Morgunblaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991
Borgarsljóraskipti 1959 og 1972:
Tillögur um nýja borgar-
stjóra samþykktar einróma
FYRIR borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar hafa tvívegis átt sér stað
borgarstjóraskipti af þeirri ástæðu, að fráfarandi borgarstjórar ákváðu
að láta af störfum til að einbeita sér að landsstjórnmálum. Árið 1959
óskaði Gunnar Thoroddsen, borgarsljóri, eftir leyfi frá störfum borgar-
stjóra 20. nóvember 1959, þegar hann tók sæti ráðherra i Viðreisnar-
stjórninni, sem mynduð var sama dag. Geir Hallgrímsson baðst lausnar
31. október árið 1972 en starfaði til 1. desember, þegar Birgir ísleifur
Gunnarsson tók við borgarstjórastarfinu. í báðum tilfellum voru bom-
ar fram tillögur um nýja borgarstjóra, sem samþykktar vora einróma
af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Borgarstjóraskiptin árið 1959 bar
að með þeim hætti að Gunnar Thor-
oddsen kvaddi sér hljóðs í lok borgar-
stjómarfundar og óskaði eftir leyfi
frá borgarstjórastörfum fyrst um
sinn, þar eð fyrirhugað væri að hann
tæki sæti í ríkisstjóm. Var tillagan
samþykkt samhljóða. Borgarstjóri
bar einnig upp tillögu um að skipta
borgarstjóraembættinu og að settir
yrðu tveir borgarstjórar fyrst um
sinn, annars vegar borgarstjóri fjár-
mála og verklegra framkvæmda og
hins vegar borgarstjóri menntamála,
heilbrigðismála og félagsmála. Þegar
kom að kosningu borgarstjóra vom
samþykkt afbrigði með samhljóða
VEÐUR
atkvæðum og vora Geir Hallgríms-
son og Auður Auðuns tilnefnd borg-
arstjórar án atkvæðagreiðslu. Fór
svo fram kosning forseta og varafor-
seta og var Gunnar Thoroddsen kjör-
inn forseti borgarstjómar.
Geir Hallgrímsson ritaði borgar-
stjórn bréf 31. október 1972 og baðst
lausnar frá starfí borgarstjóra frá
og með 1. desember. Gat hann þess
í bréfinu að hann hefði tekið sæti á
Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
ennfremur verið kjörinn varaformað-
ur flokksins vorið 1971.
Því næst sagði Geir m.a. í bréfinu:
„Þótt ég hafi ekki haft í huga annað
við síðustu borgarstjómarkosningar
en gegna starfi borgarstjóra á þessu
kjörtímabili, þá geri ég mér ljóst, að
slíkt hið sama get ég ekki sagt með
góðri samvisku við næstu borgar-
stjómarkosningar af fyrrgreindum
ástæðum, og því tel ég skylt að segja
bæði borgarstjórn og borgarbúum
það í tíma. Hins vegar tel ég það
skyldu borgarstjóra í Reykjavík og
borgarstjómarmeirihluta að tilnefpa
með nokkram fyrirvara fyrir næstu
almennu borgarstjómarkosningar, ef
um borgarstjóraskipti er að ræða,
nýjan borgarstjóra, svo að borgarbú-
ar megi kynnast honum í því starfí,
áður en þeir ganga að kjörborðinu
næst.“
Á fundi borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins var einróma samþykkt að
leggja til við borgarstjóm, að Birgir
ísleifur Gunnarsson, borgarfulltrúi,
yrði kjörinn borgarstjóri í stað Geirs.
Á fundi borgarstjómar 2. nóvember
var Birgir ísleifur svo kjörinn borgar-
stjóri með 8 atkvæðum borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins en borgar-
fulltrúar minnihlutaflokkanna ski-
luðu auðu.
VEÐURHORFUR I DAG, 17. MAI
YFIRLIT: Við strönd Grænlands fyrír vestan land er 998 mb lægðog
hreyfist hlutí hennar norðaustur. Suðvestur af írlandi er 1038 mb
hæð.
SPÁ: Suðvestlæg hátt, víðast gola eða kaldi. Skúrir verða um vest-
anvert landið en bjart veður að mestu austanlands, þó gætu orðið
smáskúrir á Norðurlandi austanverðu. Hiti vfðast 7-12 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðlæg eða suðvest-
læg átt. Ýmist rigning eða skúraveður um sunnan- og vestanvert
landið en lengst af þurrt norðaustanlands. Fremur svalt í veðri.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
V Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
r r r / Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j Q° Hhastig:
10 gráður á Ceisíus
SJ Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
r£
> i /
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísL tíma
hitf veður
Akureyri 16 aiskýjað
Reykjavik 10 rigning
Bergen 11 léttskýjað
Kelsinki 13 láttskýjað
Kaupmannahöfn 12 hálfskýjað
Narssarssuaq 2 snjóél
Nuuk 0 snjókoma
Oslö 11 skýjað
Stokkhólmur 8 skur
Þórshófn 9 rigning
Algarve 17 þokumóða
Amsterdam 11 skýjað
Barceiona 17 místur
Berlín 11 skýjað
Chlcago vantar
Feneyjer 14 skýjað
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 13 hálfskýjað
Las Palmas vantar
London 10 rignlng
LosAngeles 14 helðskírt
Lúxemborg 9 skýjað
Madrfd 22 léttskýjað
Malaga 22 rykmistur
Mallorca 20 alskýjað
Montreal 19 alskýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
París 12 þrumuveður
Róm 14 skýjað
Vín 13 alskýjað
Washington vantar
Winnipeg 10 léttskýjað
KIRKJA HJAUASÓKN
Útlitsteikning af kirkju Hjallasóknar.
