Morgunblaðið - 03.04.1991, Side 39

Morgunblaðið - 03.04.1991, Side 39
39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1991 FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 2. apríl. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 115,00 104,00 104,69 4,259 445.970 Hrogn 80,00 80,00 80,00 0,003 280 Ufsi 47,00 47,00 47,00 0,086 4.042 Steinbítur 40,00 40,00 40,00 0,004 160 Rauðmagi 100,00 75,00 64,47 0,843 71.205 Koli 58,00 58,00 58,00 0,008 464 Karfi 50,00 50,00 50,00 0,082 4.100 Grásleppa 25,00 25,00 25,00 316 7.900 Samtals 95,34 5,602 534.121 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur (sl.) 119,00 105,00 113,05 43,458 4.913.189 Ýsa (sl.) " 159,00 116,00 127,64 5,498 701.757 Geirnyt 36,00 5,00 20,92 0,037 774 Háfur 5,00 5,00 5,00 0,034 170 Hrogn .210,00 105,00 127,07 0,605 76.875 Karfi 52,00 36,00 49,98 10,732 536.373 Langa 78,00 75,00 75,49 1,313 99.114 Langhali 10,00 10,00 10,00 0,054 540 Lúða 450,00 370,00 399,30 0,512 204.440 Rauðmagi 125,00 115,00 122,20 0,157 ■ 19.185 Skarkoli 75,00 75,00 75,00 0,212 15.900 Skötuselur 205,00 205,00 205,00 0,052 10.660 Steinbítur 51,00 51,00 51,00 0,098 4.998 Ufsi 57,00 46,00 54,57 24,923 1.360.011 Samtals 90,60 87,685 7.943.987 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 118,00 75,00 111,12 22,296 2.477.624 Þorskur (sl.) 117,00 114,00 115,56 12,500 1.444.500 Þorskur (ósl.) 118,00 75,00 105,46 9,796 1.033.124 Ýsa 140,00 139,00 139,31 2,636 367.290 Ýsa (sl.) 140,00 139,00 139,31 2,636 367.290 Karfi 56,00 56,00 56,00 0,306 17.136 Lýsa 25,00 25,00 25,00 0,015 375 Blandað 47,00 47,00 47,00 0,202 9.494 Skata 83,00 83,00 83,00 0,033 2.739 Lúða 555,00 550,00 551,88 0,024 13.245 Langa 79,00 68,00 71,65 0,552 39.550 Hrogn 180,00 150,00 171,21 0,116 19.860 Ufsi 49,00 35,00 39,78 3,513 139;762 Keila 52,00 45,00 47,95 0,166 7.960 Skarkoli 79,00 72,00 78,16 0,972 75.971 Steinbítur 59,00 49,00 51,03 2,092 106.760 Samtals 99,56 32,923 3.277.766 Selt var úr Þórshamri og dagróðrabátum. Á morgun verður selt úr dagróðra- bátum. ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar 1. apríl 1991 Mánaðargreiðslur Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................. 11.819 'A hjónalífeyrir .................................... 10.637 Fulltekjutrygging ...................................... 21.746 Heimilisuppbót .......................................... 7.392 Sérstök heimilisuppbót .................................. 5.084 Barnalífeyrir v/1 barns ................................. 7.239 Meðlag v/1 barns ....................................... 7.239 Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.536 Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna ...................... 11.886 Mæðralaun/feðralaunv/3jabarnaeðafleiri ................ 21.081 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða ........................ 14.809 Ekkjubætur/ekkilsbætur12mánaða ......................... 11.104 Fullurekkjulífeyrir .................................... 11.819 Dánarbæturí8ár(v/slysa) ................................ 14.809 Fæðingarstyrkur ........................................ 24.053 Vasapeningar vistmanna ................................. 7.287 Vasapeningarv/sjúkratrygginga ........................... 6.124 Daggreiðslur Fullirfæðingardagpeningar ............................ 1.008,00 Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 504,40 Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarn áframfæri .............. 136,90 Slysadagpeningareinstaklings .......................... 638,20 Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................ 136,90 Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 17. jan. - 28. mars, dollarar hvert tonn ÞOTUELDSNEYTI “v/sr u 197/195 18.J 25. 1.F 8. 15. 22. 1.M 8. 15. 22. GASOLÍA SVARTOLÍA 375 k í \ v \ V. 69/ 200 ". v “ 175 50 150 172/171 18.J 25. 