Morgunblaðið - 03.04.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRIL 1991
51
Það sem sannara reynist
eftir Magdalenu
Thoroddsen
Aðalsteinn Jóhannsson, ekki
veit ég frékari deili á manninum,
hefur skrifað aldarminningu um
Helga Hermann Eiríksson, og birt-
ist sú ritsmíð í Morgunblaðinu 13.
febrúar 1991. Helgi var að vísu
fæddur í maí 1890, svo að eftir
því væri þetta nær því að vera
einnar aldar og eins árs minning.
Ekki skal fjölyrt um það.
Nú vill.svo til, að í grein þess-
ari veður uppi hver villan annarri
verri, þannig að ekki verður við
unað af afkomendum þeirra sem
þarna eru nefndir. Þær villur sem
ég sé við fyrsta yfirlestur ætla ég
að leiðrétta en vafalaust eru fleiri,
sem aðrir þá vonandi koma á rétt-
an kjöl, ef svo má að orði kveða.
Það sem kemur mér til þess að
fara að skipta inér af þessu máli
er það, að ég er dóttir Ólafs E.
Thoroddsen frá Vatnsdal og þar
af leiðandi vorum við Helgi Her-
mann Eiríksson systkinabörn,
þannig að hann var sonur Jónu
B. Einarsdóttur, en hún var dóttir
Klásínu Pálsdóttur, fyrri konu Ein-
ars afa míns, en faðir minn olafur
var sonur Einars og Sigríðar Ól-
afsdóttur seinni konu Einars afa
míns.
Þá er að snúa sér að villunum.
Ég reyni að gera það í réttri röð,
eins og þær koma fyrir sjónir í
greininni.
1. Látrar í Látravík í Rauða-
sandshreppi heita ekki svo.
Byggðin heitir Hvallátrar og er
ævinlega nefnd sínu rétta nafni,
eða bara Látrar. Látravík er ekki
staðarheiti þarna.
2. Aðalsteinn segir Jón afa
Snæbjarnar oddvita hafa verið
bróður Einars afa rníns. Ekki er
þetta rétt. Árni faðir Jóns var
bróðir Einars.
3. Ólafur í Vatnsdal, faðir
minn, og Trausti Einarsson voru
ekki bræður og hafi verið um
skyldleika að ræða var hann ekki
náinn. Einar átti með fyrri konu
„Þær villur sem ég sé
við fyrsta yfirlestur
ætla ég að leiðrétta en
vafalaust eru fleiri.“
sinni Ólaf Hólm er komst til full-
orðinsára, en Eyjólf, sem dó á
fyrsta ári, með Sigríði ömmu
minni. Aðra bræður átti faðir minn
ekki.
4. Þegar Aðalsteinn ætlar að
ættfæra Kristin Guðmundsson
fyrrv. ambassador og Einar lækni
bróður hans segir hann þá vera
syni Bjargar móðursystur Helga
Hermanns og Hákons Kristófers-
sonar og kórónar þá villu með því
að segja Hákon frá Króki á Rauða-
sandi. Kristinn og Einar voru Guð-
mundssynir en ekki Hákonarsynir.
Þeir voru synir Guðrúnar móður-
systur Helga Hermanns og manns
hennar, Guðmundar Sigfreðsson-
ar. Hákon var að vísu giftur
Björgu systur þeirra, hún var fyrri
kona hans, en hann var bóndi í
Haga á Barðaströnd og aldrei
annars staðar.
Það yrði of langt mál að fara út
í nákvæma ættfræði allra sem við
sögu koma í þessari „aldarminn-
ingu“ Aðalsteins og verður það
ekki gert, en margt þarf að leið-
rétta og laga.
Söguna af bjarndýrinu læt ég
liggja á milli hluta, en ekki var
hún sögð í Rauðasandhreppi svo
ég vissi til og mætti þó ætla að
slík hetjudáð, að komast undan
glorsoltnutn hvítabirni, vopnlaus,
hefði þótt saga til næsta bæjar.
En um það skai ekkert rætt.
Aðalsteinn hefur vafalaust ætl-
að að heiðra minningu Helga Her-
rnanns Eiríkssonar með „aldar-
minningunni" og er það góðra
gjalda vert. En „skylt er að hafa
það sem sannara reynist“.
Ilöfundur er húsmóðir í Reykjnvík
og fyrrverandi bladanmöur.
Heilsuvat, Barónsstíg 20, S 626275 og 11275
Vlutcuzcv
Heílsuvörur
nútímafólks
Raðgreiðslur
Póstsendum samdægurs
-StV1W FMMtíK
SNORRABRAUT 60 - SÍMI 12045
. M>0R6R(MSS0N&C0
ABETE*™*
HARÐPLAST Á BORÐ
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
r
Hvers vegna að kaupa gamlan notaðan bfl, þegar hægt er að fá
splunkunýjan Favorit 1‘yrir svo lítið sem 479.900 kr? Það fylgir því
óneitanlega niikið öryggi að vera á nýjum bíl, svo ekki sé nú talað um
hversu hagkvæmari nýjir bílar eru í rekstri.
Favorit gelur ekkert eftir í samkeppni við aðra fjölskyldubíla. Fallega
hannaður fimm dyra og firnni gíra bfll, framhjóladrifinn, rúmgóður, léttur
í stýri og eyðslugrannur.
Favorit hefur hlotið lof bílagagnrýnenda víða uni heim, og verið
tilnefndur sem hagkvæmasti bíllinn, „bestu kaupin“ o.sv.fr.
„Komd' og ppólai'aon" ‘
JÖFUR hr
NÝBÝLAVEGI 2 SÍMI 42600
■