Morgunblaðið - 03.04.1991, Page 65

Morgunblaðið - 03.04.1991, Page 65
'MOkGlíNBLADIÐ MIÐVIKUDÁGUll 3. APRÍL' 1991 68 VELGENGNI Handritahöfundur „Dances with wolves“ lapti dauðann úr skel Velgengni kvikmyndarinnar „Dances with wolves" þar sem Kevin Costner bæði leik- ur aðalhlutverkið og leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd hefur verið með ólíkindum og lærðir og leikmenn keppast enn við að hlaða myndina lofi. Kvikmyndahandritið er eftir 45 ára gamlann mann sem heitir Michael Blake. Það er náungi sem má muna tímanna tvenna, því árum saman hefur hann verið að lepja dauðann úr skel, sent frá sér hvert handritið af öðru sem flest hafa lent í ruslafötum kvikmynda- framleiðenda. Hann trúði því lengi vel að hann ætti eftir að slá í gegn, en það gekk hvorki né rak og hann var farinn að efast um allt saman. Undir það síðasta hafði hann ekki einu sinni ráð á að leigja sér litla íbúð, heldur bjó í aflóga sjevrólett- bifreið sinni og vann við uppvask á kínverskum veitingastað! Whitney Houston. KVIKMYNDIR Costner- „landar“ Whitney Houston Kevin Costner er ekki beint staðnaður þótt vel- gengnin hafí sótt hann heim meðjafn eftirminnileg- um hætti og raun hefur borið vitni, en það gerist ekki á hveij- um degi að kvikmynd sópi að sér 12 Óskarsútn- efningum og alls sjö styttum. Á eftir „Dances with wolves“ lék hann strax í nýrri Robin Hood- kvikmynd,„Prince of thieves“ og nýlega var hann að leggja síð- ustu hönd á kvikmynd um morð- ið á John F. Kennedy fyiTum Bandaríkjaforseta. Slíkt þykir ekki í frásögur færandi, heldur hitt, að hann hefur „landað" poppsöngdrottningunni Whitney Houston ef þannig mætti að orði komast. Það hafa margir verið kallaðir að lokka Whitney á hvíta tjaldið, en engum tekist fyrr en nú, Costner var ekki lengi að sannfæra hana og saman munu þau leika í kvikmynd sem gæti eins verið saga Whitney að öðru leyti en því að Costner leikur einkalífvörð hennar og elskhuga. Kvikmyndin mun heita „Bo- dyguard" og leikur Whitney unga konu sem er í lífshættu og Costner lífvörð sem hún ræð- ur til sín. Það takast ástir með þeim og segist Whitney ekki reikna með því að eiga í vand- ræðum með þann hluta hlut- verksins. Hún segir einnig að hún hafi ekki síst kunnað vel við hlutverk sitt þar sem hún leikur sjálfstæða og fræga konu sem er samt lítið gefin fyrir fjöl- menni, hefur t.d. andúð á því að vera umkringd lífvörðum. Þessi kona, eins og hún sjálf, kjósi að hafa einn slíkan. „Konan sem ég á að leika minnir mig á mig sjálfa og það réði úrslitum," segir Whitney Houston. Kevin Costner í aðalhlutverki „Dances with wolves“. Blake segir að árum saman hafi sér liðið eins og allir hefðu verið boðnir til veislu nema hann sjálf- ur. Á síðari hluta sjöunda áratug- arins var hann sískrifandi kvik- myndahandrit, annað hvort að eig- in frumkvæði eða að beiðni vænt- anlegra framleiðenda. Aldrei kom neitt út úr neinu, utan einu sinni, árið 1981 er hann ritaði handritið að kvikmyndinni „Stacys Knights“. Þá hitti hann fyrst Ke- vin Costner sem var valinn í aðal- hlutverk myndarinnar. Það var fyrsta aðalhlutverk hans og Blake segir að þeir hafi orðið miklir vin- ir og verið sannfærðir