Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1991 KRABBAMEIN Hvað er til ráða? eftir Sigurð Björnsson Þvátt fyrir mjög aukna þekk- ingu á tilurð og eðli krabbameina hin síðari ár og verulegar ifamfar- ir í meðferð þá er enn langt í land að tekist hafi að lækka heildar- tíðni krabbameina og fækka dauðsföllum af þeirra völdum að því marki, sem menn gerðu sér vonir um fyrir tuttugu árum. Þijár leiðir eru að því marki að fækka dauðsföllum vegna krabba- meina: 1. Koma í veg fyrir að fólk fái krabbamein (fyrsta stigs forvarn- ir). 2. Greina meinið á forstigi eða byijunarstigi (annars stigs for- va,rnir). 3. Lækna sjúkdóminn eftir að einkenni eru komin (þriðja stigs forvarnir). Fyrsta stigs forvarnir Ýmsir krabbameinsvaldar eru þekktir og því miður teljast marg- ir þeirra til nútíma lífsvenja. Al- mennt er talið að tóbaksreykingar valdi 30% af dauðsföllum af völd- um krabbameina á vesturlöndum, matarvenjur sennilega öðru eins, alkóhól 3% og mengun og iðnaðar- efni nokkrum prósentum. Raunar er það svo að nær öll krabbamein, sem hljótast af reykingum eru ■banvæn og erfið viðureignar svo sem krabbamein í öndunarfærum, efri meltingarfærum, brisi og þvagfærum. Auk þess eru tóbaks- reykingar einn virkasti áhættu- þátturinn hvað varðar hjarta- og æðasjúkdóma, senri skipa efsta MARS MÁNUÐUR GEGN MEINI - KRABBAMEINI Krabbameinsfélag íslands sætið á lista yfir banvæna sjúk- dóma á íslandi. Af þessu má vera ljóst hvílíkur ógnvaldur tóbaks- reykingar eru heilsu og lífi fólks. Það er samdóma álit flestra lækna að engin ein breyting á lífsstíl þjóðarinnar myndi fækka ótíma- bærum dauðsföllum og lækka jafnframt kostnað heilbrigðiskerf- isins meira en sú, að landsmenn hættu að reykja. Krabbameinsfé- lagið hefur frá upphafi varað við afleiðingum reykinga, sem nú eru flestum ljósar. Von er til að á næstu árum dragi úr tíðni reyking- akrabbameina hér á landi, þar sem hlutfall fullorðinna, sem reykja, hefur lækkað úr um 50% fyrir ald- arfjórðungi niður í um 30% í dag. Annars stigs forvarnir Þegar ekki er unnt að koma í veg fyrir að krabbamein verði til þá er greining þess á forstigi eða byijunarstigi vænlegasta ráðið til að minnka líkur á veikindum og dauðsföllum af völdum sjúkdóms- ins. Til þess eru tvær leiðir: 1. Skipulögð leit að forstigum sjúkdómsins meðal stórs hóps ein- kennalausra einstaklinga þar sem reynt er að fínna þá einstaklinga, sem liklegir eru til að ganga með krabbamein á byijunarstigi. 2. Almennar ráðleggingar til fólks um að fara með reglubundnu millibili í ýtarlega læknisskoðun og rannsóknir. Til þess að skipuleg hópleit að ákveðnu krabbameini sé réttlæt- anleg meðal mikils þorra heillar þjóðar þarf ákveðnum skilyrðum að vera fullnægt: 1. Sjúkdómurinn þarf að hafa alvarlegar afleiðingar, sem mark- hópurinn þekkir. 2. Til þarf að vera meðferð, sem er þeim mun árangursríkari, sem henni er beitt fyrr á sjúkdóms- ferlinum og hefur helst í för með sér varanlega lækningu, sé henni beitt á forstigi sjúkdómsins. 