Morgunblaðið - 03.04.1991, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRIL 1991
Sprengingar setja þjófa-
varnarkerfi af stað
Þjófavarnarkerfi Vegamótaútibús Landsbanka íslands á Lauga-
vegi 7 hefur oft farið í gang undanfarna daga. Ástæðan er bygg-
ing bílageymsluhússins sem verið er að reisa við Hverfisgötu, bak
við útibú Landsbankans.
Árni Jónsson, útibússtjóri i
Vegamótum, sagði að þeir hefðu
átt von á því að þjófavarnarkerfið
VZterkur og
k-J hagkvæmur
auglýsingamiöill!
færi í gang þegar sprengingar
hæfust. „Það hefur gengið eftir.
Kerfið hefur farið nokkrum sinn-
um í gang vegna sprenginga og
þegar það gerist að kvöldi til er
ekkert annað að gera en fara nið-
ur í banka og setja kerfið á aft-
ur,“ sagði Árni.
Hann sagði að mikill hávaði og
ónæði fylgdi framkvæmdunum við
bílageymsluhúsið en hann vonaðist
til að þetta tæki fljótt af.
Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnuferða-Landsýnar afhendir yngsta vinningshafanum í leiknum
Sprellfjörugar minningar, verðlaun sín, ferð fyrir litlu ásamt fjölskyldunni til sólarlanda í sumar. Sú
litla heitir Kara Ingólfsdóttir og er rétt eins árs.
" *
I
HUGMYNDA
SAMKEPPNI
í samvinnu við Félag íslenskra Hugvitsmanna efnir
Starfssvið um mótun atvinnustefnu og Umhverfisráðu-
neytið til hugmyndasamkeppni um VISTHÆFAR hug-
myndir sem taka á einhverjum af neðangreindum
þáttum:
SORPHIRÐU
YTRI UMGENGNI VIÐ MANNVIRKI
VERNDUN GRÓÐURS
NÁTTÚRULEGUM HOLLEFNUM
VERNDUN GRÓÐURMINJA
ANDÓFI GEGN GRÓÐUREYÐINGU
SPARNADI NATTURUAUDLINDA
ENDURVINNSLU URGANGS
VISTHÆFUM UMBÚÐUM
LÍFRÆNNI RÆKTUN
MEÐFERÐ MATVÆLA ÁN AUKAEFNA
UMGENGNI VIÐ LÍFRÍKIÐ
EFTIRLITI MEÐ ÁHÆTTUÞÁTTUM
SKILVIRKUM ARÓÐURSHERFERÐUM
Öllum er heimil þátttaka. Hugmyndum er veitt móttaka
í félagsheimilinu Skúlagötu 26, 4. hæð, alla daga frá
kl. 13-17.
SKILAFRESTUR ER TIL 13. APRÍL1991.
Á sérstökum HÁTÍÐARFUNDI í Borgartúni 6 (Rúgbrauðs-
gerðinni) þann 17. apríl kl. 15.00 verða hugmyndirnar
síðan kynntar og veitir umhvefismálaráðherra verðlaun
fyrir þrjár þær bestu.
Verðlaun til vinningshafa verða:
1. verðlaun 150.000 kr.
2. verðlaun 100.000 kr.
3. verðlaun 50.000 kr.
Allar nánari upplýsingar gefur F.Í.H. í síma: 91-625245
(kl. 13-17 virka daga) Skúlagötu 26, 128 Reykjavík.
X-
jwmWm
■FELAG ÍSLENSKRA
WGV/TSMANNA
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
Tíu verðlaunaðir í leik SL
ÚRSLIT í leik Samvinnuferða-
Landsýnar undir nafninu Sprell-
lifandi minningar voru tilkynnt
fyrir nokkru.
Mörg hundruð bréfa bárust og
innihéldu þau ljósmyndir, vísur,
sögur, myndbandspólur, teikningar
og fleira. Alls voru valin sjö verk
og síðan þijú önnur dregin úr öllum
bunkanum.
