Morgunblaðið - 27.03.1991, Page 52

Morgunblaðið - 27.03.1991, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1991 „H&Lt porf> var■ vatnsLcuist i þrjádagci efhir oÁ honan mln. skouut hann * Ast er... u ... að sleppa tilraunum með tilfinningar annarra. TM fl®g. U.S. Pat Otf. —all righu reservad ® 1991 Lo* Angeles Times Syndica te Er þetta ekki venjulega límt á veggina? Það er ekki kominn tími á hana fyrr en eftir 10 daga... HÖGNI HREKKVÍSI Hín sígilda spurning Til Velvakanda. Ef öll trúarbrögð veraldar væru samtvinnuð í eitt stef, hvílíkur unað- sómur myndi þá eigi fylla hlustir okkar og hjörtu. (Amold Toynbee.) Við getum víst öll tekið undir með sagnfræðingnum mikla, því mætti þó e.t.v. bæta við að þetta þyrfti engan veginn að vera hrein ósk- hyggja. Fyrsta stefíð í öllum trúar- brögðum er siðgæði, mannúð, um- burðarlyndi, miskunn og náð. Hér tala allir sama máli, bæði í austri og vestri. Öll trúarbrögð telja sig málsvara lítilmagnans, hins veik- burða, hijáða og þjáða. Að þessu leyti gat Toynbee vel notið fyrsta stefsins í hinu hugljúfa lagi. Það er fyrst þegar lengra er komið fram í lagið, þegar Guð, eilífðin og allt hið yfirnáttúrulega fær yfirhöndina, sem ágreiningurinn magnast og lagið spillist. Hin áleitna spurning er hreinlega, hvað er dyggð? Er það þjónusta við Guð eða menn, eða hvor getur vænst meira af mér Guð eða nágranni minn? Til þess að geta svarað spum- ingunni hvað er dyggð þurfum við fyrst að geta svarað spurningunni hvað eða hver er Guð? Eða er Guð e.t.v. aðeins hugtak eða hugarburð- ur? Ég segi hugtak, því meðan tilvist Guðs ekki er sönnuð, er hann ekki annað en hugtak. Það em hreint ekki allir sem álíta að Guð hafi skapað heiminn. Guð er „proto kinon“, fyrsta orsök, óróinn sem kom segulverkinu í gang, segir Aristoteles. Guð skapaði ekki heim- inn. Guð er aðgerðarlaus. Guð hefur engan vilja, ósk eða tilgang. Guð er alfullkominn og þarfnast því einskis. Engin furða þótt Bretar tækju „konung“ Aristotelesar sér til fyrir- myndar þegar þeir stofnuðu sitt eig- ið áhrifalausa konungsembætti. Allflestir munu tileinka Guði mannlega eiginleika, því við þekkjum ekkert annað. Förum við útyfir þekk- ingu okkar og reynslu, lendum við í hreinum ógöngum, ímyndun og hug- arburði. Samkvæmt þessu er Guð því alvitur, algóður, alráður, og al- máttugur, allt efsta stig á mannleg- um eiginleika. Guð er þó ekki mað- ur, segjum við en hvað þá? Menn hafa reynt að færa sönnur fyrir til- vist Guðs, en allar slíkar sannanir hafa haft þveröfug áhrif. Væri Guð maður, eða önnur líf- vera, lyti hann lögmáli lífverunnar um fæðuöflun, vöxt, tímgun og dauða. Ekki getum við heimfært þetta uppá eilífan og óumbreytilegan Guð. Allt efni, einnig lífvana efni, er forgengilegt, og Guð er því ekki úr efni. Anda þekkjum við aðeins sem vott um líf, samspil anda og efnis, Guð getur því ekki verið andi. Er þá enginn Guð? Um almætti Guðs og vilja segir Voltaire þetta: „Þótt við gæfum okkur þær forsendur að Guð væri til þá væri hann samt harla áhrifalaus, því annaðhvort viil Guð stöðva öll hryðjuverk, drepsóttir, eymd og örbirgð, en getur það ekki, ellegar Guð getur stöðvað glæpi, synd, volæði, óáran og styrjaldir, en vill það ekki.