3. Rannsóknaraðferðin þarf að vera næm, nákvæm, óþægindalít- il, hættulaus, einföld og ódýr. 4. Minnkun veikinda og lenging lífdaga verður að réttlæta þann kostnað og fyrirhöfn, sem í er lagt. Krabbameinsfélagið hóf árið 1964 skipulagða hópleit að leg- hálskrabbameini meðal kvenna á aldrinum 25-29 ára. Þá hafði kom- ið fram aðferð við að greina for- stigseinkenni krabbameins með smásjárskoðun á frumusýni frá leghálsi. Nú er ljóst orðið að þetta leitarstarf uppfyllir öll þau skil- yrði, sem lýst er að ofan. Því er það að heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að leit að leghálskrabba- meini skuli vera fastur liður í heil- brigðiskerfi landsmanna og falið Krabbameinsfélaginu að hafa yfir- umsjón með leitinni með sérstök- um verktakasamningi. Bijóstakrabbamein er algeng- asta krabbamein íslenzkra kvenna, þótt lungnakrabbamein leggi fleiri konur að velli. Um miðjan níunda áratuginn birtust niðurstöður nokkurra stórra erlendra rann- sókna þar sem fram kom að fækka Sigurður Björnsson mætti dauðsföllum af völdum bijóstakrabbameins með röntgen- myndatökum af bijóstum á 1-2 ára fresti, meðal kvenna um og eftir miðjan aldur. Krabbameinsfé- lagið og heilbrigðisyfirvöld ákváðu því árið 1987 að hefja skipulagða leit að bijóstakrabbameini meðal kvenna, fyrst með einni mynda- töku við 35 ára aldur og síðan á tveggja ára fresti frá 40-69 ára. Þessi leit tengist leghálskrabba- meinsleitinni og var gerður samn- ingur til 5 ára. í fyrstu umferð um landið, sem tók 2 ár, voru 27.000 konur skoðaðar með mynd- atöku, 136 krabbamein fundust (0,5% kvennanna). Að sjálfsögðu er of snemmt að segja til um, hvort þessi leit muni hafa áhrif á lifun kvenna með bijóstakrabba- mein, en við því er búist. Margir hafa spurt, hvort ekki sé tímabært fyrir Krabbameinsfé- lagið að hefja leit að krabbamein- um meðal íslenskra karlmanna. Ástæður þess að ekki hefur verið ráðist í það eru alfarið læknisfræð- ilegar, einfaldlega þær að ekkert krabbamein í körlum uppfyllir öll þau skilyrði, sem sett voru fram hér að framan. Raunar var gerð Hrun húsnæðiskerfísins eftir Gunnar Birgisson Undanfarið hafa birst í Morgun- blaðinu langlokur um húsnæðismál, skrifaðar af félagsmálaráðherra, Jo- hönnu Sigurðardóttur. Þar gumar hún af góðu húsnæðis- kerfi sínu, sérstaklega húsbréfunum, þar séu engin afföll og allir geta fengið lán sem vilja. Þeir sem þurfa á húsnæðiskerfinu að halda vita betur og lenda oftar en hitt í verulegum hremmingum, bæði með afgreiðslu lánsloforða, óhagstæðu greiðslumati ásamt með miklum og vaxandi afföllum af hús- bréfum. Húsbréfakerfið Ljóst er, að með tilkomu húsbréfa- Að loknum venjulegum aðalfund- arstörfum verða flutt tvö erindi um skógræktarmál. Ætlar dr; Ása L. Aradóttir að segja frá landnámi birk- is á gróðuriitlum svæðum og er ekki að efa, að þar mun margt forvitni- legt koma fram. Björkin er eina tréð, sem myndar eiginlega skóga hér á landi, og þrátt fyrir góðan árangur af innflutningi margra erlendra tijá- tegunda mun hún líklega ávallt verða uppistaðan í uppgræðslunni, hvort kerfisins hafa áherslur hins opinbera varðandi fjármögnun nýrra íbúða snúist við. Húsbréfakerfið í sinni núverandi mynd er þannig mun hagstæðara notuðum íbúðum en nýjum, gagn- stætt því sem ávallt hefur gilt um húsnæðislán hér á landi allt frá því að Húsnæðisstofnun var sett á lagg- imar. Kaupendur nýrra íbúða þurfa nú að greiða' hærri vexti af teknum húsbréfalánum en kaupendur not- aðra íbúða og þurfa jafnframt að sæta afföllum vegna fenginna hús- bréfa frá fyrri sölu. Mismunurinn felst í því að kaupendur nýrra íbúða þurfa