Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 33
..-—.-... ...... ... ...... MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991 Villimennska í Vesturbæ Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Háskólabíó: í Ijótum leik — „State of Grace“ Leikstjóri Phil Joanou. Aðal- leikendur Ed Harris, Sean Penn, Gary Oldham, Robin Wright. Bandarísk. Orion 1990. Sögusviðið er þekkt úr myndum einsog West Side Story, hafnar- hverfið illræmda á Manhattan sem löngum hefur verið kallað því geðslega nafni Hell’s Kitchen. Og þykir vel viðeigandi. Hér voru írar og írskir glæpaforingjar allsráð- andi en þegar / ljótum leik hefst, á öndverðum áttunda áratugnum, eru hinir voldugu, ítölsku mafíosos að seilast til valda. Sér til fullting- is hafa þeir valið Flannery-bræð- urna Jackie (Oldman) og Frankie (Harris), kolóða morðhunda sem einskis svífast. Frankie er leiðtogi hinna írskættuðu glæpamanna hverfisins, Jackie hans hægri hönd. Þar skilur með þeim bræð- rum að Jackie þolir ekki nærveru ítalanna á sínum heimaslóðum en Frankie er falur fyrir völd og fé. Þessum skoðanaágreiningi lyktar með ósköpum. Til sögunnar kemur gamall vin- ur Jackies, Noonan (Penn), og gengur til liðs við þá bræður. Al- inn upp í glæpagengjum þessa Eldhúss vítis er hann tekinn sam- stundis góður og gildur þó hann hafi verið á braut í nokkur ár. Enda sannar hann „kosti“ sína með óhæfuverki í myndarbyijun. Hitt vita bræður ekki að Noonan hefur starfað sem lögreglumaður í Boston þessi ár og er nú kominn til að fletta ofanaf undirheimalýð æskustöðvanna. Þá er ótalin Kat- hleen (Wright), systir þeirra Flannery-bræðra og gömul vin- kona Noonans. Og lifir lengi í gömlum glæðum. Þessi fráhrindandi og grimma mynd fjallar fyi-st og fremst um sannkölluð afstyrmi sem drepa sér til dundurs, ánægju, lífsviðurvær- is, eða af hrollvekjandi metnaði. Frankie er manna verstur og til- finningasnauðastur. Honum er allsvarnað, svífst einskis til að trygg'a sér brautargengi í fall- valtri veröld glæpa og illvirkja. Jackie er illskárri, lúrir á mannleg- um tilfinningum í þokukenndri til- veru geðsjúklings. Systirin er illa farin af vistinni í Vesturbæ og er að reyna að pota sér áfram á heið- arlegan hátt „uppi í borg“. Noonan er í lausu lofti, tvöföld tilvera hans er illa frágengin í handriti, hann látinn fylgjast með í fjarlægð frekar en láta til skarar skríða gegn hinum fyrrverandi félögum sínum. Samband hans við Kathleen er einnig einkar ósann- færandi. Ramminn utanum þennan rosa- lýð og voðaverk er ámóta frýnileg- ur og hæfir efninu og persónunum með miklum ágætum. Ijeikstjórn Joanous er ærið brokkgeng. Hann er laginn í mörgum stuttum atrið- um en heildarmyndin er í míluíjar- lægð uppá tjaldinu, einkum per- sónurnar. Framvindan er tæpast nógu drífandi þrátt fyrir harðsoð- 33 inn efniviðinn og góðar átakasen- ur. Honum hefur engan veginn tekist að gera sinn írska Guðföð- ur. Það skortir mikilleikann. Leik- hópnum verður ekki um kennt og enginn er betri en stórleikarinn Oldman sem er óhugnanlega trú~ verðugur sem ruglukollurinn Jackie. Skyggir meira að segja á hinn eftirtektarverða Harris og Penn finnur sig ekki sem skyldi í ólánlegu hlutverki. Helsti kostur myndarinnar er þó tvímælalaust öll grimmdin og miskunnarleysið í þessum nifl- heimum mannlífsins. Efnið er ljótt og persónumar vissulega fráhrind- andi en á köflum nær Joanou með hjálp sinna ágætu meðreiðarsveina (m.a. Morricone) að draga upp svo skelfilegar skissur að áhorfandinn er íjarri því að vera ósnortinn af allri villimennskunni. