Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27 MARZ 1991 Herinn steypir Traore forseta og stjórn hans í Malí Abidjan. Reuter. AMADOU Soumani Toure ofursti, leiðtogi Einingarráðs Malí, sem tók við völdum þar í landi í gær eftir að herinn hafði steypt Moussa Traore forseta, hvatti landsmenn til að sýna still- ingu og boðaði fundahöld með leiðtogum stjórnarandstæðinga til að koma á röð og reglu í landinu eftir nokkurra daga óeirðir. Mikill fögnuður braust út í Bamako, höfuðborg landsins, er útvarpið skýrði frá falli Tra- ore, klukkan 6 að staðartíma i gærmorgun, en sami tími er í Malí og á íslandi. Toure sagði að Traore hefði ver- ið handtekinn og væri hann í vörslu hersins. Fullyrt var að hann og kona hans Mariam væru í haldi á herflugvelli. Hefði forsetanum verið steypt í þeirri von að blóðugum óeirðum í landinu lyki en átök brut- ust út sl. föstudag milli stjómar- hersins og umbótasinna sem kröfð- ust þess að einræði Traore lyki og fjölflokkakerfí yrði komið á. Að minnsta kosti 150 manns biðu bana í óeirðunum en Traore fyrirskipaði hemum að btjóta mótmæli lýðræð- issinna á bak aftur í Bamako með því að hefja skothríð á mannfjöld- ann. Á sunnudag féllst Traore á að aflétta neyðarástandslögum og útgöngubanni og kyrrð komst á en óeirðir brutust aftur út í höfuðborg- inni í fyrrakvöld og skömmu síðar snerist herinn gegn forsetanum og tók hann fastan. í tilkynningu frá Einingarráðinu sagði að sett hefði verið útgöngu- bann að nóttu til, alþjóðaflugvelli Bamako og landamærum ríkisins hefði verið lokað. Ennfremur hefði stjórnarflokkur Traore, Þjóðar- bandalag Malí, verið upprætt og stjórnarskrá landsins numin úr gildi. Þá var fjarskiptasamband við útlönd rofið. Amadou Soumani Toure sagði í ávarpi sem endurtekið var á nokk- urra mínútna fresti í ríkisútvarpi Malí í nótt, að með tilliti til hins alvarlega ástands sem ríkti í 1? idinu, blóðugrar aðfarar að þjóð- inni, þvergirðingshætti stjómar Traore, hefði herinn ákveðið að binda enda á valdatíð hinnar blóð- þyrstu og spilltu stjórnar forsetans. Malí er landlukt ríki í vestan- verðri M'ið-Afríku og að miklu leyti eyðimörk enda í jaðri Sahara-eyði- merkurinnar. Er það 1,2 milljónir ferkílómetra eða 12 sinnum stærra en ísland. íbúar em 7,5 milljónir og búa 80% þeirra í dreifbýli en 850 þúsund í höfuðborginni. Þó þar sé . að finna gull, boxít, kopar, járn- grýti, úraníum og fosfat í jörðu er ríkið eitt hið fátækasta í heiminum og meðaltekjur á mann aðeins um 12.000 ÍSK. Franska er opinbert tungumál en Malí hlaut sjálfstæði frá Frökkum árið 1960. Þá tók við völdum Modibo Keita sem var hall- ur undir sovésk stjómvöld en for- ingjar í stjórnarhernum undir for- ystu Moussa Traore steyptu honum árið 1979. Stjómmálaflokkar voru bannaðir og ári síðar innleitt flokks- ræði þar sem Þjóðarflokki Malí undir forystu Traore vom afhentir allir stjómartaumar. Reuter Gífurlegur fögnuður braust út í Bamako, höfuðborg Malí, í gær eftir að Moussa Traore forseta hafði verið steypt af stóli. Á myndinni reyna hermenn að hemja fagnaðarlætin en gleðin var svo mikil að tugir manna slösuðust og fregnir fóru einnig af manntjóni. Austurhluti Þýskalands; Kohl kennt um yfir- vofandi efnahagshrun Leipzig. Reuter. The European. „BURT með Kohl, burt með Kohl!