Morgunblaðið - 17.05.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991
Umræður um evrópskt efnahagssvæði:
Á ekki að koma fyrr-
um ráðherrum á óvart
— sagði Björn Bjarnason um eftirlitsstofnun EFTA
Skýrsla Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra um
stöðu viðræðna um evrópskt
efnahagssvæði var til umræðu í
sameinuðu þingi í gær. Stjórnar-
andstæðingum finnst ýmislegt
vera óþ'óst í stöðunni núna.
í upphafi umræðunnar gerði
forseti þingsins, Salome Þorkels-
dóttir, þingmönnum grein fyrir því
að það ætti að reyna að halda sig
innan tímamarka og hefði hver
þingflokkur u.þ.b. klukkustund til
umræðnanna.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði m.a. í sinni
skýrslu eða greinargerð að veru-
legur árangur hefði náðst á fundin-
um 13. maí síðastliðnum, eins og
fram hefði komið í sameiginlegri
yfirlýsingu sem hefði verið birt flöl-
miðlum. Sá skilningur væri að
heildatjafnvægi yrði að vera fyrir
alla aðila hvað varðaði ábata, rétt-
indi og skyldur. Samkomulag hefði
tekist.um .sérstakt eftirlitskerfi á
vegum EFTA-ríkjanna, um fram-
kvæmd samkomulagsins um dóm-
stól til að leysa ágreiningsefni.
Einnig um hlutdeild EFTA-ríkja
varðandi hlutdeild í undirbúningi
ákvarðana. Samkomulag hefði
einnig tekist um almennt öryggis-
og varnaglaákvæði sem kæmi í
stað upphaflegra varanlegra fyrir-
vara. Ennfremur hefði náðst sam-
komulag um tímabundnar undan-
þágur frá reglum sem vörðuðu fjór-
frelsið svonefnda.
Utanríkisráðherra dró ekki dul
á að þijú mál væru enn óleyst,
varðandi landbúnaðarafurðir,
markaðsaðgang sjávarútvegsaf-
urða og um sérstakan byggða- og
þróunarsjóð. Það kom fram í máli
utanríkisráðherra að framundan
væri að fá viðhlítandi niðurstöðu
varðandi tollfrían aðgang fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir og Islending-
ar höfnuðu því að láta af hendi
veiðiheimildir fyrir slíkan aðgang.
Það yrði harðsótt. En fram hefði
komið af hálfu Evrópubandalags-
ins að það myndi greiða fyrir að-
gangi sjávarafurða ef í mót kæmi
af hálfu EFTA greiðari aðgangur
landbúnaðarvara frá Suður-Evr-
ópu og einnig að greitt yrði í
byggða- og þróunarsjóð sem ein-
hvers konar endanlegan þiýstijafn-
ara.
Utanríkisráðherra hafnaði því
Björn Bjarnason
algjörlega að í þeim hugmyndum
að samningsdrögum sem lægju
fyrir fælist nokkurt afsal á full-
veldi íslands og rakti hann í nokkru
máli mun á væntanlegu evrópsku
efnahagssvæði og Evrópubanda-
laginu. Utanríkisráðherra sagði að
menn yrðu skoða niðurstöður þess-
ara samninga og ekki gefa sér
niðurstöðurnar fyrirfram.
Yfirþjóðlegt, vald
Steingrímur Hermannsson
(F-Rn) fagnaði því sjónarmiði sem
fram kæmi í yfirlýsingu utanríkis-
ráðherranna frá 13. maí, að gæta
yrði heildaijafnvægis ábata, rétt-
inda og skyldna allra ríkja. En
hann taldi margt orka tvímælis og
vera óljóst um túlkun. Fyrri ríkis-
stjórn hefði sett fram mjög
ákveðna fyrirvara og hann sagði
framsóknarmenn leggja afar mikla
áherslu á að við þá yrði staðið.
Steingrímur kvaðst hafa lesið ítar-
lega athuganir sem gerðar voru á
vegum síðustu ríkisstjórnar á
hugsanlegum ávinningi af erópsku
efnahagssvæði. Steingrímur
kvaðst verða að viðurkenna að eft-
ir þann lestur hefði honum þótt
ávinningurinn minni en hann hefði
áður talið.
