Morgunblaðið - 03.04.1991, Síða 40
MORGÚNBLAÐIÐ MlÐVIKÚÚÁÓljR :i. AI’R'ÍL 1991
Svalbarðsströnd:
Milljónaljón er íbúð-
arhús á Klöpp brann
MILLJÓNA tjón varð er eldur
kviknaði i íbúðarhúsi að Klöpp
á Svalbarðsströnd um miðjan
dag á laugardag, húsið stór-
skemmdist og innbúið einnig.
Enginn var í húsinu er eldurinn
kom upp. Ekki er ljóst hver
upptök hans eru, en líklegt er
talið að kviknað hafi í út frá
rafmagni.
Tilkynnt var um eldinn kl. 15.10
á laugardag og fór Slökkvilið Ak-
ureyrar á vettvang. Gísli Kristinn
Lórenzson varaslökkviliðsstjóri
sagði að greinilega hefði verið
búið að krauma lengi undir því
mikill eldur logaði er að var komið
og stóðu reykjarbólstrar út um
glugga. Vel gekk að slökkva eldinn
og var slökkvistarfi lokið sídegis,
um kl. 17.30. Innbúið er stór-
skemmt ef ekki með öllu ónýtt og
þá var þakið mikið brunnið og
skemmdir á húsinu voru miklar.
Lögreglan á Húsavík annast
rannsókn málsins og sagði Þröstur
íbúðarhúsið á Klöpp er stórskemmt og innbú ónýtt eins og sjá má
á þessari mynd sem tekin var í stofunni þegar eldurinn hafði verið
slökktur.
Brynjólfsson að menn beindu sjón- bendingar væru í þá átt að upptök
um að rafmagni, en ákveðnar vís- eldsins mætti rekja til þess.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stórir reykjarbólstrar stóðu út um dyr og glugga þegar slökkviliðsmenn komu að Klöpp.
Mývatnssveit:
Damgaard-tríóið skipa þau John Damgaard pianóleikari, Ulrikke
Höst-Madsen sellóleikari og Elisabeth Zeuthen-Schneider fiðluleikari.
Tónleikar Dam-gaardstríósins
DAMGAARD-tríóið frá Danmörku heldur tónleika í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 3. apríl, kl. 20.30, en
þeir eru haldnir á vegum Tónlistarfélags Akureyrar.
Á efnisskránni eru verk fyrir
píanó, fíðlu og knéfíðlu eftir Moz-
art, Bentzon og Dvorák. Dam-
gaard-tríóið skipa þau John Dam-
gaard píanóleikari, Elisabeth Ze-
uthen-Schneider fíðluleikari og Ul-.
rikke Höst-Madsen selióleikari. Þau
hafa starfað saman í nokkur ár og
leikið víðsvegar um Danmörku. Öll
eru þau í hópi virtustu tónlistar-
manna Dana. Þau koma hingað til
Jands. í. þoði Tríps Reylyayíkur,
Blessað
barnalán í
Skjólbrekku
Björk, Mývatnssveit.
Ungmennafélagið Mývetning-
ur hefur sýnt leikritið Blessað
barnalán eftir Kjartan Ragnars-
son í Skjólbrekku. Leikstjóri var
Ragnhildur Steingrímsdóttir.
Persónur og leikendur voru:
Þorgerður, Hrafnhildur Kristjáns-
dóttir; Inga, Dagbjört Bjarnadóttir;
Addý, Svanhvít Guðmundsdótti;,
María, Sigurlína Ragúels; Erla
Dögg, Þórdís Jónsdóttir; Þórður,
Hólmgeir Hallgrímsson; Séra
Benedikt, Egill Freysteinsson;
Binna á löppinni, Þuríður Péturs-
dóttir; Tryggvi Ólafur, prétar Ás-
geirsson; Lóa, Kolbrún ívarsdóttir;
Tryggvi læknir, Böðvar Pétursson;
biskup, Jón Gauti Böðvarsson.
Húsfyllir var á sýningunum og
leiknum frábærlega vei tekið.