að greiða forvexti í formi af- falla við kaupin. Hámarkslánahlutfall húsbréfa- lána af kaupverði nýrra íbúða er að sem það er mannshöndin eða náttúr- an sjálf, sem annast hana. Hitt erind- ið flytur Sigurður Blöndal, fyrrv. skógræktarstjóri, og segir hann frá endurreisn skóga í Suður-Svíþjóð og sýnir myndir þaðan. Hafnfírskir skógræktarmenn og allt áhugafóik um gróður og garða er hvatt til að fjölmenna á aðalfund- inn og taka með sér gesti. (Fréttatilkynning) jafnaði lægra en þegar um notaðar íbúðir er að ræða. Ástæðan er sú að byggingakostnaður og kaupverð nýrra íbúða er að jafnaði hærra en brunabótamat þeirra. Þá má benda á að í húsbréfakerf- inu eru lánskjör hjá þeim sem eru að eignast sína fyrstu íbúð hin sömu og þeirra sem eiga íbúð fyrir, ólíkt því sem verið hefur. Ýmis rök hníga að því að samfé- lagið komi ungu fólki sérstaklega til aðstoðar við sín fyrstu íbúðar- kaup. Sú aðstoð stuðlar án efa að _því að viðhalda sjálfseignarstefnunni í húsnæðismálum íslendinga en fyrir henni hefur Sjálfstæðisflokkurinn ávallt barizt ótrauðlega einn allra stjómmálaflokka. Eðlilegt væri að heimila þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð að telja afföil af teknum húsbréfum að fullu til vaxtagjalda og að vaxtabæt- ur til þessa fólks væru greiddar strax næsta ár á eftir. Til viðbótar væri eðlilegt að hækka hlutfail húsbréfal- ána úr 65% í 80% fyrir nýjar íbúðir og ennfremur að lengja lánstíma húsbréfa vegna nýbygginga þeirra, sem eru að eignast sína fyrstu íbúð, úr 25 árum í 30 ár og að slík bréf yrðu afborgunarlaus fyrstu 5 árin. Félagslega íbúðarkerfið Hin hlið húsnæðismálanna er hið svokallaða félagslega íbúðakerfi. Þar erum við komin í slíkar ógöng- ur, að ekki verður lengur hjá því komist að gera algeran uppskurð á því kerfi. Forsjárhyggja vinstriflokka ríður yfirleitt ekki við einteyming og er Johanna Sigurðardóttir enginn eftir- bátur annarra sósíalista í þeim efn- um. Félagsmálaráðherrann hefur lýst- því yfír opinberlega að það þurfí að byggja 1.000 til 1.500 félagslegar íbúðir á ári. Hagfræðilega er talin Gunnar Birgisson „Eðlilegt væri að heim- ila þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð að telja afföll af teknum húsbréfum að fullu til vaxtagjalda og að vaxtabætur til þessa fólks væru greiddar strax næsta ár á eftir.“ þörf fyrir nýjar íbúðir á íslandi sem nemur 1.400-1.500 íbúðúm á ári. Það er því auðsætt hvern hug félags- málaráðherrann ber til séreignar- stefnunnar og hins fijáisa markaðar íbúða. Hún vill greinilega að sem flestir landsmenn búi í félagslegum íbúðum. Það er fullkomlega ljóst, að þjóðin mun aldrei geta staðið við þær skuld- bindingar sem lofað hefur verið í Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar: Landnám birkisins og endurreisn skóga Skógræktarmenn í Hafnarfirði koma jafnan saman þegar hækkandi sól boðar birtu og yl og gróanda vorsins og að þessu sinni verður aðalfundur Skógræktarfélagsins haldinn 3. apríl næstkomandi. Hefst hann klukkan 20.30 í Hafnarborg. Verður þar boðið upp á kaffi og kökur auk fróðlegs erindaflutnings. tilraun fyrir nokkrum árum með leit að krabbameini í meltingar- vegi, þar sem úrtakshópi var gef- inn kostur á að senda til rannsókn- ar hægðasýni. Ef blóð fannst í sýninu var sendandi þess boðaður til frekari