Morgunblaðið - 03.04.1991, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRIL 1991
fclk í
fréttum
UNGMENNAFÉLÖG
A
Iþróttamaður ársins 1990
*
Aþingi Ungmennasambandsins Úlfljóts í Austur- Sindra á Höfn hlaut titilinn og mun vel að honum
Skaftafellssýlsu var afhent viðurkenning og komin. Ragnhildur varð meðal annars sjöfaldur ís- ■
sæmdarheitið íþróttamaður arsins 1990. landsmeistari á liðnu ári en hennar greinar eru stökk
Ragnhildur Einarsdóttir fijálsíþróttastúlka úr og köst. - JGG.
UNGMENNASAMBANDIO
ÚLJLJÓTIIR
A-S-TW.afeLLS' T*\u
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hcmnes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins og
fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga-
nefnd Alþingis, verður á Kaffi-
Hress í Austurstræti í dag, mið-
vikudaginn 3. apríl, kl. 12-14.
Komið og spjallið við eina þing-
mann Reykvíkinga sem er búsettur
í Breiðholti.
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Iþróttafólk ársins hjá
USÚ. Hildur Ingibergs-
dóttir tók við viðurkenn-
ingu fyrir Rósu Valdimars-
dóttur knattspyrnukonu í
Sindra, en Rósa hafnaði í
3. sæti í kjörinu. Olöf Þór-
halla Magnúsdóttir hlaup-
akona Sindra varð í 5.
sæti, Ragnhildur Einars-
dóttir í 1. sæti, Guðrún
Ingólfsdóttir kastari úr
Mána varð í 2. sæti og
Arnór Fjölnisson deildi
3.-4. sæti með Rósu.
Viö bjóðum þig veikomin í 6, 7 eða 8 daga hvíldar- og hressingardvöl í júní
og júlí. Þar verða kynntar leiðir til að bæta heilsuna, öðlast meiri lífsorku
og fyrirbyggja sjúkdóma.
Viö bjóöum uppá:
¥ Makrobiotískt fæöi (fullt fæöi)
¥ Líkamsæfingar, yoga
¥ Hugkyrrö, slökun
¥ Fræöslu og uppskriftir úr Makrobiotik
¥ Sundlaug, nuddpott
¥ Rúmgóö 2ja manna herbergi
¥ (möguleiki á eins manns)
¥ Bátsferö um eyjarnar
¥ Gönguferöir
¥ Erlendan matreiöslumeistara
¥ Nudd
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug
Hannesdóttir í síma 35060 milli
kl. 9-10 alla virka daga.
Kær kveðja,
Sigrún Olsen
Þórir Barödal
Tekið til hendinni, Drífa, Ingunn og Þórhildur.
ÍBÚÐAHÓTEL
Ibúðaleiga í Lúx-
emborg-
ann 30. mars eru þijú ár liðin
síðan þijár íslenskár konur í
Lúxemborg, þær Drífa Sigur-
björnsdóttir, Ingunn Þorvaldsdótt-
ir og Þórhildur Hinriksdóttir, festu
kaup á húsi þvi er nú nefnist
Studio. Leigja þær þar út 13 studi-
oíbúðir til lengri og skemmri tíma.
Forsaga málsins er sú að haus-
tið 1987 fannst þeim kominn tími
til að hugsa sér til hreyfings og
komast út af heimilinu. Börnin
orðin stálpuð og þvi minna um að
vera. Komu upp hugmyndir um
að opna t.d. salatbar, fjamlokubar
eða íbúðahótel. Þá korh að því að
hús eitt sem þær höfðu augastað
á bauðst til kaups. Eftir 5 mánaða
baráttu við bankayfirvöld keyptu
þær húsið og hófust handa við
breytingar. Fengu þær íslenska
iðnaðarmenn í lið með sér og einn-
ig voru haldnar 2 vinnuhelgar fyr-
ir ijölskyldur kvennanna þar sem
allir lögðu hönd á plóginn. Gekk
á ýmsu meðan breytingar stóðu
yfir, lentu þær meðal annars í því
að daginn áður en opnað var yfir-
fylltist bað og vatn lak úr öllum
slökkvurum hússins. En það bjarg-
aðist allt með aðstoð góðra manna.
Fyrstu 8 studio-íbúðirnar voru
síðan teknar í notkun 1. júlí 1988,
þremur mánuðum eftir að vinna
hófst við húsið. Síðan hafa bæst
við 5 íbúðir og á verkefnalistanum
er næst að koma upp sauna í kjall-
ara og penthouse á háalofti.
Eru þær Drífa, Ingunn og Þór-
hildur hinar ánægðustu með ár-
angurinn sem hefur náðst og
stefna ótrauðar á að breyta og
betrumbæta Studio í framtíðinni.
Fyrir utan Studio, Ingunn, Drífa og Þórhildur.
COSPER
S.r.!.t .M>. COSPER
— Nei, ég starði ekki á hana, ég hef aldrei haft áhuga á fögr-
um konum.