Morgunblaðið - 03.04.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRIL 1991
31
Tólf tíma hraknmgar
á Möðrudalsöræfum
NÍU ferðalangar á tveimur bílum lentu í tölverðum hrakningum á
Möðrudalsöræfum á annan í páskum. Eftir tólf klukkustunda ferð
komust þau loks í hús í Mývatnssveit.
Það var um hádegisbilið sem
tvær fjölskyidur frá Neskaupstað
lögðu af stað heim á leið frá Akur-
eyri. Fjölskyldurnar voru ájeppabif:
reið og fjórhjóladrifnum fólksbíl. í
örðum bílnum voru hjón með þrjú
börn og í hinum hjón með tvö börn.
Áður en lagt var af stað hafði
fólkið samband við Vegagerðina og
fékk þær upplýsingar að öræfin
væru fær jeppum og bílum með
drif á öllum hjólum. Þegar á Möðru-
dalsöræfin kom var færð hin versta
og þegar fólkið var komið austur
undir Jökuldalsheiði var ákveðið að
snúa við. Veður var þá orðið leyðin-
legt og ófærð mikil.
Björgunarsveitin í Mývatnssveit
var látin vita og fóru menn úr henni
til móts við fólkið. Um klukkan tvö
í fyrrinótt kom fólkið til Mývatns-
sveitar heilu og höldnu.
Góð færð var víðast
hvar um páskana
FÆRÐ á vegum var þokkaleg mestan hluta páskahátíðarinnar, en
í gær versnaði veður heldur fyrir norðan og þurfti og ryðja nokkra
fjallvegi.
Það var helst fyrir vestan sem
fjallvegir lokuðust um hátíðirnar.
Reynt var að halda ijallvegum opn-
um eins og kostur var. Steingríms-
íjarðarheiði þurfti til dæmis að ryðja
á skírdag, laugardag og annan í
páskum.
Hjá Vegagerðinni á Akureyri
fengust þær upplýsingar að smáföl
hefði verið á Öxnadalsheiði og í Vík-
urskarði um helgina. í gær versnaði
veður hins vegar og þurfti að ryðja
fjallvegi en ekki var reynt að opna
Möðrudalsöræfin vegna veðurs.
Um færð annars staðar á landinu
sögðu vegagerðarmann að hún hefði
víðast hvar verið þokkaleg. Gijót-
skriða féll á veginn í Hvalfirði á laug-
ardag en olli engum skemmdum á
farartækjum.
Brugðið á leik í Dritvík á Snæfellsnesi.
Morgunblaðið/Alfons
Gengu á skíðum frá
Laugum í Þórsmörk
HÓPUR manna fór um páskahelgina á skíðum yfir hálendið, frá
Laugum og í Þórsmörk. Ferðin tók fjóra daga og fékk skíðafólkið
ágætis veður. í Snæfellsskála var lialdin afmælisveisla þar sem um
70 manns heimsóttu afmælisbarnið
Fjöldi fólks fór í skipulagðar ferð-
ir með ferðafélögum um helgina. Á
vegum Utivistar fór ellefu manna
hópur á skíðum frá Laugum, yfir
hálendið og niður í Þórsmörk.
Ferðalangarnir lögðu upp frá Laug-
um á skírdag. Stigið var á skíðin
við Sigöldu og haldið sem leið ligg-
ur í átt að Þórsmörk. Ferðin sóttist
vel í góðu veðri og á fjórða degi
kom skíðafólkið í Bása.
Ferðafélag íslands var með ferð-
ir í Þórsmörk, Landmannalaugar
og á Snæfellsnes auk styttri ferða
í nágrenni Reykjavíkur.
Fjöldi fólks, aðallega af Austur-
landi, lagði leið sína í Snæfells-
skála. Þar hélt Sigfús Árnason,
slökkviliðsstjóri á Egilsstöðum, upp
á sjötíu ára afmæli sitt og heim-
sóttu hann um 70 manns. Auk þess
komu margir fjallagarpar við á leið
sinni upp á hálendið.
Ferðalög þessi gengu vel og kom-
ust aljir heilir til byggða á nýjan
leik. Áætlað er að um 300 manns
hafi lagt land undir fót með ferðafé-
lögum um páskahelgina.
Bifreið ekið í sjóinn
m Grindavík.
ÖKUMAÐUR bjargaðist er bifreið var ekið í höfnina í Grindavík aðfara-
nótt laugardags. Hann hugðist komast undan lögreglunni sem vildi
hafa tal af honum.
Ökumanni hafði skömmu áður
verið gefið til kynna af lögreglunni
að stöðva bifreiðina. Að sögn lög-
reglu skipti engum togum að öku-
maður ók bifreið sinni á miklum
hraða af Seljabót suður Svírabryggju
í Grindavíkuhöfn og beint út í höfn-
ina þar sem svokölluð rás er. Bifreið-
in stakkst á kaf á töluverðu dýpi en
ökumanni iánaðist að komast úr
henni hjálparlaust og synda yfir á
grjótgarð í innsiglingunni þar sem
hann náðist. Ökumaður, sem er grun-
aður um ölvun við akstur, var orðinn
nokkuð kaldur og þrekaður og var
fluttur á Sjúkrahúsið í Keflavík og
lagður inn.
