Morgunblaðið - 17.05.1991, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991
19
*
Afmæliskveðja:
Þórður Þórðar-
son, verkstjóri
Þórður Þórðarson fyrrverandi
framfærslufulltrúi og bæjarfulltrúi
í Hafnarfirði er níræður i dag. Þórð
er þarflaust að kynna fyrir flestum
Hafnfirðingum; hann þekkja þeir
af góðu einu.
Þau eru ófá verkin sem Þórður
Þórðarson hefur skilið eftir sig á
löngum starfsferli. Sér í lagi hefur
hann jafnan lagt rækt við sína
heimabyggð, Hafnarfjörð, og lagt
þar mikið af mörkum. Þar hefur
hann lagt gjörva hönd á margvísleg
verkefni ogjafnan skilað með mikl-
um sóma.
Ekki síður er ástæða til að geta
starfa Þórðar Þórðarsonar fyrir
Alþýðuflokkinn í Hafnarfirði. Þar
var hann um langt árabil í forystu-
sveit, enda vel til forystu fallinn. í
stuttri kveðju er með öllu ógerlegt
að tíunda feril og verk Þórðar Þórð-
arsonar á langri leið fyrir Hafnar-
fjörð og jafnaðarstefnuna. Enda er
það svo með menn á borð við Þórð
Þórðarson, að orð eru óþörf; verkin
sýna einfaldlega merkin.
Eg þakka Þórði Þórðarsyni á
þessum tímamótum hans merka
starf fyrir Hafnarfjörð og jafnaðar-
stefnuna. Hann á heiður skilinn.
Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri.
Hafnfirskur heiðursmaður, Þórð-
ur Þórðarson, fyrrum verkstjóri og
framfærslufulltrúi, Háukinn 4,
Hafnarfirði, er níræður í dag, föstu-
daginn 17. maí.
Til hans munu margir Hafnfirð-
ingar hugsa á þessum merkisdegi,
með hlýhug og þakklæti fyrir hin
margháttuðu störf, sem hann hefur
leyst af hendi í þágu bæjarbúa og
Hafnarfjarðar á liðnum árum. Því
svo sannarlega má segja að hann
hafi víða komið við í störfum fyrir
bæjarfélagið þau 60 ár sem hann
hefur búið í bænum. En Þórður er
einkar félagslyndur maður, raun-
góður, drenglyndur og velviljaður.
Hann er afburða hjálpsamur, ávallt
verið reiðubúinn til að styðja þá sem
til hans hafa leitað, einkum þá sem
minni máttar hafa verið og höllum
fæti hafa staðið í lífinu. Á hann
hafa þannig hlaðist margvísleg
trúnaðarstörf.
Hann skipaði sér ungur í raðir
Alþýðuflokksins og gerðist einn af
traustustu og ötulustu liðsmönnum
flokksins í Hafnarfirði og var þar
og í verkalýðshreyfingunni í fylg-
ingarbijósti. Hann var formaður
Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar
um árabil, fulltrúi á fjölmörgum
Alþýðuflokksþingum, gegndi mörg-
um trúnaðar- og nefndarstörfum
fyrir flokkinn, sat um skeið í bæjar-
stjórn og kjörinn af henni í margs-
konar trúnaðarstörf, svo sem til að
vera formaður húsnæðisnefndar, í
framfærslunefnd og hafnarnefnd.
Hann var yfírmaður áhaldahúss
Hafnarfjarðarbæjar um skeið, en
áður hafði hann verið yfirverkstjóri
bæjarvinnunnar. Þá var hann í
nokkur ár framfærslu- og hús-
næðismálafulltrúi.
Þórður var félagi í Verkamanna-
félaginu Hlíf og forystumaður þar
og formaður árin 1935, ’36 og ’38.
Kynni hans af kjörum verkafólks
hér á landi á hans yngri árum mun
hafa leitt hann til starfa í verkalýðs-
hreyfíngunni og til liðs við Alþýðu-
flokkinn. Hann sá örbirgð, fátækt
og réttleysi það, sem var hlutskipti
hins vinnandi manns á þeim árum.