rannsóknar, enda er aldrei eðlilegt að hafa blóð í hægð- um, þótt aðrar orsakir en krabba- mein geti legið þar að baki. Þátt- taka almennings í þessari rann- sókn var hinsvegar mjög dræm þrátt fyrir endurteknar áskoranir. Þótt þessari rannsókn hafi nú ver- ið hætt þá ráðleggur Krabba- meinsféiagið öllum konum og körl- um yfír fimmtugt að láta leita að blóði í hægðum árlega og körlum jafnframt að fara i einfalda lækn- isskoðun á endaþarmi, sem getur auk krabbameins í þarminum leitt í ljós krabbamein í blöðruhálskirtli en það er algengast krabbameina í körlum á Islandi. Þriðja stigs forvarnir Þótt sjúkdómseinkenni séu komin fram getur skipt höfuðmáli að draga ekki að leita læknis, ár- vekni um eigin heilsu og breyting- ar á henni getur skipt sköpum varðandi lækningalíkur. Þrálátur hósti, hæsi, blóð í uppgangi, hægð- um eða þvagi, óvænt megrun eða verkur, óeðlileg þreyta, hnútur á hálsi, í holhendi, brjósti, nára eða eista, breyting á bletti í húð, allt getur þetta bent til krabbameins á læknanlegu stigi. Krabbameinsfélagið mun á næstunni senda frá sér fræðslubækling ætlaðan karl- mönnum, þar sem lýst er nokkrum helstu krabbameinum karla, áhættuþáttum sem þekktir eru, og fyrstu einkennum. Mega menn eiga von á honum í pósti í næsta mánuði og er það von félagsins að með því takist að auka árvekni um eigin heilsu og betra líf. Höfundur-er sjúkrahúslæknir í Reykjavík og varaformaður Krabbameinsfélags íslands. þessurn efnum. Sennilega komast flestir íslendingar einhvern tímann á ævinni í þær aðstæður að full- nægja þeim kröfum sem gerðar eru til umsækjenda í félagsíbúðakerfinu. Það er skelfilegt til þess að vita, að fjöldi fólks er að slíta hjúskap til þess eins að geta orðið forgangshóp- ur í þessu kerfí. Vaxtamunur milli félagsíbúða- kerfisins og húsbréfakerfisins er svo gífuriegur eða 1% raunvextir á móti 13-15% í húsbréfakerfinu að teknu tilliti til affallanna. Hver á að borga þennan mun? Það er morgunljóst áð það eru skattgreiðendur framtíðar- innar. Þeir sem bijótast sjálfir fram til sjálfshjálpar munu greiða niður hús- næðiskostnað fyrir þá sem kunna að spila á kerfið auk þeirra sem þurftu á hjálp að halda og samfélag- inu ber skylda til að hjálpa. Þessi þróun félagslega íbúðakerf- isins er einkenni þeirrar vinstri- stjómaróreiðu í fjármálum sem ávallt fylgir þeim eins og skugginn. Hún er vitnisburður um það hvert forsjárhyggja sósíalista leiðir fijáls- borið fólk. Hafa menn ekki dæmin frá Austur-Evrópu fyrir augunum vilji þeir vita hvert stefna Jóhönnu Sigurðardóttur í húsnæðismálum mun leiða íslendinga fái hún til þess fylgi áfram? Úrbætur — sjálfseignarstefna Það er mín skoðun að við eigum að leggja niður félagsíbúðakerfið og færa alla aðstoð við fólk í húsnæðis- málum yfir til skattakerfisins og stuðla þannig að eflingu sjálfseign- arstefnunnar í húsnæðismálum. Við eðlilegar aðstæður eykur eigið húsnæði á ábyrgðartilfinningu fólks gagnvart verðmætum og gerir það meðvitað um mikilvægi fjárhagslegs sjálfstæðis. Það er því þjóðhagslega æskilegt, að sem allra flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Það er eftir- sóknarvert út frá hagsmunum ein- staklinga og fjölskyldna vegna þess öryggis sem það veitir. í eðli sínu eru allar íbúðir eins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.