Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 57
oeer aaaMagaa .si auoAautMMia ajGAjaMuoaorí
MORGUNBIAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
!
vinna að vímuefnavörnum: Vfmu-
la.us æska, heilbrigðisráðuneytið,
Áfengisvarnaráð, Lionshreyfingin,
Átak gegn áfengi og öðrum vímu-
efnum, templarar og fleiri. Allir
þessir aðilar hafa lagt sitt af mörk-
um. Það ber vitni um dæmalausa
fáfræði að lýsa frati á starf þessara
aðila. Guðmundur segist hvergi
hafa séð neitt gert skipulega í því
að fræða skólakrakka í lengri tíma.
Enn er fáfræðin dæmalaus. Guð-
mundur veit greinilega ekki um þá
stefnumörkun sem sett er fram í
Aðalnámskrá grunnskóla, að vímu-
varnir hafa verið gerðar að föstum
lið í námi kennara. Hann veit ekki
að stórátak hefur verið gert á
síðustu árum í gerð fræðsluefnis
um vímuefnamál og ber þar hæst
námsefnið „Að ná tökum á til-
verunni", en þetta námsefni er gjöf
Lionshreyfingarinnar til íslensku
þjóðarinnar. Þetta námsefni er að
verða lögbundið í öllum grunnskól-
um í Svíþjóð, Noregi og sennilega
Danmörku líka. Auk þess er það
kennt nú þegar í flestum öðrum
löndum Evrópu. Þetta námsefni er
unnið af ýmsum fremstu kennslu-
fræðingum Bandaríkjanna og stað-
fært og aðlagað íslenskum aðstæð-
um af ýmsum fremstu menntafröm-
uðum íslands.
Hér læt ég staðar numið. Hvar
hefur Guðmundur eiginlega verið
undanfarin ár? Á sama tíma og fjöl-
margir reyna að vinna saman að
vímuvömum fordæmir Guðmundur
þá. Hann einn kann, veit og getur.
Það er athyglisvert að Guðmundur
skuli telja Samtök áhugamanna um
áfengisvandann eina aðilann sem
treystandi sé fyrir forvarnastarfi.
Einhvers staðar sá-ég haft eftir
formanni SÁÁ, og þá líklega yfir-
manni Guðmundar, að hann teldi
að þriðji hver íslenskur karlmaður
þyrfti að fara í meðferð á ævi sinni.
Við erum nú mörg úti í þjóðfélaginu
sem teljum:
a) að sumt fólk geti umgengist
áfengi af ábyrgð og þurfti ekki að
fara í áfengismeðferð,
b) að margir noti ekki og kæri
sig ekki um að nota áfengi né önn-
ur vímuefni — án þess að þurfa að
fara í meðferð hjá SÁÁ til að kom-
ast að þeirri niðurstöðu,
c) að hægt sé að breyta hugarfari
og viðhorfum fólks til áfengis og
annarra vímuefna, rétt eins og tek-
ist hefur varðandi tóbak.
Grein Guðmundar gefur fjölda-
mörg önnur tækifæri til að velta
vöngum yfir innihaldi hennar en
hér er mál að linni. Forvarnarmál
og vímuvarnir eru of mikilvægur
málaflokkur til þess að tíma sé eytt
í hugsunina „þetta er mitt mál,
öðrum kemur það ekki við.“ í þess-
ari baráttu er nauðsynlegt að allir
leggist á eitt. Öfundsýki og eigin-
hagsmunir eiga ekki við.
Höfundur er starfsmaður hjá
Áfengisvurnaráði, Vímulausri
æsku, formaður Ataks gegn
áfengi og hefur í 21 ár unnið að
vímuvarnamálum. Þá erhann og
foreldri.
Pennavinir
Frá Frakklandi skrifar 42 ára
karlmaður sem vill komast í penna-
samband við íslenskar konur:
Daniel Hulas,
11 Chemin des Figuieres,
69320 Feyzin,
France. .
Alsírskur karlmaður, 21 árs, með
áhuga á íþróttum, tónlist, ferðalög-
um:
Rehoui Rafik,
c/o Zerarka Mohamed,
21 rue Arab sid Ahmed,
Birkhadem 16330,
Alger,
Algerie.
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og kvikmyndum:
Akemi Kitamura,
1015-19 Kawaminami,
Kannabe-cho,
Fukayasu-gun,
Hiroshima-ken 720-21,
Japan.
Argentínskur 35 ára maður með
mikinn íslandsáhuga og safnar auk
þess póstkortum:
Hector Fermin Mena,
Dos de Abril 636,
1619 Garin,
Argentina.
ER JÓLATRtÐ
Jólatrén okkar eru óvenju
falleg í ár.
Komið í jólaskóginn og
veljið jólatré við bestu
aðstæður.
Sendum jólatré hvert
á land sem er.
btómouQl
mytr
GRttOStUKORtA*
TlfAABIt
Opið frá kl. 9-22
1
1
i
,.!#
i