Ræðumaður fór nokkrum orðum
um yfirlýsingu utanríkisráðherr-
Steingrímur Hermannsson
anna og taldi sumt heldur óljóst
orðað og gefa tilefni til efasemda.
T.a.m. segði í 6. lið að komið yrði
á fót sjálfstæðri EFTA-stofnun
sem hefði samsvarandi umboð og
svipað hlutverk og framkvæmda-
stjórn Evrópubandalagsins. Hér
væri um lykilatriði að ræða. Einn
aðalfyrii-varinn hefði verið að að
yfirþjóðlegt vald kæmi ekki til
greina. Ræðumaður taldi að orða-
lagið gæfí tilefni til að ætla svo,
þótt utanríkisráðherra væri því
ekki sammála. í ræðulok hvatti
Steingrímur menn til að horfa
einnig til annarra markaða og
landa. Við mættum ekki lokast þar
inni sem við ættum ekki aftur-
kvæmt.
Kristín Einarsdóttir (SK-Rv)
rakti andstöðu Kvennalistans gegn
því að íslendingar gengju til þess-
ara samninga. Ljóst hefði verið að
við yrðum að gangast undir 60%
af lagagrunni Evrópubandalags-
ins. Henni kæmu niðurstöðurnar
frá Brussel ekki á óvart. Sagði þó
að þær væru jafnvel enn verri en
hún hefði búist við. Hún taldi ekki
orka tvímælis að í þessum samn-
ingum væri fullveldi afsalað.
Ólafur Ragnar Grímsson
(Ab-Rn) hafði líka sínar efasemdir.
Þessar viðræður væru um fleira
en fisk, þær væru líka um full-
veldi. Hann sagði yfirlýsingar
stjórnmálamanna í Noregi og Sviss
renna stoðum undir þann ótta að
fullveldi væri fórnað. Hann óskaði
eftir því að utanríkismálanefnd
gerði ítarlega könnun á því. Hann
hvatti til þess að Alþingi sæti fram
á sumar þangað til að utanríkisráð-
herra hefði gert þennan samning
eins og áætlanir stæðu til.
Upprifjun
Björn Bjarnason (S-Rv) rakti
nokkuð gang viðræðnanna og kom
honum stórum á óvart að heyra
efasemdarorð Stejngríms Her-
mannssonar og Ólafs Ragnars
Grímssonar, sérstaklega þau sem
lytu að yfirþjóðlega þættinum.
Þeir hefðu sem ráðherrar síðustu
ríkisstjórnar átt aðild að þessum
viðræðum; yfirlýsingin frá 13. þ.m.
ætti ekki að koma þeim að óvörum.
Sérstakíega ef litið væri á skýrslu
sem gerð var um viðræðurnar í
mars 1991. Sú skýrsla byggðist á
ráðherrafundi sem haldinn var í
desember 1990 þegar þeir sátu
báðir í ríkisstjórn. Steingrímur
Hermannsson hefði sérstaklega
vikið að eftirlitsstofnun EFTA. í
skýrslunni stæði: „Ráðherrar tóku
fram að sett yrði upp sjálfstæð
EFTA-stofnun til að beita sam-
keppnisreglum. Slík stofnun ætti
að hafa samsvarandi umboð og
framkvæmdastjórn Evrópubanda-
lagsins.“ Björn sagði núverandi
ríkisstjórn hefði komið að verki
fyrri ríkisstjórnar. Ræðumaður
taldi sjálfsagt að skoða og ræða
vandlega þetta mál allt en það
hlytu að þurfa sterkar ástæður að
koma til ef íslendingar ættu að
draga sig út úr þessum viðræðum.
Þegar hér var komið sögu urðu
nokkur skoðanaskipti um þingsköp
og lengd umræðna en Ölafur
Ragnar Grímsson taldi ekki ástæðu
til að hafa tímatakmörk. Varð að
ráði að boða til kvöldfundar. Að
þingskapaumræðunni Iokinni var
aftur tekið til við að ræða um
greinargerð utanríkisráðherra.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði sjálfstæðismenn vera afskap-
lega sátta við ræðu utanríkisráð-
herra. Halldór Ásgrímsson (F-Al)
rakti og ítrekaði nokkuð efasemdir
framsóknarmanna. Hjörleifur
Guttormsson taldi litla blessu--
hafa verið af þessum viðræðun
Ingibjörg Sólrún Gísladótti
(SK-Rv) ítrekaði andstöðu Sam
taka um kvennalista. Mátti m.a
leggja þann skiling í hennar or<
að Evrópubandalagið og evrópsk;
efnahagssvæðið væru auk þess ac
vera yfirþjóðlegt veldi, líka karla-
veldi.