“ Margir leggja því árar í bát, verða örlagatrúar, „fatalistar" eða kalvín- istar. Fyrir öðrum er trúin eins og heimanmundur eða meðgjöf. Auðvit- að er sagan ekki öll sögð hér. Svarið gæti verið nærtækara en margur hyggur. Trú þarf ekki að skilja. Það þarf ekki að sannfæra hinn trúaða, hann hefur þegar meðtekið sína trú. Sönn trú er hagnýt trú, og ósatt er það eitt sem ekki borgar sig að trúa á. Trúin hefur því gildi vegna gildisauka hennar. Telur þú trú þína á Guð nauðsynlega og gagnlega, eða viltu vita hvort til er veruleiki sem samsvarar hugmynd þeirri sem þú gerir þér um Guð? Seinni spurning- unni er ekki hægt að svara, og það er því augljóslega vegna hagnýts gildis þess sem trúin hefur fyrir þig að þú játast henni, en ekki vegna sönnunargildis. (Starfshyggja.) Enginn hefur spurt Guð hvað hon- um er þóknanlegt. Síst ætla ég Guði þó þá dul að hann sé hégómlegur. Það þarf því ekki að skjalla Guð eða slá honum gullhamra. Guð mun láta slíkt sem vind um eyru þjóta. En efasemdin um tilvist Guðs, hæfni hans og almætti er áleitin. Goethe lýsir því meistaralega í leikriti sínu Faust hvernig hinn sann- leikshungrandi Faust neytir allra bragða í leit sinni að sannleikanum. Faust tortryggir Guð, efast um hæfni hans og réttlætiskennd og almætti. Faust vekur reiði Guðs og Guð for- mælir honum og útskúfar honum vegna efasemda hans. Að lokum fyr- irgefur Guð þó Faust, tekur hann í sátt og veitir honum uppreisn fyrir eilífa þrá hans og leit að sannleikan- um. Richardt Ryel Þessir hringdu .. < Bundið slitlag Vegfarandi hringdi: „Mig langar að vekja athygli á því að einungis á að bæta við 71 km af bundnu slitlagi á vegi lands- ins í sumar, miðað við 305 km fyrir nokkrum árum og um leið að spyija að því hvort slitlögin eigi enga málsvara á Alþingi. Hvað segja menn á Austfjörðum og Vestfjörðum um að þetta sé skorið svona niður? Það er ekki einu sinni komið slitlag að helstu ferðamannastöðum, eins og Gull- foss og Geysi. Ég tel að þessi málaflokkur ætti tvímælalaust að hafa forgang." Illa merktar umbúðir A.B. hringdi: „Ég er hneyksluð á þeim heilsu- vörum sem búið er að stilla upp í einum rekka í Hagkaup. Ég held að það sé andstætt öllum lögum að merkja vörurnar eins illa og þarna er gert. Utan á pökk- unum stendur einungis t.d. ólituð hrísgijón eða hveitikím og Heilsu- húsið, en hvergi er minnst á hvemig eigi að nota vörurnar eða hvernig þær virka. Svona við- kvæmar vörur hljóta líka að renna út fyrir tiltekinn dag en það segir ekkert um það á umbúðunum. Eg held að Hagkaupsmenn ættu að taka þessar vörur úr umferð á meðan verið væri að bæta umbúð- irnar.“ Úlpa tapaðist Svört og bleik telpnaúlpa tap- aðist föstudaginn 22. mars s.l. á leiðinni frá Val í Fellabæ að Kaup- félaginu að Egilsstöðum. