Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 16. MAÍ 1991 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson „Ölfusárbrú“ vígð Selfossi. Árdagar heitir sýning sem nemendur Barnaskólans á Selfossi opna klukkan 15 í dag. Sýningin er lok á þemadögum sem stað- ið hafa yfir að undanfömu. Eitt af verkefnum nemenda var bygging veglegs líkans af Ölfusárbrú, sem er 100 ára. Sýningin stendur til klukkan 10 í kvöld. Á meðfylgjandi mynd eru nokkr- ir glaðbeittir brúarsmiðir ásamt kennurum. Minnihlutinn í borgarsljórn Reykjavíkur: Skorað á Davíð Odds- son að biðjast lausnar FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur fluttu tillögu á fundi borgarstjórnar í gær, þar sem skorað var á Davíð Oddsson að biðjast lausnar frá embætti borgarstjóra og að staðan yrði auglýst laus til umsóknar. Meirihluti sjálfstæðismanna felldi tillöguna og í bókun, sem Davíð Oddsson lagði fram, segir að ekkert sé athugavert við, að meirihlutinn taki sér eðlilegan tíma til að velja mann af sinni hálfu til að vera í kjöri til embættisins. Fulltrúar minnihlutaflokkanna utan dagskrár á fundinum í gær. Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, sagði þá með- al annars, að nú þegar kjörinn borgarstjóri hefði hætt störfum væri það skylda borgarstjórnar að taka ákvörðun um það hvernig ráð- ið yrði í embættið, Valdabarátta og óeining innan borgarstjómar- flokks sjálfstæðismanna væri svo mikil að þeir gætu ekki komið sér saman um eftirmann Davíðs, og þess vegna blasti nú við að um margra vikna skeið yrði forsætis- hófu umræður um val borgarstjóra Borgarritari gegnir emb- ættisskyldum borgarsljóra JÓN G. Tómasson, borgarritari, mun gegna embættisskyldum borgarstjóra í Reykjavík fram til 1. júlí næstkomandi meðan Davíð Oddsson er í leyfi frá störfum. Jón G. Tómasson sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að ekki væri um það að ræða, að hann tæki við embætti borgar- stjóra. Davíð Oddsson situr í því embætti þar til hann hefur beðist lausnar og nýr maður verið kjörinn í hans stað. Hins vegar er það embættisskylda borgarritara að vera staðgengill borgarstjóra í for- föllum hans. Birgir R. Jónsson formaður Félags íslenskra stórkaupmanna: Eimskíp aðeins fylgjandi frjálsri verðmyndun í orði BIRGIR R. Jónsson, formaður Félags islenskra stórkaupmanna, seg- ir að Eimskip sé aðeins fylgjandi fijálsri verðmyndun í orði en alls ekki á borði. Hann segir einnig að Verslunarráðið hafi ekki unnið ötullega að afnámi verðlagsákvæða. „Það er ekki rétt hjá Þórði Sverr- issyni, framkvæmdastjóra hjá Eim- skip, að þeir séu fylgjandi ftjálsri verðmyndun. Við köllum afstöðu Eimskips að vera fylgjandi fijálsri verðmyndun í orði en ekki á borði. Þegar eitthvað á að gera í þessum málum þá gerist aldrei neitt,“ segir Birgir. „Við höfum mikinn áhuga á að sjá útreikninga Verðlagsráðs fyrir fraktflutningana. Það stangast nefnilega dálítið á hjá Ómari Jó- hannssyni, framkvæmdastjóra Samskipa, þegar hann talar um hámarkstaxta sem þeir noti aldrei. Hvemig getur Verðlagsráð þá sam- þykkt útreikninga fyrir farmgjöld- um, nema sýnt sé í útreikningunum að um afslátt sé að ræða, þegar hámarkstaxtar eru aldrei notaðir? Maður áttar sig ekki á þeim leik, að skipafélögin skyldu fá 3% hækk- un í nóvember vegna þess að