Þar sem sem fyrirsjáanlegt vai
að þingmenn ættu ennþá margt
ósagt um þessar viðræður, var
fundi frestað hálfri stundu eftir
miðaftan, það er, klukkan hálf sjö
en forseti deildarinnar Salome Þor-
kelsdóttir boðaði framhaldsfund
hálfri stundu fyrir náttmál, það er
klukkan hálf níu.
Stjórnskipunar-og MwnG|
þingskapanefndir 111,11
í gær völdu neðri og efri deild í sérnefndir sem er ætlað að
fjalla um þau tvö frumvörp sem Iögð hafa verið fyrir Alþingi og
miða að því að þingið starfi eftirleiðis í einni málstofu. Frumvörp-
in varða breytingu á sljórnarskránni og breytingu á lögum um
þingsköp Alþingis.
í stjórnskipunar- og þingskapa-
nefnd efri deildar völdust Halldór
Asgrímsson (F-Al), sem er formað-
ur nefndarinnar, Björn Bjarnason
(S-Rv) er varaformaður og Svavar
Gestsson (Ab-Rv) er ritari. Auk
fyrrgreindra voru kosnir: Egill
Jónsson (S-AI), Salome Þorkels-
dóttir (S-Rn), Karl Steinar Guðna-
son (A-Rn), Eiður Guðnason
(A-Vl), Kristín Einarsdóttir (SK-
Rv) og Jón Helgason (F-Sl). Nefnd-
in hefur nú fengið stjórnarskrár-
frumvarpið til umfjöllunar.
í neðri deild völdust í sérnefnd-
ina: Geir H. Haarde (S-Rv), og er
hann formaður, Páll Pétursson
(F-Nv) er varaformaður, Össur
Skarphéðinsson (A- Rv) er ritari.
Aðrir nefndarmenn eru: Pálmi
Jónsson (S-Nv), Guðrún Helga-
dóttir (Ab-Rv), Guðmundur Bjarn-
ason (F-Ne), Sólveig Pétursdóttir
(S-Rv), Gunnlaugur Stefánsson
(A-Al) og Anna Ólafsdóttir Björns-
son (SK-Rn). Nefndin hefur nú
fengið frumvarpið um þingsköp
Alþingis til athugunar.
Utanríkismálanefnd valin
Kosið var í utanríkismálanefnd Alþingis í gær. Ekki liafði
verið áformað að kjósa í fastanefndir Alþingis á þessu vor-
þingi en vegna áríðandi viðræðna um hið evrópska efnahags-
svæði varð að samkomulagi að skipa í nefndina.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
eru: Eyjólfur Konráð Jónsson
(S-Rv), Björn Bjarnason (S-Rv)
og Geir H. Haarde (S-Rv). Full-
trúi Alþýðuflokks er Karl Steinar
Guðnason (A-Rn). Af hálfu fram-
sóknarmanna situr Steingrímur
Hermannsson (F-Rn) í nefndinni.
Fyrir Samtök um kvennalista er
Kristín Einarsdóttir (SK-Rv). Ól-
afur Ragnar Grímsson (Ab-Rv)
er fulltrúi Alþýðubandalagsins.
Varamenn í nefndina eru fyrir
Sjálfstæðisflokk Lára Margrét
Ragnarsdóttir (S-Rv), Einar Kr.
Guðfinnsson (S-Vf) og Vilhjálm-
ur Egilsson (S-Nv). Fyrir Alþýðu-
flokk Rannveig Guðmundsdóttir
(A-Rn). Fyrir Framsóknarflokk
Páll Pétursson (F-Nv). Fyrir
Samtök um kvennalista Kristín
Ástgeirsdóttir (SK-Rv). Fyrir
Alþýðubandalag Hjörleifur Gutt-
ormsson.
Nefndin mun velja sér form-
ann, varaformann og ritara á
sínum fyrsta fundi, en það hefur
komið fram í fréttum að Eyjólfur
Konráð Jónsson nýtur fylgis
meirihluta þingmanna Sjálfstæð-
isflokks í formmannssætið í
nefndinni.