Ný kirkja og safnaðar-
heimili byggð í Hjallasókn
Á HVÍTASUNNUDAG, 19. mai, mun dr. Sigurbjöra Einarsson
biskup taka fyrstu skóflustungu að nýrri kirkju og safnaðarheim-
ili í Hjallasókn í Kópavogi.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, flytur blessunarorð og
helgar staðinn. Athöfninni lýkur
með því að sunginn verður sálm-
ur. Skólahljómsveit Kópavogs,
undir stjóm Jónasar Bjömssonar,
annast hljóðfæraleik, ásamt org-
anistanum Elíasi Davíðssyni, sem
jafnframt stjómar kór Hjallasókn-
ar. Að athöfn lokinni er öllum við-
stöddum boðið til kaffidrykkju í
salarkynnum Digranesskóla, segir
í fréttatilkynningu sóknamefndar.
Athöfnin hefst kl. 14 með hát-
íðarguðsþjónustu í messusal Hjall-
asóknar. Áð lokinni blessun, verð-
ur gengið frá messusalnum til
kirkjulóðar á Álfaheiði 17. Þar
mun formaður sóknamefndar,
Hilmar Björgvinsson, flytja ávarp
og sunginn verður lokasálmur
guðsþjónustunnar. Að því
loknu mun dr. Sigurbjöm flytja
ritningarorð og bæn og taka
fyrstu skóflustunguna að hinni
nýju kirkju og safnaðarheimili.
Kirkjubygging Digranessafnaðar:
Sýnist að meirihluti sé
fyrir þessu í bæjarstjóm
- segir Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi
SKIPTAR skoðanir eru á meðal bæjarfulltrúa í Kópavogi um hugsan-
lega kirkjubyggingu Digranessóknar við Víghól. Sigpurður Geirdal
bæjarstjóri hefur lýst þvi yfir að hann muni beita sér fyrir því að
niðurstaða fáist í málinu innan bæjarstjórnar. íbúar í nágrenni við
fyrirhugað svæði undir kirkj ubygginguna hafa lýst sig andsnúna bygg-
ingu hennar. Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins,
telur að meirihluti sé fyrir fyrrgreindri staðsetningu innan bæjar-
sH'órnar.
Sigríður Einarsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins, kveðst andvíg
byggingu kirkju við Víghól, þar sem
af því hlytist mikil skerðing á ein-
stæðu útivistarsvæði. „Ég var for-
maður Náttúruvemdamefndar þeg-
ar umræður hófust um byggingu
kirkju á Víghólasvæðinu og ég lýsti
mig mjög andvíga þessari hugmynd.
Ég tel þetta svæði hafa mikið gildi
sem útivistarsvæði því þama er eini
staðurinn á höfuðborgarsvæðinu þar
sem hægt er að virða fyrir sér allan
fjallahringinn. Það er aðalástæða
þess að mér er ekki vel við að kirkj-
an verði reist á þessum stað. Ég
hélt það ætti eftir að fjalla um mót-
mæli íbúanna sem hafa komið fram.
Við höfum ekki fjallað um þau á
bæjarstjómarfundi. Ég reikna samt
sem áður með því að þetta mál nái
í gegn innan bæjarstjómarinnar. Ég
hefði viljað hafa kirkjuna á öðrum
stað, til dæmis í Digraneshlíðunum,“
sagði Sigríður.
Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðismanna, vildi ekki gefa
upp afstöðu sína til þessa máls en
sagði: „Það er verið að vinna að
þessu máli og það á eftir að fara
fyrir skipulagsnefnd og bæjar-
stjórn,“ sagði Guðni. Hann sagði að
það hafi frekar verið reiknað með
því að kirkjan yrði byggð á þessu
svæði.
Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins lýsti sig algjör-
lega andvigan byggingu kirkju á
þessum stað, og kvaðst hann ekki
eiga nægilega sterk orð til að lýsa
undrun sinni á því að rætt skuli
vera um það að byggja kirkjuna á
þessum stað, um 300 metrum frá
kirkju Hjallasóknar.
„Tillaga að þessum stað kom fram
á miðju síðasta kjörtímabili. Þá var
málið skoðað og það fór fyrir um-
hverfisráð, skipulagsnefnd og íþrótt-
aráð. Þessu var allsstaðar synjað.
Bæjarstjóm og bæjarráð synjaði
þessum hugmyndum á síðastliðnu
kjörtímabili. Ég tel að það sé hægt
að nýta þetta svæði sem opið útivist-
arsvæði. Mér finnst hrein firra að
byggja tvær kirkjur, hvora um sig
varla undir 150 milljónum kr., með
400 metra millibili. Því miður sýnist
mér margt benda til þess að það sé
meirihluti fyrir þessu í bæjarstjóm
Kópavogs," sagði Valþór.
Morgunblaðið/Júlíus
• 1 •
Breskt herskip í kurteisisheimsókn
Breska herskipið HMS YORK lagðist upp að bryggju í Sundahöfn í
gær, en skipið verður í kurteisisheimsókn hér á landi til mánudags.