Morgunblaðið - 15.11.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
31
Hörð átök í Berlín á milli
lögreglu og hústökumanna
Berlín. Reuter.
UM 3.000 þýskir lögreglumenn
réðust inn í Mainzer Strafte í
Friedrichsain-hverfinu í Berlín í
mestu átök í borginni frá árinu
1981. Slíkir atburðir hafa gerst æ
algengari í Austur-Berlín að undan-
förnu. Ungir nýnasistar og knatt-
spyrnubullur hafa hvað eftir annað
átt í átökum við lögreglu.
SJÚKRAÞJÁLFUN
Erik Joost van Erven, löggiltur sjúkraþjálfari, mun
hefja störf í Sjúkraþjálfun Kópavogs hf.,
Fannborg 5, Kópavogi frá 1 5. nóvemþer 1 990.
Sími 45488.
gær til að ryðja byggingar þar
sem herskáir hústökumenn
höfðu komið sér fyrir. Borgar-
yfirvöld höfðu óskað eftir þess-
um aðgerðum eftir að brotist
höfðu út átök, sem talin eru hin
hörðustu í borginni í áratug.
Hústökumennirnir köstuðu stein-
um og bensínsprengjum á lögreglu-
mennina frá húsþökum og tókst
þeim í fyrstu að koma í veg fyrir
að lögreglan kæmist inn í húsin.
Þá-var gripið til þess ráðs að senda
þangað sérsveitir sem komust inn
um glugga húsanna með þyrlum.
Síðar áttu þeir í átökum við hús-
tökumenn á húsþökum.
Talsmaður þýska innanríkisráðu-
neytisins, Werner Throniker, sagði
að lögreglan hefði handtekið að
minnsta kosti 135 menn, þar á
meðai borgarstjórnarmann róttæk-
linga. Tíu lögreglumenn urðu fyrir
meiðslum. Sjónarvottar sögðu að
hnífar hefðu verið teknir af nokkr-
um hústökumannanna, sem voru
þýskir, franskir ítalskir og hollensk-
ir.
Hústökumennirnir höfðu reist
götuvígi sem lögreglan ruddi í burtu
með jarðýtum. Þeir grófu einnig
djúpa skurði í götuna.
Walter Pomper, borgarstjóri
Berlínar, sagði í útvarpsviðtali að
borgaryfirvöld myndu ekki láta
hústökur viðgangast lengur. Hann
lítur átökin við hústökumennina
mjög alvarlegum augum þar sem
hann berst nú fyrir því að Berlín
verði höfuðborg sameinaðs Þýska-
lands.
Borgaryfírvöld segja að þetta séu
Rúmenía:
Segir njósna-
foringja hafa
pyntað sig
Búkarest. Reuter.
RÚMENSKUR verkamaður af
þýskum uppruna, Werner Som-
merauer, 54 ára gamall, sem var
handtekinn árið 1987 í andkom-
múniskum mótmælum verka-
manna i borginni Brasov, sagði
í gær að hann hefði verið pyntað-
ur af fyrrverandi yfirmanni
leynilögreglunnar, Iulian Vlad
hershöfðingja.
Vlad er í fangelsi í Búkarest þar
sem hann mætir fyrir rétt vegna
fjöldamorðs á mótmælendum í upp-
reisninni í desember á síðasta ári
þegar einræðisherranum fyrrver-
andi, Nicolae Ceausescu, var steypt
af stóli og hann tekinn £if lífi.
Sommerauer sagði í lýsingu sinni
á yfirheyrslunum yfir sér eftir mót-
mælin í Brasov árið 1987 að Vlad
hefði fært sig úr skónum og barið
sig með viðarkylfu á iljarnar. Hann
hefði einnig barið sig á bakið og
lófana þar til þeir voru orðnir bláir.
Sommerauer nefndi átta aðra
yfirmenn og sagði að þeir hefðu
tekið þátt í yfirheyrslum, pynting-
um og fangelsun verkamannanna
sem tóku þátt í mótmælunum í
Brasov. Hann nefndi einnig nöfn
nokkurra annarra fórnarlamba.
Ofbeldi braust út við mótmælin
í Brasov eftir að lögregla kom í veg
fyrir að verkamenn kveiktu í ráð-
húsi borgarinnar. Um 300 verka-
menn voru handteknir og 20 drepn-
ir eða hurfu og margir voru flutti
til afskekktra héraða.
Mótmæli gegn ríkisstjórninni
hafa verið skipulagðar víða í Rúm-
eníu í dag til að minnast óeirðanna.
HOOVER O FUNAI
^ív!af=ik: CARMEN
■<?>
SPÁÐU í VERÐIÐ
HOOVER
Ryksuga
Compact
1000Wött
KR.
11.990.-
O funai Örbylgjuofn
HOOVER
Þvottavél
A 2400
• 1300 SNÚNINGA VINDUHRAÐI
• RYÐFRÍTT STÁL f TROMLU 06 BELG
• SPARNAÐARKERFI
• EINFALDAR OG SKILMERKILEGAR
ISL. LEIÐBEININGAR
KR.
69.990.
• METSÖLUOFNINN OKKAR
• EINFALDUR EN FULLKOMINN
• MJÖG HENTUG STÆRÐ
KR. 21.660.-
O fUnai
Myndbandstæki
VCR 7500
HOOVER.
Þurrkari D 6328
• 4,5 KG RYÐFRlR STÁLBELGUR
• SNÝR I BÁÐAR ÁTTIR
• 120 MlN. TlMASTILLIR
• GEFUR LÍÓSMERKI AÐ PURRK LOKNUM
_4£^0^
KR. 39.990.-
FUNAI
Hljómtæki
—-—
HQ (HIGH QUALITY) KERFI
ÞRÁÐLAUS FJARSTÝRING
STAFRÆN AFSPILUN (DIGITAL)
SJÁLFLEITUN SÍÐUSTU UPPTÖKU
HRAÐUPPTAKA
• RAKAVARNARKERFI (bEW)
• SJÁLFVIRK BAKSPÓLUN
• FJÖLHÆFT MINNI
• SJÁLFLEITUN STÖÐVA
• EINFALT QG FULLKOMIÐ
GRUnDIG
KR. 29.999.-
F 20
• 2x50 WATTA ÚTGANGSSTYRKUR
• 5 BANDATÓNJAFNARI
• CD INNGANGUR, PLÖTUSPILARI REIMDRIFINN
• TVÖFALT KASETTUTÆKI „HIGH SPEED DUBBING"
• 30 STÖÐVA MINNI Á ÚTVARPI FM STEREO MW-LW
• 8 LIÐA VÖNDUÐ FJARSTÝRING
KR. 23.655.-
Rakvél
Frá KR.
3.570.
G FUNAI
Upptökuvél
FCP100
• 6-FALDUR AÐDRÁTTUR „200M"
• FÓKUS SJÁLFVIRKUR EÐA HANDVIRKUR
• ÞYNGD 1,4 KG ÁN RAFHLÖÐU
• LOKUNARHRAÐI 1/1000 SEK
• MYNDSKOÐUNARSKERMUR
• ALLIR FYLGIHLUTIR MEÐ I VERÐI
KR. 69.990.-
* Öll vert miSast
við staðgreiðslu
HEIMILISKAU P H F
• HEIMILISTÆKJADEILD FÁLKAHS •
Suðurlandsbraut 8 - Sími 84670