Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 37
sem hann gerði fyrir okkur. Ég færi Evu, Óla Birni og Andra sam- úðarkveðjur og þakkir fyrir vináttu fjölskyldunnar sem hefur verið mér afar dýrmæt. Vilhjálmur Egilsson Kári Jónsson f.v. stöðvarstjóri Pósts og síma á Sauðárkróki lézt aðfaranótt hins 19. marz sl. Hann va_r í stjórn Héraðsskjalasafns og Héraðsbókasafns Skagfirðinga um 20 ára skeið, frá 1970-1990. Hann valdist þegar til formensku í stjórn- inni og gegndi henni óslitið alla tíð. Á þessu árabili hefur átt sér stað mikil uppbygging í safnamálum á Sauðárkróki. Safnahúsið, sem haf- in var smíði á 1965, var tekið í notkun um áramótin 1969-1970, þegar bóksafnið var flutt þangað inn. Héraðsskjalasafnið tók þar bólfestu 1971; síðan gengið frá hveijum hluta hússins eftir annan á næstu árum. Nú seinast var ráðizt í umfangsmiklar breytingar og flutning Héraðsskjalasafnsins af efri hæð hússins niður á þá neðri veturinn 1989-1990. Þar var skjöl- um, handritum og Ijósmyndum komið fyrir í eldtraustri skjalag- eymslu, aðstaða öll rýmkuð og bætt tíl muna. Árið 1968 var Listasafn Skag- firðinga stofnað á vegum Safnhúss- ins með vænu fjárframlagi Menn- ingarsjóðs Sparisjóðs Sauðárkróks. Eftir 1970 tók safninu að vaxa fisk- ur um hrygg og Iét Kári sér annt um viðgang þess. Þrátt fyrir lítil fjárráð á það nú um 120 verk. Sömu sögu er að segja um bóka- og skjalasafnið. Bókaeign bóka- safnsins hefur þrefaldast frá árinu 1970 og héraðsskjalasafnið er nú orðið eitthvert hið stærsta og bezt búna á landinu utan Reykjavíkur. Kári var forgöngumaður að stofnun ritsins Safnamál árið 1977; sem gefið er út af söfnurium til upplýs- ingar og fróðleiks Og hefur ótvír- ætt orðið þeim til framdráttar á ýmsan óbeinari hátt. Kári Jónsson starfaði að þessum málum af lífi og sál og á sinn stóra þátt í hversu Vél þau eru hér á vegi stödd, sem raun ber vitni. Starfsfólk og stjórn safnanna minnist hans með þakklæti og virð- ingu og sendir eftirlifandi eigin- konu hans, sonum og öllum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. I Stjórn Safnahússins og safnanna á Sauðárkróki. ____________Brids_______________ Arnór Ragnarsson Úrslit íslajidsmóts í sveitakeppni, Islandsbanka- mótsins, hefjast í dag íslandsbankamótið í sveitakeppni hefst á Hótel Loftleiðum í dag, mið- vikudaginn 27. mars. 8 sveitir keppa til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í sveitakeppni 1991. Spilaðir verða tveir 32 spila leikir á dag, Og hefst fyrri leikurinn kl. 18.00 og seinni leikurinn kl. 19.30, miðvikudag, fimriitudag og föstudag. Sjöunda og síðasta umferðin er svo á laugardag og hefst kl. 12.00. Allar okkar sterkustu sveitir eru í úrslitum svo þetta verður áreiðanlega mjög spennandi keppni. Góð aðstaða er fyrir áhorfendur og leikir verða sýndir á sýningartöflu, að undantekn- um fyrsta leikrium í dag og seinni hálfleik í fyrri leik á fimmtudag og föstudag. Undankeppni íslandsmóts í tvímenningi 1991 Skráning í íslandsmót í tvímenningi stendur nú yfír hjá BSÍ. Mótið verður haldið helgina 13.