“ hrópuðu um 60.000 mótmælendur á mánudag í miðborg Leipzig, þar sem uppreisnin gegn stjórn kommún- ista hófst árið 1989. Á gríðarstórum borða stóð: „Betra er að missa Kohl en vinnuna“. Ræðumenn kröfðust þess að stjórn kanslarans segði af sér og boðað yrði til nýrra kosninga. Ári eftir að Austur-Þjóðveijar fögnuðu Helmut Kohl, kanslara Þýskalands, sem bjargvætti sínum eftir hrun kommúnismans koma nú tugþúsundir manna saman á hveijum mánudegi á götum Leipzig og fleiri borga í austurhluta landsins til að mótmæla sívaxandi atvinnuleysi - og kenna kanslaranum um. Almenningur í Þýskalandi virðist á svipaðri skoðun og þýski seðla- bankastjórinn, Karl Otto Pohl, sem lýsti því yfir nýlega að efnahags- samruni þýsku ríkjanna 2. júlí í fyrra Uppstokkun í stjórn Saddams Husseins íraksforseta: Fyrrverandi upplýsingaráðherra talinn eiga dauðadóm yfir höfði sér Latif A1 Jassim Amman. Frá Jóhðnnu Kristjónsdóttur, Upplýsinga- ráðherra ír- aks, Latif A1 Jassim, var einn þeirra sem var látinn víkja þegar Saddam Huss- ein íraksfor- seti gerði breytingar á stjórn sinni um helgina. Þýsk þingkona á Evrópuþinginu og fulltrúi þýska Rauða krossins sem kom frá Bagdad í gær sagði að hann hefði verið gerður að blóra- böggli, haft væri fyrir satt að hann væri í stofufangelsi og myndi að öllum líkindum verða ieiddur fyrir herrétt og tekinn af lífi. „Hann mun hafa staðið upp í hárinu á forsetanum og gagnrýnt hann,“ sagði þingkonan. Jassim hefur verið einn helsti áhrifamaður landsins lengi og innsti koppur í búri í byltingarráði landsins sem hefur farið með stjórn landsins undir forystu forsetans. Jassim missti konu og böm J loftárás blaðamanni Morgunblaðsins. Bandaríkjamanna á byrgi sem sagt var að hefði verið ráðist á af því það hefði verið aðalfjarskiptastöð Bagdad. Hún sagði óstaðfestan orðróm hafa verið á kreiki um að Saddam hefði verið væntanlegur í byrgið klukkustundu fyrir árásina. Forsetinn hefði farið milli byrgja að telja kjark í landa sína. Eftir því sem, þingkonan sagði hefur Saddam alla stjóm' í Bagdad í hendi sér og hún dró í efa sann- leiksgildi frétta um að barist væri í borginni núna. Samt hallaðist hún að því að breytingarnar á stjórn- in.ni væru „upphaf endaloka Sadd- ams Husseins" eins og hún orðaði það. Þó bjóst hún við að Saddam gæti haldið völdum enn um hríð, a.m.k. ef íraska stjómarhernum tækist að_ ná allri borginni Kirkuk í norður írak, í Kúrdistan, en orr- usta um borgina væri nú hafin. Hún sagði að fréttir frá suðurhlut- anum bentu til að shítar ættu í vök að verjast en síðustu dagana hefðu Iranir verið beinir þátttakendur og íranskar hersveitir hefðu hvað eftir annað farið yfir landamærin til bardaga með shítum í írak. Hún gat þess að ofsóknir væru hafnar gegn kristnum mönnum í írak en þeir eru um hálf milljón. Fram að þessu hefðu þeir verið látnir af- skiptalausir en fæstir haft afskipti af stjórnmálum. Hún sagði að mönnum bæri ekki saman um hvort Tariq Aziz hefði verið hækkaður eða lækkaður í tign við breytinguna á stjórninni. Aziz er eini kristni ráðherrann í stjórn- inni eftir því sem best er vitað. Hann kom í skyndiferð til Jórdaníu um helgina en fór samdægurs og engar upplýsingar hafa verið gefn- ar um erindi hans hér. Sex þúsund þýskar fjölskyldur hafa boðist til að taka írösk börn í 6-9 mánuði og bar þingkonan ráðherra kvenna- og félagsmála þau boð en það var afþakkað. Hún