Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
69
ISLENSK KIRKJUTONLIST
Geisladiskar
Egill Friðleifsson
Flytjendur: Motettukór
Hallgr ímskirkj u
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sljórnandi: Hörður Áskelsson
Höfundar: Ýmsir
Fyrir stuttu sendi Mótettukór
Hallgrímskirkju frá sér geisladisk
er ber titilinn „íslensk kirkjutón-
list“. Þar er að finna 14 lög og
kórverk, sem sum hver hafa verið
samin sérstaklega fyrir kórinn. Þau
tónskáld jsem við sögu koma eru:
Jón H. Áskelsson. Þorkell Sigur-
björnsson, Atli Heimir Sveinsson,
Jón Nordal, Jonas Tómasson, Gunn-
ar Reynir Sveinsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Hörður Áskelsson og
Róbert A. Ottósson.
Mótettukórinn var stofnaður
1982 og hefur kantor kirkjunnar,
Hörður Áskelsson, stjórnað honum
frá upphafi. Kórinn gat sér strax
mjög gott orð og má segja að veg-
ur hans hafi vaxið með hveiju ár-
inu. Þess má geta að kórinn hefur
ráðist í flutning stórverka eins og
sálumessu Mozarts og Elía eftir
Mendelssohn með góðum árangri.
Hljóðritun fór fram í Hallgríms-
kirkju. Margir hafa fundið að hljóm-
burði kirkjunnar og er undirritaður
í þeim hópi. Endurhljómurinn er
óþægilega mikill og bitnar á tónlist-
arflutningi, einkum þegar hratt er
sungið eða leikið. Sú skynsamlega
stefna hefur hins vegar verið tekin
að fara sér hægt í breytingar. Beð-
ið er eftir miklu orgeli í kirkjuna
og það er áreiðanlega rétt að hinkra
við með frekari tilfæringar áður en
það er komið.
Tónmeistari disksins er Bjarni
Rúnar Bjarnason. Hann er snjall
fagmaður og vinnur hér gott verk
í erfiðu húsi.
Söngur kórsins er áferðarfall-
egur, hljómurinn er þéttur og jafn
og flutningur allur fágaður.
Það væri of langt má að telja
upp öll lögin sem á disknum eru,
en þarna má m.a. kynnast vel skrif-
uðu verki „Psahn 84“ eftir stjórn-
andann Hörð Áskelsson þar sem
Sigrún Hjálmtýsdóttir á fallegar
Hörður Áskelsson stjórnandi.
strófur, sömuleiðis „Drottinn er
minn hirðir" eftir Jónas Tómasson,
„Gloríu" Gunnars Reynis Sveins-
sonar, „Ave María“ eftir Hjálmar
H. Ragnarsson. Þarna er einnig að
finna hinn gullfallega sálm „Englar
hæst,ir“ eftir Þorkel Sigurbjönnsson,
auk margra útsetninga á gömlum
lögum við sálma Hallgríms Péturs-
sonar.
Öll eru þessi lög flutt með til-
hlýðilegri andakt og þessi nýi disk-
ur er kórnum og stjórnanda hans,
Herði Áskelssyni, til mikils sóma.
Sæktu þér þrótt
í ríki náttúrunnar með
Magna hvítlauksperlum!
Hvítlaukur hefur um aldir notið vinsælda sem
heilsujurt en hann er ekki algengur í daglegum
kosti íslendinga. Nú er komið ráð við því. í hverri
Magna hvítlauksperlu eru 10 mg af lyktarlausu
hvítlauksdufti, sem svarar til 3 g af ferskum
hvítlauk. Er ekki tími til kominn að þú leysir
starfsorku þína úr læðingi og sækir þér þrótt í ríki
náttúrunnar?
Grandavegi 42, Reykjavík, sfmi 91-28777.
SIEMENS-sæð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
[ gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér tii
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SSWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengi'egt, upplýst
stjórnborð. (tarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viöhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH & NORLAND
, Nóatúni 4, 105 Reykjavík. i
1 Ég vil gjarnan fá sendan bækling meö nánari upplýsingum ,
um þessa athyglisverðu vél. i
I Nafn
Heimilisfang . |
SMITH&
NORLAND