olía var að hækka og nú fá þau 4% hækkun á sama tíma og olían er að lækka. Við sjáum að farmgjöldin hækka mest á flutningsmestu hafn- imar eins og Rotterdam og Ham- borg. .Svona pukur í einhveijum nefndum vekur tortryggni. Það er ekki rétt hjá Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Verslunarráðsins, að þeir hafi unnið ötullega að afnámi verðlagsákvæða. Þetta á ekki við um fraktmálin. Það getur vel verið að þeir hafi barist innan Verðlagsráðs, en það er eng- inn til frásagnar af því. Ef þeir vilja vinna ötullega að þessu þá ættu þeir vera með einhveijar tillögur, en þeir virðast ekki þora að gera neitt. Niðurstaðan er sú að það eru opinberu embættismennimir í Verð- lagsráði sem eiga að vinna tillög- umar. Verslunarráðið kemur af sér þessum þrýstingi yfír á embættis- mennina. Afstaða VSÍ er miklu skýrari, þeir eru tilbúnir að taka á þessum málum,“ sagði Birgir. Hann sagði það rétt að viðræður hefðu verið í gangi milli Samskipa og Félags íslenskra stórkaup- manna. „Viðræðumar strönduðu á því, að það eina sem þeir vom fáan- legir til að gera var að fækka töxt- um nokkuð, en meira var ekki hægt að fá. Við höfum boðið samskipsa'- mönnum til viðræðna og til stóð að hitta þá í þessari viku en því var frestað. Við erum tilbúnir í viðræð- ur um farmgjöld hvenær sem er,“ sagði Birgir. Hektor hlut- skarpastur HEKTOR frá Akureyri varð hlutskarpastur, hlaut 9,14 í einkunn, í B-flokki gæðinga á Hvítasunnumóti Fáks í gærkvöldi. Keppnin var mjög jöfn og einkunnir með miklum ágætum. Hektor varð hlutskarpastur með 9,14 í einkunn, en eigandi pg knapi var Gunnar Amarson. ísak frá Litla-Dal og Kraki frá Helgastöðum komu á hæla Hektors með einkunnina 8,98. Gunnar var knapi á ísak en Sigurbjöm Bárðarson sat Kraka. í fjórða sæti varð Salvador með 8,71 og Vignir varð í fímmta sæti með einkunnina 8,67. Það vom 34 hestar skráð- ir til leiks en 32 mættu til keppni. Mót þetta er liður í Hvíta- sunnumóti Fáks og um leið úr- tökumót fyrir fjórðungsmót hestamanna sem fram fer á Hellu í sumar. Alls fara þrettán hestar úr þessum flokki á mótið og til merkis um hversu keppn- in var jöfn í gær má nefna að 13. og 14. hestur fengu báðir einkunnina 8,49. í dag verður forkeppni í A- flokki gæðinga og hefst hún klukkan 16. Þareru 54 gæðing- ar skráðir til leiks. ráðherra landsins jafnframt borg- arstjóri. Það væri með öllu óeðlilegt og því væri skorað á borgarstjóra að biðjast þegar lausnar og starf hans yrði síðan auglýst laust til umsóknar. Undir þetta sjónarmið tóku aðrir fulltrúar minnihlutans, þær Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum vettvangi, Sigrún Magnúsdóttir, Framsóknarflokki, og Elín G. Ól- afsdótti, Kvennalista. Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagðist undrast málflutning minni- hlutans, enda hefði ekkert annað gerst formlega, en að hann hefði ákveðið að nýta sér rétt sinn til sumarleyfis í þriðja sinn frá því hann tók við embætti borgarstjóra fyrir níu árum. Hann sagði ekkert athugavert við að meirihluti borgarstjórnar tæki sér eðlilegan tíma til að velja mann af sinni hálfu til að vera í kjöri til embætt- is borgarstjóra. Árið 1978 hefði þáverandi vinstri meirihluti þurft tæpa 3 mánuði til að leggja fram tillögu sína um borgarstjóra, en núverandi meirihluti