Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 7
MOBGUNB&y&lg)'. PQgj'ftoAQlffi t7.>MÁÚIð91 ; ,7 Flóki Kristinsson Langholtssöfnuður: Flóki Kristins- son kjörinn sóknarprestur Séra Flóki Kristinsson var kjörinn sóknarprestur í Lang- holtssöfnuði í Reykjavík á fundi sóknarnefndar s.l. þriðjudag. Sr. Flóki hlaut lögmæta og bind- andi kosningu. Hann var áður sókn- arprestur á Stóranúpi í Gnúpveija- hreppi í Árnessýslu. Auk hans sótti Guðrún Bdda Gunnarsdóttir guð- fræðingur um embættið. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson lætur af embætti sóknarprests 31. júní og sr. Flóki tekur við embætt- inu 1. júlí. Aðal- og varafulltrúar í sóknar- nefnd tóku þátt í kjörinu. Fundinum stjórnaði sr. Jón Dalbú Hróbjarts- son, prófastur í Reykjavíkurprófast- dæmi vestra. Þormóður rammi: Siglingamálastofnun: Bátur og áhöfn ótryggð EINAR Jónsson, aðstoðardeildastjóri Siglingamálastofnunar, segir að það hafi ekki tíðkast að veittar séu undanþágur til skipa með útrunnið haffærisskírteini að fara í veiðiferðir, en skipsíjórinn á Eleseusi BA 328 segist hafa fengið munnlegt leyfi frá Siglingamála- stofnun til að fara í róður án haffærisskírteinis. „Þetta hefur ekki tíðkast og ég Ekki náðist í Pál Guðmundsson trúi því ekki að slíkt leyfi hafi ver- deildarstjóra Siglingamálastofn- ið veitt. Ef bátur er ekki með haf- unnar sem skipstjórinn á Eleseusi færisskírteini á hann ekki að fara BA 328, Níels Adólf Ársælsson, út. Þetta er alfarið á ábyrgð skip- segir að hafi veitt sér munnlegt stjórans og það eiga allir skipstjórn- leyfi til að fara eina veiðiferð áður arlærðir menn að vita. Það er ekki en báturinn yrði tekinn út. Ekki lögskráð á bát sem hefur ekki haf- náðist heldur í Magnús Jóhannes- færisskírteini í gildi og þá er hvorki son siglingamálastjóra. báturinn né mannskapurinn tryggð- ur. Þetta eiga allir skipstjórnar- menn að vita,“ sagði Einar. Ær bar fjór- um lömbum Borg í Miklaholtshreppi NÚ stendur sauðburður yfir. Útlit er fyrir að frjósemi ætli að verða mikil á sumum bæjum. í Mikla- holti bar ær fjórum lömbum, öllum vænum og frískum. Undanfarandi daga hefur verið mikil úrkoma. Síðast liðinn sólar- hring var sólarhringsúrkoman á Hjarðarfelli 64 millimetrar. Ekki er útlit fyrir að upp stytti á næstu dög- um. Er því víða að verða þröngt í húsum því í svona mikilli úrkomu er útilokað að hafa lambær úti. Gott útlit er með gróður og hafa síðustu sólarhringar verið hlýir. í þessum miklu vatnavöxtum hafa orðið vega- skemmdir og fór vegurinn hjá Núpá í Eyjahreppi í sundur í nótt. Páll Dræm sala hlutabréfa á Siglufirði HLUTABRÉF í Þormóði ramma á Siglfirði seldust ekki eins og von- ir stóðu til í heimabyggð. Heima- menn keyptu hfutabréf fyrir 10 milljónir og nú nýverið keypti Verðbréfadeild Islandsbanka hlutabréf að nafnvirði 30 milljónir króna. Róbert Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma, sagði að ekki hefði verið hægt að selja fyrir meira á Siglufirði. „Við gáfum út hlutabréf fyrir 40 milljónir að" nafnvirði og heimamenn höfðu for- kaupsrétt á þeim. Það tókst að selja fyrir 10 milljónir hér heima og VIB keypti það sem eftir var af bréfun- um,“ sagði Róbert. Hann sagði að á næstu misserum væri ætlunin að fá fyrirtækið skráð á verðbréfamarkaði og þá yrðu vænt- anlega gefin út fleiri hlutabréf. HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI695500 MITSUBISHI MOTORS 8 MANNA MINIBUS NÝTT ÚTLITAÐ FRAMAN NÝTT ORKUSVIÐ □ Bensínhreyfill — 2,4 lítrar Dieselhreyfill — 2,51ítrar □ Eindrif eða aldrif □ Fjölmargir möguleikar á sætaskipan H Þriggja ára ábyrgð Verðfrákr. 1.300.800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.