Morgunblaðið - 03.04.1991, Side 1

Morgunblaðið - 03.04.1991, Side 1
88 SIÐUR B/C 74. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Verðhækkun í Sovétríkjunum Sovéskar húsmæður ýmist grétu eða bölvuðu stjórnvöldum í gær en þær urðu margar fyrir áfalli er þær hugðust kaupa í matinn. Á einni nóttu hafði matvara og ýmsar nauðsynjar margfaldast í verði. Verð á nautakjöti hafði áttfaldast, mjólk nær þrefaldast og smjöri nær ijórfaldast. Meðal- tekjur sovéskra launamanna eru 270 rúblur á mánuði og nemur verð á kjötkílóinu um 6% kaups- ins. „Þetta er martröð. Svindl," sagði 67 ára kona með tárin í augum. „Við erum misnotuð og niðurlægð". Sjá frétt á bls. 32. • • Oiyggisráðið stöðvi ofsókn- ir Irakshers gearn Kúrdum París, Ankara, Dainaskus, SÞ, Animan, Washington, London. Reuter. ^ ■■■ * ^ ■■ J FRANSKA stjórnin sakar stjórn Saddams Husseins um að reyna að tortíma þjóðarbroti Kúrda í írak. Gert er ráð fyrir atkvæða- greiðslu í öryggisráði SÞ í dag um vopnahlésskilmála í Persaflóa- stríðinu og Roland Dumas, utan- ríkisráðherra Frakklands, sagðist í útvarpsviðtali ætla að biðja ráðið að samþykkja jafnframt aðgerðir til að stöðva blóðugt stríð Iraks- hers gegn Kúrdum og shíta- múslimum í suðurhluta íraks. Tyrkir fóru í gær fram á neyðar- fund öryggisráðsins vegna flótta- mannastraums til fjallahéraða á landamærum rikisins að írak og segja þeir að 200.000 manns af þjóðerni Kúrda, einkum konur og börn, séu í lífshættu vegna matar- skorts og árása Iraka. Bandaríkjamenn telja að íraski herinn hafi nú töglin og hagldirnar í baráttunni við uppreisnarmenn þótt enn sé barist í sumum sveitahéruð- um. Kúrdar segjast á hinn bóginn hafa tekið úthverfi olíuborgarinnar Kirkuk á ný. Roland Dumas sagði að einhverjir myndu líta á ósk Frakka _sem af- skipti af innanríkismálum íraks en umheimurinn gæti ekki „látið kúgun- ina og mannréttindabrotin afskipta- laus“. Annar franskur ráðherra hafði eftir kúrdískum útlögum að tvær milljónir flóttamanna stefndu nú til fjallahéraðanna í Norður-írak. Belg- íska stjórnin viil að Irak verði afvopn- Yfirmaður einkavæðingar a-þýskra fyrirtækja myrtur: Stasi ffrunað um aðild að ódæðinu Rniin llíÍL'L'ol/loi'f Iloidni' Bonn, Diisseldorf. Reuter. DETLEV Rohwedder, yfirmaður eignarhaldsfyrirtækisins Berliner Treuhandsanstalt, sem hefur yfirumsjón með einkavæðingu fyrrum austur-þýskra ríkisfyrirtækja, var skotinn til bana á heimili sínu í Diisseldorf á mánudagskvöld. Var þremur skotum skotið frá garði skammt frá húsi hans og hæfðj eitt þeirra Rohwedder sem sneri baki í gluggann. Eiginkona Rohwedders varð einnig fyrir skoti en hún er ekki lífshættulega særð. Bréf frá hryðjuverkasamtökunum Rauðu her- deildinni (RAF), þar sem þau lýsa verknaðinum á hendur sér, fannst skammt frá heimili Rohwedders og telur lögreglan það vera ekta. Þetta er fyrsta alvarlega hryðju- verkið sem framið er í Þýskalandi pftir að Vestur- og Austur-Þýskaland sameinuðust í október á síðasta ári en í febrúar á þessu ári var skotið á sendiráð Bandaríkjanna í Bonn án þess að nokkur særðist. Sögðu full- trúar þýska ákæruvaldsins í gær að skothylki sem fundust skammt frá heimili Rohwedders bentu til að hann hefði verið skotinn með sama vopni og skotið var á sendiráðið með. Margir háttsettir stjórnmálamenn sögðust í gær gruna að fyrrum starfsmenn austur-þýsku öryggislög- reglunnar, Stasi, ættu aðild að verkn- aðinum en Stasi þjálfaði árum saman hryðjuverkamenn Rauðu herdeildar- innar og veitti þeim athvarf í Austur- Þýskalandi. Voru fjölmargir hryðju- verkamenn handteknir eftir að lýð- ræðislegir stjórnarhættir voru teknir upp í Austur-Þýskalandi á síðasta ári. Eckart Wertheback, fyrrum yfir- maður þýsku gagnnjósnaþjónustunn- ar, segir í viðtali sem birtist í þýska tímaritinu Quick að atvinnuiausir fyrrum starfsmenn Stasi .geti .orðið. að alvarlegu Þýskalandi. öryggisvandamáli í Ríkisfyrirtækin 