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Hönnu Marín- ósdóttur í síma 97 - 13809. Hanskar Svartir leðurhanskar töpuðust í síðustu viku í Heilsurækt Selt- jarnarness. Finnandi er vinsam- legast beðinn um að hringja í Kristján í síma 20957. Víkverji skrifar Nokkrar umræður hafa orðið um þá staðreynd, að ráðherr ar hafa notað embætti sín og ráðu- neyti til að auglýsa eigið ágæti sitt nú þegar dregur að kosningum. Að sjálfsögðu er ekkert athugavert við að stjórnmálamenn reyni að ljúka sem flestum verkum fyrir lok kjörtímabilsins. Þeir vita ekki, hvort þeir eða einhverjir aðrir verða í for- ystu eftir að kjósendur hafa kveðið upp sinn dóm. Hitt hlýtur að vekja gagnrýni, ef slík embættisverk sem eru unnin á kostnað skattgreiðenda eru notuð sem auglýsingaefni fyrir einstaka ráðherra. Víkveija var til dæmis misboðið þegar hann fletti Morgunblaðinu sínu á laugardaginn og sá fjögurra dálka litaauglýsingu frá mennta- málaráðuneytinu um að Þjóðleikhú- sið hefði verið opnað að nýju. í huga Víkveija fór ekki á milli mála, að aðaltilgangur auglýsingarinnar var að geta birt mynd af Svavari Gestssyni menntamálaráðherra í ræðustól við athöfnina. á forsíðu Þjóðviljans þennan sama dag var litmynd af Svavari þar sem hann sat einn í uppgerðum sal Þjóðleik- hússins. Þarf enginn að efast um að Svavar ætlar að nota þá stað- reynd, að rúmlega hálfum milljarði króna af fé almennings hefur verið varið til að endurbyggja Þjóðleik- húsið að hluta, sem rós í hnappagat sitt á hinum fáu dögum til kosninga. xxx Framkvæmdirnar við Þjóðleik- húsið hafa verið umdeildar. Sumir telja að með þeim hafi verið brotið gegn höfundarrétti Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkis- ins. Þegar staðið er að verkum sem þessum kann oft að þykja skynsam- legt að slá á alla gagnrýni með auglýsingamennsku eins og þeirri, sem menntamálaráðuneytið hóf í Morgunblaðinu á laugardag. í auglýsingunni segir meðal ann- ars: „Síðastliðið fimmtudagskvöld fögnuðu íslendingar endurbættu Þjóðleikhúsi — og um leið betra leikhúsi, þrátt fyrir lítið breytt svip- mót.“ Hvernig á skilja þessi orð? Hefði leikhúsið orðið betra ef svip- mótinu hefði verið breytt meira? Er aðeins verið að vísa til húsagerð- arlistar í þessum orðum eða einnig leiklistar? Ef minni Víkveija er rétt hafa alþýðubandalagsmenn varla náð sér enn vegna hneykslunar yfir því, að Flugstöð Leifs Eiríkssonar var opnuð með viðhöfn fyrir þing- kosningarnar vorið 1987 en þá fóru sjálfstæðismenn með stjórn ut- anríkismála. Raunar voru Svavar Gestsson og flokksbræður hans eins og Olafur Ragnar Grímsson ut- anríkisráðherra ekki hinir einu sem býsnuðust yfir flugstöðinni. Jón Baldvin Hannibalsson slóst í hóp gagnrýnenda og hann var ekki fyrr orðin fjármálaráðherra en hann tók að gagnrýna fjárveitingar til Leifs- stöðvar. Jón Baldvin breytti að vísu um tón eftir að hann varð utanríkis- ráðherra og fékk forræði yfir flug- stöðinni en er ekki Ólafur Ragnar enn við sama heygarðshornið? Skyldu alþýðubandalagsmenn verða sjálfum sér samkvæmir í umræðum um opinberar fram- kvæmdir og pólitíska auglýsinga- mennsku, þegar þeir líta á Svavar og Þjóðleikhúsið? Nálgaðist pólitísk auglýsingastarfsemi vegna flug- stöðvarinnar nokkru sinni leikara- skap menntamálaráðherra vegna Þjóðleikhússins?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.