Kafari var sendur til að kanna
bifreiðina og hún var síðan dregin
upp úr sjónum. Hún er talin gjör-
ónýt. Að sögn Sigurðar Ágústssonar
hjá lögreglunni í Grindavík hafa 10
ökumenn verið stöðvaðir vegna
gruns um ölvunarakstur frá áramót-
um miðað við 4 á sama tíma í fyrra.
FÓ
Morgunblaðið/Hafþór Ferdinandsson
Jeppinn er mjög illa farinn eins og glögglega má sjá á myndinni sem var tekinn skömmu eftir að kviknaði
í bílnum.
Annir á Hveravöllum
Jeppabifreið brann til kaldra kola
JEPPABIFREIÐ brann til kaldra kola á föstudaginn langa á Blá-
fellshálsi suðaustur af Langjökli. Tveir menn voru í bílnum og
sakaði þá ekki, en bíllinn er talinn gjörónýtur.
Hópur fólks var á leið um Blá-
fellsháls á nokkrum jeppabifreið-
um á leið til Hveravalla er eldur
gaus upp í jeppanum, sem er af
Suzuki-gerð. Glóð féll í kjöltu far-
þega bílsins og kveikti í yfirhöfn
hans, þaðan barst eldurinn í sætið
og varð bíllinn alelda á skömmum
tíma og gjöreyðilagðist. Tveir
menn voru í bílnum og sakaði þá
ekki; Þeir félagar fengu að sitja í
hjá samferðafólki sínu og héldu
ferðalaginu áfram.
Mikil umferð var um Hveravelli
um helgina. Á föstudaginn langa
höfðu íbúar á Hveravöllum nóg
að gera við að afgreiða eldsneyti
til þeirra fjölmörgu sem hugðust
gista þar, en urðu frá að hverfa
og halda áfram norður vegna þess
að allt gistirými var nýtt til hins
ýtrasta. Fullt var í báðum skálun-
um og_ allar aukadýnur dregnar
fram. Á aðfaranótt laugardagsins
gistu rúmlega eitt hundrað manns
í skálunum á Hveravöllum.
Færð var þokkaleg, en fremur
snjólétt er á hálendinu um þessar
mundir. Sögðu ferðalangar, sem
höfðu snjósleða með í för, að ekki
hefði verið hægt að nota hann
fyrr en á Bláfellshálsi. Á skírdag
var tölvert krap og voru þeir ófáir
ökumennirnir sem festu faratæki
sín þá. Öllum tókst þó að ná upp
aftur. Örlítið snjóaði á laugardag-
Það voru um sex þúsund manns
sem flugu innanlands með Flug-
leiðum um páskahelgina. Greið-
lega gekk að fljúga nema hvað
ekki var hægt að lenda á ísafirði
annan í páskum og þá féll niður
ein ferð til Húsavíkur. í gær bjug-
gust Flugleiðir við að fljúga sex
ferðir til ísafjarðar en þar biðu
um 450 manns eftir að komast til
Reykjavíkur og um 150 manns
biðu þess að komast vestur.
Þessar tíðu ferðir vestur í gær
inn en „ekkert til að hafa orð á,“
eins og einn fjallagarpurinn orðaði
það.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnarfélagi Islands var mik-
il umferð ferðamanna um allt land.
Umferðin gekk vel og sögðu menn
þar á bæ að helgin hefði verið
óvenju róleg og ánægjuleg.
riðluðu tölvert öðru innanlands-
flugi en engu að síður var búist
við að hægt væri að koma flestum
á áfangastað. Flugvellirnir á Höfn
og á Egilsstöðum voru að vísu
lokaðir í gær og þangað var ekki
hægt að fljúga.
Arnarflug/Flugtak fór 60 ferðir
frá fimmtudegi til mánudags. Ekki
var hægt að fljúga til Flateyrar,
Hómavíkur og Gjögurs á annan í
páskum en í gær var flogið til allra
áætlanastaða.
6 þúsund manns
með Flugleiðum
FLUGSAMGONGUR gengu ágætlega um páskahelgina nema hvað
ekki var hægt að fjúga til Vestfjarða á annan í páskum. Flugleið-
ir fluttu um sex þúsund manns sem er svipaður fjöldi og um síð-
ustu páska.
HYGEA, Austurstrsti 16, Reykjovík • REGNHLÍFABLIÐIN, Lougovegi 11. Reykjavik • HYGEA, Laugovegi 35, Reykjavík • SOFFIA, Hlemmtorgi,
Reykjovík • TOPPTÍSKAN, Aóolstraeti Reykjovík • INGÓLESAPÓTEK, Kringlunni Reykjavik • SNYRTILÍNAN, Fjorðarkaupum, HofnorTirói • LÍSETTA, Som-
koup, Njoróvik • RANGÁRAPÓTEK, Hellu, Hvolsvelli • STJÖRNU-APÓTEK, Akureyri • DIANA, Ólofsfirói.