9.000 sem Roh- wedder hafði umsjón með að einka- væða voru flest í hörmulegu ástandi og lenti það á Rohwedder að bera ábyrgð á óvinsælum ákvörðunum um framtíð þeirra. Hefur m.a. fjölmörg- um fyrirtækjum verið lokað þar sem þau áttu engan möguleika á að lifa af í fijálsu markaðskerfi. Var Roh- wedder lýst sem þeim manni sem vinnandi fólk í austurhluta Þýska- lands hataði mest í grein í tímaritinu Spiegel L síðustu viku. að og mannréttindabrot stjórnar Saddams verði stöðvuð. Fulltrúi Belgíu fer nú með forsæti í öryggis- ráði SÞ. Heimildarmenn úr röðum shíta segja að her Saddams geri sprengjuárásir með herþyrlum og flugvélum á hópa af kúrdísku flóttá- fólki. Tyrkir, seni hafa mótmælt harðlega árásum írakshers á flótta- fólkið, munu fara fram á að Samein- uðu þjóðirnar útvegi fólkinu matvæli og önnur hjálpargögn en þeir hafa ekki látið uppiskátt hvort þeir ætli ad veita því öllu landvistarleyfi. Nokkrir breskir íhaldsþingmenn hafa lýst yfir því _að veita beri upp- reisnarmönnum í írak hjálp; Vestur- veldunum beri til þess siðferðileg skylda eftir að Geprge Bush Banda- ríkjaforseti hvatti íraka til að steypa Saddam Hussein. Kröfur um að Bandaríkin, sem enn hafa herafla í suðurhluta íraks, veiti andstæðing- um Saddams stuðning verða æ há- værari í Bandaríkjunum en heimild- armenn segja að Bush sé staðráðinn í að halda að sér höndum. Stjórnvöld í Washington telji víst að Saddam muni verða hrakinn frá völdum á árinu með einum eða öðrum hætti og þau vilji ekki stuðla að því að írak klofni i tvö eða fleiri riki auk þess sem afleiðing þess gæti orðið borgarastyijöld í líkingu við átökin í Líbanon. Sjá fréttir á bls. 32-33. Mikil óánægja og reiði hefur gripið um sig meðal stjórnarandstæðinga í Albaníu. Þeir höfðu bundið vonir við kosningarnar sl. sunnudag en úrslitin voru ótvíræður sigur fyrir kommúnistaflokkinn. Hér sést íbúi bæjarins Kavaje í vesturhluta Albaníu láta vonbrigði sín í ljósi. Tillaga frönsku stjórnarinnar: Albanskir kommúnistar sigra í kosningum: Vonsviknir kjósend- ur efna til óeirða Kavaje. Reuter. STUÐNINGSMENN albönsku stjórnarandstöðunnar létu í gær í ljósi reiði sína yfir úrslitum kosninganna á sunnudag en kommúnistar unnu þá yfirburðasigur. Fylgismenn Lýðræðisflokksins tóku höfuðstöðvar kohimúnistaflokksins í borginni Shkoder á sitt vald og vörðu hana fyrir sókn lögreglu. Áður hafði verið skipst á skotum í borginni og féllu þrír fyrir skotum lögreglu og 58 særðust. Á meðal þeirra sem féllu í Shkod- er var að sögn stjórnarandstæðinga einn helsti leiðtogi Lýðræðisflokksins í bænum, Arben Broxi að nafni. Hann hafði verið að ávarpa mót- mælendur og hvetja þá til að sýna stillingu er hann var skotinn í bakið. Virtist skotið koma út úr byggingu kommúnistaflokksins. Eftir það réð- ust stjórnarandstæðingar til inn- göngu og hafa þeir síðan varið höfuð- stöðvarnar með vopnum sem þeir fundu þar inni. Kommúnistaflokkurinn vann mik- inn sigur í kosningunum og fékk 162 þingsæti af 250. Lýðræðisflokkurinn fékk 65 þingmenn. Það var áberandi hversu mikill munur var á úrslitum í þéttbýli og dreifbýli. í höfuðborg- inni Tirana unnu frambjóðendur Lýð- ræðisflokksins t.d. stórsigur. Ramiz Alia, forseti landsins og leiðtogi kommúnista, náði ekki kosningu en hann bauð sig fram í höfuðborginni. Vonbrigðin með niðurstöðuna voru mikil í bænum Kavaje þar sem frétta- ritari Reuters-fréttastofunnar var á ferð í gær. Sali Berisha, leiðtogi Lýðræðisflokksins, er þaðan og kommúnistar buðu ekki einu sinni fram í bænum. „Við bíðum í þijá daga og ef engin breyting verður þá förum við öll til Tirana,“ sagði Os- man Mustafa, 32 ára gamall verka- maður. „Og ef við finnum enga bif- reið tii að aka okkur þá göngum við.“ Um 400 bæjarbúar tóku þátt í mót- mælunum gegn kommúnistastjórn- inni. Sjá „Talsmenn stjórnarandstöð- unnar ..." á bls. 34.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.