-14. apríl og er öllum opið. Spilað verður Michell-tvímenn- ingur eins og undanfarin ár, þijár lot- ur, tvær á laugardag og ein á sunnu- dag. 24 efstu fara síðan í úrslit sem eru helgina 27.-28. apríl. Þeir sem eru að hugsa um að taka þátt í þessu móti eru böðriir að skrá sig sem fyrst á skrifstofu BSÍ í síma 91-689360. Bridsfélag Siglufjarðar Spilaðar voru tvær umferðir í fyrir- tækjakeppni, 11. og 18. mars. Úrslit urðu þau að sveit verslunarmanna sigraði en hún hláut 829 stig. Röð ;rjí)Acmxr/eiM rnriAJHVíunjiOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1991 Heill hringnr um heiminn Jass Guðjón Guðmundsson Full Circle lét bíða eftir sér sl. föstudagskvöld en biðin var æði stutt þótt hún væri löng. Meðan gestir voru að tínast inn hljómaði Point Blank Friðriks Karlssonar í hátöiurum og kynti undir stemninguna. Loks steig sveitin á svið, nýkomin frá plötuupptöku í Ríó, og hóf strax leikinn á Puma af vænt- anlegum geisladiski, Secret Stories, þriðju plötu sveit- arinnar frá því hún var stofnuð 1988. Skúli Sverrisson bassaleik- ari var potturinn og pannan í rytmadeild sveitarinnar, og aðal- sólisti ásamt Anders Bostrom flautuleikara og Philip Hamilton raddara, sem einnig barði conga- trommur og snerti klukkur. Bostrem lék annars mest á „wind- syntheziser“, afar sérkennilega blöndu af flautu og hljóðgervli. Á trommunum var Dan Rieser þétt- ur undir. Leikin voru fjögur eða fímm lög af Secret Stories fýrir hlé, öll undir brasílskum áhrifum og fremur jass-rokkuð, en byggðu öðru fremur á grípandi og gullfall- egum laglínum. Karl Lundeberg hljómborðsleikari semur tónlistina en söngur Philips Hamiltons setur mikinri heildarblæ á tónlistina. Fyrir hlé lék sveitin einnig Brighter Day, Pau d’Arco og Running Bear sem segir um í kynningarbæklingi frá Columbia- útg^funni að bassasóló Skúla muni valda straumhvörfum meðal rafmagnsbassaleikara í víðri ver- öld. Þessi lög eru af Secret Stori- es sem er væntanleg í verslanir í næstu viku, og eru undir brasílsk- um rytmaáhrifum. Fyrir hlé léku þeir líka Myth America af fyrstu plötunni og Gotham City sem Ljósmynd/Björgvin Pálsson komst ekki fyrir á Secret Stories. Þar var á ferð glerhart rokk með þungum bassapúlsi, en tempó- skiptingar og hrein umskipti yfir í aðra sálma skeði um miðbik lags- ins þegar englarödd Hamiltons rauf drungann. Slíkar tempóskipt- inar eru reyndar oftast uppi á teningnum í tónsmíðum Lunde- bergs. Rödd Hamiltons minnir mjög á Pedro Aznar sem raddaði á First Circle og Letters from Home með Pat Metheny Group og sömuleiðis minnti margt í sándi sveitarinnar á þá eðlu sveit. Einn- ig má greiha áhrif frá Weather Report í lagasmíðum Lundebergs, hins vegar hefur sveitin unnið sig frá þessum áhrifum með eigin sándi, og Skúli kannski ekki síst þátt í því, þótt þeirra gæti að sörinu. Leik Full Cirole var gífurlega fagnað af gestum sem