um að þeir væru nú báðir komnir á beinu brautina á tindinn. „Það átti aldeil- is við um Kevin, hann fékk stór- hlutverk í hverri myndinni af ann- ari, „Silverado“, „No way out“, „Bull Durham" og „Field of dre- ams“svo eitthvað sé nefnt. Ég sat hins vegar eftir og allt sem ég reyndi fór í vaskinn," segir Blake. Árið 1986 var Blake að lesa söguágrip um villta vestrið og fékk þá hugmyndina að „Dances with wolves". Hann ritaði sýnishorn af handriti og hugmyndasamantekt og sendi vini sínum Costner í pósti. Costner féll fyrir hugmyndinni og tökur hófust 1987. Samstarfið stóð í tvö og hálft ár og gneistaði oft á milli þeirra og handritið var skrif- að upp á nýtt sex sinnum! En nú er allt fallið í ljúfa löð og kvik- myndin geysilega vel heppnuð. Handrit Blakes hreppti ein af sjö ■ Óskarsverðlaunum þeim sem féllu kvikmyndinni í skaut. Blake hefur nú ráð á húsnæði og öllum lífsins gæðum sem föl eru fyrir peninga. Hann vinnur nú að handriti fyrir Univereal kvikmyndaverin, kvik- myndin á að íjalla um slátrun villtra stóðhesta í Nevada. Hann er bæði þjóðlega og náttúrufræði- lega sinnaður. Þannig rennur ákveðin prósenta af tekjum hans fyrir bókina „Dances with wolves" í sjóð sem vinnur að vemdun fjalla- ljóna í Bandaríkjunum. Kevin Costner segir um vin sinn Michael Blake: „Hvað svo sem segja má um Michael þá hefur hann alltaf vitað hvað hann ætlaði sér að gera með frægðina þegar hún ynnist. Hann ætlaði að deila henni með öðrum, sérstaklega , smælingj- um...“ Michael Blake ásamt öðrum af tveimur hundum sínum. Hann býr einnig með tveimur köttum og tveimur hrossum, en eigin- konu á hann enga. 13. leikvika - 30. mars 1991 Röðin : X22-X21-1X1 -211 HVERVANN? 2.056.822- kr. 12 réttir: 0 raðir komu fram og fær hver: 0-kr. 11 réttir: 2 raðir komu fram og fær hver: 178.648 - kr. 10 réttir: 60 raðir komu fram og fær hver: 5.954 - kr. Þrefaldur pottur - næst!! Kolaportið nú einnig á sunnudögum Kolaportið verður framvegis opið á sunnudögum auk laugardaga og geta seljendur þá verið báða dagana, án þess að taka saman pjönkur sínar á laugardagskvöldum, eða valið um að vera hvorn daginn sem er. Sama verð verður fyrir sölubása á sunnudögum eins og á laugardögum, en seljendur, sem verða báða dagana, fá 20% afslátt seinni daginn. Opnunartími á sunnudögum verðurfrá kl. 11-17, en opnað verður fyrir seljendur kl. 10. Á sunnudögum ætlum við að bregða svolitlum tívolísvip á Kolaportið og munum þá bjóða upp á margvíslega leikjabása fyrir alla aldurshópa: Skotbakka, lukkuhjól, húkk, krafta- keppni og margt fleira skemmtilegt. Takið þátt í spennandi Kolaporti strax um næstu helgi! Pantanasími sölubása er 687063 (kl. 16-18). KOIAPORTIÐ MrfRKa-Ð^O&r ... undir seðlabunkanum. APRÍLTILB Gegnheilt Insúlu stafaparket: Soðið beyki 16 mm natur 2. Marstilboðið seldist upp! Vorum að stækka verslunina og bjóðum upp á fleiri tegundir af stafa- og mosaikparketi. Einungis gæðaparket í okkar húsi. Fagmenn okkar leggja m.a. fiskibein og skrautgólf, lakka eða olíubera. cOÍ2- Opið kl. 10-18 virka daga, kl. 11-14 laugardaga. r SUÐURtANDSBRAUT 4A, SÍMI685758 - 678876, TELEFAX: 678411 >0s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.