Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
þóLum eJckíaSAorfa á hi/ort
*
Ast er...
... að láta hann ekki
sleppa.
TM Rofl. U.S. P»t OfL — »11 nflPt* r»Mrv»d
® 1990 Lo* Angales Tk™» S»ndic»t»
Ég fann öll gömlu ástarbréfin
til þín uppi á háalofti.
Með
morgunkaffinu
Hvar eru vinningarnir?
Til Velvakanda.
„Ertu á höttunum eftir hálfri
milljón?" Þessi auglýsing klingir í
eyrum manns í útvarpinu oft á
dag. Já, ég var einmitt á höttunum
eftir hálfri milljón þegar ég lab-
baði inn á góðan sölustað og bað
um hvorki meira né minna en einn
pakka af happaþrennum, 100
stykki. Nú ætlaði ég svo sannar-
lega að verða rík á skömmum
tíma. Það gat ekki verið annað en
eitthvað leyndist af vinningum í
heilum pakka, kannski bara hálf
skafa og skafa, og hætti ekki fyrr
en pakkinn var búinn. Þá var ég
orðin handlama en ég vissi að það
myndi nú lagast, það voru bara
smámunir hjá því sem átti eftir
að koma í Ijós.
Svo fór ég að telja samna, ekki
einu sinni heldur tvisvar, því ég
ætlaði ekki að trúa mínum eigin
augum.
Af þessum hundrað miðum voru
83 ónýtir, semsagt enginn vinn-
ingur, ekki króna. 17 miðar voru
með smávinninga, sá hæsti 250
í>essir hringdu ...
Gagnlegar auglýsingar
Haraldar Sigurðsson hringdi:
„í Velvakanda föstudaginn 7.
desember sl. er athyglisverð fyrir-
spurn um happaþrennur: Hvar eru
vinningarnir? Þessi fyrirspurn
leiðir hugan að því hvað almenn-
ingur lætur blekkjast af glanna-
legum auglýsingum. Ef litið er
nánar á dæmið og vinningaskráin
skoðuð, sem prentuð er á bakhlið
hverrar happaþrennu, þá má sjá
að spyijandi hefur verið býsna
heppinn, þó henni þættu vinning-
arnir úr búntinu rýrir. Hún fékk
1750 kr. sem er 250 kr. meira
en líklegt var ef miðað er við jafna
dreifingu vinninga. í hveiju 100
miða búnti má reikna með 17
smávinningum, frá 50 til 250 kr.
Líkur á hærri vinningum fara svo
minnkandi eftir því sem þeir eru
hærri. Líkur á 500 þúsund króna
vinningi eru 1 á móti 125 þúsund
eða 1 á móti 1250 fyrir hvert 100
miða búnt. Sé fólk á höttunum
eftir hálfri milljón og kaupir miða
í hundraðavís í hvert skipti má
það reikna með að þurfa að rölta
1249 sinnum í sjoppu áður en
hillir undir þann stóra.
Þetta er auðvitað býsna langt
frá þeirri glæsilegu tálsýn að geta
skotist í sjoppuna, keypt eina
happaþrennu og rölt á braut glott-
andi með 500 þúsund krónur í
vasanum. Vissulega væri forvitni-
legt að fá upplýsingar um með
hvaða hætti það er tryggt að aug-
lýstur vinningafjöldi og upphæðir
skili sér í skafmiðahappdrættum.
En áhugaverðara væri þó ef reikn-
ingar peningahappdrættis Há-
skóla íslands væru birtir almenn-
ingi eða að minnsta kosti sæmi-
lega trúverðug svör við því hvers
vegna það er ekki gert. En for-
vitnilegast af öllu væri þó að fá
úr því skorið hvort sjónvarpsaug-
lýsingar frá Happdrætti Háskóla
Islands standast gagnvart íslensk-
um lögum.“
Jólapakkar
Tveir ílangir jálapakkar í plast-
poka töpuðust í Miðbænum á
laugardag. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
13728.
Veski
Lítið rautt seðlaveski með
skilríkjum tapaðist í eða við Hag-
kaup. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 681884.
Fundarlaun.
Gullarmband
Gullarmband ásamt trúlofunar-
hring tapaðist fýrir nokkru, ef til
vill í Viðey. Armbandið er merkt
„Kristín" en innan í hringnum eru
stafirnir „D.A.“ Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 656916.
Sjálfræðissvipting?
Hjúkrunarfræðingur hringdi:
„Hilmar Biering skrifar grein í
Morgunblaðið 7. desember sem
ber fyrirsögnina Sjálfræðissvipt-
ing í sjúkrahúsum. Þar fjallar
hann um algert reykingabann sem
á að taka gildi á sjúkrahúsum frá
1. janúar nk. Ég hef nokkrar
áhyggjur út af þessu. Hætta er á
að sumir sjúklingar treysti sér
ekki til að leggjast inn á spítala
vegna þessa. Eg hef ekki áhyggj-
ur út af starfsfólkinu sem hefur
sinn frítíma utan spítalans. En
með algeru banni gætum við ver-
ið að auka vanda sjúklinga sem
er nógu mikill fyrir. Það er ekki
alltaf viðeigandi að höggva á
hnútinn, einhver aðlögun gæti
reynst nauðsynleg. Á Heilsuhæl-
inu í Hveragerði hafa þessi mál
verið leyst þannig að höfð eru
séstök herbergi þar sem sjúkling-
ar mega reykja og veldur þáð
öðrum ekki óþægindum. Þetta
virðist vera lausn sem allir geta
unað við.“
Olíumengun -
Hvalfjarðargöng
Steingrímur Sigurðsson-
hringdi:
„Orðið hefur mikil olíumengun
þegar verið er að afferma olíuskip
að undanförnu. Þessi slys mætti
koma í veg fyrir einfaldlega með
því að þrýstiprófa leiðslurnar með
100 prósent þrýstingi áður en
byijað væri að dæla og væri þá
öll hætta úr sögunni.
