Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
71
strandarsýslu. Foreldrar hans voru
hjónin Þórður Steinþórsson bóndi á
Innra-Hólmi og Halldóra Böðvars-
dóttir Sigurðssonar bónda á Hofs-
stöðum i Hálsasveit.
Móðir Böðvars var seinni kona
Bjarna Þórðarsonar Þórey Kristín
Ólína Pálsdóttir. Foreldrar hennar
voru hjónin Páll Guðmundsson silf-
ursmiður á Reykhólum sonur Guð-
mundar Jónssonar prests á Staða-
stað og Jóhanna Kristfn Petrónella
Þórðardóttir, en hún var dóttir
þeirra Reykhólahjóna Þórðar Þór-
oddssonar og Þóreyjar Gunnlaugs-
dóttur, og var þvt systir Jóns Thor-
oddsen sýslumanns og skálds.
Foreldrar Ragnhildar voru hjónin
Teitur Jónsson gullsmiður og veit-
ingamaður á ísafirði og kona hans
Guðrún Gísladóttir.
Þórey Böðvarsdóttir var á barns-
aldri þegar faðir hennar, sjálfur
sóknarpresturinn, brá á það ráð að
slíta hjónabandi sínu. Þetta var
mikið áfail fyrir hina barnungu
stúlku. Allt fram á elliár var sem
skugga bæri á andlit hennar ef tal-
ið barst að árunum á Hrafnseyri.
Sársaukinn fyrndist ekki.
Ragnhildur, móðir Þóreyjar,
flutti til Reykjavíkur með börn sín
og bjó þeim þar heimili af myndar-
skap og dugnaði. Þegar Þórey var
um tvítugt, lagði hún í langferð að
þeirra tíma mælikvarða, Hún vist-
aði sig austur á Melrakkasléttu.
Hún kynntist þar ungum og efnileg-
um bóndasyni, Guðmundi Björns-
syni á Grjótnesi. Þau Þórey felldu
hugi saman og 12. september 1926
gengu þau í hjónaband. Fyrstu árin
voru þau búsett á Grjótnesi. Síðan
fluttu þau að Reykhólum, hinu
gamla óðali afa, og bjuggu þar um
tíma. Síðan lá leiðin til Kópaskers
og þar urðu árin nítján. Síðustu
árin hafa þau búið i Reykjavík og
Mosfellsbæ.
Þórey Böðvarsdóttir var
skemmtileg í viðræðu, vel lesin og
fróð, þótt hún ætti ekki langa skóla-
göngu að baki. Hún hafði og frá-
bæra frásagnargáfu. Ekki alls fyrir
löngu flutti hún í útvarpi erindi, sem
hún hafði samið um það þegar
steinn til minningar um Jón Sig-
urðsson forseta var afhjúpaður í
túninu á Hrafnseyri. Þessi stutta,
greinargóða frásögn vakti athygli.
Frásagnargáfa hennar naut sín þar
vel, En auk þess að vera vel penna-
fær var Þórey mjög hög til hand-
anna svo sem ijölbreytt handavinna
hennar ber vott um.
Tengdafólk Þóreyjar minnist
þess enn hve það var skemmtilegt
að fá þessa ungu, glaðlyndu og
músíkölsku stúlku á heimilið á
Gijótnesi, þótt þau yrðu að sætta
sig við að hún tæki að sér stóra
bróður.
„Áttatíu eru árin löng, ævi hverj-
um manni,“ segir Theodora Thor-
oddsen í kvæði, sem hún flutti Þór-
eyju Pálsdóttur, ömmu okkar Þór-
eyjar Böðvarsdóttur. Nú kippir eng-
inn sér upp við að komast á níræðis-
aldur. Eftirlifandi maður Þóreyjar
er kominn yfir nírætt. Margs er að
minnast eftir svo marga tugi ára,
gestkvæmt var og oft glatt á hjalla
á heimili Þóreyjar og Guðmundar.
Guðmundur Björnsson og Þórey
Böðvarsdóttir eignuðust fimm börn:
Björn flugstjóra, Vilborgu húsfreyju
á Akureyri, Ragnhildi formann Fé-
lags fsl. símamanna og varafor-
mann BSRB, Böðvar hagráðunaut
og Þóreyju guðfræðinema. Barna-
börnin eru 17 og barnabarnabörnin
24,_
Ég sendi Guðmundi og börnum
hans svo og öðrum ættingjum inni-
legustu samúðarkveðjur. Það eru
viðbrigði og sársauki á löngu ævi-
skeiði að sjá á bak þeim góða ferða-
félaga, sem makinn löngum er.
Valborg Bentsdóttir
ITTTITOTl
HATÚNI 6A SÍMI (91)24420
GULLFALLEGIR
PELSAR
MJÖG GOTT VERÐ
GREIÐSIAJSKILMÁLAR
Safalinn, Laugavegi 25, 2. hæð. Sími 17311
Dé Longhi Momento
Combi er hvort
tveggja í senn
örbylgjuofn og grillofn
Ofninn sameinar kosti beggja a&fer&a,
örbylgjanna sem var&veita besf
næringarglldi matarins - og grillsteik-
ingarinnar, sem gefur hina eftirsóttu
stökku skorpu.
vcn) di)rins
29.400
27.V.W stgr.
DeLonghi
Dé Longhi erfallegur
fyrirferdarlítill ogfljótur
/rQniX
HATUNI 6A SÍMI (91)24420
Bakhúsið
Hskuvöniverslun
BlómahöHin
blónt og gjafavörur
Brædraborg
sölufurn
Búnaðarbanki íslands
Byigjan
hórgreiðslustofa og snyrHvöruverslun
Doja
Hskuverslun
Filman
Ijósmyndavörur og framköllun
Glerougnaverslun
Benedikts
Hans og Gréto
barnafotaverslun
Verslunin Inga
Hsku-, vefna&ar- og gjafavara
íslandsbanki
Klukkan
úr, klukkur og skartgripir
Kópavogs Apótek
Mamma Rósa
veíHngastaiur
verslana- og þjónustumidstöd
í hjarta Kópavogs
TAKTU PÁn
í LEITINNIAD JÓLA-BOMBUNNI!
Við „felum“ þrjár 5.000 kr. jóla-bombur
í jafn mörgum verslunum í
Hamraborginni hvern laugardag
í desember.
Gerðu jólainnkaupin spennandi.
Komdu í Hamraborgina og ef til vill
verður heppnin með þér.
Oplft alla laugardaga
Pó færð allt Hl jólahaldsins
f Homraborginni, Kópavogi
JÓUSVBNNINN VBIBURÁ SVÆDINU!
NÆG ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI!
mwfæm
HAMRABORG
ff
Alh á einum sta&"
Nóatún
nýfenduvöruverslun
Óli Prik
skyndibitastaftur
Ratvís
feriaskrifstofa
Sevilla
rakarastofa
Skóverslun Kópavogs
Sólarland
sólbaisstofa
SportbúÓ Kópovogs
Sveinn Bakori
TelefaxbúÓin
Tónborg
hlfómplötur og gjafuvörur
Veda
bókaverslun
Vídeómarkaðurinn
VIS
Vótryggingafólag Irlands
SPARAÐU
TÍMA 0G
FYRIRHÖFN
0G NJÓHU
ÞESS BESTA
HÁDEGIÐ
Kínavagninn
7 heitir réttir
750,- krónur
KAFFITÍMINN
Kaffi eöa te
kínverskar
smákökur o.fl.
KVÖLDVERÐUR
Súpa og
4 girnilegir réttir
1.290,- krónur
Jólaglögg
m/piparkökum
allan daginn