Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
n
Hannbal Valdimarsson Þór Indriðason
Bók um Hannibal
Valdimarsson
LÍF OG SAGA hefur gefið út bók-
ina Hannibal Valdimarsson og
samtíð hans eftir Þór Indriðason.
í formála segir Þór m.a.: „Eftir
að ég hafði tekið af mér að skrifa
sögu Hannibals velti ég fyrir mér á
, hvern hátt nálgast skyldi verkið.
Víst var að ekki yrði skrifuð hefð-
bundin ævisaga heldur rakinn stjóm-
; málaferill - Hannibals og störf hans
iað verkalýðsmálum.“
„Á ísafirði vann Alþýðuflokkurinn
snemma glæsta sigra og forystu-
menn hans í bænum voru lengi á
meðal helstu leiðtoga flokksins.
Hannibal Valdímarsson tilheyrði
þessari forystusveit og uppvaxtar-
saga hans í stjómmálum verður ekki
sögð án þess að meðfram verði rakin
saga Alþýðuflokksins á ísafirði.
. Sama gildur um sögu verkalýðs-
hreyfingar á Vestfjörðum og störf
Hannibals á vettvangi verkalýðsbar-
áttunnar."
„Þetta fyrsta bindi sögu Hanni-
bals skiptist í tvo hluta. í þeim fyrri,
sem er eins konar inngangur að verk-
inu, er fjallað um aldarbrag á ísafírði,
áratuginn um aldamót og upphaf
alþýðuhreyfinga við Djúp. Seinni
hluti bókarinnar, sem hefur að
geyma meginmál hennar, fjallar um
Hannibal Valdimarsson og ísfirska
jafnaðarmenn á dögum rauða bæjar-
ins þann tíma sem Alþýðuflokkurinn
réð meirihluta bæjarstjómar. Fyrra
bindi lýkur við lok ársins 1945. Þau
áramót eru valin til. bókaskipta þar
sem þá missti Alþýðuflokkurinn
meirihluta sinn í bæjarstjórn og þar
með lauk hinum goðsögulega tíma
ísafjarðarkrata. Um svipað leyti
verða einnig þáttaskil í stjórnmála-
sögu Hannibals þegar hann er fyrst
kosinn á þirig um mitt ár 1946,“
Bókin er 378 bláðsíðúr.
Læknisævi á Landakoti
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Dr. Bjarni Jónsson:
A Landakoti.
Setberg, Reykjavík, 1990, 256
bls.
Það er hægt að hafa margan
hátt á ritun endurminninga. Súmir
rita hálfa bók um bernsku sína og
æskuár og síðari hluti er svo skýrsla
um lífshlaup fullorðinsáranna, eink-
amál, afrek éða samferðamenn eða
þá að menn telja sig eiga harma
að hefna. Afar er þetta misvel gert
og hlutföll efnisþátta ólík.
Dr. Bjarni Jónsson, fyrrum yfir-
læknir á Landakotsspítala og einn
af kunnustu og virtustu læknum
þessa lands, hefur allt annan hátt
á minningaskrifum sínum. Hann
minnist hvorki á ætt né uppruna,
æsku né einkahagi og afrekaskrá
er hér ekki að finna.
Bókin heitir Á Landakoti. Þar
hefur verið vinnustaður höfundar
og starfsvettvangur um nærfellt
hálfrar aldar skeið. Sögusvið bókar
er Landakot. Fer ekki á milli mála
að honum þykir vænt um þann stað.
Hugarþel tryggðar og- væntum-
þykju Iýsir af næstum hverri blað-
síðu. Það eru lánsamir menn sem
svo er farið. Enda þótt höfundur
segi í formála að pistlar hans séu
ekki saga Landakotsspítala eru hér
engu að síður drjúg föng dregin til
þeirrar sögu. Lesandi fær innsýn í
hvernig þessi spítali verður til og
hvernig hann þróast. Einkum er
hinu stórmerka og fórnfúsa starfi
St. Jósepssystra gerð góð skil. Var
það vissulega ekki seinna vænna
að einstakt líknarstarf þeirra fengi
verðuga umfjöllun.
Dr. Bjarni kallar bók sína
„pistla". Það er að vissu leyti rétt-
nefni. Kemur þá að því hvernig
bókin er saman sett. Höfundur hef-
ur þann hátt á að hann grfpur til
reynslu sinnar og minninga á einu
eða öðru sviði starfsferils síns og
virðist það ávallt í ákveðnum til-
gangi gert. Af sjóði reynslu sinnar
vill hann draga lærdóma. Hann leit-
ast yfirleitt við að svara einhveijum
spurningum. Hvaða lærdóma má
draga af störfum sumra fyrirrenn-
ara hans í læknastétt og sem starf-
áð hafa á Landakoti? Til þess að
svara því þarf hann vitaskuld að
lýsa þeim að nokkru og gera grein
fyrir störfum þeirra. Hvernig fer
best á að stunda sjúklinga? Reynsl-
an á Landakoti svarar því að
nokkru. Á einn læknir að bera
ábyrgð á sjúklingi sínum eða á hún
að skiptast á milli margra? Hér má
margt læra af fyrirkomulagi á
Landakoti og gerð er skilmerkileg
grein fyrir því. Og svo kemur hin
stóra spurning: Hvernig á að reka
sjúkrahús? Svar við því má le'sa úr
mörgum pistlum.
Engum dylst sem þessa bók les
að dr. Bjarni ber þungan hug til
Systur í Landakoti 1947.
TILISLENSKU BOKMENNTA VERÐLAUNANNA SEIi/i FORSETIISLANDS VEITIR.
PERLUR í NÁTTÚRU ÍSLANDS
Fegurð landsins er meginstef þessarar bókar og
aldrei hefur íslenskt landslag birst mönnum á
prenti á jafn áhrifamikinn hátt. Þetta verk dýpkar
skilning okkar á landinu svo við fáum enn betur
notið samvistanna við það.
HVERSDAGSHÖLLIN
er saga um íslenska fjölskyldu, drauma og þrár,
vonbrigði og gleði. Þetta er í senn grátbrosleg
og grípandi bók, skrifuð á þann hátt sem Pétri
Gunnarssyni einum er lagið.
Bók sem ber þess vitni að Kristján Árnason hefur
óvenjulegt vald á hefð Ijóðlistarinnar sem og
nýjungum hennar. Tónninn er stundum
hátíðlegur og stundum galsafenginn, en alltaf
sannur. Fjölbreytt og hrífandi Ijóðabók.
'1