Nú er mikið talað um göng
undir Hvalfjörð. En væri ekki ráð
að athuga með jarðskjálfta og
sprungumyndun á þessu svæði
áður en ráðist verður í að gera
þessi göng? Það gæti komið í veg
fyrir misheppnaða fjárfestingu og
slys síðar meir.“
Blómabúðir - afsláttur
Spurst var fyrir um stað-
greiðsluafslátt hjá blómabúðum á
dögunum og hafa tveir aðilar haft
samband:
Blómabúðinni Vor, Austurveri,
Háaleitisbraut 68 veitir prósent
staðgreiðsluafslátt á blómum og
gjafavörum.
Óskablómið , Hringbraut 119,
hefur boðið ellilífeyrisþegum 10
prósent staðgreiðsluafslátt af
blómum og 5 prósent stað-
greiðsluafslátt af gjafavöru. Fram
til áramóta verður veittur 5 pró-
sent staðgreiðsluafsláttur fyrir
alla viðskiptavini."
Gullúr
Gullarmband tapaðist 23. nóv-
ember á leið frá Hólmgarði 11
að Grímsbæ. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
22801. Fundarlaun.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar
Kunningjakona Víkveija brá sér
í Landsbankann á dögunum
til þess að kaupa sér ávísanahefti.
Hún hafði meðferðis andvirði heftis-
ins í peningum, því að lítið var inni
á heftinu, enda rétt að útborgun
launa komið, sem jafnan eru lögð
inn á reikninginn.
Er hún ætlaði að greiða heftið,
kom í ljós, að það gat hún ekki,
Landsbankinn var hættur að taka
við greiðslu í peningum fyrir heftin.
í stað þess varð að skuldfæra reikn-
inginn fyrir heftinu - öðru vísi gat
hún ekki fengið heftið. En.nú voru
góð ráð dýr. Upphæðin á heftinu
nægði ekki fyrir andvirði ávísana-
heftisins. Því varð hún að leggja
200 krónurnar fyrst inn á heftið,
en að því búnu gat hún fengið heft-
ið afhent.
Það er skrítið, ef viðskiptavinur
Landsbankans getur ekki greitt
með peningum fyrir ávísanahefti.
Gaman væri að fá skýringar bank-
ans á þessum undarlegu viðskipta-
háttum.
Og enn hefur kunningjakona
Víkveija lýst furðu sinni á
sölu fiðurfjár í verzlunum fyrir stór-
hátíðir. Hún segir að ekki megi
selja kjöt án þess að sérfræðimennt-
aðir dýralæknar stimpli það og
skoði, en enginn fylgist með gæsum
og ijúpum, sem jafnan eru seldar
í stórum stíl fyrir jólahátíðina. Sé
þetta alla jafna dýrasta kjötið í
verzlunum.
Einhveiju sinni hefur Víkveiji
heyrt frá því sagt, að í villtum fugl-
um væri náttúrulegt rotvarnarefni.
Þetta efni kemur í veg fyrir að tjúp-
ur t.d. rotni, þegar þær eru látnar
hanga eins og alkunna er. Hins
vegar er auðvitað ekkert, sem getur
komið í veg fyrir það að seldar séu
í verzlunum margra ára gamlar
ijúpur og getur kaupandinn þá ekki
treyst á annað en góða viðskipta-
venju verzlunareigenda.
Vagnstjórar Strætisvagna
Reykjavíkur hafa mikið verið
í fréttum vegna hálku á götum
Reykjavíkur. Víkveiji hlustaði á
fréttir Söðvar 2 á þriðjudagskvöldið
og eins einhveija af útvarpsstöðv-
unum fyrr um daginn. Þessar stöðv-
ar nefndu aldrei svo vagnstjórana,
en þeir væru kallaðír „strætis-
vagnabílstjórar“. Samkvæmt því
heita strætisvagnar „strætisvagna-
bílar“ og vagnstjórar eru þá váent-
anlega „vagnabílstjórar". Þegar
menn athuga þetta nánar, sér hver
heilvita maður, hversu fáránleg
nafngift þetta er á strætisvagn-
stjórum SVR. •
Víkveiji ætlaði á þriðjudag að
nota sér þjónustu þessara ágætu
vagna og lagði leið sína á biðstöð
við Borgarspítala. Eftir að hafa
norpað þar í nokkrar mínútur kom
hann auga á tilkynningu, sem
reyndar bar lítið á og þar stóð eftir-
farandi: „Biðskýlið er lokað vegna
hálku ...“!