Þeir sem fengu verðlaun í keppn-
inni, en verðlaunin eru ferð fyrir
viðkomandi og ijölskylduna með
Samvinnuferðum-Landsýn til sólar-
landa í sumar, voru þessi: Fríða
Guðný Birgisdóttir, Hverafold 6,
Reykjavík, fyrir sögu og teikningu,
Margrét María Pálsdóttir, Skúla-
skeið 28, Reykjavík, fyrir ljósmynd-
ir, Valur Margeirsson, Bjarnarvöll-
um 9, Keflavík, fyrir myndband,
Bjarni Helgason, Vallarbraut 9,
Hvolsvelli, fyrir vísur og ljóð, Frið-
björg Haraldsdóttir, Hraunbrún 28,
Hafnarfirði, fyrir myndband, Svein-
björn Fjölnir Pétursson, Austur-
strönd 8, Seltjarnarnesi, fyrir
myndband, Knútur Örn Bjarnason,
Jörundarholti 204, Akranesi, fyrir
stutta ferðasögu, Jón Guðmunds-
son, Hafnargötu 2, Reyðarfirði, fyr-
ir myndband, Kara Ingólfsdóttir,
Brekkubyggð 14, Garðabæ, fyrir
ljósmyndir og Héðinn Halldórsson,
Sunnubraut 5, Vík í Mýrdal, fyrir
teiknimyndasögu.
Sprellfjörugar minningar verður
endurtekin aftur í haust og þá með
svipuðu móti og núna.
(Frcttatilkynning)
Hef engar hótanir
heyrt frá lækiinm
Forsætisráðherra:
Læknar hafna fundi með fjármálaráð-
herra fyrr en hann hafi beðist afsökunar
LÆKNAFÉLAG íslands og Læknafélag Reykjavíkur hafa sent for-
sætisráðherra yfirlýsingu, þar sem ummæli sem fjármálaráðherra
lét falla í sjónvarpsviðtali um lækna og kjarabaráttu þeirra á dögun-
um, eru fordæmd. Er þeirri spurningu jafnframt beint til forsætisráð-
herra, hvort hann telji þessi ummæli sæmandi ráðherra í ríkisstjórn
íslands. í svarbréfi sínu í gær, segist forsætisráðherra ekki styðja
ummælin enda hafi hann engar hótanir, eins og þær sem fjármálaráð-
herra vísar til, heyrt.
Bréf forsætisráðherra, sem sent
var formönnum Læknafélags ís-
lands og Læknafélags Reykjavíkur,
er svohljóðandi:
„í bréfi yðar dags. 30. mars 1991
er að því spurt, hvort ég „styðji“
ummæli fjármálaráðherra um
lækna, sem fram komu í sjónvarpi
23. mars s.l.
Því er fljótsvarað. Það geri ég
ekki, enda hef ég engar hótanir,
eins og þær sem ijármálaráðherra
vísar til, heyrt, þegar ég hef rætt
við lækna um kjarabaráttu þeirra.
Reyndar trúi ég því ekki að nokkur
læknir vanrækti sjúklinga sína
vegna kjarabaráttu. Þá væri illa
brotið hið forna siðferðislögmál
læknisins.
Fjármálaráðherra vísar í viðræð-
ur, sem hann hefur sjálfur átt við
lækna. Það þekki ég ekki og get
því ekki um dæmt. Fjármálaráð-
herra hlýtur því sjálfur að taka
fulla ábyrgð á þeim ályktunum, sem
fram koma í hans orðum.
Ég hlýt hins vegar að taka það
fram að mér þykja afar óviðeigandi
ýmsar þær setningar, sem fram
koma í greinargerð með kröfum
lækna frá janúar s.l.
Ég vil leyfa mér að treysta því
að slíkt hafi verið sett á blað að
lítt hugsuðu máli, í hita deilunnar.