1.F 8. 15. 22. 1.M 8. 15. 22. Aukafundur vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins: Samstaða náðist ekki um áætlað veiðiþol langreyða Erfitt að sjá að annað verði ofan á eins og vísindanefnd- in nú er skipuð, segir Jóhann Sigurjónsson Hvalskurður í Hvalfirði. SAMSTAÐA náðist ekki um áætlað veiðiþol langreyða í Norður-Atlantshafi á auka- fundi vísindanefndar Alþjóða- hvalveiðiráðsins, sem haldinn var í Reykjavík 25. febrúar til 1. mars sl. og helgaður var heild- arúttekt á langreyðarstofnum í Norður-Atlantshafi. Nefndin staðfesti fyrri niðurstöður taln- inga Hafrannsóknastofnunar frá árinu 1987 og gerði úttekt á nýjum útreikningum á fjölda langreyða frá sumrinu 1989. Nefndin samþykkti að um 15.600 langreyðar væru á svæð- inu milli íslands, Jan Mayen og Austur-Grænlands, allt suður að 50. gráðu norðurlengdar, þar af um 8.900 á milli Islands og Austur-Grænlands. Um 40 manns frá 11 löndum voru á fundinum, þar af 7 Islendingar. „Nú dregur að lokum sérstaks hvalrannsóknaátaks Hafrann- sóknastofnunar og samstarfsaðila hennar. Það olli vonbrigðum og er áhyggjuefni að vísindanefndin skyldi ekki reynast þess megnug að ljúka starfi sínu með afgerandi hætti hvað varðar úttekt á lang- reyðarstofninum," segir í frétt frá Hafrannsóknastofnun. I fréttinni segir einnig, meðal annars: „Nefndin' ræddi ítarlega aðgreiningu langreyða í stofna en Alþjóðahvalveiðiráðið hefur jafnan miðað við sjö stjórnunarsvæði: 1. Nova Scotia-svæðið, 2. Nýfundna- land-Labrador, 3. Vestur-Græn- land, 4. Austur-Grænland-ísland, 5. Norður-Noregur, 6.-Vestur-Nor- egur-Færeyjar og 7. svæðið undan ströndum Bretlandseyja og Spán- ar. Athuganir íslendinga á endur- heimtum hvalmerkja hafa sýnt að samgangur stofnanna á norðvest- anverðu Atlantshafi og við ísland er afar takmarkaður og var tekið mið af því við stofnmat. Ekkert bendir heldur til blöndunar milli langreyða við ísland og stofnanna á norðaustanverðu Atlantshafi. Það var því niðurstaða íslensku fulltrúanna á fundinum að eðlileg- ast væri að stjórna veiðum hér við land á grundvelli núverandi skil- greiningar Alþjóðahvalveiðiráðsins á stofninum milli íslands og Austur-Grænlands. Ekki náðist samstaða um þetta atriði á fundin- um og voru jafnvel uppi raddir um að líta á allt norðaustanvert Atl- antshafið sem eitt stofnsvæði. Engar upplýsingar liggja hins veg- ar til grundvallar slíkum hugmynd- um. Astand langreyðarstofnanna við Noreg og Færeyjar er afar bágbor- ið. Útreikningar sýndu hins vegar gott ástand, þegar allt stofnsvæði langreyðar milli íslands, Jan May- en og Austur-Grænlands er skoð- að. Fulltrúar íslands bentu á ítar- lega úttekt hlutlausra aðila á af- rakstursgetu langreyðar á þessu svæði, sem sýna, svo ekki verður um villst, að stofninn þolir umtals- verðar veiðar. Hins vegar náðist ekki samstaða um veiðikvóta, eða flokkun einstakra stofna, enda þótt Hafrannsóknastofnun telji að fyrirliggjandi gögn gæfu fyllilega tilefni til þess. Nefndin lagði ekki til breytingar á núverandi flokkun Alþjóðahval- veiðiráðsins á stofninum hér við land en nokkrir nefndannenn létu í ljós þá skoðun að ekki væri rétt að veita neina ráðgjöf um veiðar fyrr en að lokinni endurskoðun á núverandi kerfi við stjórnun hval- veiða. Ekki er líklegt að nýjar að- ferðir komist í not fyrr en í fyrsta lagi sumarið 1993. Nokkur skiln- ingur reyndist hins vegar vera fyr- ir því almenna mati íslensku full- trúanna að stofninn hér við land þyldi veiðar í framtíðinni." Ráðgjöf um veiðiþol er megin— hlutverk vísindanefndarinnar Jóhann Siguijónsson, sjávarlíf- fæðingur hjá Hafrannsóknastofn- un, var einn af fulltrúum íslend- inga á aukafundi vísindanefndar- innar í Reykjavík. Jóhann segist telja að meginhlutverk nefndarinn- ar sé að gefa ráð um veiðiþol og verndun hvalastofna. „Það má segja að nefndin hafi ekki skilað af sér því verkefni í endanlegu