Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 42
<'£2
1 (íMO'RGUNBLAÐK; ÍT0STÚB)AÖUR.Ilí'<",SíMíll,é91
félk í
fréttum
Gæfuhjolið
Eitc f rægasta og umtalaðasta
Hollywoodparið, þau Kiefer
Sutherland og Julia Roberts
hafa nú tílkynnt að þau ætli að
ganga í það heilaga 14. júní
næstkomandi. Þan Kiefer og
Juíia hafa lengi verið stórfc ntim-
er í blöðum og tímaritum vestan
hafs sem og austan og vinsælt
hefur verið að velta uppi orðróm
um að þau séu í þann mund að
skilja. Þau hafa jafn harðan
svarið allt slíkt af sér.
Eitt af því sem þótti standa
GÆFUHJOL
sambandi þeirra fyrir þrifum var
sú staðreynd ao Julia er mun
eftirsóttari leikari þessa stund-
ína heldur en Kiefer. Hann hefur
viðurkennt að það hafi farið í
taugarnar á sér að ferili hans
hafí verið í n'okkurri lægð um
nokkurt skéið, en fráleit'c væri
að taka slíkt öt á Juliu, þvert á
móti samgleddist hann með
henní.
Annars kann gæfuhjólið að
vera að snúast fyrir Kiefer og*
það fyrir tilstilli Juliu, því nú
herma fregnir að þau muni leika
saman í stórmynd sem á döfinni
er, „Renegades" heitír hún og
framleiðandinn er Ray Stark,
Upphaflega átti Mel Gibson að
leika aðalkarlhlutverkið á mðti
Juliu, en hann varð aö draga síg
í hié þar sém sýntþótti aðhann
yrði ekki búinn að ljúka annarri
kvikmynd er tökumar á
„Renegades" skyldu hefjast. Jul
ia stakk því upp á því við Stark,
að Kiefer sinn fengi hlutverkið
og lét hún í það skína að áhugi
íulie Roberts og Kiefer Sutherlantí
hennar myndi minnka stórum
ef Kiefer kæmt ekki til greina.
Þetta er ekki frágengið, en flesfc
bendir ti! þess að þótt Stark
hefði vel getað hugsað sér annan
karlieíkara en Kiefer þá vilji
hann halda í Juliu með öllum
leiðum, því hún getur valið úv
hlutverkunum og það er nánast
trygging á frábærum viðtökum
og góðri útkomu ef hún fer með
aðalhlutverk í kvikmynd.
VOGAR
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Nemendur fengu að prófa nýju borðin.
HVOLSVOLLUR
Foreldrafélagið færir
Hvolsskóla gjafir
Foreldra- og kennarafélag Hvols-
skóla færði skólanum góðar
gjafir á skólaslitunum en þau voru
9. maí sl. Þá afhenti stjórn félags-
ins skólanum borðtennis- og snó-
kerborð að gjöf.
Félagið stóð síðan fyrir grill- og
leikjaveislu sem haldin var á upp-
stigningardag við skólann. Var þar
margt um manninn, þrátt fyrir að
veðrið væri ekki eins og best varð
á kosið. Farið var í leiki, spilaður
fótbolti, farið í boðhlaup og grillað-
ar pylsur og síðan etnar af bestu
lyst. Grillveisla þessi er orðin að
hefðbundnum þætti í starfi félags-
ins og einskonar lokapunktur í
starfi vetrarins. í vetur hefur félag-
ið staðið fyrir fræðsluerindum fyrir
foreldra um uppeldis- og skólamál
og auk þess staðið fyrir ýmiss kon-
ar fjáröflun. Félagið reynir eftir
megni að styrkja skólann, en auk
gjafanna hefur félagið styrkt náms-
ferðalög nemenda.
- S.Ó.K.
Stofnfélagar
golfklúbbs
55 talsins
Golfklúbbur var stofnaður í
Vogum 12. maí síðastliðinn.
Skráðir stofnfélagar voru þá 55
en þeim gæti átt eftir að fjölga
því þeir sem skrá sig í félagið
fyrir framhaldsstofnfund sem
verður á næstunni verða einnig
skráðir sem stofnfélagar.
Á stofnfundi var kosið í stjórn.
Hana skipa Jörundur Guðmunds-
son, formaður, Hafsteinn Ólafs-
son, varaformaður, Guðrún Gunn-
arsdóttir, gjaldkeri, Magnús
Árnason, ritari, og Andrés Guð-
mundsson, meðstjórnandi.
í varastjórn voru kosin Frið-
þjófur Sigursteinsson og María
Gunnarsdóttir.
Helstu verkefni stjórnar á
næstunni verða að koma upp golf-
velli og eru uppi hugmyndir um
að f á afnot af ríkisjörð á Vatns-
leysuströnd, enda veitir ekki af
miðað við áhugann við stofnun
f'lagsins.
- E.G.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Sljórn og varastjórn golfklúbbsins í Vogum: María Gunnarsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Jörundur Guðmundsson, Hafsteinn Ólafsson,
Magnús Árnason og Friðþjófur Sigteinsson.
SKRIFTIR
Joan Collins leitar í
smiðju stóru systur
Enska leikkonan Joan Collins hef-
ur sent frá sér skáldsöguna
„Love, desire, hate", eða „Ást, girnd
og hatur". Þetta er önnur skáldsaga
ungfrú Collins, en báðar fjalla um
líkt efni og visast til titilsins til nán-
ari útskýringa. Umhverfið er jafnan
Los Angeles, Hollywood og Las
Vegas og persónurnar úr þotuliðinu
sem setur svip.sinn á umrædd svæði.
Stúdentastjarnan,
14 karat gull, hálsmen eða prjónn.
Verð kr. 3.400
íófi Spunðsson
Skflrtyipoverzlun
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI 13383
COSPER
Er súpan köld? Það er þó nokkur velgja á henni.
Joan Collins.
Þetta kæmi ef til vill alls ekki á
óvart ef eldri systir Joan, Jacki,
væri ekki signt og heilagt að senda
frá sér skáldsögur um svipað efni
og er Jacki Collins vellauðug þar eð
bækur hennar hafa selst í milljóna
upplögum.
Gagnrýnendur segja að þótt ekk-
ert sé í raun út á frágang verks
Joan að setja, þá sé engu líkara en
að hún hafi farið beinustu leið í
bækur systur sinnar til að ýta sér
úr vör. Ekkert sé frumlegt og efnis-
meðferðin og orðalagið sé það sama.
Joan blæs á svona afgreiðslu og
segir að skárra væri nú ef systur
notuðu ekki sama orðalag. En það
er fleira.