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Vatnsenda, Vill., þingl. eigandi Ingimund- ur B. Garðarsson, fer fram á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 21. maí '91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Stofnlánadeild landbúnaðarins, Ævar Guð- mundsson hdl. og Jakob J. Havsteen hdl. Sýslumaðurinn i Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Klettahlíð 6, Hverageröi, þingl. eigandi Ástmundur Höskuldsson, fer fram á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 21. maí '91 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Fjárheimtan hf., Sigríður Thorlacius hdl. og Ásgeir Thoroddsen hrl. Sýslumaðurinn I Árnessýslu. Bæjarfógetinn.á Selfossi. Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættis- ins, Hörðuvölium 1: Miðvikudaginn 22. maí’91 kl. 10.00 Birkilundi, Laugarvatni, þingl. eigandi Laugalax hf. Uppboðsbeiðendur eru Ari ísberg hdl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Helgi V. Jónsson hrl. Kambahrauni 33, Hveragerði, þingl. eigandi Gunnar H. Jónsson. Uppboðsbeiðandi er Ari ísberg hdl. Kirkjuferju, Ölfushr., talinn eigandi Guðmundur Baldursson. Uppboðsbeiðendur eru Jón Magnússon hrl., Ingimundur Einarsson hdl. og Byggingasjóður ríkisins. Sýslumaðurinn i Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Laxabraut 19, Þorlákshöfn, þingl. eig- andi Fjörfiskur hf., fer fram á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 21. maí kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hrl., Jón Magnússon hrl., og Jón Kr. Sólnes hrl. Sýslumaðurinn i Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, tollstjórans i Reykjavík, skiptaréttar Reykjavíkur, Vöku hf., Bifreiðageymslunnar hf., og ýmissa lögmanna, banka og stofnana, veröur haldið opinbert upp- boð á bifreiöum, vinnuvélum o.fl. á Smiðshöfða 1 (Vöku hf.) laugar- daginn 18. maí 1991 og hefst það kl. 13.30. Seldar verða væntanlega eftirtaldar bifreiðar: A-12075 GZ-410 R-19953 R-77437 AB-781 GÞ-210 R-25914 R-77577 AH-494 HB-951 R-26514 S-1755 E-569 HM-011 R-27667 U-5810 FJ-484 HN-027 R-36245 X-673 FO-316 JX-175 R-38747 X-4209 FR-732 KE-137 R-46307 X-4345 FÞ-453 L-2230 R-46887 Y-1295 G-1455 P-1847 R-51784 Y-4093 G-3343 R-8588 R-55721 Ö-4916 G-26654 R-14291 R-59958 Ö-9736 GF-761 R-14531 R-69177 Ö-11623 GJ-236 R-14533 hestakerra fyrir 2 hesta sem er á 4 hjólum. Greiðsla við hamarshögg. Auk þess verða væntanlega seldar margar fleiri bifreiðar. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara eða gjaldkera. Uppboðshaldarínn í Reykjavík. TILBOÐ - ÚTBOÐ. BESSASTAÐAHREPPUR SKRIFSTOFA. BJARNASTÖÐUM SÍMI: 51950 221 BESSASTAÐAHREPPUR Útboð Bessastaðahreppur óskar hér með eftir til- boðum í gatnagerð, lagnir, yfirborðsfrágang og gerð gangstíga. Helstu magntölur: Fyllingar 4000 m3 Malbik 900 m2 Gangstéttar 180 m2 Jarðvegsskipti ístígum 1100m3 Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð skulu hafa borist til skrifstofu Bessa- staðahrepps, Bjarnastöðum, Bessastaða- hreppi, eigi síðar en þriðjudaginn 21. maí 1991 kl. 11.00 f.h. og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem viðstaddir kunna að verða. VERKFRÆÐISTOFA STEFÁNS OLAFSSONAR HF. rav. CONSULTING ENGINEERS ÐORGARTÚNI20 105 REYKJAVlK SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Sjálfstæðisfólk - Norðurlandi eystra Fögnum úrslitum kosninganna saman. Mætum i Kaupangi við Mýra- veg laugardagin 18. maí frá kl. 17.00-19.00. Léttar veitingar. Allir þeir, sem lögðu hönd á plóginn fyrir kosningar, eru velkomnir. Þingmenn okkar verða á staðnum. Sjálfstæðisfélögin. Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins Sumartími Frá 15. maí til 15. september verður skrifstofa Sjálfstæöisflokksins opin frá kl. 8.00 til 16.00 mánudaga til föstudaga. Sjálfstæðiskonur á Sauðárkróki Fundur verður i Sjálfstæðiskvennafélagi Sauðárkróks þriðjudaginn 21. maí kl. 20.30 i Sæborg. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsþing sjálfstæðiskvenna. 2. Gróðursetning. 3. Skemmtiferð sjálfstæðisfélaganna. 4. Önnur mál. Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Akureyri Fundur um sjávarútvegsmál verður haldinn i húsnæði flokksins í Kaupangi við Mýraveg sunnudaginn 20. maí kl. 20.00. Björn Dagbjartsson, formaður sjávarút- vegsnefndar Sjálfstæðisflokksins, mætir á fundinn og flytur erindi. Vörður FUS. FÉLAGSLÍF Frá Guðspeki- « félaginu Aðalfundur félagsins verður haldinn í húsi félagsins i kvöld kl. 21. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Sumarskólinn verður settur i húsi félagsins þann 27. júní og fram haldið á Flúðum dagana 28. júni - 1. júlí. Nánar í Mundilfara. 17. maí hátíðarsam- koma á þjóðhátíðardegi Norðmanna 17. maifest pá frelsisarmeen, Kirkjustræti 2, í kveld kl. 20.30. Spesielle gjester: Oberstinne Edle og Johnny Andersen. Veit- ingar. Söngur á ávarp á norsku. Verið velkomin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður David Petts. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU3 & 11798 19533 Dagsferðir Ferðafélags- ins um hvítasunnu 19. maí kl. 13.00: Kollafjörður - Álfsnes (fjöruferð). í fjörunni á Álfsnesi ber margt fyrir augu og hafa veður og vind- ar mótað klettana á sérkennileg- an hátt. Tilvalin fjölskylduferð. Verð kr. 800,-. 20. maí kl. 13.00: Keilir - Hverinn eini Keilir er 379 m y.s. og þekktur fyrir strýtumyndaða lögun. Út- sýni af Keili er mikið yfir Reykja- nesskagann og viðar. Létt ganga. Verð kr. 1.100,-. 22. mai kl. 20.00: Tröllafoss - Stardalur (kvöldganga) Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Helgina 24.-26. maí verður ferð til Vestmannaeyja. Helgarferðir til Þórsmerkur eru farnar hverja helgi Kynnið ykkur sumarleyfisferðir Ferðafélagsins. Verð komið á allar ferðir. Ferðafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 1953,- Góð ferðahelgi framundan: Hvítasunnuferðir Ferðafé- lagsins 17.-20. mai 1. Þórsmörk - Langidalur. Gistiaðstaða í Skagfjörðsskála er ein sú besta í óbyggöum. Ath. rútan verður i Þórsmörk yfir helgina. Það verður líf og fjör með fjölbreyttum göngu- ferðum og kvöldvökum. Sér- stakur fjölskylduafsláttur. Far- arstjóri: HilmarÞórSigurðsson. 2. Snæfellsnes - Snæfellsjökull. Jökullinn .hefur sitt aðdráttarafl en óteljandi aðrir möguleikar eru til skoðunar og gönguferða um þetta dulmagnaða svæði. Farið verður um svæði noröan Jökuls- ins m.a. gengið frá Öndverðar- nesi i Beruvík. Gist á Görðum í Staðarsveit. Silungsveisla. Stutt í sundlaug. Matsala á staðnum. Eyjasigling. Farar- stjórar: Jóhannes I. Jónsson og Kristján M. Baldursson. 3. Öræfajökull (Hvannadals- hnjúkur) - Skaftafell. Því ekki aö reyna aö sigra hæsta fjall landsins. Leiðbeint i jöklatækni áður en lagt er upp. Útbúnaðar- listi á skrifstofunni. Gengin Virk isjökulsleið, ein besta útsýnis- lerð á jökulinn. Fararstjórar: Anna Lára Friðriksdóttir og Árni Birgisson. 4. Skaftafell - Öræfasveit - Jökulsárlón. Göngu og ökuferð- ir. M.a. farið um nýju göngu- brúna á Morsá og gengið i Bæj- arstaðaskóg og jafnvel í hina litríku Kjós. Svefnpokagisting eða tjöld á Hofi. Fararstjóri: Ás- geir Pálsson. í hvítasunnuferð- um ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Munið að félagar fá afslátt í helgar- og lengri ferðirnar; skráið ykkur í Ferðafélagið. Pantið tfman- lega. Brottför kl. 20 i allar ferð- irnar. Símar 19533 og 11798. Fax: 11765. Ferðafélag íslands, ferðir fyrir þig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.