Kolbeinsey ÞH frá Húsavík:
Samið um 8,5%
fiskverðshækkun
SAMIÐ hefur verið um 41% heimalöndunarálag fyrir sjómenn á tog-
aranum Kolbeinsey ÞH frá Húsavík. Samningurinn gildir frá áramót-
um en skipveijar á Kolbeinsey ÞH voru með 30% heimalöndunará-
lag fyrir áramót, þannig að hækkunin er 8,5%, að sögn Kára Ar-
nórs Kárasonar framkvæmdastjóra Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Kári Arnór Kárason segir að
samningurinn gildi til 31. maí næst-
komandi en fyrir 25. maí eigi að
semja um nýtt fiskverð, sem taka
á gildi 1. júní næstkomandi. Samn-
ingar tókust á laugardag og togar-
inn fór á veiðar samdægurs.
Sjómenn á Kolbeinsey ÞH hafa
fengið 10% kassauppbót, þannig að
þeir fá 61,32 krónur fyrir kílóið af
2,1 kílóa þorski en það var meðal-
þyngdin á þorski, sem Kolbeinsey
ÞH landaði í fyrra. Sjómennirnir
fengu hins vegar 56,54 krónur fyr-
ir kílóið af 2,1 kílóa þorski fyrir
áramót, að sögn Kára Arnórs.
Forsætisráðherra um deilu sjómanna og ÚA:
Menn eru að leika
sér að eldinum
STEINGRÍMUR Hermannsson,
segir að deila sjómanna og Ut-
gerðarfélags Akureyringa sé
mjög alvarleg. „Eg vara mjög
sterklega við því, ef svona keðju-
verkun á milli sjómanna innbyrð-
is og á milli sjómanna og Iand-
verkafólks á að hefjast. Það get-
ur orðið hættulegt stöðugleika í
efnahagsmálum. Þetta getur
breiðst út og ég tel að menn séu
þarna að leika sér að eldinum,“
segir Steingrímur í samtali við
Morgunblaðið.
Forsætisráðherra kvaðst að-
spurður ekki hafa haft samband við
deiluaðila né beint tilmælum til
þeirra varandi samningakröfur.
„Það er enginn vafi á að þarna
er hætta á ferðum þó ég geti ekki
metið nákvæmlega það sem þarna
er um að ræða því það eru nokkuð
breytilegar fullyrðingar og þeim ber
ekki saman. En ég held að menn
verði að fara afar varlega í að
spenna launin þannig upp,“ sagði
hann.
Steingrímur sagðist ekki treysta
sér til að leggja dóm á hvort samn-
ingar sjómanna á Húsavík og Fá-
skrúðsfirði væru innan eðlilegra
marka. „Eg vona að útgerðin treysti
sér til að standa undir því sem sam-
ið var um. Ég treysti því að þeir
hafi ekki samið án þess. Menn hafa
lengi sætt sig við að sjóiftenn hafi
sæmilegt upp úr sínu starfi og við
skulum vona að svo verði áfram og
vitanlega er skiljanlegt að sjómenn
beri sig saman við það sem sjómenn
á suðvesturlandinu hafa en þarna
verða menn að fara afar varlega
og gæta þess að sprengja ekki þjóð-
arsáttina," sagði Steingrímur.
-----*-+-*---
Útgerðarfélag
Dalvíkinga:
Björgvin
EA fer á
veiðar í dag
BJÖRGVIN EA, annar af tveim-
ur togurum Útgerðarfélags Dal-
víkinga, heldur á veiðar kl. 16 í
dag, miðvikudag, en sjómenn þar
hafa ekki sagt upp störfum eins
og félagar þeirra á Björgúlfi EA.
Áhöfn Björgúlfs EA þáði ekki
endurráðningu eftir að skipið kom
úr slipp fyrir páska og tekur hún
þannig þátt í baráttu sjómanna á
ísfisktogurum Útgerðarfélags Ak-
ureyringa fyrir hærra fiskverði.
Tveir úr áhöfn Björgúlfs eiga sæti
í kjaranefnd sjómanna sem skipuð
var til að vinna að tillögum fyrir
hönd sjómanna um bætt kjör.