fjölmenntu í Púlsinn bæði á fimmtudags- og föstudagskvöld og sem uppklapp- aslag léku þeir Running Bear aft- ur, og föstudagskvöldið var full- komnað. Morgunblaðið Arnór Þeir verða í eldlínunni í úrslitakeppni íslandsmótsins sem fram fer á Hótel Loftleiðum um bænadagana. Karl Sigurhjartarson og Sævar Þorbjörnsson úr sveit Verðbréfamarkaðar Islandsbanka spila gegn Sverri Ármannssyni og Matthíasi Þorvaldssyni sem spila í sveit Sam- vinnuferða/Landsýn. næstu sveita varð eftirfarandi: FljótB 799 Íslandsbanki/Skeljungur 798 Ríkisstarfsmenn 752 Bridsfélagið B 741 Sjúkrahúsið 733 Opinberir starfsmenn 718 Bridsfélag Fljótsdalshéraðs Sveit Kristjáns Bjömssonar sigraði í aðalsveitakeppni félagsins sem er nýlokið. Hlaut sveitin 366 stig eða lið- lega 20 stig í leik. Næstu sveitir: Pálma Kristnmnnssotiar 339 Norðanmanna 304 Jóns Bjarka Stefánssonr 285 Sveins Guðmundssonar 261 Björns Andréssonar 259 HeiðrúnarÁgústsdóttur 245 Firmakeþpni Bridssambands Austurlands verður mánudags- kvöldið annan í þáskum í Vala- skjálf. Verið velkomin. Bridsfélag Hornafjarðar Gestur Halldórsson og Magnús Jon- asson unnu Vélsmiðjumótið sem ný- lokið er. Hlutu þeir félagar 100 stig yfir meðalskor. Röð efstu para varð þessi: Gestur Halldórsson - Magnús Jónasson 100 ÞorsteinnSiguijónsson-EinarJensson 76 GuðbrandurJóhannss. - Gunnar P. Halldórss. 76 Gunnlaugur Karlss. - Birgir Björnsson 58 ÁmiStefánsson-JónSveinsson 50 Sigurpáll Ingibergss. - Guðm. Guðjónss. 47 Vífill Karlsson — Bjöm Júlíusson 39 ValdimarEitiársson-JónNíelsson 38 JónG.Gunnarsson-KolbeinnÞorgeirss. 28 ÖmRágnarsson-RagnarSnjólfsson 25 Gunnhildur Gunnarsd. - Svava Gunnarsd. 22 Laugardaginn 30. mars verður spil- aður sýsíutvimenningur en aðal- tvímenningur félagsins sem er þriggja kvölda Butler verður spilaður 7., 14. og 21. apríl. Flotbryggjan í Stykkishólmi. Morgunblaðið/Ámi Helgason Flotbryggjur keyptar fyrir Stykkishólmshöfn Stykkishólmi. Stykkishólmshöfn keypti nýlega flotbryggjur. Þetta er gert fyrir smábáta og þessi áfangi hefur rými fyrir 20 smábáta og strax eftir að bryggjan kom í gagnið höfðu allar kvíarnar verið upppantaðar. Og nú bíða 3 eftir rými og má vera að athugað verði um stækkun þegar þörfin verður meiri. Þarna geta smábátaeigendur er orðin ein af bestu smábátahöfn- fengið rými fyrir báta sína gegn um í landinu og þar er hlé í vondum vissu gjaídi og eru um leið öryggir veðrum. Aðstaðan getur því ekki með bátana í veðrum, því höfnin orðið betri. - Árni □QQHQED NÝJAR SENDINGAR AF JÁRNRÖMUM 06 SXRIFBORÐSSTÖLUM TILVALDAR FERMINGAR6JAFIR HÚSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMAREIRÐI SÍMI54IOO Teg. 739 Mikið úrval af Dico jarrirúmum í breiddunum 90- 100-120 í hvítu, svörtu, krómi o.m.fl. litum. Verð frá 26.200,- m/svampdýnu. ATH.: NÝ SENDING AF BORDSTOFUHðSGÖGNUM Teg. 661 SKRIFBORDSSTÓLAR VERD KR. 6.950,- ST6R. OPID LAUGARDAG 30. mars FRÁ KL. 10-14. Teg. MEGARA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.