Morgunblaðið - 03.04.1991, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1991
59
við búum við í dag, ýmist gegnum
samninga eða lögverndaða sam-
neyslu, allt var það á þessum árum
einasta hugsjónir og framtíðar-
draumar okkar jafnaðarmanna.
En draumarnir rættust og hafa
alið af sér aðra nýja. En það er
fjarri því að þeir hafi ræst af sjálfum
sér. Þeir rættust eingöngu vegna
þess að íjöldi fólks, sem skildi og
þorði, fólk eins ög Kristján Bene-
diktsson, tileinkaði sér hugsjónir
jafnaðarmanna sem lífsskoðun og
var óþreytandi að næra hana af viti
sínu og hjartalagi og bgrjast fyrir
henni og breiða hana út. Og mikil
er þakkarskuld samtímans við þetta
baráttuseiga fólk.
Kristján Benediktsson tileinkaði
sér snemma hugsjónir jafnaðarstefn-
unnar og var alla tíð einlægur og
ljalltraustur liðsmaður Alþýðu-
flokksins. Honum var hagur flokks-
ins mjög hugleikinn og allt til síðustu
stundar ræddi hann komandi alþing-
iskosningar og þá vissu sína að þjóð-
in þarfnist öflugs jafnaðarmanna-
flokks,
Og við í Alþýðuflokknum eigum
oft eftir að minnast Kristjáns Bene-
diktssonar sem góðs félaga og ör-
ugglega mjög oft fyrir komandi
kosningar og á kjördag, því að í
áratugi undirbjó hann og skipulagði
og sá um alla framkvæmd á öllum
akstri fyrir Alþýðuflokkinn á kjör-
degi í Reykjavík og allt flokksfólk í
Reykjavík vissi hver hann var „hann
Stjáni með bílana".
Nú er þessi góði félagi okkar fall-
inn frá og við söknum hans. En sár-
astur er auðvitað söknuður þeirra
er þekktu hann best. Þeim vottum
við innilega samúð okkar. Sérstök
er þó hluttekning okkar í sorg eftir-
lifandi eiginkonu hans, Ólafar Kr.
Isfeld, sem nú hefur misst samfylgd
lífsförunautar síns og besta vinar.
Við óskum þess og trúum að fagrar
minningar og mannvænlegir afkom-
endur hennar og Kristjáns megi
verða henni harmabót.
Að lokum vil ég fyrir hönd allra
þeirra er notið hafa og njóta munu
uppskerunnar af þjóðfélagsumbót-
um jafnaðarmanna og fyrir hönd
Alþýðuflokksins, Jafnaðarmanna-
flokks íslands, þakka Kristjáni
Benediktssyni fyrir hans þýðingar-
mikla framlag til þeirra þjóðfélags-
umbóta. íslenskir jafnaðarmenn
kveðja félaga sinn yfir móðuna miklu
með þeim ásetningi, að merkið skal
standa þótt maðurinn falli.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins,
Jafnaðarmannaflokks Islands.
Helga var mikil hagleikskona í
höndum. Hún var td. afar afkasta-
mikil við lopapeysupijón. Fleiri gátu
svo sem pijónað, en ef sérstaklega
þurfti að vanda til verka kom eng-
inn til greina nema Helga. Bæði
var að hún var bóngóð og ekki í
vandræðum með að uppfylla sér-
þarfír hvers og eins í litavali og
stærðum. Og það var eins og hún
hefði alltaf tíma til að bæta við sig
verki. Peysurnar hennar Helgu hafa
farið vítt um lönd og hlýjað mörgum
góðum gestum hússins.
Annað litið dæmi um hagleik
Helgu. Það hefur verið venja í Nor-
ræna húsinu um árabil að starfs-
fólkið komi saman kvöldstund á
jólaföstu til að skera út laufabrauð.
Þar naut Norðlendingurinn Helga
sín vel. Við hin vorum sannkallaðir
fúskarar í faginu samanborið við
hana. Við reyndum nú samt að
læra svolítið af henni og munum
lengi minnast meistaraverka henn-
ar i laufabrauðsskurði.
Síðustu mánuðina höfum við
fylgst með sjúkdómsbaráttu Helgu
og fundið til með henni og ástvinum
hennar, sem önnuðust hana til
hinstu stundar.