formi, það er að segja hún kemur ekki með skýrar tillögur í þeim efnum,“ segir Jóhann. „Okkur finnst það ekki nógu gott, þegar búið er að leggja í miklar rann- sóknir, og við teljum að ekki eigi að leika neinn vafi á að fyrirliggj- andi gögn sýni að langreyðarstofn- inn hér við land þoli umtalsverða veiði,“ segir Jóhann. Hann segir að á svæðinu vestan við ísland og norðaustur af Jan Mayen sé verulegur fjöldi lang- reyða. „Á fundi vísindanefndarinn- ar hér var enginn ágreiningur um túlkun á langreyðartalningum okk- ar og fallist var á okkar niðurstöð- ur varðandi þær. Hins vegar var ágreiningur um hvaða svæði ætti að meta með tilliti til veiða á lang- reyði hér við land. Þegar nefndin fjallaði um hrefnuna í fyrra voru til gögn byggð á erfðamarkarann- sóknum á hrefnum við Vestur- Grænland, ísland og Noreg, þannig að þar var ekki um neinn ágreining að ræða varðandi stofnskiptingu hrefnunnar," segir Jóhann. Hann upplýsir að á fundi vísindanefndárinnar í Reykjavík hafi ekki verið til gögn frá Norð- ur- og Vestur-Noregi til að rann- saka langreyðar með svipuðum hætti. „Við teljum að önnur gögn, sem við höfum og til eru almennt um langreyðar og aðra skylda hvali, sýni að engin rök séu fyrir því að slá saman hvölum við Norð- ur- og Vestur-Noreg annars vegar og hvölum, sem eru vestan við ís- land hins vegar. Sumir nefndarmenn töldu það vera vitrænan möguleika að slá saman langreyðum við Norður- og Vestur-Noreg en við teljum það af og frá. Hins vegar höfum við ekki erfðafræðileg gögn í höndun- um, sem sýna okkur svo ekki verði um villst, að þarna sé um hvali af ræða. Ef við berum þetta saman við fiskveiðar væru litlar fiskveiðar leyfðar núna ef gerðar væru sam- bærilegar kröfur um óyggjandi sannanir af þessu tagi,“ segir Jó- hann. Gera verður út leiðangur út af ströndum Noregs Hann segir að ekki sé hægt að útvega þessi erfðafræðilegu gögn fyrr en í fyrsta lagi eftir 1-2 ár. „Við Noreg eru ekki stundaðar hvalveiðar núna, þannig að við þyrftum að gera út leiðangur út af ströndum Noregs til að útvega nauðsynleg sýni og óvíst er hvort unnt reyndist að afla nægilegra fjölda sýna til að afgerandi niður- staða fengist. Aðalmótbáran við því að gefa ráðgjöf um veiðiþol langreyðar var annars vegar þetta atriði varðandi stofnmörkin og hins vegar töldu fáeinir nefndarmenn ekki tímabært að gefa ráðgjöf um veiðar fyrr en nýtt kerfi við stjóm- un hvalveiða verður tilbúið en það hefur verið í mótun í mörg ár. Islensku fulltrúarnir sögðu hins vegar sem svo að það þættu ekki góð vísindi á íslandi að leggja nið- ur þorskveiðar þangað til allir væru sammála um fiskveiðistefn- una. Við teljum að meta verði ástandið á grundvelli þeirra að- ferða sem við höfum núna og telj- um að við getum vel gert það. Það er eðli vísindanna að ávallt reynist unnt að benda á þætti, sem þörf er á að rannsaka nánar. Þetta virt- ist nú koma í veg fyrir að vísinda- nefndin kæmist að sameiginlegri niðurstöðu um langreyðina og er- fitt er að sjá að annað verði ofan á, eins og vísindanefndin nú er skipuð," segir Jóhann. Hann segir að ef sameiginleg niðurstaða komi frá vísindanefnd- inni geti Alþjóðahvalveiðiráðið varla hunsað niðurstöðuna, enda þótt ráðið hafi reyndar haft að engu niðurstöður nefndarinnar um hrefnuna í fyrra. Hins vegar sé sameiginleg niðurstaða nefndar- innar nánast forsenda þess að Al- þjóðahvalveiðiráðið fylgi ráðlegg- ingum hennar. „Það er áhyggjuefni hve sjald- gæft er að vísindanefndin komist að samhljóða niðurstöðu um eitt- hvað, sem skiptir máli varðandi veiðijþol og veiðikvóta. Það olli okk- ur vonbrigðum varðandi langreyð- ina, þar sem við teljum að vitneskj- an um langreyðarstofninn hér við land sé í rauninni mjög góð. Þessi stofn hefur verið rannsakaður um áratugaskeið og af miklum krafti undanfarin ár,“ segir Jóhann. tveim mismunandi meiðurn áð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.