myndi ekki taka svo langan tíma til verksins. Sjá einnig frétt bls. 4. --------*-*-*------- Raufarhöfn: SRtílkynnt um lokun rafmagns Raufarhöfn. Verksmiðjusljóra Síldarverk- smiðju ríkisins á Raufarhöfn hef- ur verið tilkynnt að lokað verði fyrir rafmagn til verksmiðjunnar eftir næstu helgi verði ekki stað- ið við greiðslur. Ekki kemur í ljós fyrr en eftir hvítasunnu hvort tekst að semja um raforku- skuldina því peningar eru ekki til til að greiða hana að fullu. Skuldin nemur einhveijum millj- ónum króna. Mikil fjárþröng hefur verið hjá Síldarverksmiðjum ríkisins eftir að loðnuveiðarnar brugðust að mestu, og lokið var við byggingu á nýrri loðnuvinnslu á Seyðisfírði, og nú er svo komið að erfítt er hjá SR að greiða starfsfólkinu laun. Helgi Yfirlýsing ráðherrafundar EFTA og EB: Ekkert stangast á við upplýs- ingamar frá því í desember segir Bjöm Bjamason um undrun fyrrverandi ráðherra BÆÐI Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, lýstu á Al- þingi í gær miklum efasemdum um yfirlýsingu ráðherrafundar EFTA og Evrópubandalagsins um samninga um evrópskt efnahags- svæði. Þeir töldu meðal annars að í yfirlýsingunni gæti falist að íslendingar væru að afsala valdi til stofnana á efnahagssvæðinu. Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á að ekkert í yfirlýsingunni stangaðist á við þær upplýsingar, sem hefðu komið fram í yfirlýsingu ráðherrafundar í desember 1990. Steingrímur Hermannsson lýsti efasemdum um marga liði í yfírlýs- ingu sameiginlegs ráðherrafundar EB og EFTA, sem haldinn var síð- astliðinn mánudag. Hann sagði að alls ekki yrði horfíð frá því að Al- þingi yrði að taka mikilvægar ákvarðanir í mörgum mikilvægum málum, sem vörðuðu samstarf á evrópsku efnahagssvæði. Hann lýsti síðan efasemdum um að þátt- taka í því samstarfi væri eins hag- kvæm og talið hefði verið, óráðlegt væri að setja öll eggin í sömu körfu, og ekki mætti draga úr möguleikum á viðskiptasamböndum í Bandaríkj- unum og Asíu. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að vega þyrfti og meta hvort sú fullyrðing Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra stæðist, að Islendingar væru ekki á neinn hátt með samningum um efnahagssvæð- ið að afhenda vald í hendur stofn- ana í Evrópu. Hann benti meðal annars á að í yfírlýsingunni væri gert ráð fyrir framkvæmdastofnun EFTA, sem ætti að hafa svipað vald og framkvæmdastjóm Evrópu- bandalagsins. Hann sagði að utan- ríkismálanefnd Alþingis þyrfti að hefja strax vinnu við að meta þetta og kálla til sérfræðinga bæði inn- lenda og erlenda. Bjöm Bjamason sagði að það hefði komið honum á óvart að heyra ræður Steingríms og Ólafs Ragn- ars. Það hefði verið fráfarandi ríkis- stjórn, sem tekið hefði ákvarðanir um samninga um efnahagssvæðið, og innan hennar hefði stefna í við- ræðunum verið mótuð. Þá hefði ýmislegt það, sem fyrrverandi ráð- herrar gerðu nú athugasemdir við, komið fram í yfirlýsingu sameigin- legs ráðherrafundar EFTA og EB f desember síðastliðnum, og verið birt í skýrslu utanríkisráðherra á Alþingi í mars síðastliðnum. Þar hefði meðal annars verið lýst sam- komulagi um eftirlitsstofnun EFTA-ríkjanna, sem ætti að hafa svipað hlutverk og framkvæmda- stjórn EB. Sjáþingsíðu, bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.