Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
★ GBC-Skírteini/barmmerki
fyrir: félagasamtök, ráðstefnur,
starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl.
Efni og tækl fyrirliggjandi.
HÆTTID
AÐ
BOGRA
VID
bRIFIN!
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9 • 105 Reykjavík
Sfmar 624631 / 624699
II ú fást vagnar meö nýrri vindu
par sem moppan er undin meö
éinu handtaki án pess aö taka
purfi hana afskaftinu. Moppan fer
alveg inn í horn og auðveldlega
undir húsgögn. Einnig er hún
tilvalin í veggjahreingerningar.
Þetta pýðir auöveldari og betri prif.
lyfflieyfaffS
hsgkviBfTtötSí!
IBESTAl
Nýbýlavegi 18
Sími641988 ,
Þú svalar lestrarþörf dagsins <
ásíöum Moggans!
Eigum við að leyfa böm-
unum að brenna sig?
eftir Jón K.
Guðbergsson
„Alveg blöskrar mér“ byijar
grein eftir Guðmund Öm Ingólfsson
sem birtist í Morgunblaðinu mið-
vikudaginn 5. desember sl. Ég vil
gera þessi orð hans að mínum eftir
lestur greinarinnar.
Höfundur titlar sig fulltrúa, sem
starfað hefur lengi að áfengis- og
vímuefnamálum, og helst er að
skilja að hann sé fulltrúi hjá SÁÁ.
Ef svo er, væri forvitnilegt að vita
hvort þessi grein er skrifað á ábyrgð
SÁÁ eða hvort hún er hreint einka-
framtak.
Öfgar
í greininni verður Guðmundi tíð-
rætt um öfgar. Hann minnist á væl
þeirra sem boða bindindi. Hann
gefur lítið fyrir þá sem vilja minnka
vímuefnaneyslu í Iandinu. Bindind-
isfélög telur hann óalandi og ófeij-
andi og er á honum að skilja að
þeir sem fara í skóla til að ræða
við börn og unglinga um vímuefni
og vímuefnavarnir — væntanlega
aðrir en SAA-menn — séu aðeins
velviljaðir kjánar. Guðmundi verður
einnig tíðrætt um einhveijar nefnd-
ir sem séu verri en engar. Ekki
hefur hann manndóm í sér til að
nefna hvaða nefndir eða samtök
hann er að hnýta í. Fáfræði og for-
dómar skína í gegn í skrifum Guð-
mundar. Hann virðist ekki átta sig
á að öfgar geta verið margs konar
og hann þyrfti að líta í eigin barm
áður en hann setur fram slíka
sleggjudóma.
Enginn er hafinn yfir gagnrýni
I einu orðinu agnúast Guðmund-
ur út í alla þá sem starfa að vímu-
efnavömum en í hinu hefur hann
SÁÁ til hæstu hæða gagnrýnis-
laust. Stofnun SÁÁ var á sínum
tíma þjóðþrifamál sem flestir ís-
lendingar hafa stutt, en SAA er
hins vegar stofnun sem er alls ekki
yfir gagnrýni hafin frekar en verk
okkar hinna. Slík stofnun sem SÁÁ
verður einmitt stöðugt að vera und-
ir miklu eftiriiti og hafa strangt
aðhald þar sem stofnunin er rekin
fyrir framlög almennings og opin-
berra aðila. SÁA hefur oft sætt
gagnrýni, bæði réttmætri og órétt-
mætri. Én það er engum greiði
gerður og þá síst af öllu starfsemi
SÁÁ að hefja hana til skýjanna í
guðlegri fullkomnun því að með því
er komið í veg fýrir eðlilega þróun
samtakanna.
50 afvötnunarstöðvar?
Margoft í grein Guðmundar er
minnst á getuleysi annarra til að
standa að forvarnastarfi. Eftir að
hafa bent á vangetu annarra segir
hann t.d. „Nei, við þurfum á raun-
hæfum forvörnum að halda, raun-
hæfri fræðslu til sem flestra og
raunhæfum viðbrögðum þegar siglt
Minnmgar Auðuns
Braga Sveinssonar
SKUGGSJÁ hefur gefið út bók-
ina Kennari á faraldsfæti. Minn-
ingar frá kennarastarfi eftir
Auðun Braga Sveinsson.
í kynningu útgefanda segir:
„Kennari á faraldsfæti er þáttasafn
Áuðuns Braga Sveinssonar, þar
sem hann segir frá 35 ára kennara-
starfi sínu í öllum hluta landsins.
Hann greinir hér af hreinskilni frá
miklum fjölda fólks sem hann
kynntist á þessum tíma, bæði til
lofs og lasts. Hann segir frá kennslu
sinni og skólastjórn á eftirtöldum
stöðum: Akranes, Hellissandur,
Patreksfjörður, Bolungarvík, Súða-
vík, Fljót, Olafsfjörður, Borg-
arfjörður eystri, Breiðdalsvík,
Skarðshlíð undir Eyjafjöllum,
Þykkvibær, Skálholt, Vatnsleysu-
strönd og Vogar og Kópavogur.
