Morgunblaðið - 17.05.1991, Page 17

Morgunblaðið - 17.05.1991, Page 17
sig við þetta og ég skrifa til dæmis í vottorðin að börnin séu -son eða -dóttir en yfirleitt er því breytt á manntalsskrifstofum hér. Þetta kemur oft kjánalega út til dæmis ef drengur er látinn nota föðurnafn móður sinnar og heitir kannski Pálmi Pálmadóttir. Steingrímur Hermannsson og Poul Schlter sömdu fyrir alllöngu um að íslendingar skyldu fá að halda sinni nafnahefð hér en það hefur eitthvað staðið í dönskum embættismönnum sem segja að ekki sé hægt að breyta þessu nema að greiða fyrir það þijú þúsund danskar krónur. Það verður fjallað um málið á fundi samstarfsráðhen-a Norðurlandanna og vona ég að þessu verði kippt í lag. Þetta er óþarfa stífni hjá Dönum og gerir ekkert annað en að hleypa illu blóði í fólk og setja blett á annars ágætt samstarf þjóðanna. Jónshús Jónshús heitir Islands-kulturhus uppá dönsku og er það réttnefni því þarna fer fram ýmis menningar- starfsemi en gagngerar endurbætur hafa nýlega farið fram á Jónshúsi. — Jónshúsi er náttúrlega fyrst og fremst ætlað að viðhalda minn- ingu Jóns forseta Sigurðssonar og hér eru jafnan sýnir ýmsir munir, skjöl og myndir sem varpa ljósi á ævi hans og störf. íslendingafélagið hefur einnig aðsetur hér og rekur veitingaaðstöðu, hér er ágætt bóka- safn og hingað koma flest dagblöð- in að heiman og ýmis tímarit. Hing- að koma menn því gjarnan til að líta í blöð og hitta náungann og stundum er efnt til dagskrár af ein- hvetju tagi. Þá er hér í næsta ná- grenni íbúð fræðimanns og dvelja hér 3 til 4 menn á ári í nokkra mánuði í senn. Verður áfram þörf fyrir íslenskan prest í Kaupmannahöfn? — Eg tel engan vafa á því — ég held að það fjölbreytta starf sem hann hefur með höndum hafi sýnt að þörf er á þessari þjónustu og hana má frekar auka en minnka eins og ég gat um áðan. En hún á hins vegar ekki að standa og falla með þeim presti sem gegnir henni á hveijum tíma og draumur minn er að þessi söfnuður standi traust- um fótum um ókomin ár þó að prestar komi og fari. Og hvað hefur helst komið á óvart hér? — Það hefur komið skemmtileg- ast á óvart hversu oft ég hef hitt fyrrum sóknarbörn. Ég er að hitta ungt fólk sem var í sumarbúðum hjá okkur í Holti, fólk sem nú er að gifta sig, láta skíra börnin sín eða jafnvel ferma. Mér finnst því þegar öllu er á botninn hvolft ekki svo langur vegur frá Holti til Kaup- mannahafnar. jt Utgerð Andra BA: Samdi um 10 milljónir ÍSLENSKA úthafsútgerðarfé- lagið hf., sem gerði út verksmiðj- utogarann Andra BA við Alaska- strendur, samdi við sex aðila um greiðslur á 10 milljóna króna skuld áður en fyrirtækið var tek- ið úr gjaldþrotaskiptum á mánu- daginn. „Við sömdum við sex aðila um greiðslur, samtals um tíu milljónir króna. Stærsta fjárhæðin var skuld við erlendan aðila vegna símasam- skipta við skipið og nam það um 50% af upphæðinni," sagði Harald- ur Haraldsson stjómarformaður ís- lenska úthafsútgerðarfélagsins hf. Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991 17 Nýjar bækur um tré og trjárækt NAMSGAGNASTOFNUN hefur gefið út tvær bækur um tré og trjárækt. Bókin Tré eftir Jón Guðmundsson er fræðandi þók á léttu máli fyrir börn á aldrinum 8-11 ára. í bókinni er m.a. fjallað um það sem er sameig- inlegt öllum tijám og hvaða hlut- verki hinir ýmsu' hlutar trésins gegna, um muninn á lauftijám og barrtijám og hvernig tré eru ræktuð. Samtímis er vakin athygli á fegurð trjáa og notagildi. Bókin er prýdd fjölda litmynda. Ljósmyndir eru flestar teknar af höfundi bókarinnar en teikningar gerði Jean Posocco. Bókin er 38 blað- síður. Eg greini tré eftir Sveinbjöm M. Njálsson er aðgengilegur greiningar- lykill um tré og runna. Bókin er eink- um ætluð nemendum 5.-10. bekkjar en nýtist öllum þeim sem áhuga hafa á að læra og þekkja algengustu tré og runna. í bókinni eru upplýsingar um u.þ.b._30 tegundir af tijám og runn- um á íslandi. Ljósmyndir eru af öllum tegundum ásamt fjölda skýringa- mynda. Sigurður Blöndal, Hörður Kristinsson, Óli E. Sæmundsson og Kristinn H. Þorsteinsson tóku mynd- irnar en Eggert Pétursson teiknaði skýringamyndir. Bókin er 64 blaðs- íður. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Júlíus Forseti ísland frú Vigdís Finnbogadóttir, var viðstödd kynningu bókarinnar. Hér má sjá Sveinbjörn M. Njálsson greina tré með for- seta. Lokadagur pantana er í dag, 17. maí HEWLETT PACKARD * n * 4r( ö t' VERÐDÆMI: Tulip dc 386sx - 20 MHz, 40MB, VGA (s/h) kr. 122.000,- Hewlett Packard LaserJet III með upplausnarauka, kr. 196.000,- Star LC 20, 9 nála, 180 stafir/sek., margar leturgerðir, kr. 18.900,- Pantanir berist í síðasta lagi 17. maí til Agnesar Vilhelmsdóttur hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, sími: 91-26844, fax: 91- 626739 MUNALÁN V/SA —--- LUROCAhO Tölvukaup hf. • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.