Stóru fjölskyldunni hennar vott-
um við einlæga samúð. Við erum
þakklát fyrir að hafa fengið að njóta
samstarfs við Helgu og vináttu
hennar gegnum árin.
Dauðinn dó, en lífið lifir
lífs og friðar sólin skær
ljómar dauðadölum yfir,
dauðinn oss ei grandað fær,
lífið sanna sálum manna
sigurskjöld mót dauða ljær.
(H. Hálfd.)
Vinir og samstarfsfólk í
Norræna húsinu.
Guðmundur Magn-
ússon - Kveðjuorð
Það sem Guðmundur Magnús-
son lætur eftir sig nú þegar hann
er allur, fer ekki undir neinn efna-
hagslegan mælikvarða.
Þær verða ekki mældar þær
góðu minningar sem hann skildi
eftir sig. Þeir tímar sækja á hug-
ann þegar þau Anna Día og Mundi
eins og þau voru ætíð kölluð
bjuggu við Háveg og tóku eins á
móti stórum sem smáum. Gott var
að alast upp á Siglufirði og systk-
inabörnin voru tíðir gestir á heim-
ili þeirra. Mundi sem var hrókur
alls fagnaðar gerði mikið af því
að gantast við krakkana. Á þeim
árum þegar lífsbaráttan var harð-
ari og vinnutíminn lengri voru það
dýrmætar stundir, þegar þeir full-
orðnu sinntu okkur krökkunum.
Þar skipar Mundi háan sess.
Oft var það að hann tók í höndina
á þreyttum labbakút og leiddi upp
brekkuna sem var svo auðvelt að
fara niður en hin mesta raun að
fara upp. Þar sem Mundi vann
ýmsa verkamannavinnu var hann
oft á ferðinni og hafði vakandi
auga með pottormunum sem voru
að stelast niður á bryggjur, sem
gátu verið varasamar.
Mátti heita að Anna Día og
Mundi litu á systkinabörnin sem
sín eigin svo umhyggjusöm voru
þau. Fyrir kom að þau tóku systk-
inabörnin til dvalar í lengri eða
skemmri tíma. Þau reyndust ómet-
anlegur styrkur fjölskyldunni á
Hávegi 12 þar sem barnahópurinn
var stór og mörgum að sinna.
Það kom í ljós að sú umhyggja
sem Anna Día og Mundi sýndu
krökkunum í uppeldinu birtist í
ræktarsemi við þau seinna meir.
Þótt sum flyttu burt frá Siglu-
fírði, héldu þau áfram að koma í
heimsókn og þá jafnvel með sínar
eigin fjölskyldur og sagan endurt-
ók sig, börnin finna fljótt hvar þau
eru velkomin.
Mundi var hávaxinn og þrótt-
mikill og snar í snúningum. Hann
var ákaflega viljugur og hjálpsam-
ur öllum þeim sem leituðu til hans.
Samband þeirra Önnu Díu og
Munda var byggt á miklum kær-
leika og okkur krökkunum var það
ljóst, því þau fóru ekki dult með
það og hefur vonandi kennt okkur
ýmislegt um góða vináttu hjóna.
Æskan er dýrmætur tími í lífi
hvers manns og þau böm sem
fengu að kynnást Díu og Munda
standa í þakkarskuld við þau.
Það var erfiður tími sem fór í
hönd við fráfall Önnu Díu. Mundi
var aldrei samur og dvaldi oft við
leiði Önnu Díu og hugsaði vel um
það.
Guð blessi og varðveiti minn-
ingu þeirra.
Birgir Ingimarsson og
Þórhallur Jóhannesson.
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Verslunarbank-
ans hf., Reykjavík, árið 1991, verður haldinn í
Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík, fimmtudag-
itin 4. apríl nk. og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvceðum greinar 3.03
í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjómar félagsins til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1991.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra t íslands-
banka, Kringlunni 7, dagana 3. og 4. apríl nk.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1990, ásamt
tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða
hluthöfum til sýnis á sama stað.
Reykjavík, 12. mars 1991
Stjórn Eignarhaldsfelags
Verslunarbankans hf.
iknandi
nýtt
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu.
^ Við veljum bestu baunirnar þeirra.
Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF