf
meira en nokkru sinni á svo skömm-
um tíma. Sömuleiðis hækkaði gengi
sterlingspundsins þegar í stað og
hélt áfram að hækka á mánudag.
Talið er að gengi pundsins verði í
efri mörkunum næstu vikur, vegna
þess að vextir eru háir í Bretlandi
samanborið við önnur lönd EB og
spákaupmenn hafa nú tryggingu
fyrir því, að pundið lækki ekki í
verði.
Afstaðan til frekari sameiningar
EB og þar með til þátttöku ster-
lingspundsins í gengissamvinnunni
hefur verið eitthvert erfiðasta mál
Thatcher-stjórnarinnar á þessu
kjörtímabili. Nigel Lawson, fyrrum
fjármálaráðherra, sagði til dæmis
af sér vegna ágreinings við frú
Thatcher um slíka þátttöku. Mikil
átök eru innan breska íhaldsflokks-
ins um afstöðuna til frekari samein-
ingar Evrópúbandalagsins.
Þessi yfirlýsing hefur mikla
pólitíska þýðingu. Hún kom á loka-
degi ársfundar breska Verka-
mannaflokksins og allar líkur eru
á, að ákvörðun stjórnarinnar taki
vind úr seglum Verkamannaflokks-
ins, en hann hefur átt góðu gengi
að fagna í skoðanakönnunum sl.
ár. Eitt lykilatriðið í nýrri efnahags-
málastefnu Verkamannaflokksins
er einmitt þátttaka í gengissam-
vinnunni. Þessi ákvörðun bætir líka
andrúmsloftið á ársfundi íhalds-
flokksins, sem hefst í dag, þriðju-
dag.
Talsmenn Verkamannaflokksins
segja ákvörðunina ekki byggjast á
efnahagslegum forsendum heldur
sé hún dæmi um örvæntingu
Thatcher-stjórnarinnar.
Efnahagssérfræðingar telja, að
verðbólga hafi náð hámarki í sept-
ember, en tölur fyrir september
verða birtar nk. föstudag, en muni
fara lækkandi út allt næsta ár.
Þeir búast við að vextir geti jafnvel
verið komnir niður í 11% næsta
sumar. Fasteignamarkaður í Bret-
landi, sem verið hefur í lægð sl. ár,
tók þegar við sér um helgina. Bygg-
ingalánasjóðir hafa þegar tilkynnt,
‘að þeir muni lækka vexti á hús-
næðislánum um 0,5-1% um næstu
mánaðamót. Þá verða vextir af
húsnæðislánum 14,5-15%.
EMS — John Major breski
fjármálaráðherrann tilkynnti
fyrir helgi að breska sterlings-
pundið yrði þátttakandi í Evr-
ópska myntkerfinu (EMS).
f y r i r k o n u r
Hef opnað sálfræðistofu
á Laugavegi 43
Einstaklings- og fjölskyldumeðferðir
Námskeid
til að taka á höfuðverk, svefntruflunum og langvinnum
verkjum hefjast í byrjun nóvember.
Upplýsingar og innritun í síma 16331 á kvöldin og um
helgar.
Claudia Ósk Hoeltje, sálfræðingur.
Kosn ingaskrifsto fa
stuðningsmanna
Sólveigar Pétursdóttur
vegna prófkjörs sjálfstæðis-
manna í Reykjavík erað
Suðurlandsbraut 4,3ju hæð.
Skrifstofan er opin alla daga
frá kl. 14:00-21:00.
Símar: 679516, 38300
og 38303.
NÝJA LÓSRITUNARVÉLIN
FRÁ XEROX
Eigum fyrirliggjandi á sérstaklega hagstæðu verði
XEROX 5014 ljósritunarvélina sem lientar smærri
fyrirtækjum e5a deildum stærri fyrirtækja.
Sterkbyggð vél með ótrúleg ljósritunargæði.
Vébn býður m. a. upp á:
• stækkun / minnkun
| • hnapp fyrir Utaðan pappír
5 • hnapp fyrir ljósmyndaljósritun
l
Eigum ennfremur átta a5rar geröir fyrirliggjandi.
jj - Verð frá kr. 71.627.-
«* - ——--------------------------
t Kynntu þér gæði og kosti XEROX.
SKRIFSTOFUVÉLAR SUND HF
NÝBÝLAVEGI14-16 - SÍMI 641222
-tækni og þjónusta á traustum grunni
SIEMENS
Þvottavélar
Þurrkarar
Eldavélar
Örbylgjuofnar
Gœðaíœki fyriir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
nýtt símanúmer
auglýsimgadeild^
tiBilll