Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
109. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
NÝR ráðherralisti frönsku ríkisstjórnarinnar var kynntur í gær. Það
kom á óvart að fáar breytingar voru gerðar á fyrri stjórn. Edith
Cresson, nýskipaður forsætisráðherra Frakklands, itrekaði fyrri
andstöðu sína við viðskiptastefnu Japana. Þeir nytu hvarvetna góðs
af lágum innflutningstollum en dyrnar að Japansmarkaði væru eftir
sem áður harðlæstar.
Tvær nýjar konur fá ráðherra-
stöðu í stjórninni auk forsætisráð-
herrans. Þær eru Martine Aubry
atvinnumálaráðherra og Frederique
Bredin, ráðherra æskulýðs- og
íþróttamála. Aubry er dóttir Jacqu-
es Delors, forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópubandalágsins. Sam-
tals verma konur séx ráðherrastóla
af ?9.
Jean-Louis Bianco, skrifstofu-
stjóri forsetaembættisins frá því
Francois Mittérrand tók við 1981,
verður félagsmálaráðherra. Annars
kom ráðherralistinn ekki á óvart,
Pierre Beregovoy verður áfram fjár-
málaráðherra, Roland Dumas ut-
anríkisráðherra og . Pierre Joxe
varnarmálaráðherra. Enginn
kommúnisti er í nýju stjórninni en
miðjumaðurinn Jean-Pierre Soisson
fékk ráðherraembætti.
Stjórnmálaskýrendur túlkuðu
ráðherralistann svo að Mitterrand
hefði nú meiri tök á ríkisstjórninni
en fyrr.
Cresson gat sér orð fyrir and-
stöðu við Japani er hún gegndi
embætti Evrópumálaráðherra í rík-
isstjórn Michels Rocards. í gær
réðst hún harkalega á viðskipta-
stefnu Japana er hún kom í fyrsta
sinn fram í nýju stöðunni. Viðbrögð
í Japan voru blandin nokkurri tor-
tryggni. „Við vonum að munur sé
á henni sem forsætisráðherra og
Evrópumálaráðherra," sagði tals-
maður japanska utanríkisráðuneyt-
isins. Toshiki Kaifu forsætisráð-
herra lagði traust sitt á Mitterrand:
„Forsetinn hefur slík völd og gagn-
kvæmur skilningur hefur aukist svo
mjög að jafnvel þótt skipt sé um
forsætisráðherra verður engin
breyting [á samskiptum Frakklands
og Japans].“
Cresson sagði ennfremur í gær
að hún liti á atvinnuleysið sem
helsta vanda franskra stjórnmála
en 9,3% vinnufærra eru nú án at-
vinnu.
Bleikuráný
Fimmtán tékkneskir þingmenn
kasta mæðinni eftir að hafa
málað sovéska skriðdrekann í
baksýn bleikan. Opinberlega
er um að ræða tákn fyrir inn-
reið Rauða hersins í Prag í
maí 1945 en margir Tékkar
tengja minnismerkið við inn-
rásina árið 1968. Þingmennirn-
ir vildu með þessu sýna náms-
manninum Davíð Cerny sam-
hug en hann var sektaður um
30.000 tékkneskar krónur
(60.000 ÍSK) fyrir að mála
skriðdrekann í þeim hinum
sama lit 28. apríl síðastliðinn.
Upphæð sektarinnar var miðuð
við kostnaðinn við að mála
skriðdrekann grænan á ný.
Þingmennirnir sögðu það kald-
hæðnislegt að stúdentinn væri
sakfelldur fyrir svo sakleysis-
legan verknað en gamlir
kommúnistar slyppu við refs-
ingu.
FINNSKA ríkisstjórnin styður sjónarmið Islendinga í deilunm um
sjávarútvegsmálin og hvetur önnur EFTA-ríki til að standa með
þeim þar til viðunandi samningar nást. Esko Aho, forsætisráðherra
Finnlands, lýsti þessu yfir á fjölmennri ráðstefnu, sem finnsku at-
vinnurekendasamtökin héldu í Helsinki í gær, en þar gerði hann að
umtalsefni þátttöku Finna í alþjóðlegu samstarfi með sérstöku tilliti
til viðræðna EFTA, Fríverslunarbandalags Evrópu, og EB, Evrópu-
bandalagsins, um Evrópska efnahagssvæðið, EES. Kom þetta fram
í samtali, sem Morgunblaðið átti við Hákon Branders, sendiherra
Finnlands á íslandi. en hann er nú staddur í Helsinki.