Hann sá að sumt af þessu fólki
varð að sætta sig við að klæðast
tötrum, búa í hreysum og lifa við
sult og seyru. Hann sá að frelsið,
sem það bjó við birtist í því einu,
að það mátti strita, fékk skortinn
að launum, en hafði ekkert öryggi
og litla hlutdeild í því, hvernig sveit-
arfélagi eða þjóðfélagi var stýrt.
Flestir þeir sem komnir eru á
efri ár, kannast við ofangreinda
lýsingu og við aðbúnað verkafólks
á fyrstu árum verkalýðshreyfingar-
innar og Alþýðuflokksins.
Á þessum merku tímamótum í
lífi Þórðar vil ég og margir aðrir
þakka honum og öðrum sem stóðu
í hetjubaráttu fyrir verkafólk áður
fyrr. Árangurs þeirrar baráttu njóta
Hafnfirðingar og raunar Islending-
ar allir í ríkum mæli á svo fjölmörg-
um sviðum nú í dag.
En Þórður kom víðar við í félags-
starfi, enda var hann áhugamaður
um öll framfaramál bæjarfélags
síns og ávallt reiðubúinn til að
leggja hönd að verki við að hrinda
þeim í framkvæmd. Til hans er því
oft leitað til þess að gegna forystu-
störfum, þegar um er að ræða
málefni sem til heilla mátti horfa
fyrir bæjarfélagið. Er hveiju máli
vel borgið í höndum Þórðar. Fjöl-
mörg trúnaðarstarfa sem hann hef-
ur verið kvaddur til að gegna, bera
þess vott að Þórður nýtur mikils
trausts og vinsælda.
Hann var varaformaður Kaupfé-
lags Hafnfirðinga, er formaður
Dýraverndunarfélags Hafnarfjarð-
ar, var í stjóm Byggingarfélags
Alþýðu, formaður Verkstjórafélags
Hafnarfjarðar, varaforseti Verk-
stjórasambands íslands, í stjórn
Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar.
Hann hefur og tekið virkan þátt í
kirkjustörfum í Hafnarfírði og einn-
ig þar verið kvaddur til forystu-
starfa, verið í stjórn kirkjugarðanna
og meðhjálpari.
Þórður er glaður og hress í
bragði, æðrulaus og skemmtilegur,
en öfgalaus og kann ekki vel neinu
ábyrgðarleysi í opinberum málum.
Þórður kvæntist Arnþrúði
Grímsdóttur frá Ný-Borg á Stokks-
eyri, mikilli myndarkonu, sem nú
er látin. Amþrúður var stoð og
stytta manns síns í öllu hans starfi.
Þau eignuðust þijú börn, tvo syni
og eina dóttur. Óll eru börnin nýtir
og dugandi borgarar í Hafnarfírði.
Samstarfsmenn og vinir allir
senda afmælisbarninu bestu
heillaóskir á þessum merkisdegi.
Ég þakka Þórði mikið og gott
samstarf á liðnum árum og fyrir
óeigingjörn störf í þágu bæjarfé-
lagsins. Ég árna honum og fjöl-
skyldu hans heilla á þessum tíma-
mótum í lífi hans.
Þórður Þórðarson tekur á móti
gestum á afmælisdaginn í Veitinga-
húsinu Skútunni, milli kl. 4 og 7.
Stefán Gunnlaugsson
Þrettán ára skólagöngu var lokið...
Hurð skall að baki.
Lífið framundan samfelld frímínúta.
PETUR
GUNNARSSON
- alvöruhúmoristi.
Snilldarlegar athuganir
á samtíðinni,
hnyttni, sagnalist.
Skáldsagan Punktur punktur komma strik eftir
Pétur Gunnarsson kom ut fyrst áriö 1976
og sló í gegn. Bækurnar sem komu í kjölfarið
leiftra af sama andríki.
Og nú fást þær allar saman í Stórbók.
Skemmtilesning í sérflokki.
Tilvalin stúdentsgjöf.
Mál Ipjl og menning
Síðumúla7-9. Simi 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.