sagði að skelfing og bræði setti svip á lífið í Bagdad, vonleysi og eymd. íraskur læknir hefði tekið nokkrar myndir fyrir hana og hefði engu mátt muna að hann lenti í klandri fyrir. „Öryggiseftirlitið í landinu er það eina sem virðist starfhæft og það hefur aldrei verið meira. Ég er persónulega kunnug Jassim fyrrv. ráðherra en eftir að ég heyrði tóninn í hans garð þorði ég ekki að spyija nánar um hans ipál,“ sagði hún. hefði verið „hörmuleg mistök". Jurt Biedenk, forsætisráðherra Saxlands, hefur sagt að efnahagsástandið í austurhluta landsins sé „hrikalegra en í efnahagssamdrættinum á þriðja áratugnum“. Þá viðurkenndi Jiirgen Möllemann, viðskiptaráðherra Þýskalands, að þýska stjómin hefði „misreiknað" kostnaðinn við samein- ingu þýsku ríkjanna. Tveir af hverjum þremur án atvinnu í árslok? Ljóst að stjóm Kohls á við gífur- legan efnahagsvanda að etja. Sam- kvæmt opinberum skýrslum eru 760.000 Áustur-Þjóðveijar án at- vinnu en þessi tala nær ekki til 1,8 milljóna manna, sem aðeins hafa skammtímavinnu og eru í raun at- vinnulausar. Búast má við að tveir af hveijum þremur Austur-Þjóðveij- um verði án atvinnu í lok ársins. Á sama tíma hefur leiga á hús- næði allt að því tuttugufaldast. Mat- vælaverð í Austur-Þýskalandi er nú orðið jafn hátt og í vesturhlutanum en samt em Austur-Þjóðveijar með um helmingi lægri laun. Áætlað er að í árslok verði um 180.000 Austur-Þjóðverjar farnir til vesturhluta landsins til að leita að vinnu. Aðrir hafa farið til Moz- ambique og Angóla í Afríku. Enn aðrir munu hafa leitað alla leiðina til Uruguay og Papúu Nýju-Gíneu eftir vinnu. Kohl kanslari hyggst veija 102 milljörðum (3.600 milljörðum ÍSK) , til að standa straum af kostnaði vegna enduruppbyggingar efnahags- ins í austurhlutanum. Margir óttast að miklu meira fjármagn þurfi vegna hinna gífurlegu félagslegu umskipta sem standa þar fyrir dyrum. Þjóðvetjar verða einnig að ala önn fyrir tugþúsundum flóttamanna af þýskum ættum frá Póllandi, Tékkó- slóvakíu og Rúmeníu. Gjaldþrot blasir við a-þýsku ríkjunum fimm Hagfræðingar spá því að ríkin fimm í austurhlutanum verði gjald- þrota ef þau fá ekki frekari efna- hagsaðstoð tafarlaust. í fyrra var . fjárlagra.ha.Ui ríkja.nna. þograr Joimimi - Atvinnuleysi í Austur-Þýskalandi eykst.. 10%“ AUSTUR VESTUR i i : i z r~z i r, t _ i . i z i J A S O N D | J F .og fólk mót- mælir á göi um úti í 5 milljarða marka (180 milljarða ÍSK). Átvinnuleysisbæturnar einar verða alls um 24 milljarðar marka (760 milljarðar ÍSK) á næsta ári. Borgaryfirvöld í Leipzig hafa þeg- ar lýst yfir gjaldþroti og skipuð hef- ur verið sérstök nefnd til að fara með fjármál borgarinnar. Fregnir herma að borgin skuldi um 1,6 millj- arða marka (57 milljarða ISK). Jurt Biedenk, forsætisráðherra Saxlands, hefur hótað að leita til dómstóla ef sambandstjórnin framlengir ekki efnahagsaðstoð sína til ársins 1995. Vaxandi óánægja er hins vegar á meðal skattborgara í vesturhluta landsins, sem borga reikninginn vegna sameiningarinnar, og ljóst er að þeir eru lítt hrifnir af frekari efna- hagsaðstoð við Austur-Þjóðveija. Frammámenn í efnahagslífi landsins brýna á sama tíma fyrir Austur-Þjóð- veijum að sýna biðlund því efnahags- undrin taki meira en nokkra mánuði -- .jafaual í Sýskalandi,——-----I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.