Auðunn Bragi Sveinsson
Einnig segir hér frá kennslu hans
í Ballerup í Danmörku."
Bókin er 356 blaðsíður.
hefur verið í strand í neyslu áfeng-
is og annarra vímuefna. “ Um þetta
eru allir sammála. En á öðrum stað
í grein sinni segir hann að þessar
raunhæfu leiðir séu best geymdar
í höndum SÁÁ. Um þetta atriði eru
ekki allir sammála. Það er kannski
jafnfráleitt og að láta Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins sjá um for-
varnir.
Svona „af því bara“ málflutning-
ur ætti ekki að eiga sér stað. Auð-
vitað segir Guðmundur okkur ekk-
ert hvaða raunhæfu leiðir hann og
SÁÁ fari eða stefni að. Við fáum
ekki að vita hvað þessar mögnuðu
íeiðir kosta, hver á að fjármagna
þær og hvernig á að vinna sam-
kvæmt þeim. Við fáum í raun ekk-
ert að vita um þessar raunhæfu
leiðir annað en að þeim sé best
treyst í höndum SÁÁ-manna og þar
af leiðandi væntanlega hjá Guð-
mundi sjálfum.
Eigum við ekki að reyna að
muna að afvötnunarstöðvar og
meðferðarstofnanir eru oft enda-
punktur ákveðins ferils vímuefna-
neyslu? Þangað koma einstaklingar
sem komnir eru í þrot með vímu-
efnavandamál sín. Guðmundur vill
hugsanlega byggja 50 afvötnunar-
stöðvar til að rúma fleiri væntan-
lega viðskiptavini. Það er ekki raun-
hæft forvamastarf að byggja fjöly-
margar afvötnunarstöðvar þannig
að stór hluti íslensku þjóðarinnar
geti lagst í meðferð þegar allt er
komið í þrot. í þessum málum hljót-
um við að leggja áherslu á ábyrgð
einstaklingsins sjálfs í umgengni
hans við vímuefni. Það er út í hött
að ætla að endalausar afvötnunar-
stöðvar eða viðræður við fólk sem
komið er á enda ferilsins hafi ein-
hver afgerandi áhrif á vímuefna-
neyslu. „Á skal að ósi stemma"
gildir hér sem annars staðar.
Að leyfa börnunum
að brenna sig
Orðrétt segir Guðmúndur Örn:
„Eða hvenær hafa t.d. foreldrar
getað sannfært börn sín í Ijósi eigin
reynslu, svo þau fari ekki að feta
í óheppileg æskufótspor foreldr-
anna? Aldrei. FOLK VILL
BRENNA SIG SJÁLFT og það mun
halda áfram að.gera það og við því
verður sáralítið gert.“ Þetta lýsir
dæmalausri fyrirlitningu Guðmund-
ar á foreldrum og uppeldishlutverki
þeirra.
Foreldrum þykir yænt um börnin
sín. Langflest böm kunna að meta
foreldra sína. Okkur foreldrunum
ber skylda til að miðla af reynslu
okkar og reyna að byggja upp gott
líf fyrir bömin okkar. Sumum kann
að reynast þetta erfitt, en sem bet-
Jón K. Guðbergsson
„Forvarnarmál og
vímuvarnir eru of mik-
ilvægur málaflokkur til
þess að tíma sé eytt í
hugsunina „þetta er
mitt mál, öðrum kemur
það ekki við.“ I þessari
baráttu er nauðsynlegt
að allir leggist á eitt.“
ur fer tekst flestum þetta stóra
verkefni. En mörg okkar þarfnast
stuðnings og handleiðslu. Þess
vegna er nauðsynlegt að öflugt for-
varnastarf komi úr fleiri áttum en
aðeins frá heimilunum. Því það er
á ábyrgð okkar foreldranna að
koma börnum okkar til vits og ára
án þess að þau lendi í þeim hremm-
ingum sem stafa af ofneyslu vímu-
efna. Sem betur fer hlusta foreldrar
ekki á menn eins og þig segja:
„Þetta þýðir ekki. Látið mig um
þetta seinna meir.“ Við skulum
ekki vanmeta vit og skynsemi barna
og unglinga, Guðmundur. Þau eru,
sem betur fer, fleiri en þú heldur
sem hlusta á foreldra sína og reyna
að nýta sér reynslu þeirra. Eitt vil
ég ráðleggja þér í allri vinsemd.
Veröldin er stærri og öðruvísi en
sá þröngi hópur sem þú virðist
sækja þína visku til. Leitaðu út fyr-
ir veggi hans og hugur þinn mun
opnast.
Stór hluti þjóðarinnar
í meðferð?
Mörg félög, samtök og stofnanir