Morgunblaðið - 30.01.1991, Blaðsíða 40
40
r«:<;. HAuMAt 08 »IJOA«U)OV®M GIQAJ814U0ÍÍO1!/
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 1991
SKOLASTARF
Kurteisisvika í Grindavík
Nemendur koma á sal til að syngja kurteisissönginn.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
KURTEISI kostar ekki neitt.“
Þessi gömlu sannindi eiga
við hvar sem er og hvenær sem
er. Þeim sem komnir eru til vits
og ára finnst sem svo að það sé
eitthvað sjálfsagt að allir tileinki
sér almenna kurteisi og
framkomu.
Svo er þó ekki og í því tilefni
þótti kennurum í Grunnskólanum
í Grindavík við hæfi að vinna
svokallaða þemavinnu þar sem
kurteisi og almenn framkoma
væri nokkurs konar yfirskrift
vinnunnar.
Þrír kennarar undirbjuggu
vinnuna sem hófst með athugun
á framkomu. Síðan var umgengni
höfð að leiðarljósi, tillitssemi og
síðast viðhorf.
Þá var útbúið fréttabréf og sent
til foreldra barna í skólanum og
SAMEINING
Þýskur miimispeniiigiir
Yangamyndir af Konrad Ade-
nauer sem varð fyrsti kansl
ari V-Þýskalands 1949 og Helmut
Kohl sem hefur verið kanslari
síðan 1982 prýða minnispening
sem nýlega var kynntur í Köln.
Peningurinn hefur verið sleginn í
gull og silfur og er nú til sölu.
Agóðinn rennur til þýska krabba-
meinssjóðsins.
Myntin er slegin í tilefni af
fyrstu kosningunum í sameinuðu
Þýskalandi, sem fóru fram 2. des-
ember síðastliðinn. Alls hafa
50.000 peningar verið settir á
markað. Á myndinni eru Cornelia
Scheel, dóttir Walters Scheels
fyrrum forseta V-Þýskalands, en
hún stofnaði krabbameinssjóðinn
1974, og Max Adenauer, fyrrum
borgarstjóri í Köln, sonur
Kondrads. Max er íslandsvinur og
hefur oft komið hingað til lands.
Myntin kostar 69 þýsk mörk
(um 2550 ÍSK) úr silfri _en 298
þýsk mörk (um 11.000 ÍSK) úr
gulli.
vinnan kynnt undir nafninu „Átak
í bættum samskiptum“.
Margskonar vinna var unnin og
afraksturinn slagorð, sögur og
ljóð. Viðhorf til kurteisi voru
könnuð meðal bæjarbúa og mikil
umræða var meðal nemenda og
kennara.
Slagorð voru færð á veggspjöld
og sett á veggi skólans. Þar mátti
sjá mörg gömul slagorð sem alltaf
eru í fullu gildi, t.d. töluð orð verða
ekki aftur tekin, aðgát skal höfð
í nærveru sálar, hugsum ekki
alltaf um hvað aðrir geta gert
fyrir okkur, heldur hvað við getum
gert fyrir þá, og fleira til
áminningar.
Kennaramir Inga Óskarsdóttir,
Kristín Gísladóttir og Svava
Hjaltalín sömdu texta við lag
Stuðmanna, Ofboðslega frægur,
og fengu góðfúslegt leyfi frá
Jakobi Frímanni Magnússyni til
að nota lagið. ^
Morgunblaðið/Þorkell.
REKST M K Öl 'Ji
fyrír tölvur og prentara
Eigum fyrirliggjandi á lager prentborða í flestar
tegundir prentara, þ.á.m. IBM, STAR, FACIT, Silver Reed,
Message Consept o.fl. o.fl.
TOKNIVAL
3KEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665/687175
Steingrímur Sigfússon landbúnaðarráðherra annar f.h. hámar í sig pitsu með „ekta osti“. Við hlið hans
situr Steindór I. Ólafsson, en andspænis ráðherra situr Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands
bænda og við hans hlið Reynir Þorfinnsson framkvæmdastjóri sömu samtaka.
„GERVIDRASL“
Landbúnaðarráðherra snæðir ekta ost
'ið svokallaða ostlíki var tölu-
vert til umræðu fyrir nokkru
gefið var grænt ljós á innflutning
slíkrar vöru til ýmissra nota, ekki
síst pítsugerðar. Ekki var það
Steingrímur Sigfússon landbúnað-
COSPER
(C PIB
— Það er allt að verða vitlaust í Mið-Austurlöndum og all-
ir að fara á hausinn hér heima, en þú situr bara hér og
drekkur bjór.
arráðherra sem veitti það leyfi og
var hann raunar hinn versti út af
málinu fyrir hönd ostframleiðenda
innanlands sem eru sagðir fram-
leiða betra hráefni. Viðhafði
Steingrímur nokkur þung orð um
málið. Hann sagði m.a. „verði þeim
að góðu, “ Jóni Sigurðssyni við-
skiptaráðherra og fleirum þeim sem
legðu sér ostlíkið til munns, sjálfur
ætlaði hann að eta „ekta ost“ og
ekkert „gervidrasl“.
Til þess að auka þunga orða sinna
skellti ráðherran sér í Pizza Hut
sem er hluti af 7.000 matstaða
keðju. Þar er lögð sérstök áhersla
á gæðakröfur sem og víðar og til
að mynda segjast aðstandendur
staðarins ekki munu nota „gervi-
draslið" á sínar pítsur. Til þess að
undirstrika það var Steingrími ráð-
herra borin fram ijúkandi pítsa með
ekta osti sem hann sporðrenndi með
góðri lyst. Til borðs með ráðherra
voru 'm.a. nokkrir aðstandendur
bænda sem eru að sögn ánægðir
með andstöðu Steingríms við
„gervidraslið".
En ostlíki eða ekki ostlíki? Það er
spurnginin, því fregnir herma að
engu sé líkara en að það hafi gufað
upp. Fáir eða engir fáist til að viður-
.kenna að þeir noti ostlíki við mat-
’vælágérðiná).....................