Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 42
( MOKGUNBLAÐIÐ (irÖSTÚlíAÖUR 'lft’SftíI<Y991 P.J42 félk í fréttum GÆFUHJÓL Gæfuhjólið snýst Eitc frægasta og umtalaðasta Hollywoodparið, þau Kiefer Sutherland og JuliaRoberts hafa nú tilkynnt að þau ætli að ganga í það heilaga 14. júní næst komandi. Þau Kiefer og Julia hafa lengi verið stórt núm- er í blöðum ogtímaritum vestan hafs sem og austan og vinsælt hefur verið að velta. uppi orðróm um að þau séu í þann mund að skilja. Þau hafa jafn harðan svarið allt slíkt af sér. Eitt af því sem þótti standa sambandi þeirra fyrir þrifum var sú staðreynd ao Julia er mun eftirsóttari leikari þessa stund- ina heldur en Kiefer. Hann hefur viðurkennt aö það hafi farið í taugamar á sér að ferili hans hafi verið í nbkkurri lægð um nokkurt skeið, en fráleitt væri að taka slíkt út á Juliu, þvert á móti samgleddist hann með henni. Annars kann gæfuhjólið aö vera að snúast fyrir Kiefer og þaö fyrir tilstilli Juliu, því nú herma fregnir ao þau muni leika saman í stónnynd sem á döfinni er, „Renegades11 heitir hún og framleiðandinn er Ray Stark, Upphaflega átti Mel Gibson að leika aðalkarlhlutverkið á móti Juliu, en hann varö aö draga sig í hlé þar sem sýnt þótti að hanr. yrði ekki búinn ao ljúka annarri kvikmynd er tökumár á „Renegades" skyldu hefjast. Jul- ia stakk því upp á því við Stark, aó Kiefer sinn fengi hlutverkið og lét hún í það skína að áhug: Julie Roberts og Kiefer Sutherland hennar myndi minnka stómm ef Kiefer kæmi ekki til greina. Þetta er ekki frágengið, en fiest bendir tii þess að þótt Stark hefði vel getaö hugsað sér annan karlleikara en Kiefer þá vilji lianr. halda i Juliu. með öllun/ leiðum, því hún getur valið út hlutverkunum og það er nánast trygging á frábæmm viðtökum og góðri útkomu ef hún fer mefc aðalhlutverk. í kvikmynd. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Nemendur fengu að prófa nýju borðin. HVOLSVÖLLUR Foreldrafélagið færir Hvolsskóla gjafir Foreldra- og kennarafélag Hvols- skóla færði skólanum góðar gjafir á skólaslitunum en þau voru 9. maí sl. Þá afhenti stjórn félags- ins skólanum borðtennis- og snó- ket'borð að gjöf. Félagið stóð síðan fyrir grill- og leikjaveislu sem haldin var á upp- stigningardag við skólann. Var þar margt um manninn, þrátt fyrir að veðrið væri ekki eins og best varð á kosið. Farið var í leiki, spilaður fótbolti, farið í boðhlaup og grillað- ar pylsur og síðan etnar af bestu lyst. Grillveisla þessi er orðin að hefðbundnum þætti í starfi félags- ins og einskonar lokapunktur í starfi vetrarins. í vetur hefur félag- ið staðið fyrii' fræðsluerindum fyrir foreldra um uppeldis- og skólamál og auk þess staðið fyrir ýmiss kon- ar fjáröflun. Félagið reynir eftir megni að styrkja skólann, en auk gjafanna hefur félagið styrkt náms- ferðalög nemenda. - S.Ó.K. Stúdentastj aman, 14 karat gull, hálsmen eða prjónn. Verð kr. 3.400 Jðn Slgmuncksson Skartpipmrzlan LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVÍK SÍMI 13383 VOGAR Stofnfélagar golfklúbbs 55 talsins Golfklúbbur var stofnaður í Vogum 12. maí síðastliðinn. Skráðir stofnfélagar voru þá 55 en þeim gæti átt eftir að fjölga því þeir sem skrá sig í félagið fyrir framhaldsstofnfund sem verður á næstunni verða einnig skráðir sem stofnfélagar. Á stofnfundi var kosið í stjóm. Hana skipa Jörundur Guðmunds- son, formaður, Hafsteinn Ólafs- son, varaformaður, Guðrún Gunn- arsdóttir, gjaldkeri, Magnús Ámason, ritari, og Andrés Guð- mundsson, meðstjórnandi. í varastjórn voru kosin Frið- þjófur Sigursteinsson og María Gunnarsdóttir. Helstu verkefni stjórnar á næstunni verða að koma upp golf- velli og eru uppi hugmyndir um að fá afnot af ríkisjörð á Vatns- leysuströnd, enda veitir ekki af miðað við áhugann við stofnun f'lagsins. - E.G. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Stjórn og varastjórn golfklúbbsins í Vogum: María Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Jörundur Guðmundsson, Hafsteinn Ólafsson, Magnús Árnason og Friðþjófur Sigteinsson. SKRIFTIR Joan Collins leitar í smiðju stóru systur Enska leikkonan Joan Collins hef- ur sent frá sér skáldsöguna „Love, desire, hate“, eða „Ást, girnd og hatur“. Þétta er önnur skáldsaga ungfrú Collins, en báðar íjalla um líkt efni og visast til titilsins til nán- ari útskýringa. Umhverfið er jafnan Los Angeles, Hollywood og Las Vegas og persónurnar úr þotuliðinu sem setur svip sinn á umrædd svæði. COSPER COSPER. n7o& Er súpan köld? Það er þó nokkur velgja á hcnni. Joan Collins. Þetta kæmi ef til vill alls ekki á óvart ef eldri systir Joan, Jacki, væri ekki signt og heilagt að senda frá sér skáldsögur um svipað efni og er Jacki Collins vellauðug þar eð bækur hennar hafa selst í inilljóna upplögum. Gagnrýnendur segja að þótt ekk- ert sé í raun út á frágang verks Joan að setja, þá sé engu líkara en að hún hafi farið beinustu leið í bækur systur sinnar til að ýta sér úr vör. Ekkert sé frumlegt og efnis- meðferðin og orðalagið sé það sama. Joan blæs á svona afgreiðslu og segir að skárra væri nú ef systur notuðu ekki sama orðalag. En það er fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.