í erindi sínu lagði Aho áherslu
á, að í samningunum um EES yrði
að vera tryggt, að jafnvægi ríkti
milli ríkja hvað varðaði réttindi og
skyldur og taldi hann, að því mark-
miði yrði náð að því er Finna snerti.
Öðru máli gegndi hins vegar um
íslendinga. Ef ekki fyndist viðun-
andi lausn á deilunni um sjávarút-
veginn og kröfu þeirra um tollfrjáls-
an aðgang sjávarafurða að Evrópu-
markaðnum væri þessu jafnvægi
ekki til að dreifa fyrir þá. Sagði
Aho, að í_þessu máli ætluðu Finnar
að veita Islendingum fuilan stuðn-
ing og hann hvatti önnur EFTA-
ríki til að standa með þeim þar til
málið leystist. í umræðum, sem á
eftir fylgdu, kvaðst Esko Aho for-
sætisráðherra ekki telja ólíklegt,
að sjávarútvegsdeiluna mætti leysa
með samningum um framlög í þró-
unarsjóðinn fyrir suðurríkin í EB.
Esko Aho ræddi einnig um þátt-
töku Finna í alþjóðlegu samstarfi
og samtökum fyrr og síðar og sagði
rangt, sem stundum væri haldið
fram, að þeir vildu ekki taka þátt
í þeirri þróun, sem hefði átt sér
stað og væri að eiga sér stað. Taldi
hann allt benda til, að Evrópska
efnahagssvæðið yrði að veruleika
og sagði, að það væri eini möguleik-
Reuter
inn fyrir EFTA-ríkin til að geta
orðið þátttakendur í innri markaði
EB-ríkjanna allt frá byijun.
Málefni íslands bar á góma í
umræðum um EES í sænska þing-
inu í gær að sögn sænsku frétta-
stofunnar TTB. Anita Gradin ut-
anríkisviðskiptaráðherra skýrði þar
gang viðræðnanna. Par Gahrton,
þingmaður græningja, sakaði
sænsku stjórnina um að hafa fórnað
hagsmunum íslendinga í viðræðun-
um. Gradin neitaði því og sagði að
Svíar og aðrar EFTA-þjóðir styddu
við bakið á íslendingum.
Sjá fréttir af málefnum EB og
EFTA á miðopnu.
------*-*-*----
Austurlönd nær;
Baker ekki
vonsvikinn
Tel Aviv. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist í gær
alls ekki óánægður me,ð fjórðu
friðarferð sína til Austurlanda
nær á skömmum tíma. Þokast
hefði í samkomulagsátt í deilunni
um ráðstefnu um málefni Austur-
landa nær. ísraelskir leiðtogar
sögðu einnig að för Bakers hefði
borið árangur.
Baker sagði jákvætt að sam-
komulag væri á fleiri sviðum heldur
en ósætti en upplýsti annars fátt
um viðræður þær sem hann hefur
átt undanfarna fimm daga við leið-
toga í Sýrlandi, Egyptalandi, Jórd-
aníu og ísrael. Yossi Ben-Aharon,
einn helsti aðstoðarmaður Yitzhaks
Shamirs, forsætisráðherra ísraels,
sagðist telja að Baker hefði orðið
ágengt. Hann sagðist þó litla grein
gera sér fyrir afstöðu araba og gat
sér þess til að bandaríski utanríkis-
ráðherrann hefði af ráðnum hug
leynt deiluaðila því hver afstaða
hvorra um sig væri.
Einkum er deilt um hlutverk
Sameinuðu þjóðanna í ráðstefnu um
Miðausturlönd og hversu formlegur
slíkur fundur skuli vera. Sýrlending-
ar ætla Sameinuðu þjóðunum mik-
inn - hlut. ísraelar síður og segja
stofnunina hlutdræga í afstöðunni
til Palestínumálsins. Fulltrúar araba
vilja að nokkrir fundir verði haldnir
innan ramma ráðstefnunnar en ísra-
elar hallast að hátíðlegri upphafsat-
höfn en síðan kæmu milliliðalausar
viðræður þeirra við Palestínumenn.
Reuter
Michel Rocard og Edith Cresson heilsast að frönskum sið á Hotel Matignon er sú síðarnefnda tók form-
lega við embætti forsætisráðherra í gær.
Ráðherralisti Edith Cresson kynntur;
Finnar styðja Is-
lendinga í sjávar-
útvegsmálunum
Hvetja önnur EFTA-ríki til að standa
með þeim þar til lausn finnst
Litlar breytingar á
frönsku stjóminni
París. Reuter.