Að lokum við ég taka það fram
að ég hef lengi talið að kjör lækna
á sjúkrahúsum eigi að ákveða af
kjaradómi. Störf læknisins eru svo
viðkvæm, að forðast ber kjaradeil-
ur. Ég er einnig þeirrar skoðunar
að læknar á sjúkrahúsum eigi al-
mennt að starfa þar fullan tíma og
að aðskilja eigi betur en nú er gert
þá þjónustu sem veitt er á sjúkra-
húsum, annars vegar, og af sjálf-
stætt starfandi sérfræðingum hins
vegar.
Þær kjaradeilur, sem læknar áttu
í á síðastliðnu ári, hafa verið Jeyst-
ar með fullu samkomulagi. Ég vil
leyfa mér að vona að friður megi
nú verða um störf lækna, bæði inn-
an og utan sjúkrahúsa," segir for-
sætisráðherra að lokum í svarbréfi
sínu.
Siðferði í opinberri umræðu
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur
hefur einnig sent fjármálaráðherra
bréf vegna viðbragða hans við
beiðni lækna um að hann rökstyddi
ásakanir sínar á hendur læknum í
síðustu viku. Þar segja læknar að
kjarni deilumáls þeirra við fjármála-
ráðherra nú sé spurningin um sið-
ferði í opinberri umræðu á íslandi,
en ekki rekstrarform í heilbrigðis-
þjónustu, eins og hann hafi haldið
fram.
„Þar sem þér hafið ekki að svo
komnu fallist á að biðja íslenska
lækna afsökunar á þessum siðlausu
ásökunum yðar, þá mun Læknafé-
lag Reykjavíkur fylgja því eftir að
fá ummæli yðar dæmd dauð og
ómerk,“ segir m.a. í bréfi LR.
Rangtúlkun og ýkjur
Þá segja læknar að tilvitnun ráð-
herra til greinargerðar samninga-
nefndar læknafélagsins rangfærslu.
„Það sem ráðherra vitnar í með
rangtúlkunum og ýkjum, eru ódag-
sett og óundirrituð skrif, sem ekki
eru stíluð á neinn, en sem var dreift
á samningafundi sem þönkum
formanns samninganefndar lækna
um þáverandi stöðu mála,“ segir í
bréfinu til ráðherra.
Læknar segja að ijármálaráð-
herra hafi einnig rangtúlkað það
sem sagt hafi verið um mögulega
lokun deilda. „Þér staðhæfið, að í
þessum skrifum standi, að læknar
muni ekki hlýða lögum. Þetta er
alvarleg ásökun, rakalaus með
öllu,“ segir í bréfi læknafélagsins.
„Þér fullyrðið, að það hafi verið
ætlun samninganefndar félagsins,
að snúa „beitta vopninu“ að sjúkl-
ingum. Þetta eru helber ósannindi
og einungis hugarórar. Læknar
hafa eins og aðrar stéttir þessa
lands rétt til að segja upp störfum.
Það er vopnið. Læknar hafa hins
vegar alltaf sinnt sínum sjúklingum
áfram, þrátt fyrir deilur við vinnu-
veitendur sína, og munu þeir gera
það áfram,“ segir í bréfinu.
Hafna fundi með ráðherra
Læknar segja að hörð viðbrögð
þeirra byggist á því, að í manna
minnum hafi ekki verið vegið að
starfsheiðri þeirra á jafn ósvífinn
og siðlausan hátt og ráðherra hafi
gert í sjónvarpsviðtalinu. Segja þeir
ennfremur að ráðherra hafi ekki
tekist að sanna með rökum, að
hann hafi átt fundi með forráða-
mönnum lækna, þar sem hótanir
hafi komið fram, en svari þess í
stað með útúrsnúningum. Þá hafi
listi sá sem hann birti um launa-
greiðslur til lækna fjallað bæði um
laun og verktakagreiðslur, þannig
að tölurnar séu mjög villandi.
Er ósk fjármálaráðherra um fund
með læknafélaginu, til að fjalla um
heilbrigðismál svarað á þá lund, að
sjálfsagt sé að ræða við hann hven-
ær sem er, en ekki þó fyrr en hann
hafi dregið ásakanir sínar til baka
og beðið lækna afsökunar.